Morgunblaðið - 13.09.1998, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
„Ef maður nær
þeim punkti á lífs-
leiðinni, að börnin
eru vaxin úr grasi
og aðrar ástæður
binda mann ekki,
þá er þetta hið
ákjósanlegasta
fyrirkomulag. Ég
keypti íbúðina hér
fyrir sjö árum.“
gjöf. Fyrirmyndin var meistara-
nám í náms- og starfsráðgjöf við
Minnesotaháskóla."
Carol hefur síðan verið náms-
ráðgjöfum í Háskóla Islands góð-
ur bakhjarl. Hún segist mjög
ánægð með hvernig aðstoð við
nemendur hafi þróast, en tekur
fram, að þrátt fyrir að verið sé að
gera þar góða hluti sé nauðsynlegt
að efla starfsemina og fjölga ráð-
gjöfum.
Henni fínnst einnig skorta skiln-
ing á starfi námsráðgjafa innan
skólans. „Þegai’ ég var deildarfor-
seti í Minnesota sinntum við nem-
endum á svipaðan hátt og náms-
ráðgjöf HI gerir. Þar fyrir utan
reyndum við að leysa úr þvi, ef
kennari átti í vandræðum með
nemanda eða nemandi með kenn-
ara, einnig ef nemandi vildi hætta.
Við reyndum að grafast fyrir um
ástæðuna og á hvern hátt skólinn
gæti komið til móts við þarfír nem-
andans, hvort sem var vegna fjár-
hagsástæðna eða annarra
ástæðna."
Líður best með því að
hafa nóg fyrir stafni
Carol varð sjötug síðastliðið vor
en ber það ekki með sér. Hún er
kvik í hreyfingum og þeir sem til
hennar þekkja segja hana hafa
ómælda orku. Hún sé stöðugt að,
enda segir hún aðspurð að sér líði
best hafí hún nóg fyrir stafni.
Þrátt fyrir aldurinn kveðst Carol
ekki vera sest í helgan stein. Hún
hætti sem fastakennari fyrir fimm
árum vegna krabbameins, en ekki
leið á löngu þar til hún gerðist
gistiprófessor við háskóla í Finn-
landi og tók síðan að sér kennslu
aftur við Minnesotaháskóla. „Ég er
því ekki hætt, ég „emeritus“,“ seg-
ir hún svo brosandi. Hún svarar
með semingi þegar gengið er á
hana, að svo geti þó farið eftir
haustnámskeiðið, að hún hætti að
kenna við Minnesotaháskóla, því
þar séu breytingar í vændum. I
stað þriggja missera náms verður
þeim breytt í tvö. „Þar með breyt-
ast dagsetningarnar og þá getur
verið að ég verði að vera of langt
fram á veturinn í Minnesota... og
það vil ég ekki.“
Daginn eftir viðtalið sneri Carol
til baka til Minnesota, þar sem hún
mun kenna á námskeiði, sem fjallar
um Island. Hún ljómar þegar hún
segir frá því: „Ég var beðin um að
halda kynningarnámskeið fyrir
fólk sem lokið hefur doktorsnámi
en hefur ekki enn ákveðið hvað það
ætlar að taka sér fyrir hendur. Ég
mátti leggja til nokkur efni og
stakk upp á námskeiði um að velja
sér starfsvettvang, kynnast að-
stæðum fatlaðra í nútímaþjóðfélagi
eða fjalla um Island. Þegar ég
nefndi Island lifnaði yfír prófess-
omum og hann sagði strax: „Við
tökum það. Það er mest spenn-
andi.“
Ég hef haldið slíkt námskeið
einu sinni áður. Þar kem ég inn á
fjölmörg málefni, svo sem mennta-
kerfíð, landafræði, efnahagsmál,
sögu, tungumálið, vinnuaflið, hefðir
og venjur, svo nokkuð sé nefnt. Ég
er búin að kaupa bækur um Island
fyinr hundruð dollara. Og nú
hlakka ég til að byrja að kenna.
En ég kem aftur næsta sumar.
Það er engin hætta á öðru!“
Heim
ÞEGAR Carol kom til ís-
lands í embættiserindum
fyrir 16 árum datt henni
ekki í hug að hún ætti eftir
að taka þvílíku ástfóstri við land og
þjóð, að hún keypti íbúð og bíl og
eyddi hér hverju sumrinu á fætur
öðru. Hvað þá að hún léti sér til
hugar koma að hún ætti eftir að
gifta sig í Landakotskirkju átta ár-
um síðar, þá orðin ekkja.
Carol er einn þeirra íslandsvina,
sem erfítt er að skilja hvað rekur
til að leggja á sig ómælda vinnu og
viðvik til þess eins að koma landinu
á framfæri og greiða götu Islend-
inga erlendis. Carol ypptir öxlum
brosandi og svarar að eitt hafi leitt
af öðru. Henni finnist bara Island
frábært land og Islendingar yndis-
leg þjóð.
Heimili á þremur stöðum
Telst það ekki ákjósanleg staða fyrir fólk vel
komið á fullorðinsár að eiga heimili á þrem-
ur stöðum í heiminum, búa á hverjum stað
eftir árstíma, hafa vinnu í nokkra mánuði á
ári og geta þess á milli tekið það rólega og
notið þess sem lífíð býður upp á? Fyrir
Hildi Friðriksdóttur hljómar þetta eins og
draumur, en fyrir Islandsvininum prófessor
Carol Pazandac er þetta raunveruleikinn.
Morgunblaðið/Golli
PRÓFESSOR Carol Pazandac hefur gegnum tíðina lagt ýmislegt á
sig til að vinna að framgangi Islands og Islendinga í Minnesota.
Carol og Joe O’Shaughnessy,
síðari maður hennar, misstu maka
sína með stuttu millibili fyrir tæp-
um áratug. Þau höfðu verið góðir
vinir en ákváðu að gifta sig og
völdu Island til að láta gefa sig
saman. Með tímanum hafa þau
komið því þannig fyrir að þau flytja
á milli landa eftir árstíðum. Þau
dveljast í Minnesota á vorin og
haustin, þar sem Carol kennir við
Minnesotaháskóla. Yfir háveturinn
eru þau á Hawaii þar sem þau leika
golf, hitta vini, fá gesti í heimsókn
eða eins og Carol segir „njóta lífs-
ins“. Sumarmánuðunum eyða þau á
íslandi og þar blandar Carol yfír-
leitt saman vinnu og frítíma.
„Ef maður nær þeim punkti á
lífsleiðinni, að bömin eru vaxin úr
grasi og aðrar ástæður binda mann
ekki, þá er þetta hið ákjósanleg-
asta fyrirkomulag. Ég keypti íbúð-
ina hér fyrir sjö árum en þá hafði
ég fengið nóg af því að þurfa að
bjarga mér um húsnæði á hverju
sumri og kaupa allt til alls. Sama á
við um Hawaii. Þar keypti ég hús-
næði í fyrra eftir að hafa komið
þangað reglulega í mörg ár. Ég hef
verið á Islandi á öllum tímum árs-
ins. Sumrin hér era hreint frábær
og piér líður hvergi eins vel. Eftir
sextán ára viðdvöl eigum við líka
orðið fjölda vina hér á landi.“
Af hverju ísland?
Ástæðan fyrir komu Carol hing-
að til lands í upphafi var vegna
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
HJÓNIN Carol Pazandac og Joe O’Shaughnessy ræða við vini í kveðjuhdfi sem haldið var þeim til heið-
urs áður en þau héldu af landi þessu sinni.
undirritunar samstai-fssamnings
milli Háskóla íslands og
Minnesotaháskóla, þar sem kveðið
var á um nemenda- og kennara-
skipti. Fé til að standa straum af
kostnaði íslensku nemendanna er
safnað meðal velvildarmanna
Minnesotaháskóla og sér Carol um
fréttabréf tvisvar á ári. Það sendir
hún til ákveðins hóps og biður um
áframhaldandi styrk.
Að sögn Carol er nú verið að
reyna að efla kennaraskiptin og
eru skólamenn í Minnesota áhuga-
samir um að fá íslenskan kennara
til að halda námskeið um land og
þjóð út frá breiðum grundvelli. „Ef
þeir vilja koma út höfum við í huga
að greiða aukafjármagn vegna
kennslunnar. Það er eitt að senda
skiptinema á milli landa en annað
kennara. Þeir hafa mun víðtækari
og langvarandi áhrif."
Samstarf skólanna hefur einnig
þróast út í samvinnu á sviði jarð-
fræði og landafræði. „Fyrir nokkr-
um árum sátum við Gylfí Már Guð-
bergsson prófessor, sem lést fyrr á
þessu ári, á spjalli og ræddum um,
hvort ekki gæti verið áhugavert að
halda sumarnámskeið í jarð- og
landafræði. Ég stakk upp á því að
íslenskir nemendur kæmu til
Minnesota en bandarískir nemend-
ur gætu komið frá öllu landinu
hingað. Gylfa tókst að fá FuL
bright-stofnunina til þátttöku. I
þrjú ár gekk allt vel en þá dró Ful-
bright-stofnunin sig út úr sam-
starfínu en okkur tókst samt að út-
vega fé það sumarið. Næsta ár
stakk Sveinbjörn Björnsson þáver-
andi rektor upp á því, að hvor skóli
um sig legði fram 1.000 dollara fyr-
ir hvern nemanda sem kæmi og
var það gert. Nú lést Gylfí í sumar
og því varð ekkert úr námskeiðinu
og í Minnesota var enginn kennari
sem gat tekið verkefnið að sér, svo
ég veit ekki hveraig framhaldið
verður," segir Carol og kveður það
mjög miður detti það upp fyrir.
Bakhjarl námsráðgjafa
Það sem varð þó til þess að
Carol tengdist Háskóla Islands og
íslendingum meir en aðrir kennar-
ar Minnesotaháskóla var að hún
var fengin til að aðstoða við að
koma á námsráðgjöf við Háskóla
Islands. Hún hafði mikla reynslu af
þess konar starfi frá Minnesota.
„Þáverandi rektor, Guðmundur
Magnússon, hafði nýlega ráðið
Astu Kr. Ragnarsdóttur til að
byggja upp námsráðgjöfína og það
kom í minn hlut að veita ráðgjöf.
Það má segja að ég hafi fest í
þessu,“ segir hún brosandi og
kveðst ekki vera óánægð með það.
Hún sejgir að síðan hafi eitt leitt
af öðru. Asta fór utan til að kynna
sér námsráðgjöf í bandarískum há-
skólum og meðal annars í
Minnesota. Sjálf kom Carol hingað
í frí 1984 og kenndi á einu nám-
skeiði. í kjölfarið segist hún hafa
bent á, að formlegt nám yrði að
vera fyrir hendi innan háskólans,
ef námsráðgjöf á Islandi ætti að
geta þróast. „Gerður Oskarsdóttir
var þá kennslustjóri í kennslufræði
og við ásamt Astu unnum tillögur
að uppbyggingu náms í námsráð-
í þre
löndu