Morgunblaðið - 13.09.1998, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 13.09.1998, Blaðsíða 44
J* 44 SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ CARMEN dansar við nautabanann á óperusýningunni í nautahring í Ronda. 'V „DUENDE" OG HEIMS- LIST Á COSTA DEL SOL Fjölbreytt listalíf er á boðstólum fyrir íbúa og gesti Sólarstrandar Spánar. Örnólfur Árnason segir hér frá ýmsu af því helsta sem þar hefur verið á ferð í sumar. / IMESTA uppgangsstað í mót- töku útlendinga við Miðjarðar- hafíð, Costa del Sol, þar sem ^ gistirými hefur samkvæmt op- * inberum tölum verið betur nýtt í júlí og ágúst en í nokkrum öðrum bæ Spánar, hafa yfirvöld, a.m.k. um nokkurra ára skeið, verið mjög meðvituð um það að fólk vill hressa fleira en kroppinn í fríum sínum. Það þarfnast einnig andlegrar upp- lyftingar. Þvf hafa Málaga-borg, héraðsstjórnin í Málaga og sjálfs- stjórnar-júnta Andalúsíu mokað peningum í listastarfsemi að und- anförnu, enda skiptast hér á stór- viðburðir bæði á sviði klassískrar listar og þeirrar sem nýtur mestrar lýðhylli. Framboðið er mest í höf- uðborginni Málaga, en einnig í Nerja, Toiremolinos, Marbella og / fleiri bæjum á Sólarströndinni. Ferðamálaráð Costa del Sol hef- ur og til ráðstöfunar á þessu ári rösklega 600 milljónir peseta (yfír 300 miljónir ísl. kr.) og ver drjúgum hluta þess fjár til að styðja við heimsóknir frægra tónlistarmanna eins og t.d. Rolling Stones, Carlos Santana, Van Morrison o.fl. nú í sumar. Canales, kóngur flamenco-dansins I júní vakti einna mesta athygli sýning Antonios Canales og fla- menco-dansflokks hans. Canales er óefað skærasta stjarna flamenco- dansins um þessar mundir, þótt margir fleiri berjist um þann titil, svo sem ungi sígauninn og kvenna- gullið Joaquín Cortés sem tryllir fólk með poppuðum stíl sínum og arabískum trillum í tónlist sinni, og > gamla brýnið Antonio Gades, sem lék, dansaði og samdi dansana við kvikmyndina Carmen eftir Carlos Saura, sem margir Islendingar sáu á kvikmyndahátíð í Reykjavík fyrir allmörgum árum. Gades var reynd- ar á ferð hér í Málaga í maí sl. með glæsilega sýningu á dönsunum úr Carmen sem farið hefur sigurfór um heiminn í mörg ár og á vinsæld- ir sínar ekki síst að þakka frábærri flamenco-tónlist gítarleikarans snjalla, Pacos de Lucia, byggðri á laglínunum úr óperu Bizets. Þegar flestir þjóðarleiðtogar hins vestræna heims voru samankomnir á Spáni í fyrrasumar í tilefni af fundi Atlantshafsbandalagsins, var það Antonio Canales ásamt hóp sín- um sem fékk það hlutverk að sýna útlendu tignargestunum þá list sem e.t.v. er spænskust allra spænskra listgreina, þ.e.a.s. flamenco, þótt allir séu sammála um að rætur þessarar tónlistar teygi anga til Austurlanda og Afríku. Tvö verk voru á efnisskrá Cana- les, annað byggt á leikritinu Húsi Bernörðu Alba eftir Federico Gracía Lorca, hitt eins konar til- brigði við myndina Guernica eftir Pablo Ruiz Picasso. Efniviðurinn er sem sagt sóttur í tvo frægustu syni Andalúsíu á öldinni sem er að ljúka. Canales er óvenju stór og þrek- inn af dansara að vera. Hann er því einstaklega ógnvekjandi í hlutverki frú Bemörðu. Gífurleg tækni hans, ekki síst í stepp-dansi, og vald yfír breytingum á hraða og takti, er næstum yfirþyrmandi, en svo kem- ur í ljós að hann býr einnig yfír fín- um blæbrigðum og hrífandi þokka. I kóreógrafíunni notfærir Canales sér ýmsa dansstíla svo sem hefð nú- tímadans og blandar hana afar skemmtilega saman við hin feikna- ANTONIO Canales og Carmen Ternandez í dropasteinshellinum í Nerja á Costa del Sol. hröðu dansspor flamenco-dansins. Hjá dansflokki Canales er mest áhersla á hið sjónræna og t.d. lýs- ing og búningar með mestu ágæt- um. Canales tróð aftur upp með hóp sinn á listahátíð í Fuengirola á Costa del Sol 24. júlí. Rolling Stones Málaga var fyrsti viðkomustaður Rolling Stones á hljómleikafor þeirra um Spán með „Bridges to Babylon", sömu sýningu og kemur til Islands. Gestgjafarnir, Ferða- málaráð Costa del Sol, auglýsti Sto- nes sem „frægustu hljómsveit plánetunnar". Kostnaður við komu Stones til Málaga var áætlaður 650 milljónir peseta. Hljómleikarnir voni haldnir við höfnina og þurfti að byggja sérstakt svið, 54 m á breidd og 25 m á dýpt. Fram- kvæmdunum var líkt við að byggja níu hæða hús. Samkvæmt blaðavið- tölum við hljómleikahaldarana, taka Stones 1,5 milljónir dollara fyrir hvern konsert. Prentaðir voru tæplega 60 þúsund miðar sem kost- uðu 6-16 þúsund pesata eftir stað- setningu, eða 3-8 þúsund ísl. kr. og seldust upp. Fólk flykktist að frá útlöndum. Frá Bretlandi komu t.d. sjö sérstök leiguflug með tónleika- gesti og að minnsta kosti þrjár járnbrautarlestir. Mikill viðbúnaður var 14. júlí, þegar „afar popp-tónlistarinnar“ lentu á Málaga-flugvelli með 250 manna föruneyti sínu í tveimur stórum einkaþotum og þrömmuðu inn í flugstöðina sem kennd er við frægasta son Málaga, Pablo Ruiz Picasso. Síðan héldu Mick Jagger, Keith Richards og nokkrir fleiri til Hotel Byblos við Mijas-golfvöllinn í útjaðri Fuengirola (verð að sögn blaða ísl. kr. 90 þúsund per hótelí- búð á nóttu), þar sem þeir að eigin sögn dunduðu sér við golfleik og sódavatnsdrykkju meðan starfslið þeirra undirbjó tónleikana. Jagger ætlaði í kynnisferð til hinnar fögru fjallaborgar Ronda, en sneri við er hann átti 8 km leið ófarna þangað vegna þess að honum barst njósn af sæg ljósmyndara sem hugðust veita goðinu fyrirsát þar. Ymsir sérkennilegir samnings- skilmálar Stones um veitingar og viðurgerning voru umfjöllunarefni fjölmiðla, svo sem að á tónleikunum skyldu gestgjafarnir sjá þeim fyrir einu tonni af ísmolum og 300 ónot- uðum handklæðum sem aðeins hefðu verið þvegin einu sinni. Spurning er hvort þetta skilyrði er líka í samningnum vegna tónleik- anna í Reykjavík. Tónleikarnir við höfnina í Málaga voru stórkostlegir. Sviðið var magnað, byggt úr 400 tonnum af járni, ljósabúnaður og notkun ljósa í hæsta gæðaflokki heims, og 250 þúsund vatta hljóðkerfið dugði vel fyrir allan þennan mikla mann- fjölda. En það var þó fyrst og fremst hljómsveitin sjálf og stór- stjörnur hennar, einkum Mick Jag- ger og Keith Riehards, sem slógu algerlega í gegn og heilluðu áhorf- endur, jafnt unga sem gamla. Jag- ger var á sviðinu, syngjandi, dans- andi, hlaupandi og hoppandi á þriðju klukkustund, eins og hann hefði aldrei tekið inn neitt óhollara en vítamín og stundað líkamsrækt alla morgna síðustu fímmtíu ár. Keith Richards gerði feiknalukku með því að syngja þrjú lög, en ann- ars hljóp hann út og suður með gít- ar sinn eftir brúm og bryggjum leikmyndarinnar líkt og Jagger, og var sífellt að koma með eitthvað nýtt, óvænt og áhrifamikið. Það var ánægt fólk sem streymdi út af hafnarsvæðinu í Málaga eftir að hafa fengið að upplifa mesta „show“ sem nú er völ á í víðri ver- öld. Djass og popp Stöðugur straumur hefur verið til Costa del Sol nú í sumar af er- lendum listamönnum á sviði djass- og popptónlistar. Flestir troða upp í höfuðborginni, Málaga, enda eru borgarbúar líklega uppistaðan í hópi tónleikagesta, en fyrir erlenda ferðamenn, sem dvelja t.d. á gisti- stöðunum í Torremolinos og Benal- mádena Costa, Fuengirola eða Marbella, er yfirleitt ekki nema 15- 45 mínútna akstur til borgarinnar. Einn listamannanna, gítarleikar- inn Carlos Santana, fyllti næstum nautahringinn í Málaga, sem tekur hvorki meira né minna en 12 þús- und manns í sæti. Þar lék einnig ung söngstjarna og gítarleikari, Alejandro Sanz. Flestir aðrir koma fram í helsta leikhúsi borgarinnar sem kennt er við Cervantes, höfund Don Quixote. Meðal þeirra sem þar skemmtu í júlímánuði voru amer- íski gítarleikarinn George Benson, sem leikur djass og sólmúsík; íi-ski tónlistannaðurinn og tónskáldið Van Morrison með hljómsveit sína; fönk- og afródjass-hljómsveitin Earth, Wind & Fire frá Bandaríkj- unum; unga djass- söngkonan Cassandra Wilson, sem margir líkja við Billie Holiday eða Ellu Fitzgerald; blús-söngkonan fræga, Cesaria Evora, frá Grænhöfðaeyj- um; hinn frumlegi ítalski söngvari og tónskáld Franco Battiato; og djass-söngkonan þekkta, Marisa Monte, frá Brasilíu. Listviðburðir í Torremolinos Sólódansarar og dansflokkur frá Bolshoi-leikhúsinu í Moskvu hafa verið á ferðinni á Costa del Sol. Þeir héldu m.a. frábæra sýningu I Torremolinos í júlí. í hópnum var m.a. aðaldansmærin Alla Mik- halchenko og Liubov Filippova, Anna Ivanova, Andrei Evdokimov, Gueorgi Gueraskin og Maxim Valukin. A efnisskránni var syrpa af sóló-dansnúmerum fyrir hlé, en eftir hlé þriðji og síðasti þáttur af ballettinum Þyrnirós við tónlist Tsjækovskís. Sýningin vakti geysi- mikla hrifningu áhorfenda, sem að miklum hluta voru útlendingar,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.