Morgunblaðið - 13.09.1998, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
207. TBL. 86. ÁRG. SUNNUDAGUR13. SEPTEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Bondevik
enn veikur
Ósl<í. Reuters.
VEIKINDALEYFI Kjells Magnes
Bondeviks, forsætisráðheiTa Nor-
egs, var í gær framlengt um hálfa
aðra viku. Er þetta í annað sinn sem
veikindaleyfið er lengt, en í tilkynn-
ingu forsætisráðuneytisins segir að
heilsa Bondeviks fari hægt og rólega
batnandi.
Hvorki hefur heyrst né sést til
Bondeviks frá því að hin óvænta til-
kynning um að hann yrði að taka sér
frí vegna of mikils álags, barst 31.
ágúst sl. Bondevik er sagður þjást af
þunglyndiseinkennum en vera á
batavegi. Hann hafi ekki verið lagð-
ur inn á sjúkrahús. Hermt er að for-
sætisráðherrann dvelji í fjallakofa
ásamt eiginkonu sinni um 200 km
norður af Ósló.
í fjarveru Bondeviks gegnir Anne
Enger Lahnstein menningarmála-
ráðherra embætti hans.
---------------
Nyrup vill
halda sam-
bandinu
Þórshöfn. Morgunblaðið.
POUL Nyi-up Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, sem nú er í
heimsókn í Færeyjum, segir að þótt
Færeyingum sé í sjálfsvald sett
hvort þeh- lýsi yfir sjálfstæði vilji
hann gjarnan halda sambandinu við
eyjarnar.
„Ég tel að Færeyingar og Danir
hafi margt að færa hvorir öði-um. Og
það skal ekki leika nokkur vafi á því
að ég óska þess að Færeyjar verði
áfram í ríkjasambandi við Dan-
mörku,“ sagði Nyrup.
Högni Hoydal, sem fer með sjálf-
stjórnarmál í færeysku stjórninni,
hefur lýst yfir ánægju sinni með
heimsókn Nyiups. Hann leggur
áherslu á að Færeyingar óski ekki
sjálfstæðis vegna óánægju með
Dani, heldur vegna þess að þeir vilji
bera fulla ábyrgð á landi sínu.
-----------*-*-*----
Hljóðritinn
fundinn
Toronto. Reuters.
KAFARAR fundu í fyrrakvöld
seinni flugritann úr þotu Swissair-
flugfélagsins sem fórst undan strönd
Kanada í síðustu viku. Um er að
ræða hljóðrita vélarinnar, sem
geymir upptökur af samtölum flug-
manna í flugstjórnarklefanum.
Fundui' hljóðritans ýtir undir von-
ir rannsóknarmanna um að takast
megi að komast að því hvers vegna
þotan fórst.
Skýrsla Kenneth Starrs vekur umræðu um allan heim
Óvissa um við-
brögð almennings
Washington. Reuters.
SKYRSLA Kenneth Starrs til Bandaríkjaþings og sú
ákvörðun þingsins að gera hana opinbera hefur vakið
mikla athygli um allan heim en enn ríkir óvissa um
það hver verði viðbrögð bandarísku þjóðarinnar. Sam-
kvæmt skoðanakönnun, sem sjónvai-psstöðin ABC lét
gera á föstudagskvöld efth- að efni skýrslunnar var
orðið opinbert, telja 57% aðspurðra að höfða eigi mál
til embættismissis á hendur forsetanum ef sannað
þykir að hann hafí
hvatt Monicu
Lewinsky til að
segja ósatt um
samband þeirra.
Hins vegar segjast
56% aðspurðra
sátt við störf Clint-
ons sem forseta og
er það áþekkt
hlutfall og áður en
skýrslan kom út.
I forystugrein
The New York
Times í gær segir
að hvemig sem
fari muni forset-
ans, sem gerði sér
vonir um að verða
minnst fyrir fé-
lagslegar umbæt-
ur, þess í stað
verða minnst fyrir
„fáfengilegan
smekk og hegðun,
og fyrir þá óvirð-
ingu sem hann
sýndi híbýlum er
njóta tignar sem
tákn um virðuleik
forsetaembættis-
ins“. Leitt er að
því getum að
Clinton hefði kom-
ist farsællega frá
málinu ef hann
hefði sagt sann-
leikann frá upp-
hafí og strax beðið
þjóðina afsökunar.
Nú sé ekki víst
hvort honum sé
áfram sætt á for-
setastóli. Blaðið tekur ekki beina afstöðu til þess hvort
Clinton eigi að segja af sér, en skýrt er tekið fram að
forseti sem njóti ekki virðingar þjóðai'innar eða stuðn-
ings þingsins geti ekki enst rembætti.
Gæti ekki hafa komið upp á verri tíma
í forystugreinum margra dagblaða í Evrópu og As-
íu var Clinton hvattur til að segja af sér. Flestir virt-
ust sammála um að málið gæti ekki hafa komið upp á
verri tíma, þegar blikur væru á lofti í Rússlandi og
víðar og efnahagskreppa vofði yfir heiminum. Margir
virtust óttast að kreppa í bandarískum stjórnmálum
yrði til þess að veikt heimshagkerfið riðaði til falls.
í breska síðdegisblaðinu The Sun sagði í forystu-
grein að Clinton væri „óhæfur til að gegna forsetaemb-
ætti“ og ætti að segja af sér. The Express birti frétt
um Hillary Rodham Clinton eiginkonu hans undir fyr-
irsögninni „Ég stend ávallt með þér ... viðurstyggilega
kvikindið þitt.“
Fjölmiðlar í
Thailandi og
Singapore birtu
ekki þá þætti
skýrslunnar sem
innihéldu ná-
kvæmar lýsingar á
kynferðislegum
samskiptum for-
setans og Monicu
Lewinsky. Það
gerðu hins vegar
fjölmiðlar í Suður-
Kóreu, og haft var
eftir miðaldra hús-
móður í Seoúl að
málið væri hræði-
lega vandræða-
legt. „Bandaríkja-
menn hefðu átt að
fjalla um þetta á
varfærnari hátt.
Hvernig á forset-
inn nú að geta
staðið frammi fyr-
ir börnurn?"
Nýtt McCarthy-
tímabil
Fjölmiðlar í
Frakklandi, þar
sem hugtakið
„kynlífshneyksli"
er nánast þver-
sögn, deildu á
Bandaríkin fyrir
að gera ástarlíf
forsetans að
vandamáli alls
heimsins. Stærsta
dagblað Frakk-
lands, Le Monde
lýsti saksókaranum Kenneth Starr sem „skrímsli" og
sakaði hann um að reyna að koma á „hrollvekjandi sið-
ferðislögmáli, þar sem kynlíf er nátengt synd og þar
sem kynferðislegt samband tvpggja fullorðinna hlýtur
að vera eitthvað hræðilegt". Ástandinu í Washington
líkti blaðið við nýtt McCarthy-tímabil, þar sem ótti við
kynferðismál hefði komið í stað óttans við kommún-
ismann.
■ Sjá nánar bls. 19-21.
Reuters.
BILL Clinton og eiginkona hans tóku á föstudag þátt í minning-
arsamkomu um fórnarlömb sprengjutilræðanna í Afríku ásamt
A1 Gore varaforseta.
Bin Laden
í stofu-
fangelsi?
London. Reuters.
TALEBANAR vísuðu í gær á bug
fréttum um að sádí-arabíski hryðju-
verkamaðurinn Osama Bin Laden
hefði verið settur í stofufangelsi í
Afganistan.
Arabíska dagblaðið AI Quds, sem
gefið er út í Lundúnum, sagðist í
gær hafa heimildir fyrir því að Tale-
banar, sem fara með völd í
Afganistan, hefðu sett Bin Laden í
stofufangelsi. B andaríkj astj órn hef-
ur sakað hann um að bera ábyrgð á
fjölmörgum hermdarverkum, þar á
meðal mannskæðum sprengjutil-
ræðum í Kenýa og Tansaníu fyrir
skömmu. Þá hafði blaðið eftir sam-
starfsmönnum Bin Ladens að hon-
um hefði verið bannað að gefa út
pólitískar yfirlýsingar.
Islamska fréttastofan AIP hafði
hins vegar í gær eftir talsmanni
Talebana í borginni Kandahar í suð-
urhluta Afganistan, að Bin Laden
væri frjáls ferða sinna og vísaði því
jafnframt á bug að til stæði að reka
hann úr landi. Talsmaðurinn stað-
festi þó að Bin Laden hefði verið
beðinn um að tjá sig ekki um stjórn-
mál.
-----♦-♦-♦---
Umdeildur
bæjarstjóri
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
er ekki eini stjórnmálamaðurinn
sem á nú á hættu áð missa emb-
ættið vegna kynferðismála. Nor-
bert Michael Lindner, karlkyns
bæjarstjóri í smábænum Qu-
ellendorf í Þýskalandi, tilkynnti í
sumar að hann hygðist þaðan í
frá klæðast kvenmannsfótum og
að hann myndi í framtíðinni
gangast undir kynskiptaaðgerð.
Margir bæjarbúa brugðust
ókvæða við þessum tíðindum og
kreljast þess nú að hann verði
leystur frá störfum.
Aðstoðarbæjarstjórinn, Uwe
Pforte, heldur því fram að
Lindner hafi brugðist trausti
kjósenda sinna, og hefur honum
nú tekist að fá samþykki fyrir
því að atkvæðagreiðsla verði
haldin í nóvember um framtíð
hans í embætti. „Við kusum
karlmann en ekki konu. Hann
hefði átt að láta okkur vita af
þessu áður en við kusum hann,“
sagði Pforte.
Lindner á eiginkonu og fjórar
dætur, sem allar hafa stutt liann
dyggilega.
Hvers vi
er landift
okkar?
i'ði
*
Asýnd Héraðs mun
breytast mikið