Morgunblaðið - 13.09.1998, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 13.09.1998, Qupperneq 26
26 SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ „Ef maður nær þeim punkti á lífs- leiðinni, að börnin eru vaxin úr grasi og aðrar ástæður binda mann ekki, þá er þetta hið ákjósanlegasta fyrirkomulag. Ég keypti íbúðina hér fyrir sjö árum.“ gjöf. Fyrirmyndin var meistara- nám í náms- og starfsráðgjöf við Minnesotaháskóla." Carol hefur síðan verið náms- ráðgjöfum í Háskóla Islands góð- ur bakhjarl. Hún segist mjög ánægð með hvernig aðstoð við nemendur hafi þróast, en tekur fram, að þrátt fyrir að verið sé að gera þar góða hluti sé nauðsynlegt að efla starfsemina og fjölga ráð- gjöfum. Henni fínnst einnig skorta skiln- ing á starfi námsráðgjafa innan skólans. „Þegai’ ég var deildarfor- seti í Minnesota sinntum við nem- endum á svipaðan hátt og náms- ráðgjöf HI gerir. Þar fyrir utan reyndum við að leysa úr þvi, ef kennari átti í vandræðum með nemanda eða nemandi með kenn- ara, einnig ef nemandi vildi hætta. Við reyndum að grafast fyrir um ástæðuna og á hvern hátt skólinn gæti komið til móts við þarfír nem- andans, hvort sem var vegna fjár- hagsástæðna eða annarra ástæðna." Líður best með því að hafa nóg fyrir stafni Carol varð sjötug síðastliðið vor en ber það ekki með sér. Hún er kvik í hreyfingum og þeir sem til hennar þekkja segja hana hafa ómælda orku. Hún sé stöðugt að, enda segir hún aðspurð að sér líði best hafí hún nóg fyrir stafni. Þrátt fyrir aldurinn kveðst Carol ekki vera sest í helgan stein. Hún hætti sem fastakennari fyrir fimm árum vegna krabbameins, en ekki leið á löngu þar til hún gerðist gistiprófessor við háskóla í Finn- landi og tók síðan að sér kennslu aftur við Minnesotaháskóla. „Ég er því ekki hætt, ég „emeritus“,“ seg- ir hún svo brosandi. Hún svarar með semingi þegar gengið er á hana, að svo geti þó farið eftir haustnámskeiðið, að hún hætti að kenna við Minnesotaháskóla, því þar séu breytingar í vændum. I stað þriggja missera náms verður þeim breytt í tvö. „Þar með breyt- ast dagsetningarnar og þá getur verið að ég verði að vera of langt fram á veturinn í Minnesota... og það vil ég ekki.“ Daginn eftir viðtalið sneri Carol til baka til Minnesota, þar sem hún mun kenna á námskeiði, sem fjallar um Island. Hún ljómar þegar hún segir frá því: „Ég var beðin um að halda kynningarnámskeið fyrir fólk sem lokið hefur doktorsnámi en hefur ekki enn ákveðið hvað það ætlar að taka sér fyrir hendur. Ég mátti leggja til nokkur efni og stakk upp á námskeiði um að velja sér starfsvettvang, kynnast að- stæðum fatlaðra í nútímaþjóðfélagi eða fjalla um Island. Þegar ég nefndi Island lifnaði yfír prófess- omum og hann sagði strax: „Við tökum það. Það er mest spenn- andi.“ Ég hef haldið slíkt námskeið einu sinni áður. Þar kem ég inn á fjölmörg málefni, svo sem mennta- kerfíð, landafræði, efnahagsmál, sögu, tungumálið, vinnuaflið, hefðir og venjur, svo nokkuð sé nefnt. Ég er búin að kaupa bækur um Island fyinr hundruð dollara. Og nú hlakka ég til að byrja að kenna. En ég kem aftur næsta sumar. Það er engin hætta á öðru!“ Heim ÞEGAR Carol kom til ís- lands í embættiserindum fyrir 16 árum datt henni ekki í hug að hún ætti eftir að taka þvílíku ástfóstri við land og þjóð, að hún keypti íbúð og bíl og eyddi hér hverju sumrinu á fætur öðru. Hvað þá að hún léti sér til hugar koma að hún ætti eftir að gifta sig í Landakotskirkju átta ár- um síðar, þá orðin ekkja. Carol er einn þeirra íslandsvina, sem erfítt er að skilja hvað rekur til að leggja á sig ómælda vinnu og viðvik til þess eins að koma landinu á framfæri og greiða götu Islend- inga erlendis. Carol ypptir öxlum brosandi og svarar að eitt hafi leitt af öðru. Henni finnist bara Island frábært land og Islendingar yndis- leg þjóð. Heimili á þremur stöðum Telst það ekki ákjósanleg staða fyrir fólk vel komið á fullorðinsár að eiga heimili á þrem- ur stöðum í heiminum, búa á hverjum stað eftir árstíma, hafa vinnu í nokkra mánuði á ári og geta þess á milli tekið það rólega og notið þess sem lífíð býður upp á? Fyrir Hildi Friðriksdóttur hljómar þetta eins og draumur, en fyrir Islandsvininum prófessor Carol Pazandac er þetta raunveruleikinn. Morgunblaðið/Golli PRÓFESSOR Carol Pazandac hefur gegnum tíðina lagt ýmislegt á sig til að vinna að framgangi Islands og Islendinga í Minnesota. Carol og Joe O’Shaughnessy, síðari maður hennar, misstu maka sína með stuttu millibili fyrir tæp- um áratug. Þau höfðu verið góðir vinir en ákváðu að gifta sig og völdu Island til að láta gefa sig saman. Með tímanum hafa þau komið því þannig fyrir að þau flytja á milli landa eftir árstíðum. Þau dveljast í Minnesota á vorin og haustin, þar sem Carol kennir við Minnesotaháskóla. Yfir háveturinn eru þau á Hawaii þar sem þau leika golf, hitta vini, fá gesti í heimsókn eða eins og Carol segir „njóta lífs- ins“. Sumarmánuðunum eyða þau á íslandi og þar blandar Carol yfír- leitt saman vinnu og frítíma. „Ef maður nær þeim punkti á lífsleiðinni, að bömin eru vaxin úr grasi og aðrar ástæður binda mann ekki, þá er þetta hið ákjósanleg- asta fyrirkomulag. Ég keypti íbúð- ina hér fyrir sjö árum en þá hafði ég fengið nóg af því að þurfa að bjarga mér um húsnæði á hverju sumri og kaupa allt til alls. Sama á við um Hawaii. Þar keypti ég hús- næði í fyrra eftir að hafa komið þangað reglulega í mörg ár. Ég hef verið á Islandi á öllum tímum árs- ins. Sumrin hér era hreint frábær og piér líður hvergi eins vel. Eftir sextán ára viðdvöl eigum við líka orðið fjölda vina hér á landi.“ Af hverju ísland? Ástæðan fyrir komu Carol hing- að til lands í upphafi var vegna Morgunblaðið/Jón Svavarsson HJÓNIN Carol Pazandac og Joe O’Shaughnessy ræða við vini í kveðjuhdfi sem haldið var þeim til heið- urs áður en þau héldu af landi þessu sinni. undirritunar samstai-fssamnings milli Háskóla íslands og Minnesotaháskóla, þar sem kveðið var á um nemenda- og kennara- skipti. Fé til að standa straum af kostnaði íslensku nemendanna er safnað meðal velvildarmanna Minnesotaháskóla og sér Carol um fréttabréf tvisvar á ári. Það sendir hún til ákveðins hóps og biður um áframhaldandi styrk. Að sögn Carol er nú verið að reyna að efla kennaraskiptin og eru skólamenn í Minnesota áhuga- samir um að fá íslenskan kennara til að halda námskeið um land og þjóð út frá breiðum grundvelli. „Ef þeir vilja koma út höfum við í huga að greiða aukafjármagn vegna kennslunnar. Það er eitt að senda skiptinema á milli landa en annað kennara. Þeir hafa mun víðtækari og langvarandi áhrif." Samstarf skólanna hefur einnig þróast út í samvinnu á sviði jarð- fræði og landafræði. „Fyrir nokkr- um árum sátum við Gylfí Már Guð- bergsson prófessor, sem lést fyrr á þessu ári, á spjalli og ræddum um, hvort ekki gæti verið áhugavert að halda sumarnámskeið í jarð- og landafræði. Ég stakk upp á því að íslenskir nemendur kæmu til Minnesota en bandarískir nemend- ur gætu komið frá öllu landinu hingað. Gylfa tókst að fá FuL bright-stofnunina til þátttöku. I þrjú ár gekk allt vel en þá dró Ful- bright-stofnunin sig út úr sam- starfínu en okkur tókst samt að út- vega fé það sumarið. Næsta ár stakk Sveinbjörn Björnsson þáver- andi rektor upp á því, að hvor skóli um sig legði fram 1.000 dollara fyr- ir hvern nemanda sem kæmi og var það gert. Nú lést Gylfí í sumar og því varð ekkert úr námskeiðinu og í Minnesota var enginn kennari sem gat tekið verkefnið að sér, svo ég veit ekki hveraig framhaldið verður," segir Carol og kveður það mjög miður detti það upp fyrir. Bakhjarl námsráðgjafa Það sem varð þó til þess að Carol tengdist Háskóla Islands og íslendingum meir en aðrir kennar- ar Minnesotaháskóla var að hún var fengin til að aðstoða við að koma á námsráðgjöf við Háskóla Islands. Hún hafði mikla reynslu af þess konar starfi frá Minnesota. „Þáverandi rektor, Guðmundur Magnússon, hafði nýlega ráðið Astu Kr. Ragnarsdóttur til að byggja upp námsráðgjöfína og það kom í minn hlut að veita ráðgjöf. Það má segja að ég hafi fest í þessu,“ segir hún brosandi og kveðst ekki vera óánægð með það. Hún sejgir að síðan hafi eitt leitt af öðru. Asta fór utan til að kynna sér námsráðgjöf í bandarískum há- skólum og meðal annars í Minnesota. Sjálf kom Carol hingað í frí 1984 og kenndi á einu nám- skeiði. í kjölfarið segist hún hafa bent á, að formlegt nám yrði að vera fyrir hendi innan háskólans, ef námsráðgjöf á Islandi ætti að geta þróast. „Gerður Oskarsdóttir var þá kennslustjóri í kennslufræði og við ásamt Astu unnum tillögur að uppbyggingu náms í námsráð- í þre löndu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.