Morgunblaðið - 27.09.1998, Blaðsíða 48
^ 48 SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Hundalíf
[TTn riSer suo $ott iehg
ab merdattífujg aö
bjóia nokJzrum tfinum .
6/22 'fl J»
Ljóska
ANVWAY, I CAN'T TALK
o NOW.J’M M0VIN6 MY
1 THIN65 INTO HI5 ROOM.
Halló, Kalli? Bróðir minn er
ekki hérna...
hann var að fara í
sumarbúðir...
Sumarbúðir? Ég Ég veit ekki..
hélt að hann færi Kannski skipti
ekki í ár ... hann um skoð-
un...
Hvað um það, ég get ekki talað
núna ... ég er að flytja dótið mitt
inn í herbergið hans ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Banaslys í umferð 1/1-14/8 1998
Fiáidí látinna IkEl biíreiöura í bl&eiöum
Gangandi ökumenn Farþegar l fólksbifreiöura Farþegar i hópbi&eiöum
Belti Anb. Belti An b. Belti An b.
17 1 5 6 2 2 1
Alls hafa 17 ipanns látist á árinu. ar afvom 16 1 hi jeiöum. betrra voru ekki« belU.
Til samanburdar síðustu ér
Arið 1997
"Fjöldl látirma M1 bifreiðum I bifreiðum
GengThjólandi ökumenn Farþegar í fólksbifreiðum Okuraaöur biíhjóls
Belti An b. IBeltr Anb. Hiilm An h.
15 g 2 1 3 2 l 0
Aínwi?5St Árið 1996 15 manns.þaraf voru 8 í jifreiðum , 3 þeirra voru ekl ki í belti.
TjaHI látinna 1051 bifreiðura í bifreiöum
GangThjóIandi ökumenn Farþegar í fólksbifreiðura FarþegarI hópbifreiöum
TiItT- An b. Beltr An b. Belti Anb.
55 3 3 2 2 0 0 0
Banaslysum fjölg-
ar í umferðinni
Frá Hlyni Jónassyni:
BANASLYSUM í umferðinni hef-
ur fjölgað talsvert á þessu ári og er á
þeim töluverð aukning frá því í íyira
og árið þar áður.
Þetta er þróun
sem Slysavarna-
félag íslands og
allfr þeir sem að
öryggismálum og
slysavömum
standa hafa mikl-
ar áhyggjur af.
Er svo komið að
það líður vart sú
vika að ekki verði
banaslys í umferðinni.
Arið 1996 létust tíu einstaklingar
í umferðinni, sjö þeirra voru í bif-
reiðum, tveir þeirra voru ekki í
beltum. Ari síðar fór fjöldi látinna í
fímmtán, þar af voru átta í bifreið-
um og þrír sem ekki voru í beltum.
A þeim rúmlega átta mánuðum sem
eru liðnir af þessu ári hafa nítján
manns látist í umferðinni sem er
mesti fjöldi á fyrstu átta mánuðum
árs á þessum áratug.
Af þessum nítján einstaklingum
voru sautján í bifreiðum, níu þeirra
vora hins vegar ekki í beltum, og
má segja að í flestum ef ekki öllum
þeim tilvikum þar sem belti vora
ekki notuð hefðu þau bjargað
mannslífum. Þetta eru skýr skila-
boð um nauðsyn þess að spenna
beltin, þau geta bjargað lífi okkar
og þau geta forðað okkur frá varan-
legri fötlun.
Það er ljóst að mikil vinna er
framundan í umferðarslysavörnum.
Þegar sorglegar tölur á borð við
þessar era fyrir framan okkur þá
verðum við að bretta upp ermarn-
ar, forvarnir gegna lykilhlutverki í
að stuðla að færri slysum.
Það sem er jafnvel enn mikilvæg-
ara er að við ökumenn lítum líka í
eigin barm, kennum ekki bara öðr-
um um þá umferðarmenningu sem
okkur þykir miður. Við þurfum að
sýna gott fordæmi, aka gætilega,
bera virðingu fyrir öðrum öku-
mönnum og þeim reglum sem í um-
ferðinni gilda. Það eru tveir ótrú-
lega mikilvægir þættir sem við
þurfum öll að huga betur að,
spenna beltin og sýna tillitssemi.
Tillitssamur ökumaður er gulls
ígildi og er ekki aðeins líklegur til
að vera frábær kennari fýrir far-
þega sína heldur hefur hann einnig
ótrúlega jákvæð áhrif á aðra öku-
menn og umferð í kringum sig.
Nú þegar veturinn nálgast aukast
því miður líkur á umferðaróhöppum,
bleyta, hálka og myrkrið era allt
áhrifavaldar að slysum og ef ekki er
farið gætilega er voðinn vís.
Það er komið nóg af banaslysum,
látum þessar tölur sem hér komu
fram segja okkur eitthvað, þetta er
verkefni sem kemur öllum við, að
fækka slysum, það er jú örugglega
draumur okkar allra að eiga þátt í
að það takist en við eigum langt í
land og þurfum að vera vel vakandi.
Góða ferð, spennum beltin, sýn-
um tillitssemi og komum heil heim.
Gangi ykkur vel.
HLYNUR JÓNASSON,
deildarstjóri slysavarnanefndai-
Slysavarnafélags íslands.
Hlynur
Jdnasson
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt i upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskiiur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. í>eir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
MAMMA
Allt sem þig vantar
ÞUMALÍNA
Pósthússtræd 13, sími 551 2136.
Barnaskór
SMÁSKÓR
f bláu húsi við Fákafen,
sími 568 3919