Morgunblaðið - 12.11.1998, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Atta feður hjá Reykjavíkurborg fóru í þriggja mánaða feðraorlof í fyrra
_ Morgunblaðið/Jón Svavarsson
FORSYNING var á sjónvarpsmyndinni um feðraorlof í Höfða í vikunni og mættu þar forystumenn Reykjavíkurborgar og aðstandendur myndar-
innar. F.v. Guðmundur Kristjánsson, Sonja B. Jónsdóttir, Guðbergur Davfðsson, Kolbrún Jarlsdóttir, Hildur Jónsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, Kristín Blöndal og Steinunn Valdís Óskarsdóttir.
JAFNRÉTTISNEFND Reykjavfk-
urborgar stóð í fyrra fyrir tilraun
sem fólst í því að átta feður fóru í
langt feðraorlof. Sjónvarpsmynd
var gerð um verkefnið og verður
hún sýnd í Ríkissjónvarpinu í lok
þessa mánaðar. Éinn þeirra feðra
sem tóku þátt í verkefninu var
Siguijón Valmundarson slökkvi-
liðsmaður, en hann og kona hans,
Ásta S. Svavarsdóttir, eignuðust
dóttur 8. mars í fyrra. Hún heitir
Hildur Kolfinna.
Sigurjón sagði að vinnufélagar
jafnt sem fjölskyldan hefðu verið
mjögjákvæð gagnvart þeirri
ákvörðun hans að taka þriggja
mánaða feðraorlof. Margir feður
hefðu sagt að þeir hefðu viljað
hafa tækifæri til að gera þetta
sjálfir.
Barnið tók allan timann
„Ég var búinn að ákveða áður
en ég fór í orlofið að ég myndi
nota tímann til að gera ýmislegt
hér heima. Ég á eftir að klára
ýmislegt í sambandi við húsið.
Það varð hins vegar nánast ekk-
ert úr því. Til þess vannst einfald-
lega ekki tími. Tíminn fór allur í
að annast barnið og sinna heimil-
isverkum. Þetta var því meiri
vinna en maður reiknaði með. Ef
barnið svaf illa og var pirrað var
maður eðlilega þreyttur og það
kom niður á heimilisverkunum.“
Aðrir feður sem komu fram í
sjónvarpsmyndinni voru sammála
Sigurjóni um að vinnan við um-
önnun barna fyrst eftir fæðingu
væri mikil og mun meiri en þeir
hefðu reiknað með.
Sigurjón sagði að Hildur
Kolfinna hefði alls ekki verið
erfitt barn og sofið vel flestar
nætur. Það væri því ekki hægt
að tala um að álagið á foreldr-
ana hefði verið óvenjulega
mikið hjá þeim.
Siguijón sagði að verkaskipt-
ing á heimilinu hefði ekki breyst
við það að hann hefði tekið
feðraorlof. Hann kvaðst alla tíð
hafa tekið virkan þátt í heimilis-
störfum til jafns við Ástu. Breyt-
ingin væri frekar sú að með
feðraorlofinu hefði sér gefist
tækifæri til að taka þátt í uppeldi
barnsins þessa fyrstu mánuði til
jafns við Ástu. Eftir að Ásta fór
að vinna hefði uppeldið hvílt
meira á sér þá tvo mánuði sem
hann var einn heima barnið.
Siguijón sagði að kosturinn við
að geta verið alfarið heima hjá
baminu væri ekki eingöngu sá að
tíma. Hún sagði að löggjafmn
ætti hins vegar að sjá svo um að
feður yrðu að taka hluta af fæð-
ingarorlofinu. Konur væru
dæmdai- sem verri starfskraftar
ef þær þyrftu að taka allt fæðing-
arorlofið. Þess væru dæmi að
vinnuveitendur spyrðu konur sem
sæktu um starf hvort þær áform-
uðu að eignast barn á næstu ár-
um, en karlar fengju ekki slíka
spurningu. Það ætti að sjálfsögðu
að vera samkomulagsatriði milli
hjóna hvernig þau skiptu verkum
inni á heimilinu. þar með talið
uppeldi barna. Ásta sagðist hins
vegar telja að löggjafínn ætti að
leggja ákveðnar lágmarksskyldur
á feður hvað þetta varðar.
Rannsóknin kynnt á ráðstefnu
Jafnréttisnefnd Reykjavíkur-
borgar heldur ráðstefnu um
feðraorlof 20. nóvember nk. þar
sem niðurstöður rannsókna Þor-
gerðar Einarsdóttur félagsfræð-
ings úr verkefninu verða kynnt-
ar. Þorgerður vann svokallaða
eigindlega rannsókn, en hún
byggist á því að taka ítarleg við-
töl við þátttakendur í tilrauninni.
Það var jafnréttisnefnd
Reykjavíkurborgar sem sam-
þykkti í júlí 1996 að fara út í
þetta verkefni, en það var unnið í
samráði við Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar og Kvenfé-
lagasamband íslands. Verkefnið
kostaði 8,8 milljónir að frátöldum
launakostnaði feðranna, en þeir
héldu fullum launum að mestu í
fæðingarorlofinu. Evrópusam-
bandið styrkti verkefnið með 4,1
milljónar króna framlagi, en
þetta er fyrsta íslenska verkefnið
sem hlýtur styrk frá ESB.
Mikil vinna að
annast ungbörn
eftir fæðingu
✓
Atta feður sem starfa hjá Reykjavíkurborg
fóru í fyrra í þriggja mánaða feðraorlof.
Samhliða var gerð rannsókn á því hvernig
til tókst með það að markmiði að afla vit-
neskju um afstöðu karla til fæðingarorlofs
og hvaða tilhögun á orlofí hentaði þeim best.
Andlát
ANNA
ÞÓRHALLSDÓTTIR
SÖNGKONA
ANNA Þórhallsdóttir
söngkona er látin, 94
ára að aldri.
Anna fæddist 27.
september árið 1904 á
Höfn í Homarfirði,
dóttir hjónanna Þór-
halls Daníelssonar,
kennara og síðar kaup-
manns og útgerðar-
manns, og Ingibjargar
Friðgeirsdóttur.
Anna stundaði nám
við Kvennaskólann í
Reykjavík á árunum
1919 til 1922 en hélt til
Kaupmannahafnar í
söngnám hjá Kristine Hoffman,
söngkennara, árið 1923. Hún hóf
nám við Juillard-tónlistarskólann í
New York árið 1945 og var hún þar
tvö skólatímabil hjá Bell Julie
Saudant, söngkennara.
Anna kom fram sem einsöngvari
og með kórum allt frá unglingsár-
um. Hún endurvakti iangspilið og
ferðaðist með það um landið og hélt
söngskemmtanir. Anna
gaf út tvær hljómplötur
og var önnur helguð ís-
lenskum sjómönnum.
Einnig gaf hún út bók-
ina Brautryðjendur á
Höfn í Hornarfirði árið
1972 og að auki ritaði
hún fjölda greina í blöð.
Anna var stöðvar-
stjóri við fyrstu land-
símastöðina á Höfn í
Homafirði en á árunum
1928 til 1938 starfaði
hún sem gjaldkeri og
bókari hjá bæjarsíma
Reykjavíkur. Síðan
sem gjaldkeri í 12 ár og loks fulltrúi
á aðalskrifstofu Landsímans.
Anna var elsti starfandi félagi í
Rebekku, kvennastúku Oddfellow,
og var hún sæmd heiðursmerki regl-
unnar. Anna tók myndir af sólmyrk-
vanum árið 1954 og vöktu þær at-
hygli víða um heim og eru þær með-
al annars til sýnis á söfnum í Banda-
ríkjunum.
Morgunblaðið/Ásdís
HILDUR Kolfinna verður bráðlega tveggja ára og er farin að tala við
foreldra sína, þau Siguijón og Ástu.
geta verið með baminu þessa
fyrstu þijá mánuði heldur styrkti
þetta sambandið milli foreldr-
anna. „Það er óskaplega gott að
hafa nógan tíma til að vera sam-
an á þessum íyrstu mánuðum. Öll
vandamál sem upp koma verða
auðveldari viðfangs. Ég held því
að þetta hafi styrkt samband okk-
ar og haft jákvæð áhrif.“
Gott að hafa Siguijón heima
Siguijón sagði að þótt þrír
mánuðir væru stuttur tími í Iífi
bams væri hann ekki þeirrar
skoðunar að þörf væri á að
feðraorlofið þyrfti að vera
lengra. „Þegar kemur að því að
báðir foreldrar þurfa að fara aft-
ur út á vinnumarkaðinn hugsar
maður til þess að það væri já-
kvætt að eiga kost á sveigjan-
legri vinnutíma, t.d. að geta farið
tímabundið í hálft starf. Það kall-
ar á sveigjanleika af hálfu vinnu-
veitanda eða svigrúm í kjara-
sainningum."
Fæðing Hildar Kolfinnu var
nokkuð erfíð og Ásta sagði að
það hefði verið mjög mikilvægt
fyrir sig að Siguijón var heima
fyrst á eftir. „Eg var þreytt og
þurfti góðan tíma til að jafna mig
eftir fæðinguna og það var þess
vegna mjög gott að hafa Sigur-
jón heima. Mér finnst sex mán-
aða fæðingarorlof of stuttur tími
barnsins vegna og finnst að það
sé of snemmt að láta barnið til
vandalausra eftir svo stuttan
tima jafnvel þó að dagmóðirin sé
góð. Siguijón var heima tvo mán-
uði eftir að ég fór að vinna og
það fannst mér mjög gott.“
Ásta sagðist telja að fæðingar-
orlof ætti að vera eitt til eitt og
hálft ár. Hluti af þeim tíma gæti
falið í sér sveigjanlegan vinnu-
Flugfélagið Atlanta
Tvær
breiðþot-
ur á kaup-
leigu
FLUGFÉLAGIÐ Atlanta
hefur tekið á kaupleigu tvær
Boeing 747-200 þotur hjá flug-
félaginu Cathay Pacific í
Hong Kong til tveggja ára. Að
þeim tíma liðnum öðlast Atl-
anta rétt til að kaupa þoturn-
ar, að sögn Hafþórs Haf-
steinssonar flugrekstrarstjóra
Atlanta.
Verða í verkefnum
hjá Iberia
„Þessar þotur era sennilega
bestu vélamar af 200-gerð
sem hægt var að fá. Þær era
mjög vel tækjum búnar og fé-
lagið tók allar innréttingar úr
þessum vélum fyrir hálfu öðru
ári og setti splunkunýjar í
staðinn; þær sömu og era í
747-400. í hverju sæti er til
dæmis sjónvarpsskermur með
skemmtistöð.
Við fáum fyrri vélina af-
henta 26. nóvember og þá
seinni um miðjan desember.
Þær verða í verkefnum hjá
spænska flugfélaginu Iberia
og koma til með að fljúga miili
Madríd og Buenos Aires og
inn á milli til Kanaríeyja
einnig. Við gengum sl. fóstu-
dag frá nýjum samningi við
Iberia til tveggja ára sem
kemur til framkvæmda um
áramótin," sagði Hafþór.
Atlanta leggur tveimur
elstu þotum sínum
Þegar nýju þoturnar, sem
smíðaðar era 1981, bætast í
flugflota Atlanta verða hinar
tvær, sem flogið hafa fyrir
Iberia, settar til verkefna
fyrir ríkisflugfélag Saudi
Arabíu. í heildina verður
ekki um að ræða stækkun
flugflota Atlanta, að sögn
Hafþórs, því félagið er um
þessar mundir að taka tvær
elstu 747-þotur sínar úr
rekstri og leggja þeim. Verð-
ur þeim lagt á Manston-flug-
vellinum í Englandi þar sem
viðhaldsstöð félagsins er.
Aukin framlög til öldrunarmála á
Reykjanesi. Réttum hlut Reyknesinga.
GimiM? BjrgksDU
í 1. zæuö
Það vantar kraft
íkjördæmið!