Morgunblaðið - 12.11.1998, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1998 33
ERLENT
Mannlíf
enn í lama-
sessi í Mið-
Ameríku
MANNLÍF er enn í lamasessi í Mið-
Anieríkui-íkjunum sem verst urðu
úti er fellibylurinn Mitch fór yfir
heimshlutann. Vatn og aur gerir
borgarbúum í Tegucigalpa, höfuð-
borg Hondúras, erfitt fyrir að kom-
ast leiðar sinnar og liggja almenn-
ingssamgöngur enn að mestu leyti
niðri. Attu konurnar tvær á mynd-
inni erfitt með að fóta sig í aurnum
þegar þær reyndu að komast á
milli hiísa fyrr í þessari viku.
Að minnsta kosti ellefu þúsund
manns fórust í hamförunum og
þrjár milljónir manna eru taldar
heimilislausar. Hreinsunarkostn-
aður mun líklega kosta þjóðir í
heimsálfunni að minnsta kosti
helming árlegrar þjóðarfram-
leiðslu og endurreisn eðlilegs lífs
er talin munu taka mörg ár.
Þjóðir heims héldu í upphafi
nokkuð að sér höndum en hafa
undanfarna daga tekið að lofa um-
talsverðri efnahagsaðstoð. Frakk-
ar hafa afskrifað allar útistand-
andi skuldir Níkaragva og
Hondúras, sem verst urðu úti í
hamförunum, og lofað að íhuga að
fella að hluta til niður skuldir
Gvatemala og EI Salvador við
franska þjóðarbúið. Bandaríkja-
menn hafa heitið meira en 80
milljón bandaríkjadölum, um 5.600
milljónum ísl. kr., í efnahagsað-
stoð, Spánverjar um 105 milljóna
dala aðstoð til uppbyggingarstarfs
(7.000 milljónum ísl. kr.) og Svíar
hafa lofað á milli 100 og 200 millj-
ónum bandai-íkjadala yfir þriggja
ára tímabil, eða 7-14 milljörðum
ísl. kr.
Scarlett
deyr á
dramatísk-
an hátt
London. The Daily Telegraph.
SCARLETT O’HARA, söguhetjan í
bókinni A hverfanda hveli (Gone
With the Wind) mun láta lífið á
dramatískan hátt í framhaldi bókar-
innar, sem metsöluhöfundurinn Pat
Conroy vinnur nú að.
Margaret Mitchell skrifaði hina
geysivinsælu skáldsögu fyrir rúm-
um 60 árum og leitað var til Con-
roys um ritun framhalds hennar eft-
ir að hann hafði skrifað formála að
afmælisútgáfu bókarinnar árið
1996.
Conroy segir í viðtali við The
Daily Telegraph að fyrirhugaður
dauði Scarlett sé honum áskorun
um að skrifa „eftirminnilegustu
andlátssenu bókmenntanna síðan
Anna Karenína fleygði sér fyrir
lest“. Erfingjar Mitchells voru hins
vegar í öngum sínum yftr þessari
hugmynd og vildu hafa hönd í
bagga með ritun framhaldsins. Con-
roy gat hins vegar ekki fallist á
neins konar ritskoðun og eftir
tveggja ára samningaumleitanir gaf
hann loks eftir kröfu sína um væna
fyrirframgreiðslu í staðinn fyrir
fullt frelsi til að skrifa það sem hon-
um sýndist.
Að sögn Conroys höfðu rétthaf-
amir einnig krafist þess að í fram-
haldssögu hans yrði hvergi minnst á
samkynhneigð eða kynþáttablönd-
un. Sagðist hann þá myndu hefja
bókina svona: „Eftir að þeir höfðu
notið ásta sneri Rhett sér að Ashley
Wilkes og sagði: „Ashley, hef ég
nokkurn tímann sagt þér frá því að
amma mín var svört?“
Sumt er okkur ofvaxid
Konur búa yfir verðmætri reynslu
og þekkingu sem karlmönnum er
ómögulegt að öðlast. Þessi verðmæti,
ólík sjónarmið og efnistök er auðlind
sem þjóðin hefur ekki borið gæfu til að
nýta á lýðræðislegan hátt.
Það sem skilur okkur að gerir okkur
sterkari sem heild. Þess vegna er aukin
þátttaka kvenna í stjórnmálum hagur
íslensku þjóðarinnar.
Lýðræðið rúmar bæði kynin.
Ráðherraskipuð nefnd
til að auka hiut kvenna í stjórnmálum