Morgunblaðið - 12.11.1998, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1998 37
____LISTIR_______
SVEIFLA MEÐ
SUÐRÆNUM SAFA
Dönsk
stórbók
Einars Más
DANSKA bókaforlagið
Vindrose mun um miðjan
mánuðinn gefa út nokkurs
konar stór-
bók með
verkum Ein-
ars Más Guð-
mundssonar.
Nefnist hún
Reykjavíkur-
þrfleikurinn
(Reykjavik-
trilogien) og
inniheldur
þrjár fyrstu
skáldsögur Einars, Riddara
hringstigans, Vængjaslátt í
þakrennunum og Eftirmála
regndropanna. Þá kemur
dönsk þýðing á nýjustu skáld-
sögu Einars, Fótspor á himn-
um, út í byrjun næsta árs.
Þýðandi verka Einars er sem
fyrr, Erik Skyum-Nielsen, og
munu þeir Einar koma fram á
BogForum, bókamessunni í
Kaupmannahöfn, 20. nóvem-
ber nk.
TONLIST
Múlinn á Snlon
(slandus
LATÍNUDJASS
Mike Mower, flautur og tenórsaxó-
fón, ásamt Óskari Guðjónssyni á sax-
ófóna, Eyþóri Gunnarssyni, píanó og
kongótrommur, Jóni Rafnssyni,
bassa, og Matthíasi M.D. Hemstock,
trommur. Sunnudagskvöldið
8. nóvember.
MIKE Mower er breskt tónskáld,
flautu- og saxófónleikari. Hann er
jafnvígur á djass og klassík og hef-
ur viða komið við á ferli sínum; leik-
ið með snillingi á borð við Gil Evans
sem skrifaði manna best fyrir Miles
Davis - það var þegar Gil vann í
London með breskum tónlistar-
mönnum - útsett klassík með
sveiflu fyrir flautusnillinginn James
Galway og unnið með Björk. Hér er
hann á vegum Tónamiðstöðvarinnar
og í leiðinni notaði hann tækifærið
og lék með íslenskum djassleikur-
um, enda hefur Mike gaman af að
leika djass. Hann er fyrsta flokks
hljóðfæraleikari, en það mátti heyra
að hann leikur djass ekki oft.
Það var byrjað á Jobim og endað
á Jobim og sömbutaktur í ýmsum
tilbrigðum allsráðandi allt kvöldið:
mambó, Kúbudjass og allt þar á
milli. Besta Jobimtúlkun kvöldsins
var á Corcovado, sem einsog Manha
de Carnaval, náði hápunkti í ljóð-
rænum líðandi tenórsóló Óskars
Guðjónssonar, meðan Mike blés í
altflautu. Þarna var i-ytminn fínn
hjá Matthíasi Hemstock og Jóni
Rafnssyni, sem hingað er kominn
frá Akureyri, einsog jafnan þegar
latneska sveiflan réð ríkjum.
Dizzy Gillespie hljóðritaði verk
sitt Manteka fyrst árið 1947 með
Chano P0Z9 frá Kúbu á kong-
ótrommur. Utgáfa þeirra félaga var
rafmögnuð og eldglæringarnar
flugu í höggnum blæstri Öskars,
hamrandi sóló Eyþórs og þungum
trommum Matthíasar. Það fór í
verra þegar sveiflan var á dagskrá:
Have You Met Mrs. Jones og Bye
Bye Blackbird í rusli, en eilítið
hresstist hrynsveitin í What Is The
Thing Called Love eftir Cole Port-
er. Þar áttu Óskar og Eyþór góða
sólóa. Þegar Óskar lét vaða á súð-
um komu í hug þeir James Carter
og Joshua Redman á Clint
Eastwood tónleikunum 1 Sjónvarp-
inu fyrr um daginn þegar þeir
trylltu í Lester Leaps In, - að vísu
tók Flip Phillips, sem er orðinn
83ja, þá James Rivers og bíbopp
altósaxófónleikarana Moody og
McPhearson í nefíð í síðasta sólón-
um í Lesters Leaps In, en hann og
Illinois Jacquet eru einir fárra stór-
saxófónleikara svíngsins, sem enn
eru á lífí. Þeir voru báðir æsinga-
menn á JATP tónleikum um miðja
öldina, en það er önnur saga.
Það var dálítið gaman að heyra
piltana spila The Peanut Vendore
(E1 Manisero), sem Armstrong
hljóðritaði 1930 með stórsveit sinni,
þó þeir væru ekki of klárir á laginu
og þar lá hundurinn grafínn; því þó
þetta væri ánægjulegt kvöld á
margan hátt minnti spilamennskan
fullmikið á „djammsessjón".
Vernharður Linnet
Súreftiisvörur
Kai-in
Herzog
• vúma gegn
öblrunareinkeimum
• enduruppbyggja húðina 1
• vinna á appelsínuliúð
og sliti
• vinna á unglingabóluni
• viðbalda ferskleika
húðariiinar
Ferskir vindar í
umhirðu húðar
Ráðgjöf og kynning
í Apótekinu
Suðurströnd,
í dag kl. 14-18
Kynningarafsláttur
www.mbl.is
Rómantísk sýn
BÆKUR
Ljóð
TÖÐUGJÖLD
eftir Sverri Pálsson.
Eigin útgáfa. 1998-120 bls.
STUNDUM finnst manni eins og
tíminn hafi numið staðar í bók, sest
þar að og hreiðrað um sig og þijóskist
við að fara. Þama
líði honum vel.
Þama eigi hann
heima. Töðugjöld
eftir Sverri Pálsson
er slík bók. Hún
varðveitir róman-
tíska sýn á tilver-
una sem er þess
virði að vera til
jafnvel þótt lifs-
hættir og hugmyndir manna hafi
breyst fi-á því að hún varð til. Hún er
endurómur hverfandi lífshátta en jafn-
framt á hún sér rætur í samtímanum
af því að svo margt úr lífi þessarar
þjóðar og sögu lifir enn með okkur
sem betur fer þrátt fyrir óreiðu okkar
daga. Það eru ekki aðeins hugmynd-
imar í ljóðum Stefáns sem varðveita
þennan tíma heldur ekki síður hið
hefðbundna Ijóðform, rómantískt ljóð-
málið og andinn.
SveiTÍr Pálsson er hagyrðingur
góður og töluvert er um tækifærisvís-
ur og kvæði í bókinni. Við finnum
einnig ljóð um lífsins lystisemdir, ekki
síst blessað kaffið. Þó eru eftirminni-
legii náttúruljóð sem kallast í mynd-
máli sínu og anda á við rómantísku
þjóðskáldin og kannski kveðskap ým-
issa ljóðbænda á þessari öld líka.
Tungutakið er kjai-nmikið, ljóðmálið
hátimbrað og myndmálið stórskorið.
Öndvert, stælt og strandbratt
stendur Bjargið gnátt,
hefst úr djúpum hyljum,
hlær við sólarátt.
Yfir árgils brúnir
ofar klettaþröng
lyftir klettakollur
kaldri ennisspöng.
Er á breiðu baki
borin kápa græn,
konungsskikkju skreyta
skrautlegblómogvæn.
Brjóstið hvelft og hafið
hýsir djarfa sál,
brynjað stuðlabergi,
blátt sem eðalstál.
En í ljóðabókinni er einnig að finna
viðkvæmari og blíðlegri tón líkt og í
kvæðinu Sólgeislabarn:
Ó, sólgeislabam, er svífur blær
við söng úr blómahlíðum,
þá leggur þú aftur augun skær
með æskuljóma friðum,
og hvíldin í nótt þér verður vær
í vorsins faðmi bh'ðum.
Sverrh’ Pálsson hefur einnig unnið
nokkuð við þýðingar. Það eru einkum
trúarleg ljóð. Þeirra á meðal er Þýsk
messa eftir Neumann. Þær þýðingar
taka, að því er mér sýnist, nokkurt mið
af sönghæfni textans enda þótt þær
séu einnig á góðu máli. Einnig er að
finna órímaðar þýðingar á kvæðum
eftir Jerry D. Cox og sannast sagna
þóttu mér þær betri skáldskapur en
hinar hefðbundnu ljóðaþýðingar.
Töðugjöld eru haldin við uppskerulok.
Þessi bók ber slíkum veisluhöldum
vitni. Hún er athvai-f tíma sem á undir
högg að sækja en lifir góðu lífi á síðum
hennar.
Skafti Þ. Halldórsson
Tnakito.
Stingsagir
Keðjusagir
Útsöl ustaðirnir og
ÞQR HF
Reykjavík - Akureyri