Morgunblaðið - 12.11.1998, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1998 49
ATVIIMMU-
AUGLVSIMGAR
Byggingafulltrúi
Húnaþing óskar eftir að ráða byggingafulltrúa.
Starfssvið byggingafulltrúa ersamkvæmt lög-
um og reglugerðum um bygginga- og skipu-
lagsmál. Auk þess er hann forstöðumaður
tæknideildar, hefur umsjón með fasteignum
sveitarfélagsins og verklegum framkvæmdum
í sveitarfélaginu.
Umsækjandi þarf að uppfylla skilyrði 48. og
49. gr. skipulags- og byggingalaga nr. 73/1997.
íþrótta- og
tómstundafulltrúi
Húnaþing óskar eftir að ráða íþrótta- og tóm-
stundafulltrúa. íþrótta- og tómstundafulltrúi
hefur yfirumsjón með starfsemi íþrótta- og
tómstundamálum á vegum sveitarstjórnar
Húnaþings í samræmi við lög, reglugerðir,
samþykktir, sett markmið sveitarstjórnar og
fjárhags-, framkvæmda- og greiðsluáætlanir
á hverjum tíma. Auk þess sinnir íþrótta- og
tómstundafulltrúi ýmsum störfum fyrir Ung-
mennasamband Vestur-Húnvetninga.
Umsækjendur um ofangreind störf þurfa að
geta hafið störf um næstu áramót. Upplýsingar
um störfin veitir sveitarstjóri í síma 451 2353.
Umsóknum skal skila á sveitarskrifstofu
Húnaþings á Klapparstíg 4, 530 Hvammstanga,
eigi síðar en föstudaginn 27. nóvember 1998.
Sveitarstjóri.
|H Fræðslumiðstöð
'I' Rcvkja\'íkur
Laus störf í grunn-
skólum Reykjavíkur
Selásskóli, sími 567 2600
Kennari í almenna kennslu í 4. bekk eftir
hádegi v/forfalla, 2/3 staða. í Selásskóla er
blómlegt þróunarstarf í gangi og þar ríkir
góður starfsandi.
Upplýsingar gefa skólastjóri og aðstoðarskóla-
stjóri í síma skólans, og í símum 895 8926 eða
861 1126.
Þessar auglýsingar sem og annan fróðleik er
að finna á heimasíðu Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur: www.reykjavik.is/fmr.
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000
• Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
Tæknimaður
Tæknifræðingur eða verkfræðingur óskast á
verkfræðistofu. Verkefni stofunnar felast að
mestu í eftirliti með byggingaframkvæmdum
á höfuðborgarsvæðinu svo og hönnun burðar-
virkja og lagna. Um er að ræða góðan 4 manna
vinnustað.
Leitað er að einstaklingi sem hefur:
• Frumkvæði, sjálfstæði og góða samkipta-
hæfileika.
• A.m.k. tveggja ára starfsreynslu.
• Reynslu í: AutoCad, Exel og Word.
Skriflegum umsóknum um menntun og fyrri
störf, skal skilað á afgreiðslu Mbl. fyrir 20. nóv-
ember nk. merktar „Tæknimaður".
HOTEL
REYKJAVIK
Sigtúni 38, Reykjavík
Starfsfólk óskast
í morgunverðarsal — framreiðslumenn og
aðstoðarfólk í sal.
Getum tekið nema í framreiðslu.
Upplýsingar á staðnum í dag frá kl. 14—16.
AUGLVSINGA
TIL SÖLU
Ræddu menn í alvöru
á Alþingi um vanda ungra fíkniefnaneytenda
4. nóv. '98 þegar dómsmálaráðherra var suður
á Ítalíu. Skýrsla um samfélag lýsir stjórnar-
fari og fæst í Leshúsi, veffang: Sjá símaskrá.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Skútuvogur — til leigu
Til leigu í nýju húsnæði 180—200 fm á jarð-
hæð. Hentugt fyrir ýmiskonar starfsemi,
s.s. heildsölu, verslun o.fl.
Uppl. í síma 588 7700 (Ágúst eða Stefán).
□SKAST KEYPT
Málverk
Er kaupandi að góðu málverki eftir Kjarval, Jón
Stefánsson, Júlíönu Sveinsdóttur, Kristínu
Jónsdóttur, Gunnlaug Blöndal eða Gunnlaug
Scheving.
Upplýsingar með nafni og símanúmeri sendist
til afgreiðslu Mbl., merktar: „Málverk — 6811",
fyrir 17. nóvember '98.
FÉLAGSSTARF
V Aðalfundur
Félags sjálfstæöismanna í Vestur- og Miöbæ verður haldinn í Valhöll,
Háaleitisbraut 1, miövikudaginn 18. nóvember kl. 17.30.
Stjórnin.
TILKYNNINGAR
Auglýsing um kosninga-
rétt íslenskra ríkisborgara
sem búsettir eru erlendis
Samkvæmt lögum um kosningartil Alþingis
hafa íslendingar sem flust hafa af landi brott
og sest að erlendis kosningarétt hér í átta ár
frá því þeir fluttu lögheimili sitt, talið frá 1. des-
ember næstum fyrir kjördag. Þeir eru því sjálf-
krafa á kjörskrá þann tíma. Að þessum átta
árum liðnum falla menn af kjörskrá nema sér-
staklega sé sótt um að fá að halda kosninga-
rétti.
Því þurfa þeir, sem vilja vera á kjörskrá, en
fluttu af landi brott fyrir 1. desember 1990 og
hafa verið búsettir erlendis síðan, að senda
umsókn til Hagstofu íslands fyrir 1. desember
1998, til þess að halda kosningarétti. Kosninga-
rétturinn gildir þá til 1. desember 2002, en end-
urnýja þarf hann með nýrri umsókn til Hagstof-
unnar eftir 1. desember 2001.
Umsókn skal senda Hagstofu íslands en eyðu-
blöð fást í sendiráðum Islands erlendis, sendi-
ræðisskrifstofum, skrifstofum kjörræðismanna
og hjá fastanefndum við alþjóðastofnanir.
Einnig er hægt að fá eyðublöðin á afgreiðslu
Hagstofunnar.
Umsækjandi verður sjálfur að undirrita um-
sókn sína.
Einungis þeir sem einhvern tíma hafa átt lög-
heimili á Islandi geta haft kosningarétt hér.
Kosningarétturfellur niður ef íslendingur gerist
ríkisborgari í öðru ríki. Kosningaréttur miðast
við 18 ára aldur. Reglur þessar gilda með sama
hætti um kjörforseta íslands en ekki um kosn-
ingartil sveitarstjórnar.
Sé umsókn fullnægjandi verður umsækjandi
tekinn á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem
hann seinast átti lögheimiii á íslandi sam-
kvæmt þjóðskrá.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
10. nóvember 1998.
Auglýsendur athugið
skiiafrest!
Auglýsingatexta og/eða tilbúnum atvinnu-,
rað- og smáauglýsingum sem eiga að birtast
í sunnudagsblaðinu, þarf að skila fyrir kl. 12
á föstudag.
auglýsingadeild
sími 569 1111
símbréf 569 1110
netfang: augl@mbl.is
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundarboð
Aðalfundur Búlandstinds hf., fyrir rekstrarárið
september 1997 til ágúst 1998 verður haldinn
þriðjudaginn 24. nóvember 1998 kl.
16.00. Fundurinn fer fram í kaffistofu Búlands-
tinds, Bakka 4, Djúpavogi.
Dagskrá:
1. Fundarsetning. Kosning starfsmanna fund-
arins.
2. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess
sl. starfsár.
3. Ársreikningur félagsins lagður fram til
samþykktar ásamt athugasemdum endur-
skoðanda.
4. Kosning stjórnar.
5. Kosning endurskoðanda.
6. Ákvörðun hvernig fara skuli með hagnað
á reikningsárinu .
7. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og
varastjórnar.
8. Önnur mál, löglega upp borin.
Ársreikningur félagsins liggurframmi hluthöf-
um til sýnis á skrifstofu félagsins á Djúpavogi
viku fyrir fundinn.
Stjórn Búlandstinds hf.
Hluthafafundur
Eignarhaldsfélagsins
Kringlunnar hf.
Stjórn Eignarhaldsfélagsins Kringlunnar hf.
hefur ákveðið að halda hluthafafund miðviku-
daginn 25. nóvember 1998 kl. 15.00.
Hluthafafundurinn verður haldinn í Kringlubíói
í Kringlunni 4—12, sal 2.
Fundarefni hluthafafundar:
1. Staða framkvæmda.
2. Milliuppgjör og áætlun.
3. Kjör nýrrar stjórnar.
4. Önnur mál.
Framkvæmdastjóri.
Aðalfundur
styrktarfélags íslensku óperunnar verður hald-
inn í íslensku óperunni mánudaginn 30. nóv-
ember kl. 18.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
SMÁAUGLÝSIMGAR
FÉLAGSLÍF
□ Hlín 5998111219 IV/V H.v.
I.O.O.F. 5 = 17911128 ^ 9.0*
I.O.O.F. 11 8’/2 Fella- og hólak.
K.k
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Kl. 20.30 Kvöldvaka
í umsjá systranna.
Katrín Eyjólfsdóttir talar.
Allir hjartanlega velkomnir.
\v---7/
KFUM
V
Aöaldeild KFUM,
Holtavegi
Biblíulestur kl. 10.30
Umsjón: Sr. Halldór Gröndal.
Upphafsorö: Hallbjörn Þórarins-
son. Allir karlar velkomnir.
TILKYNNINGAR
Guðspeki-
samtökin
í Reykjavík
Eftirfarandi dagskrárliðir eru
ókeypis og öllum opnir:
— Alheimsþjónusta til heilunar
jörðinni alla sunnud. kl. 10.15.
— Fjarheilun og einstaklingsheil-
un annan hvern fimmtud. kl. 20.
— Vinakvöld, hugleiðsla, upp-
lestur og heilun fjórða hvern
fimmtudag kl. 20.00.
Nánari upplýsingar fást á skrif-
stofunni, Flverfisgötu 105, sem er
opin atla fimmtudaga kl. 15—18
og í síma 562 4464.