Morgunblaðið - 12.11.1998, Side 68
68 FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
m
K -r
ULPU-
JSSUJgo
|
lafuma <£ |
r i
É ^
HVERRIIILPU
FYLGIR FRÍTTPAR
30-40%
' AFSLÁTTUR
Aúlpum
AF ELDRI GERÐUM
*
- töppurLnw L útuvL&t
n
Skeifan 6 * Reykjavík * Símí 533 4450
www.mbl.is
BRIPS
llmsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
ÞANN 9. nóvember sl. var spilað-
ur 1 kvölds tvímenningur. 36 pör
spiluðu, meðalskor var 364 stig.
Bestu skor í N/S.
Þorsteinn Jóensen/Unnar Atli Guðmundss. 442
Bjöm Amórsson/Hannes Sigurðsson 426
Arni Magnússon/Eyjólfur Magnússon 417
Sveinn Vilhjálmss/Jökull Kristjánsson 386
Bestu skor. A/V.
Vilhjálmur Sigurðss. jr/Daníel Sigurðss. 459
Arngunnur Jónsdóttir/Jakob Kristinsson 451
María Asmundsd/Steindór Ingimundars. 435
Jón Stefánsson/Jónína Pálsdóttir 424
Mánudaginn 16. nóv. nk. hefst 3-4
kvölda (fer eftir aðsókn) tvímenning-
ur barómeter. Verðlaun fyrir 3 efstu
sætin. Skráning á spilastað, Þöngla-
bakka 1, ef mætt er stundvíslega fyr-
ir kl. 19.30.
Bridsfélag Borgarfjarðar
Nú stendur yfir aðaltvímenningur
félagsins og er þátttaka góð, spilað á
sex borðum. Keppnin heitir nú Bún-
aðarbankamótið til heiðurs Búnaðar-
bankanum í Borgarnesi, sem styrkir
starf félagsins af rausnarskap. Þegar
keppnin er hálfnuð er lítil spenna á
toppnum því þar hefur tyllt sér akk-
erispar félagsins til mai’gra ára, þeir
Örn Einarsson í Miðgarði og Krist-
ján Axelsson í Bakkakoti. Það er
helst að bankastjórinn sjálfur Krist-
ján Bjöm Snorrason, sem ásamt
konu sinni Öldu Guðnadóttur er sér-
stakur gestur félagsins í þessu móti,
veiti þeim einhverja keppni. Annars
er röð efstu pai-a þessi, (keppnisform
er barometer):
Öm - Kristján 47
Kristján - Alda 30
Flemming - Magnús 16
Lárus - Höskuldur 7
í lokin er minnt á að fyrra Venus-
armót vetrarins hefst þriðjudaginn
17. nóvember. Spilað verður í Mótel
Venusi við Borgarfjarðarbrú og
hefst spilamennska kl. 20 tímanlega.
'u : ' - -
mfímsmm
OOIViSSOIM
DAlGAR
“13.-14.nóvember
Allt að
15% afsláttur
AEG
Sjónvörp
Þýsk heimilistæki
Örbylgjuofnar á tilboðsverði
FINLUX
Sjónvörp
12.900,-
jJX Raftæki, pottar og pönnur
Leirvörur í gæðaflokki
JUUuCopco
Handverkfaeri
{miklu úrvali
20%
afslátlur
jósritunarvélar, faxtæki,
sjóðvélar oa skjávarpar
Glerárgata 32 • Slmí: 462 3626 • Fax: 462 7826
Ýmis vörutilboð
Varahlutir og aukahlutir
BOSCH
Handverkfæri
í miklu úrvali
20%
afsláttur
Bílaperur
HSssö
Verkfæri, efnavara
og rekstrarvörur
Verkstæöistæki
VELAR&
ÞJéNUSTA hf
ÓSEYRI 1A • SÍMI 461 4040 • FAX 461 4044
Islenzkir frímerkja-
safnarar á erlend-
um sýningum
FRÍMERKI
Portugal ÍI8
ALHEIMSSÝNING
Frímerkjasýning í Lissabon
f Portúgal dagana 4. til
13. september.
í SÍÐASTA frímerkjaþætti
var rætt um affnælissýningu LÍF
hér í Reykjavík á liðnu sumri. Að
þessu sinni verður fjallað um
aðra af tveimur erlendum sýning-
um, þar sem íslenzkir frímerkja-
safnarar komu við sögu. Þær
raddir heyrast á stundum, að lítil
ástæða sé fyrir íslenzka safnara
að blanda sér í þann leik að sýna
söfn sín á sýningum utanlands.
Þetta er að mínum dómi mis-
skilningur. Enda þótt lítið fari
svo sem fyrir Islendingum meðal
fjölmennra þjóða, er ástæðulaust
að fyllast einhverri vanmeta-
kennd. Það skiptir einnig máli, að
umheimurinn viti, að hér býr
fólk, sem hefur áhuga á margs
konar efnum og fylgist grannt
með því, sem gerist með öðrum
þjóðum. Þetta sjónarmið getur
eins átt við um frímerkjasafnara
sem aðra, þótt mörgum þyki frí-
merkjasöfnun svo sem ekki
merkileg í sjálfri sér. Því verður
samt ekki neitað, að þessi tóm-
stundaiðja hefur nokkuð á aðra
öld veitt mörgum gleði og
ánægju og jafnframt hvfld frá
margvíslegu amstri hversdags-
lífsins, allt frá almennum borgur-
um til manna í æðstu stöðum
meðal stórþjóða. Þá ber íslenzk-
um söfnurum ekki sízt að treysta
böndin við safnara á öðrum
Norðurlöndum og einmitt með
þátttöku í þeirri árlegu samor-
rænu sýningu, sem nefnist
NORDIA og hefur alllengi verið
haldin í einhverju Norðurland-
anna. Menn minnast áreiðanlega
margir þess, að hér á landi hafa
þrjár slíkar sýningar verið haldn-
ar með góðum árangri og verið
íslenzkum söfnurum til mikils
sóma.
Síðasta norræna sýningin var
haldin í Odense í Danmörku í
október. Aður en sagt verður frá
henni, tel ég rétt að fylgja tíma-
röð og minnast fyrst á aðra sýn-
ingu, þar sem íslenzkir safnarar
voru þátttakendur. Sú sýning var
í Lissabon í Portúgal dagana 4.
til 13. september og nefndist
PORTUGAL 98. Var þetta al-
heimssýning og tilefnið hið sama
og með þá vörusýningu, sem
einnig vai’ haldin í Portúgal á
liðnu sumri og Islendingar tóku
þátt í, þ.e. að Portúgalir minntust
þess, að 500 ár voru liðin frá
landkönnunarferð Vasco da
Gama, sem fann sjóðleiðina til
Indlands.
Þar sem ég sá ekki þessa sýn-
ingu, hefur umboðsmaður hennar
hér þeima, Sigurður R. Péturs-
son, látið mér í té upplýsingar um
hana og eins Indriði Pálsson, sem
var þar á staðnum, enda þátttak-
andi í henni með hið frábæra Is-
landssafn sitt. Þá hef ég nokkur
ummæli eftir nýjasta hefti af
sæpska tímaritinu Nordisk Fila-
teli.
PORTUGAL 98 var haldin í
stórri sýningarhöll, Centro
Cultural de Belém. Þátttakendui’
voru frá flestum Evrópulöndum
og eins frá löndum, sem tengjast
Portúgal á sögulegan hátt.
Sýnendur voru alls 436, þar af
þrír frá Islandi.
Indriði Pálsson sýndi safn sitt
„íslenzk póstþjónusta 1836-1902“
í átta römmum. Fyrir það hlaut
hann gullverðlaun (93 stig) og
heiðursverðlaun, sem finnska
landssambandið hafði gefið. Eng-
um, sem til þekkja, kemur þetta
verðlaunastig á óvart. Að mínum
dómi á þetta safn nú orðið full-
komlega skilið stórt gull, og mun
ég ekki einn um þá skoðun. Hjalti
Jóhannesson sýndi í fimm römm-
um safn sitt „Islenzkir póst-
stimplar af antiqua- og lapidar-
gerð,“ þ.e. tvær elztu stimpla-
gerðir, sem notaðar voru til að
„ónýta“ frímerkin, eins og það
var nefnt í upphafi um stimplun
þeirra, svo að þau yrðu ekki not-
uð aftur til burðargjalds. Hjalti
hlaut fyrir það 80 stig og gyllt
silfur. Er það að vonum, þar sem
hann hefur stöðugt verið að bæta
safnið. Guðni Friðrik Arnason
sýndi í unglingadeild safn sitt
„Kristófer Kólumbus og fundur
Ameríku". Fyrir það fékk hann
stórt silfur, 75 stig, og að auki
heiðursverðlaun, sem komu frá
frímerkjasöfnurum í Armeníu.
A sýningunni var íslenzkt frí-
merkjaefni frá þremur erlendum
söfnumm. Þar má nefna fyrst
Gerhard MuUer frá Þýzkalandi.
Sýndi hann „Island á dögum
seinni heimsstyrjaldar" og hlaut
fyrir 79 stig eða stórt silfur. Þá
áttu tveir sænskir safnarar, sem
em okkur að góðu kunnir frá
fyrri sýningum, íslenzk söfn og
fengu þau stórt silfur. Stig Oster-
berg sýndi safnið „Tveir kóngar
1907-36 og fékk 76 stig. Sigvard
Grelson sýndi „ísland 1876-1904
og fékk 75 stig.
Sigurður segir mér að sýning-
in hafi verið vel skipulögð og öll
aðstaða með ágætum. Þó kom
flestum á óvart, að sölubásar
póststjórna og kaupmanna voru
utan sýningarhallarinnar í tveim-
ur tjaldskálum. Vora póststjórn-
ir í öðram þeirra, en kaupmenn í
hinum. Við það rofnuðu að sjálf-
sögðu tengslin miili sýningarinn-
ar og sölubásanna. Venjan hefur
verið sú, að sölubásar séu undir
sama þaki og sýningarnar. Vel
má vera, að þeir portúgölsku hafi
haft sérstaka ástæðu til þess að
haga þessu svo, því að reynslan
er sú, að þrengsli hafa oft orðið
veruleg í kringum básana og það
jafnvel getað truflað þá, sem
komnir voru fyrst og fremst til
þess að skoða sýningarefnið.
Hafi svo verið, hefiir sýningar-
nefndin misreiknað sig herfilega,
því að samkvæmt Nordisk Fila-
teli komu um fimmtíu manns
fyrsta daginn og þannig var að-
sóknin alltaf í lágmarki. Þá segir
í tímaritinu, að sýningin hafi ver-
ið haldin í heldur óásjálegri
byggingu í norðurhluta borgar-
innar. Enn fremur segir, að sölu-
tjöldin hafi verið bak við bygg-
inguna og engir vegvlsar legið
þangað. Af því leiddi, að hvorki
póststjórnir né kaupmenn seldu
nokkuð að ráði, en urðu hins veg-
ar fyrir veralegum útgjöldum.
Gætti því eðlilega mikillar óá-
nægju meðal kaupmanna. Ritið
klykkir út með því að segja, að
engan skyldi undra, þótt póst-
stjómir tali um að snúa bakinu
við landssamböndum frímerkja-
safnara.
Meðan á sýningunni stóð,
héldu frímerkjasafnarar, að sögn
Sigurðar, fundi um margvísleg
málefni, sem tengjast frímerkja-
söfnun. Sótti hann fundi eftir því
sem tími og aðstæður leyfðu.
Sigurður segir, að móttökur
og viðmót sýningaraðila hafi ver-
ið með ágætum og góður vilji til
að leysa úr þeim vandamálum,
sem ævinlega hljóta að koma
upp, þegar stórsýningar eru
haldnar. Kveður hér nokkuð við
annan tón um PORTUGAL 98
hjá umboðsmanni okkar en fram
kemur í Nordisk Filateli.
Jón Aðalsteinn Jónsson