Morgunblaðið - 12.11.1998, Síða 76

Morgunblaðið - 12.11.1998, Síða 76
76 FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR í DAG Kristniboðssambandið með fjáröflunarátak NÚ stendur yfir fjáröflunarátak á vegum Sambands íslenskra kristni- boðsfélaga og er með því leitast við að stækka hóp þeirra sem styðja vilja kristniboðs- og þróunarstarf SÍK. Kristniboðar sambandsins eru nú að störfum í Eþíópíu og Kenýa. Starfsemi SÍK á þessu ári kostar tæplega 22 milljónir króna en þar er bæði um að ræða laun kristniboð- anna erlendis og tveggja til þriggja starfsmanna sem sinna kynningu og fræðslu heima fyrir og framlag til Gormabindivélar. Vírgormar. Plastgormar. Kápuglærur og karton Otto B. Arnar ehf. Ármúla 29, Reykjavík, sx'mi 588 4699, fax 588 4696 lútersku kirknanna í Eþíópíu og Kenýa. Starfið er borið uppi af frjálsum framlögum velunnara og sem fyrr segir er nú unnið að því að stækka þann hóp. Er haft samband við fólk símleiðis, því kynnt starfið og boðið að leggja fram skerf, ann- aðhvort einstakt framlag eða styrkja starfið reglulega í t.d. 12 mánuði. Hefur þegar verið hringt í um tvö þúsund manns og fengust framlög frá um 12% þeirra eða um 240 manns. Heilsusetur Þórgunnar flytur HEILSUSETUR Þórgunnar, sem staifrækt hefur verið undanfarin 6 ár, hefur flutt starfsemi sína í ný og betri húsakynni í Skipholti 50c. Laugardaginn 14. nóvember frá kl. 14-17 hefst starfsemin með opnu húsi og kynningu á eftirfarandi starfsemi: Svæðameðferð, ung- bamanuddi, heildrænu nuddi, hómópatíu, rafsegulmælingum, pól- unarmeðferð og ráðgjafaþjónustu við skilnað, missi og hvers konar áföll. A Heilsusetrinu verða sjálfstætt starfandi 8 fagaðilar. AUir þeir sem starfa á Heilsusetrinu eru vel menntaðir á sínu sviði og flestir með margra ára starfsreynslu. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfii-. 4401 URIA 24/37 Svart Verð frá kr. 2.500 4373 MACIS 24/40 Svart leður og rúskinn Verð frá kr. 3.900 Mikið úrval af stelpu- og strákaskóm frá 50LARIA Ath.: Nýtt kortatímabil Póstsendum samdægurs SKm Kringlunni -1. hæð. S. 5689345. VELVAKAIVDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Vonbrigði með Iðnó ÉG og vinkona mín, fór- um í Iðnó sunnudags- kvöldið 8. nóvember. Er komið var í anddyrið var þar yfirfullt af fólki að bíða eftir að komast inn í salinn, ótölusett sæti. Hleypt var inn 20 mínút- um fyrir sýningu, höfðu þá margir orðið að standa utandyra vegna þrengsla. Aðeins einn maður tók á móti miðum í inngöngudyrum í sal, þannig að mikil þrengsli mynduðust þar. Ékki tók betra við í sjálfum saln- um, þar eru „óbifanlegir stólar“ og aðeins hægt að fara inn öðrum megin fyrir utan hjá fyrsta og öðrum bekk. Annaðhvort verða sýningargestir er sitja fremst í bekk að láta aðra troðast framhjá sér, sem er illmögulegt, eða fara útúr bekknum, hleypa fólki inn, fara síð- an aftur í sætin. Er þetta ekki afturfór? Við heyrð- um á tali margra gesta að þeir voru á sömu skoðun og við. Þvílíkur vandræðagangur var aldrei í „gamla“ Iðnó. Ég vil taka fram að leikritið Rommý var frábært í alla staði. Eiga þau heið- ur skilið Guðrún Ás- mundsdóttir og Erlingur Gíslason fyrir sína frammistöðu, þökk sé þeim báðum. Asta í Garðabæ. Dýr viðgerðarþjónusta VELVAKANDA barst eftirfarandi bréf: „Ég hringdi um daginn á verkstæði Heimilis- tækja í Sætúni og bað um viðgerðarmann til að líta á ísskápinn hjá mér. Hann kom nokkrum dög- um seinna en þegar allt kom til alls reyndist alls ekkert vera að ísskápn- um. Fyrir að koma upp í Breiðholt, opna ísskápinn og loka honum aftur, rukkaði hann mig um 5000 kr. Mér fannst þetta heldur mikið þar sem hann þurfti ekkert að gera, þannig að ég talaði við yfirmann verkstæðis- ins. Hann spurði mig hvort ég ætlaðist til þess að maðurinn gæfi vinnu sína. Hvaða vinnu? Eina vinnan var fólgin í því að keyra upp í Breiðholt. Ég sagði aldrei að ég vildi ekkert borga, einungis að mér fyndist 5000 kr. vera heldur mikið. Ég vil benda öllum þeim sem þurfa á þess konar viðgerðarþjónustu að halda að snúa sér ekki til Heimilistækja þar sem þeir taka 5000 kr. eir.göngu fyrir að mæta á staðinn. Þórunn Aðalsteinsdóttir, Erluhólum 5, Rvk. Tapað/fundið Steingrátt karl- mannsúr týndist KARLMANNSÚR, steingrátt, týndist sl. laugardag líklega í leigu- bíl eða miðbænum. Skil- vís finnandi hafi sam- band í síma 557 6927. Fundarlaun. Kápa tekin í misgripum KÁPA, svört með skinn- kraga, var tekin í mis- gripum á Kringlukránni fóstudaginn 6. nóvember. Uppl. í síma 557 2557. SKÁK Ilinsjún Margeir Péturssun Staðan kom upp á opna Najdorf-mótinu í Buenos Aires um mánaðamótin. Gil- berto Milos (2.575), Brasil- íu, hafði hvítt og átti leik gegn heimamanninum Hernan Filgueira (2.400). 22. Rdxb5! _ axb5 23. Rxb5 _ Db8 24. Bxf6 _ Bxf6 25. Hxd6 _ Be7 26. Dxe5 _ f6 27. De6 _ Rc8 28. Hfdl _ Kf8 29. Hd8+ Kg7 30. Hxc8 De5 31. Hc7 og svartur gafst upp. Fimm skákmenn urðu jafnir og efstir á mótinu, þeir Bent Larsen, Danmörku, Wojtkiewicz og Krasenkov, Póllandi, Ricardi og Garcia- Palei-mo, Argentínu. Þeir hlutu allir IV2 vinning af 9 mögulegum. 6._11. Ulf And- ersson, Svíþjóð, Poluljahov og Tregubov, Rússlandi, Sorin og Hoffman, Argent- ínu og G. Hernandez, Mexíkó 7 v. Um helgina: DEILDAKEPPNI Skák- sambands Islands, fyri’i hluti. og vinnur. HVÍTUR leikur HOGNI HREKKVISI Víkverji skrifar... LESANDI Víkverja hringdi og sagði sínar farir ekki sléttar. Lesandinn, sem er kona, hafði fengið einhvers konar umburðar- bréf frá Flugfélagi íslands um „Ladies Night“, konukvöld á Kaffi Akureyri laugardaginn 21. nóvem- ber næstkomandi. í bréfinu segir: „í samvinnu við Kaffi Akureyri hefur Flugfélag Is- lands sett saman mjög skemmti- lega pakkaferð til Akureyrar þann 21. nóvember nk. Það sem hér um ræðir er flug fram og til baka, gist- ing í eina nótt og spennandi Konu- kvöld á Kaffi Akureyri á laugar- dagskvöldinu. Fáklæddir þjónar, óvenjuleg tískusýning, gjafir og óvæntar uppákomur einkenna Konukvöldið og kynnir kvöldsins verður einn af þeim langflottustu á íslandi - Sig- mundur Ernir sendiherra Akur- eyrar í Reykjavík. Hljómsveitin Sköndlarnir, þeir Eyvi Kristjáns, Björn Jörundur, Besti og Siggi Gröndal, verða „prúðbúnir" í tilefni kvöldsins og skemmta fram á rauða nótt.“ Svo mörg voru þau orð í þessu makalausa bréfi. Aður hefur komið fram gagnrýni á tilboðspakka frá Flugleiðum, þar sem boðið var upp á „one night stand“ í Reykjavík flygju menn yfir Atlantshafið með Flugleiðum. Nú er boðið upp á konukvöld á Akureyri með létt- klæddum þjónum og hljómsveitin, sem heitir Sköndlarnir, leikur fyr- ir dansi. Hvar er virðing fyrir- tækja eins og Flugfélags íslands? xxx VÍKVERJI dagsins hefur verið viðskiptavinur Hagkaups í áratugi, byrjaði að kaupa yfirleitt allt til heimilisins rétt eftir að Pálmi Jónsson, sá mikli eldhugi, opnaði verzlun sína í Skeifunni og man raunar búðina við Miklatorg. Síðan hefur Víkverji einstöku sinn- um einnig farið í Hagkaup í Kringlunni, en alltaf hefur hann þó kunnað bezt við sig í gömlu Skeifu- búðinni. Nú hins vegar hefur vöru- verð hækkað nokkuð í hinni nýju Nýkaupsverzlun í Kringlunni og því hefur Víkverji haldið áfram að verzla í Skeifubúðinni. í fyrsta skipti í öll þessi ár fór Víkverji út úr Hagkaupi í Skeif- unni óánægður um síðustu helgi. Astæðan var að hann gat ekki í fyrsta sinni lokið innkaupum sín- um og þurfti að fara í aðra verzlun. Það er búið að loka kjötborðinu og það verður ekki opnað aftur. Þjón- ustustig þessarar verzlunar hefur dalað stórum og það er ekki óeðli- legt að menn setji þessar breyting- ar í samband við nýja eigendur Hagkaups, eldmóður Pálma í Hag- kaup og fjölskyldu hans virðist á bak og burt og kúnninn skiptir ekki sama máli og áður. Það er eins og menn haldi að kúnninn láti sér allt lynda, þegar menn eru orðnir svona stórir í matvöruverzl- un höfuðborgarsvæðisins eins og raun ber vitni. xxx EN VÍKVERJI ætlar ekki að sætta sig við þetta. Blessunar- lega eru enn fleiri möguleikar á markaðnum. Annars sýna þessar breytingar hve vafasamt er og hættulegt að gera stökkbreytingar á verzlun, sem rekin er með ágæt- um og viðskiptavinum líkar. Það má aldrei reyna á þolrif viðskipta- vinanna. Þeir eru undirstaðan fyr- ir velgengni fyrirtækja og þá má ekki stuða.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.