Morgunblaðið - 12.12.1998, Page 4
4 LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Halldór
UNDIRRITAÐUR hefur verið loftferðasamningur milli íslands og
Rússlands. Hér eru flugmálastjórar landanna, Gennady N. Zaytsev
(t.v.) og Þorgeir Pálsson.
Loftferðasamningur Rússlands og
íslands undirritaður í gær
Mögulegt að
undirbúa flug
til Moskvu
FYRSTI loftferðasamningur Rússlands og íslands var undirritaður í Reykja-
vík í gær. Gerir hann ráð fyrir að flugfélög í löndunum geti hafíð flug milli
Reykjavíkur og Moskvu. Þá heimilar samningurinn millilendingar og yfirflug.
Þrír óku út
af í hálku
LÖGREGLAN í Borgamesi sinnti
þremur óhöppum í gær vegna ísingar
á þjóðvegi 1 í lögsagnarumdæmi sínu.
Engin slys urðu á fólki, en óhöppin
vildu öll til með sama hætti, þeim að
andvaraleysi ökumanna í hálkunni
orsakaði útafakstur við Laxá í Leir-
ársveit, við Baulu og við Borgarfjarð-
arbrúna. Lögreglan sagði að
hálkunnar á veginum gætti aðeins á
köflum og því vöruðu ökumenn sig
ekki nægilega á hættunni.
-------------
Langur
afgreiðslutími
um helgina
VERSLANIR á höfuðborgarsvæð-
inu verða opnar lengi um helg-
ina. Þannig munu flestar verslanir í
miðbæ Reykjavíkur verða opnar til
22 í dag en frá 13-18 á sunnudaginn.
I Kringlunni verða allar verslanir
opnar frá 10-22 á laugardag en 13-17
á sunnudag. Verslun IKEA er opin
frá 10-22 alla daga fram að jólum, en
klukkutíma lengur á Þorláksmessu.
Afgreiðslutími verslana við Smára-
torg er sá sami og hjá IKEA.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra og Gennady Nikolaivich Zayt-
sev, flugmálastjóri Rússlands, undir-
rituðu samninginn. „Héma er um
rammasamning að ræða, grundvöll
fyrir samskiptum landanna á sviði
flugmála," sagði Gennady N. Zayt-
sev í samtali við Morgunblaðið í gær.
„Nú geta flugfélög í löndunum hafið
undirbúning að áætlunarflugi milli
þessara borga ef þeim sýnist svo en
hér er líka gert ráð fyrir að aðrir að-
ilar í ferðaþjónustu geti komið við
sögu,“ sagði flugmálastjórinn einnig.
Hann kvaðst ekki geta sagt um
hvort eða hvaða flugfélög í Rússlandi
væru tilbúin að kanna flug til Islands
en það myndi koma í ijós næstu
mánuði.
Flugleiðir kanna möguleika
Sigurður Helgason, forstjóri Flug-
leiða, sagði að með samningnum
hefðu skapast forsendur til að fyrir-
tækið gæti kannað flug milli land-
anna. Einnig væri verðmætt að
samningurinn heimilaði yfirflug og
lendingar af tæknilegum ástæðum.
Hann sagði markaðskannanir og
undirbúning hugsanlegs áætlunar-
flugs milli Reykjavíkur og Moskvu
geta tekið tvö til þrjú ár. Nýr áfanga-
staður í austri gæti gefið Flugleiðum
ákveðna möguleika á flutningum
milli Rússlands og Bandaríkjanna
um ísland enda væri Keflavík nánast
mitt á milli landanna.
Verðstríð á
kalkúnamarkaði
VERÐSTRÍÐ er skollið á í sölu á
kalkúnum. Nóatúnsverslanirnar
hófu að bjóða sænska kalkúna á
495 kr. hvert kg og svöruðu Bón-
usverslanimar því með því að
bjóða hvert kg af íslenskum
kalkúnum á 458 kr. Júlíus Jónsson,
kaupmaður í Nóatúni, segir að
Bónus sé að tapa mörg hundruð
þúsund kr. á þessu framtaki sínu.
Reykjabúið í Mosfellsbæ er eini
framleiðandi kalkúna á landinu og
framleiðir upp undir 100 tonn á
þessu ári sem er mikil aukning frá
síðasta ári. Guðmundur Jónsson
hjá Reykjabúinu segii' að útsölu-
verð hjá Bónusverslununum end-
urspegli ekki heildsöluverðið.
Hann sagði að 450 kr. á hvert kg
væri ekki raunhæft verð til lengri
tíma litið. Þarna væri um tilboðs-
verð að ræða og líklegt að seljend-
ur gi-eiddu vöruna niður. Guð-
mundur sagði að rétt væri að fram-
leiðslukostnaður hefði þó farið
lækkandi í kalkúnarækt. Verðhsta-
verð frá Reykjabúinu er 690 kr.
hvert kg en síðan eru veittir af-
slættir til stærri viðskiptavina.
Nóatún segir Bónus stórtapa
á hverjum fugli
Júlíus Jónsson, kaupmaður í
Nóatúni, sagði að viðbrögðin við
sænsku kalkúnunum hefðu verið
afar góð og útlit fyrir að birgðirnar
væru á þrotum. „Það var viðbúið að
það yrði verðstríð. Við fáum ekki
meira af kalkúnum, því miður, því
það ríkir algjör stöðnun á kalkúna-
markaðnum. Hér er aðeins einn
framleiðandi. Verðið í heildsölu er
600 kr. og nú selur Bónus hvert kg
á 450 kr. og er virðisaukaskattur-
inn innifalinn í verðinu. Menn eru
að tapa 700-1.000 kr. á hverjum
fugli eftir stærð,“ segir Júlíus.
Ekki undir framleiðsluverði,
segir Bónus
Jóhannes Jónsson, kaupmaður í
Bónus, segir að mikil sala sé í
kalkúnum í verslunum Bónus enda
sé verið að bjóða vöiuna á lægsta
verði nokkru sinni. Utlit sé fyrir að
nægilegt framboð verði af kalkún-
um. Hann segir að varan sé ekki
seld undir framleiðsluverði hjá
Bónus. Hann bendir á að þótt verð-
ið sé lágt núna sé hvert kg af
kalkún selt á um 100 kr. í Banda-
ríkjunum og um 300 kr. í Dan-
mörku.
HIN nýja flugvél íslandsflugs í lágflugi yfir Reykjavík í gær.
Morgunblaðið/RAX
500 milljóna
Islandsflug í
Karíbahafí
BOEING 737-200 flugvél íslands-
flugs flaug í gær yfír Reykjavík á
leið sinni vestur í Karíbahaf þar
sem hún mun sinna áætlunarflugi á
vegum flugfélaganna Air Gu-
adeloupe og Air Martinique næstu
14 mánuði. Verkefnið mun færa ís-
landsflugi um 500 milljóna króna
tekjur. Um 30 manns vinna á veg-
um félagsins við verkefnið, að sögn
Ómars Benediktssonar fram-
kvæmdastjóra, bæði Islendingar
og erlendir starfsmenn.
Byrjaði í þoturekstri
í fyrra
Vélin er merkt litum erlendu fé-
laganna tveggja en hún er rekin á
flugrekstrarleyfi Islandsflugs, sem
annast rekstur, mönnun og viðhald.
Ómar segir að félögin tvö, sem
kennd eru við Guadeloupe og Mart-
inique, séu að sameinast en þau hafi
fyrst og fremst sinnt innanlands-
flugi og skemmri flugleiðum milli
eyja í Karíbahafi.
íslandsflug hefur verið í svipuð-
um rekstri og félögin tvö en byrjaði
í þoturekstri í fyrra og Ómar segir
að þau hafi talið Islandsflug heppi-
legt fyrirtæki til að leiða sig fyrstu
skrefín í þoturekstri.
Starfsemi erlendis
vaxtarbroddur íslandsflugs
í hluta íslendinga hefur ímynd
íslandsflugs tengst innanlandsflugi
en fyrirtækið hefur skotið fleiri
stoðum undir reksturinn. Þessi
nýjung er síðasta viðbótin. Auk
innanlandsflugsins er daglega á
vegum félagsins fragtflug milli ís-
lands og Evrópu á Boeing 737-200
vél, sem getur bæði flutt fragt og
farþega. ðmar segir að sú erlenda
starfsemi, sem stóreykst með verk-
efninu í Karíbahafí, sé vaxtar-
broddur fyrirtækisins. Framtíðar-
áform geri ráð fyrir að þau skili um
40% af veltu félagsins, fragtflugið
um 30% og innanlandsflug um
30%.
Fjórir Is-
lendingar
til Kosovo
MEIRIHLUTI fjárlaganefnd-
ar vill að 37,7 milljónum króna
verði varið til að senda fjóra
liðsmenn frá íslandi til þátt-
töku í eftirlitssveit ÖSE í
Kosovo.
Liðsmenn um
2.000 talsins
Fastaráð ÖSE tók ákvörðun
um að stofna eftirlitssveit til
að sjá um eftirlit með fram-
kvæmd á samþykktum örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna í
Kosovo 25. október sl. Áætlað
hefur verið að liðsmenn verði
um 2.000 talsins. Aðrar Norð-
urlandaþjóðir ætla að senda
50 til 60 manns hver.
í öðru lagi er lagt til að
framlag til Alþjóðakjarnorku-
málastofnunarinnar lækki um
1,3 m.kr. í ljós hafi komið að
áætlað framlag til stofnunar-
innar geti lækkað frá því sem
áður var talið.
Loks er lagt tii að 20 m.kr.
verði veittar til fastanefndar
ÖSE í Kosovo.