Morgunblaðið - 12.12.1998, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Prófkjör framsóknar
f Reykjavík í janúar
Finnur
^ styður
Ólaf Örn í
2. sætið
FULLTRÚARÁÐ framsóknarfé-
laganna í Reykjavík hefar sam-
þykkt að efna til prófkjörs um fjög-
ur efstu sæti framboðslista flokks-
ins í Reykjavík. Prófkjörið fer fram
11.-15. janúar og er þátttaka bund-
in við félagsmenn í framsóknarfé-
lögunum í borginni.
A annað þúsund
manns félagsmenn
Að sögn Jóns Inga Einarssonar,
formanns fulltrúaráðs framsóknar-
félaganna í Reykjavík, rennur
frestur til að skila inn framboðum
út kl. 17 miðvikudaginn 30. desem-
ber. Þá rennur einnig út frestur
framsóknarmanna tU að skrá sig í
félögin og öðlast þannig rétt til að
taka þátt í prófkjörinu. Hann sagði
að í dag væru á annað þúsund
manns félagsmenn í framsóknarfé-
lögunum í Reykjavík.
Jón Ingi sagði að báðir þing-
menn flokksins í Reykjavík, Finn-
ur Ingólfsson og Olafur Örn Har-
aldsson, hefðu tilkynnt þátttöku í
prófkjörinu. Það hefði einnig Vig-
dís Hauksdóttir gert, en hún var í
fjórða sæti framboðslista flokksins
í síðustu kosningum. Fleiri ættu
vafalaust eftir að bætast við á
næstu dögum.
Fyrir síðustu kosningar viðhafði
Framsóknai'flokkurinn í Reykjavík
atkvæðagi-eiðslu meðal aðal- og
varamanna í fulltrúaráði flokksins.
„Samstarf okkar til mikillar
fyrirmyndar"
_ Á fundi fulltrúaráðsins lýsti
Ólafur Örn yfir eindregnum stuðn-
ingi við Finn í fyrsta sæti listans.
Finnur var spurður hvort hann
styddi Ólaf Örn í annað sæti list-
ans.
„Milli okkar Ólafs hefur verið
mjög gott samstarf á þessu kjör-
tímabili. Við stöndum fyrir mis-
munandi sjónannið, en þrátt fyrir
það hefur okkur gengið afskaplega
vel að vinna sáman. Hann hefur
stutt mig í mörgum erfiðum mál,
þannig að samstarf okkar er til
mikillar fyrirmyndar.
Við náðum líka mjög góðum
árangri í síðustu kosningum. Þá
náði Framsóknarflokkurinn næst-
besta árangri sem hann hefur náð í
alþingiskosningum í Reykjavík. Ég
er því eindreginn stuðningsmaður
Ólafs Arnar í annað sæti listans,"
sagði Finnur.
Nýja Boeing 757-300-þotan í prófun á nokkrum flugleiðum Condor
Flugleiðir fá sínar þot-
ur árin 2001 og 2002
Morgunblaðið/Halldór
ALLMARGIR starfsmenn Flugleiða og Boeing voru samankomnir í viðhaldsstöð Flugleiða í gær
þegar nýja 757-300-þotan frá Condor hafði viðkomu á Islandi.
FORSTJÓRI Flugleiða, Sigurður Helgason (t.h.), og Jack F. Gucker,
yfirmaður hjá Boeing, fluttu ávörp í gær.
FYRSTU 757-300-þotumar frá
Boeing-verksmiðjunum verða afhent-
ar þýska leiguflugfélaginu Condor
seint í mai's á næsta ári en 300-gerð-
in er ný og stækkuð útgáfa af 200-
gerðinni. Ein þotan, sem þegar hefur
verið máluð í litum félagsins og inn-
réttuð, hafði viðkomu í Keflavík í gær
eftir að hún hafði verið prófuð á
helstu flugleiðum félagsins. Flugleið-
ir hafa pantað tvær slíkar þotur sem
verða afhentar í mai-s árin 2001 og
2002. Alls hefur félagið nú í pöntun
fimm 757-þotur af báðum gerðum og
kauprétt á tveimur til viðbótar.
Condor var fyrst flugfélaga til að
panta 757-300-þotur og hefur pantað
13 og kauprétt á 12 til viðbótar.
Flugleiðir sigldu í kjölfarið með
pöntun á tveimur þotum og ísraelska
flugfélagið Arkia hefur einnig pantað
tvær. Jack F. Gucker, yfirmaður
smíði lengdu 737- og 757-gerðanna
hjá Boeing, tjáði Morgunblaðinu í
gær að eftir sýningu á 757-300-þot-
unni hjá Condor nú í vikunni hefðu
12 evrópsk flugfélög lýst áhuga sín-
um á kaupum og í Bandaríkjunum
hefðu þrjú til fjögur stóru félaganna
einnig lýst áhuga.
„Við nýttum tækifærið í Frankfurt
og buðum fulltrúum flugfélaga að
skoða þotuna eins og hún er nú full-
búin. Jafnframt fengu þeir upplýs-
ingar hjá fulltrúum Condor, sem
höfðu prófað vélina á flugleiðum sín-
um, um þessa fyrstu reynslu en
mörg flugfélaganna hafa þegar 757-
200-vélar í notkun,“ sagði Jack F.
Gueker. Elur hann þá von í brjósti
að eitthvert þessara félaga muni
panta á næsta ári. Hann segir Cond-
or fá sjö fyrstu vélamar afhentar á
fyrri hluta næsta árs.
Þegar Boeing sendir nýja flug-
vélagerð á markað fer einn af lokaá-
fongum prófana fram hjá því flugfé-
lagi sem fyrst fær slíka vél afhenta, í
þessu tilviki Condor. Sagði fulltrúi
Boeing að flogið hefði verið á fjórum
dögum milli Frankfurt og 11 áfanga-
staða Condor í sunnanverðri Evrópu
og Vestur-Afríku. Flugmenn voru
bæði frá Boeing og Condor og jafn-
framt prófuðu flugfreyjur allan bún-
að vegna þjónustu um borð. Einnig
var æfð hleðsla og afhleðsla vegna
farangurs og fraktar og raunar
hvaðeina er snertir alla meðhöndlun
vélarinnar.
Þessi þáttur prófunarinnar gekk
mjög vel, að sögn Jack F. Gucker og
Cheryl Addams, yfirmanns almanna-
tengsla, en í Þýskalandi reyndi ekki
síst á tæknifólk og aðra sem annast
afgreiðslu og umsjón flugvéla þar
sem frost og erfið veðurskilyrði hafa
verið síðustu daga. Nálega 50 starfs-
menn Boeing og álíka margir frá
Condor önnuðust prófanh'nar.
Um 3,8% aukning
sætaframboðs á ári
Þjár fyrstu 757-300-þotumar hafa
frá fyi'sta fluginu 2. ágúst verið í víð-
tækum flugprófunum, m.a. í Kefla-
vík. Prófunum lýkur næstu daga og
er gert ráð íyrir að vélin fái lofthæf-
isskírteini í janúar.
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, sagði í ávarpi sínu við at-
höfn í viðhaldsstöðinni í Keflavík í
gær að þessi gerð hentaði sérlega
vel bæði á Ameríku- og Evrópuleið-
um félagsins. Rifjaði hann upp þá
ákvörðun Flugleiða að fækka 737-
400-þotum félagsins en stækka flot-
ann með kaupum á 757-vélum og
verða næstu árin keyptar bæði 200-
og 300-gerðir. Flugleiðir fá fimm
757-þotur afhentar á jafnmörgum
árum. Fyrstu tvær þoturnar eru af
200-gerðinni og verða afhentar í
apríl 1999 og mars 2000, næstu tvær
eru af hinni nýju 300-gerð og til af-
hendingar í mars árin 2001 og 2002
og sú fimmta, verður afhent 2003 og
verður síðar ákveðið hvort tekin
verður 200- eða 300-gerð. Þá hefur
félagið kauprétt á tveimur 757-þot-
um til viðbótar. Við hverja 757-þotu
sem kemur í stað 737-þotu mun
sætaframboðið aukast um 3,8% að
meðaltali á ári þar sem um stærri
vélar er að ræða.
Sigurður benti fulltrúum Boeing
að miða við höfðatölu þegar borin
væru saman kaup Flugleiða og er-
lendra flugfélaga á þotum frá verk-
smiðjunum. Væri svo yrðu bandarísk
félög að kaupa 980 þotur á móti
hverri einni sem Flugleiðir keyptu
og evrópsk félög 310 þotur.
Forráðamenn Flugleiða segja um-
talsverðan sparnað nást með því að
hafa sem fæstar flugvélagerðir í
notkun, m.a. með lægri þjálfunai'-
kostnaði flugmanna og tækniliðs og
umfangi varahlutabirgða. Boeing
757-300-þotan er rúmlega 7 metrum
lengri en 200-gerðin og mun með
innréttingu Flugleiða taka á bilinu
214 til 227 farþega en 200-gerðin
tekur 176 til 189 farþega.
Félagsmálaráðherra segir útgáfu atvinnuleyfa hafa stóraukist
Vantar fólk til að halda
þjóðfélaginu gangandi
„ÞAÐ hefur orðið stórfjölgun á út-
gáfu atvinnuleyfa og er það vegna
þess að okkur vantar starfsfólk til
þess að halda þjóðfélaginu gang-
andi,“ segir Páll Pétursson félags-
málaráðherra. Fyrir nokkrum vik-
um hafði Vinnumálastofnun félags-
málaráðuneytisins gefið út um 1.500
atvinnuleyfi frá áramótum, skv.
upplýsingum Páls.
I Morgunblaðinu í gær kom fram
að útlendingum, sem veitt hefur ver-
ið dvalai'leyfi hér á landi, hefur
fjölgað mikið á seinustu misserum.
Fram kom í máli Jóhanns Jóhanns-
sonar, framkvæmdastjóra Útlend-
ingaeftirlitsins, að íslendingar væru
í dag í sömu stöðu og þjóðir Norður-
Evrópu voru í þegar þær fluttu inn
íjölda fai'andverkafólks um 1970.
Páll sagði að sér hefði ekki unnist
tími til að lesa ummæli Jóhanns
þegar þau voru borin undir hann.
Erfitt að fá fólk til starfa
„Það er hvergi fólk að fá til ým-
issa starfa. Það er til dæmis verið
að leggja hér fram svar á þinginu
við fyrirspurn frá Þórunni Svein-
björnsdóttur. Þar kemur í ljós að
núna vantar 42 ófaglærðar starfs-
stúlkur á Ríkisspítalana.
Við getum auðvitað ekkert annað
en heimilað útgáfu atvinnuleyfa.
Það er bundið því skilyrði að Út-
lendingaeftirlitið hafi heimilað per-
sónuna, atvinnurekandi sæki um
leyfi fyrir viðkomandi starfsmann,
á nafni hans, áður en hann kemur
til landsins og samþykki að greiða
honum samkvæmt íslenskum kjara-
samningum. Auk þess sem atvinnu-
rekandinn tekur að sér að kosta
viðkomandi starfsmann til landsins
og aftur heim að ráðningartíma
loknum. í fjórða lagi þarf viðkom-
andi verkalýðsfélag að samþykkja
ráðninguna," sagði Páll.