Morgunblaðið - 12.12.1998, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Regína Thorarensen býr við góðan kost á Hulduhlíð á Eskifirði:
ER yður eitthvað illa við almættið göfuga frú?
Ákvörðun
borgarráðs
felld úr gildi
ÚRSKURÐARNEFND
skipulags- og byggingarmála
hefur fellt úr gildi ákvörðun
borgarráðs um að fresta af-
greiðslu á erindi frá Háspennu
ehf., þar sem hún sé í and-
stöðu við reglur laga um með-
ferð umsókna um byggingar-
leyfí, svo og almennar reglur
stjómsýslu um valdmörk.
Jafnframt er lagt fyrir bygg-
ingamefnd Reykjavíkurborg-
ar að ljúka, án ástæðulauss
dráttar, afgreiðslu umsóknar
Háspennulínu ehf. um leyfi til
breytinga á húsinu við Skóla-
vörðustíg 6.
Umsókn verði tekin til
efnislegrar meðferðar
í úrskurðarorðum er felld
úr gildi ákvörðun borgarráðs
um að fresta afgreiðslu á er-
indi Háspennu ehf. um að
borgarráð hlutist til um að
veitt yrði leyfí til fram-
kvæmda við breytingar á
Skólavörðustíg 6 og að teikn-
ingar yrðu samþykktar á
næsta fundi byggingarnefnd-
ar. Jafnframt að byggingar-
nefnd taki til efnislegrar
meðferðar umsókn eiganda
Skólavörðustígs 6 um breyt-
ingar á eigninni, sem frestað
var á afgreiðslufundi bygg-
ingarfulltrúa og vísað var til
umsagnar skipulags- og um-
ferðarnefndar.
Vig’dís Finnboga-
dóttir í sérblaði Time
TÍMARITIÐ Time
hefur gefið út sérblað
um Evrópu undir yfír-
skriftinni „Visions of
Europe“. I blaðinu er
fjallað um stjórnmál,
menningu og lífshætti
Evrópuþjóða og rætt
um átök og horfur í álf-
unni við aldamót. í um-
fjöllun um evrópska
hugsjónamenn er sagt
frá störfum Vigdísar
Finnbogadóttur fyrr-
verandi forseta ís-
lands, viðhorfum henn-
ar og áhugasviðum.
Blaðið segir að Vig-
dís sé frumherji á ýmsum sviðum og
til þess tekið að hún hafi verið með
fyrstu einstæðu konunum á Islandi
sem ættleiddu barn.
Varðveitir andleg gildi
Hún varð síðar fyrst kvenna í
heiminum kjörin þjóðarleiðtogi í
lýðræðislegri kosningu og segir
Time farsæld Vigdísar í embætti
staðfesta orð hennar sjálfrar: „Peg-
ar land er lítið eins og Island er það
röddin sem gildir, ekki
fjöldi landsmanna.“
Greint er frá for-
mennsku Vigdísar í Ráði
kvenleiðtoga og sömu-
leiðis í nefnd UNESCO
um siðferðþ í tækni og
vísindum. „Ég vil að sem
flestar konur sjái hvað
ég er að gera og hugsi:
„Ef hún getur þetta, því
þá ekki ég?“„ er haft eft-
ir Vigdísi. Tímaritið
hrósar henni íyrir að
varðveita andleg gildi og
tekur undir eftirfarandi
orð hennar: ,AUt snýst
um efhahag um þessar
mundir, en við getum ekld haldið
þannig áfram. Við verðum að taka
fleira með í reikninginn; gildi hugans
og gildi hjartans."
Meðal annarra hugsjónamanna sem
fjallað er um í Evrópuhefti Time eru
Mona Sahlin íyrrum aðstoðarforsæt-
isráðherra Svíþjóðar, Eva Klotz leið-
togi sameiningarflokks Suður-Týról,
Valdas Adamkus forseti Litháen og
gríski kvenréttindafrömuðurinn
Margaref Papandreou.
Vigdís
Finnbogadóttir
Gjaldtaka Landmæl-
inga tekin til skoðunar
GUÐMUNDUR Bjamason umhverf-
isráðherra segir að gagnrýni Máls og
menningar á gjaldtöku Landmælinga
vegna útgáfu korta, þar sem að ein-
hverju leyti sé stuðst við gögn frá
stofnuninni, verði tekin til skoðunar
samfara heildarendurskoðun á gjald-
skrá Landmælinga sem nú fer fram.
Dragist hún lengur en fram að ára-
mótum verði þó að skoða kvartanir
Máls og menningar sérstaklega.
Mál og menning telur að gjaldtaka
Landmælinga eigi sér ekki stoð í lög-
um um stofnunina og að hún eigi ekki
höfundarrétt að gögnunum þar sem
þau séu bandarísk að uppruna.
Jób Balittiu HMBibalsm, stBdJiím
Ævisaga þorsksins
FISKURINN
SEM
BREVTTI
HEIMINUM
mark kurlansky
„Örlagafiskur. ísland kemur mikiö viö sögu í bókinni, sem er
blanda af sagnfræði, uppskriftum, blaðamennsku og skáldskap.
Mikilvægi framlags Islands í ÆVISÖGU ÞORSKSINS er ekki lítið,
því þorskastríð íslendinga gjörbreyttu t.d. alþjóöalögum og voru
... mikilvægari en Vletnam stríðið."
- Stöð 2
„Um leið og ég leit þessa bók Kurlanskys augum, opnuðust fyrir
mér nýjar víddir í skilningi á gangi sögunnar, og þá ekki sfður
íslandssögunnar. Ég var strax sannfærður um að þessa bók
þyrftu helst allir íslendingar að lesa sér til skilningsauka á stöðu
sinni I heiminum I nútíð og fortíð.“
- Ólafur Hannibalsson
.Ein af 25 bestu bókum ársins." - The New York Public Library
Evrópski kvikmyndasjóðurinn
Sextíu milljónir
til íslenskra
mynda í ár
Markús Örn Antonsson
Tíu ár eru liðin síðan
Evrópski kvik-
myndasjóðurinn tók
til starfa. Hann starfar inn-
an vébanda Evrópuráðsins í
Strassburg og er tilgangur-
inn með honum að styrkja
og efla samstarfsverkefni
milli kvikmyndaframleið-
enda í Evrópulöndum.
„Þetta er gert í því almenna
augnamiði að gera evr-
ópska kvikmyndagerð sam-
keppnishæfari og vinna að
útbreiðslu evrópskra kvik-
mynda til sýninga sem víð-
ast í kvikmyndahúsum og
sjónvarpi,“ sagði Markús
Om Antonsson sem sæti á í
stjóm sjóðsins fyrir íslands
hönd.
-Hvað hefar sjóðurinn
styrkt margar kvikmyndir?
„Frá stofnun hefur sjóð-
urinn styrkt 666 leiknar kvikmynd-
ir og heimildarmyndir og veitt
samtals sem nemur 14 milijörðum
íslenskra króna í styrki.“
-Hvemig eru reglurnar sem
sjóðurinn starfar eftir?
„Lögð er mjög rík áhersla á að
um samstarfsverkefni sé að ræða,
milli kvikmyndaframleiðenda í að
minnsta kosti þremur aðildarlönd-
um sjóðsins. Þau em nú 25 talsins.
Þá er átt við að listræn og tæknileg
samvinna sé fyrir hendi og einnig
fjármögnun. Sjóðsstjómin fer yfir
allar umsóknir sem berast, þær em
fjölmargar á ári hveiju. Fyrir
hvem úthlutunarfund er fjallað um
30 til 50 umsóknir og þurfa stjóm-
armenn að hafa kynnt sér greinar-
gerðir um efni myndanna og fjár-
mögnun. Auk þess hvaða listamenn
koma við sögu, leikstjórar og fram-
leiðendur. A úthlutunarfundunum
er það síðan hlutverk fulltrúa þess
lands sem hefur forystuhlutverkið í
hveiju samstarfsverkefni að mæla
fyrir því og taka síðan þátt í um-
ræðum um verðleika verksins.
Fulltrúar hinna landanna tveggja
sem eiga aðild að hinu tiltekna
verki sem meðframleiðendur gera
einnig grein fyrir þátttöku sinni og
síðan em greidd atkvæði um hvert
og eitt verk.“
-Hver er hlutur íslands í þessu
starfí?
„íslensk kvikmyndagerð hefur
tvímælalaust haft mikinn styrk af
Eurimages-sjóðnum og notið þar
velvildar. Það er greinilegt að
stjómarmenn meta mikils hæfi-
leika íslenskra kvikmyndagerðar-
manna, metnað þeirra og getu til
að skapa áhugaverð verk á þessu
sviði. Það er líka Ijóst að þeim
finnst ánægjulegt að hafa getað
stuðlað að framþróun kvikmynda-
gerðar í þessu fámenna landi.
Bjöm Bjamason menntamálaráð-
herra bauð til stjómarfundar
Eurimages hér á landi sumarið
1996. Sá fundur varð til þess að
auka skilning stjómarmannanna á
aðstöðu íslensks kvikmyndagerðar-
fólks og þeir höfðu tækifæri til að
hitta marga úr þess hópi. Slík inn-
sýn í íslenskar aðstæður hefur tví-
mælalaust haft mildð gildi fyrir
okkur síðan á þessum
vettvangi. Til marks
um það má nefna að á
þessu ári hefur
Eurimages veitt 60
milljónir króna í styrki
til íslenskra mynda.
Framlag okkar á árinu
til sjóðsins er sex milij-
ónir. Þessar 60 milljónir króna
vom styrkur til Myrkrahöfðingja
Hrafhs Gunnlaugssonar, Engla al-
heimsins sem Friðrik Þór Friðriks-
son gerir og til myndar Guðnýjar
► Markús Örn Antonsson fædd-
ist í Reykjavík 25. maí 1943.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1965 en hafði starfað sem blaða-
maður og ljósmyndari á Morgun-
blaðinu og fengist við gerð út-
varpsþátta meðfram námi. Hóf
störf 1965 í frétta- og fræðslu-
deild hins nýstofnaða sjónvarps
Ríkisútvarpsins, var við nám í
dagskrárgerð og sjónvarpsfrétta-
mennsku og vann undirbúnings-
starf fyrir fréttadeildina áður en
sjónvarpið hóf útsendingar árið
1966. Markús var borgarfulltrúi í
Reykjavík frá 1970 í 14 ár, sat í
ýmsum nefndum borgarinnar og
var forseti borgarsfjómar 1983
til ‘85. Hann var í útvarpsráði frá
1979 og formaður þess 1983 til
‘84. Útvarpssfjóri RÚV 1985 til
1991, borgarstjóri í Reykjavík
1991 til 1994. Framkvæmdastjóri
Útvarpsins 1995 til ‘98 og skipað-
ur útvarpsstjóri 1998. Hann hef-
ur fyrir Islands hönd setið í
stjóm kvikmyndasjóðs Evrópu-
ráðsins Eurimages siðan 1994. _
Markús er kvæntur Steinunni Ár-
mannsdóttur, skólasfjóra Álfta-
mýrarskóla, og eiga þau tvö upp-
komin börn.
Halldórsdóttur Ungfrúin góða og
húsið.
- Hvað margar íslenskar myndir
hafa fengið styrk frá sjóðnum frá
upphafí?
,AUs hafa 15 íslenskar bíómynd-
ir fengið styrki úr Eurimages-kvik-
myndasjóðnum, samanlagt að upp-
hæð 224 milljónir króna á sama
tíma og framlag íslands til sjóðsins
hefur alls verið 30 milljónir króna.
Aðildarlönd Evrópuráðsins eru nú
40 talsins og hefur þeim fjölgað á
undanfómum árum með þátttöku
landanna í austanverðri Evrópu.
Því má gera ráð fyrir að aðildar-
löndum kvikmyndasjóðs Eurima-
ges eigi eftir að fjölga á næstu ár-
um, en þau eru 25 talsins nú um
stundir. Þetta mun auðvitað leiða
til þess að fiárþörfin verður meiri
hjá sjóðnum og samkeppnin um
styrki harðari. Ég hef lagt ríka
áherslu á að sjóðsstjómin taki tillit
til sérstöðu hinna fámennari þjóða
eins og íslands og
styðji við bakið á kvik-
myndagerðarmönnum
sem ekki hafa beinan
aðgang að hinum
stærri mörkuðum. Það
sjónarmið hefur notið
skilnings og ég vona að
svo verði áfram og að
íslenskir kvikmyndagerðarmenn
geti áfram þróað samstarf við
starfsbræður sína í öðrum löndum
um verkefni sem uppfylli skilyrði
sjóðsins.
„Alls hafa 15
íslenskar bíó-
myndir fengið
styrki úr
Eurimages.“