Morgunblaðið - 12.12.1998, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998 15
FRÉTTIR
Rauði krossinn styrkir sjúkraflutningamenn til náms
Morgunblaðið/Júlíus
ÓLAFUR R. Magnússon og Stefnir Snorrason hlutu styrk vegna grunnnámskeiðs fyrir sjúkraflutninga og
Þórður Ágústsson, Ólafur Þór Ólafsson, Ólafur Sigurþórsson, Jón Trausti Gylfason, Guðmundur Guðjóns-
son og Guðlaugur Magni Davíðsson, hlutu styrk vegna framhaldsnámskeiðs í sjúkraflutningum auk þeirra
Sveins Loga Björnssonar og Friðjóns Daníelssonar, sem voru í útkalli. Með þeim á myndinni er Þór Hall-
dórsson, formaður Reykjavíkurdeildar Rauða kross Islands.
REYKJAVÍKURDEILD Rauða
kross íslands hefur veitt átta
starfsmönnum Slökkviliðs
Reykjavíkur styrk úr Menntunar-
sjóði sjúkraflutningamanna til að
sækja neyðarbifreiðarmenntun
sem Sjúkraflutningaskóli Rauða
kross Isiands veitir og tekur sex
vikur. Tveir starfsmenn að auki
fengu styrk vegna grunnnám-
skeiðs fyrir sjúkraflutninga.
Jafnframt hefur Rauði kross Is-
lands afhent Reykjavíkurdeild
Rauða krossins, nýjan sjúkrabfl
með breyttu útliti og afhenti
Reykjavíkurdeildin Slökkviliðinu
bifreiðina til afnota. f máli Hrólfs
Jónssonar slökkviliðsstjóra kom
fram að árangur af neyðarflutn-
ingum á svæði Slökkviliðsins
væri sá íjórði besti í Evrópu.
Jón Viðar Matthiasson vara-
slökkviliðsstjóri sagði í þakkar-
Fjórði besti
árangur
í Evrópu
ávarpi að menntun sjúkraflutn-
ingamanna væri nauðsynleg.
„Við erum með búnað á heims-
mælikvarða og við stefnum þang-
að líka,“ sagði hann.
Þáttur SHR mikilvægur
Hrólfúr Jónsson slökkviliðs-
stjóri, sagði að árangur björgun-
araðgerða réðist af þrennu, þ.e.
að markmið og hlutverk þeirra
sem taka þátt í þeim væru skýr,
að aðgangur að tækjum og mann-
afla væri nægur og þekking,
þjálfun og reynsla væri fyrir
hendi. „Ég held að rekstur neyð-
arþjónustunnar í borginni sé til
marks um það að þegar þetta
þrennt er fyrir hendi þá er árang-
urinn með þeim hætti sem við höf-
um í dag,“ sagði hann. Sagði hann
að árangur af neyðarflutningum á
svæði Slökkviliðsins væri eins og
meðal fjögurra bestu slökkviliða í
Evrópu. I því ætti Sjúkrahús
Reykjavíkur stóran þátt og þeir
læknar sem þar starfa.
Jafnframt hefur Reykjavíkur-
deild Rauða krossins afhent
Slökkviliðinu bangsa fyrir börn
sem slasast og flutt eru í neyðar-
bflunum en í Ijós hefur komið að
bangsar gera börnunum oft lífið
bærilegra á erfiðum stundum.
Bangsarnir eru frá Reykjavíkur-
deildinni og fyrirtækinu MAX og
eru þeir klæddir í búning sjúkra-
flutningamanna.
Opið alla daaa til ióla
VERÐSPRENGJA
60 cm a hœð
JOLATRE
1.5, 1.85 og 2.10 metra meðan byrgðir endast
Kr. 3900,<
Samg verð á öllum staerðunT
JOLAKERTI
JOLASKRAUT
SKREYTIEFNI JÓLADISKAPLÖST
GRENILENGJUR BASTKÖRFUR
JÓLATRÉSFÆTUR og margt fleira
Vandaður skúffuskápur og jólatrésfótur fylgir með
hverju seldu jólatré meðan byrgðir endast.
á Sprengiverði
Brauðristar
Kaffivélar
Riksugur
Samlokugrill
Vöfflujárn
Suðukönnur
Hitateppi
Útvarpstæki
Vasadiskó
Klukkur
Fjöldi annarra tækja á verði sem ekki hefur
sést hér á landi - Sjón er sögu ríkari.
KOLAPORTIÐ
MARKAÐSTORG
Opió um helgar kl. 11 -17 og virka daga kl. 12-18
Veður og færð á Netinu mbl.is
ALLTXKf= GiTTHVV\£> A/ÝT7
Andlát
KJARTAN TÓMAS
GUÐJÓNSSON
KJARTAN Tómas
Guðjónsson, fyrrver-
andi sjómaður, lést á
Dvalarheimili aldraðra
sjómanna í Hafnarfírði
hinn 7. desember sl. 91
árs að aldri.
Hann varð þekktur
á sinni tíð sem einn af
5 manna áhöfn á mb.
Kristjáni er báturinn
var týndur í hafi í 12
daga í febrúarmánuði
1940. Kristján var vél-
stjóri bátsins. Honum
tókst að eima vatn úr
sjó og varð það til þess
öðru fremur að halda lífi í áhöfn-
inni. Mb. Kristján varð vélarvana
og hraktist undan veðri og vindum.
Lengst rak hann 120 sjómílur á haf
út. Var búið að telja bát og áhöfn af
þegar bátinn rak á land við Hafnir
á Reykjanesi á 12. degi. Var þar
haugabrim en allir
skipverjar björguðust
heilir á húfi. Eru
hrakningar þessar ein-
hverjir hinir mestu og
langvinnustu sem sög-
ur fara af hér á landi
og voru skráðir í ann-
ála.
Kjartan stundaði
sjómennsku í 53 ár á
fjölda báta. Eftir að
hann hætti sjó-
mennsku árið 1972
starfaði hann í frysti-
húsi Einars Guðfinns-
sonar í Bolungarvík og
hætti þar störfum daginn fyrir átt-
ræðisafmælisdaginn sinn. Arið
1988 fluttist hann á DAS í Hafnar-
firði.
Kjartan verður jarðsunginn frá
Hólskirkju í Bolungarvík laugar-
daginn 12. desember nk. kl. 11.
/OLATRE
TIIB ORI(ÍINAL/USA
4. .
★ TIU ARA ABYRGÐ, ÆVIEIGN
★ VERD AÐEINS ERÁ 2900,-
★ MARGAR STÆRDIR
★ /ÓLASERIA & FÓTUR FYLGIR
3 ÚTSÖLUSTAÐIR ALASKA
Alaska v/BSÍ, Borgartúni 22 a Ármúla 34 s: 562 2040
CjjajaL l
óonnum
ort með
.J
jolc
aan
da
Hretffmg
Cjieymíð jér íimuatninuy u iUJá
ieðurLönzhunum ocj ndttLjóinum í ar!
ínum.
Sýnið sanna
umhyggju með
gjöf sem styrkir
líkama og sál.