Morgunblaðið - 12.12.1998, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Maður dæmdur til bótagreiðslu í
Héraðsdómi Norðurlands eystra
Felldi tré ná-
granna síns
Morgunblaðið/Kristján
SAGA Skautafélags Akureyrar 1937-1997 er komin út og fékk Krist-
ján Þór Júlíusson bæjarsljóri fyrsta eintakið afhent í gær. Með hon-
um á myndinni eru ritnefndarmenn, Jón Hjaltason, lengst til vinstri,
Guðmundur Pétursson og Ásgrímur Ágústsson.
Saga Skautafélags
Akureyrar í 60 ár
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt mann til
greiðslu bóta að upphæð rúmar
65.000 krónur auk dráttarváxta,
fyrir að fella nokkur stór tré á lóð
nágranna síns í raðhúsi á Akureyri.
Einnig var manninum gert að
greiða 50.000 krónur í málskostn-
að.
Eigandi trjánna stefndi mannin-
um fyrir að hafa valdið sér fjár-
hagslegu tjóni með skemmdar-
verkum á eignum sínum. Þessi at-
laga stefnda að eignari’étti stefn-
anda hafi um leið verið atlaga að
persónu hans. Taldi stefnandi sig
einnig eiga rétt til miskabóta.
Stefndi taldi að ekki hafi verið
um skemmdarverk að ræða, heldur
nausynlegan óbeðinn erindisrekst-
ur unninn af illri nauðsyn og í góðri
trú. Lóð stefnanda hafi verið í stór-
kostlegu hirðuleysi enda hafi henni
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Opið hús
sunnudagaskólans í Safnaðarheimili
frá kl. 10.30 til 12 á morgun, sunnu-
dag. Jólaföndur íyrir bömin og
heitt á könnunni fyrir foreldra.
Danssýning kl. 11.15. Guðsþjónusta
kl. 14 á morgun, sopi og spjall í
Safnaðarheimili á eftir, en þar gefst
kirkjugestum kostur á að ræða
predikun dagsins. Jólasöngvar Kórs
Akureyrarkirkju í kirkjunni kl.
20.30 annaðkvöld. Einsöngvari Ósk-
ar Pétursson. Kyrrðar- og fyrir-
bænastund í kapellu kirkjunnar kl.
12 næsta fimmtudag, 17. desember.
GLERÁRKIRKJA: Kirkjuskól-
inn kl. 11 á morgun, sunnudag. For-
eldrar hvattir til að.mæta með börn-
unum. Aðventukvöld kl. 20.30. á
sunnudagskvöld, Kristinn G. Jó-
hannsson flytur hugleiðingu, kór
Glerárkirkju og barnakór kirkjunn-
unnar syngja, ljósaathöfn í lokin.
Kyrrðar- og tilbeiðslustund kl. 18.10
á þriðjudag. Hádegissamvera kl. 12
á miðvikudag, 16. desember, orgel-
leikur, altarissakramenti og fyrir-
bæn, léttur hádegisverður á eftir.
Síðasta samvera fyrir jól.
HRÍSEYJARPRESTAKALL:
Helgistund í kirkjugarði Hríseyjar í
dag, laugardag, 12. desember kl. 18
og kveikt verður á leiðalýsingunni.
Sunnudagaskóii í kirkjunni í Hrísey
kl. 11 á morgun. Sunnudagaskóli
verður í Stærri-Árskógskirkju á
morgun, sunnudag, kl. 11.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Bæn
og lofgjörð kl. 10 til 12 í dag, laugar-
dag, bæn kl. 20 til 21 í kvöld. Sunnu-
dagaskóli fjölskyldunnar, biblíu-
kennsla fyrir alla aldurshópa kl.
11.30 á morgun, sunnudag, léttur
hádegisverður á vægu verði á eftir.
Vakningasamkoma sama dag kl.
16.30, fjölbreyttur söngur,
bamapössun fyrir börn yngri en 6
ára. Vonarlínan, 462-1210, símsvari
allan sólarhringinn með uppörvun-
arorðum úr ritningunni.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í
dag, laugardag kl. 18 og á morgun,
sunnudag kl. 11 í kirkjunni við Eyr-
arlandsveg 26.
--------------
Aglowfundur
OPINN Aglowfundur verður hald-
inn í félagsmiðstöð aldraðra í Víði-
lundi 22 á Akureyri næstkomandi
mánudagskvöld, 14. desember og
hefst hann kl. 20. Katrín Þorsteins-
dóttir verður með hugvekju, Anna
Júlíana Þórólfdóttir syngur ein-
söng. Söngur, lofgjörð, fyrirbæna-
þjónusta og kaffihlaðborð. Þátt-
tökugjald er 350 krónur.
ekki verið sinnt né um hana hirt í
10 ár vegna þess að stefnandi bjó í
öðrum landshluta og bannaði leigj-
endum sínum að hirða um gróður-
inn. Hafi trén verið allt of þétt og
þegar þau uxu þá skyggðu þau á
sólarljós, ekki aðeins í íbúð stefnda
heldur í næstu íbúðum. Stefndi
taldi jafnframt að grenndarréttur
hafi verið brotinn svo freklega á
sér að honum hafi verið nauðugur
einn kostur að bregðast við.
f óþökk allra nágranna
I dómskjali kemur fram að 13
íbúar raðhússins og 4 brottfluttir,
staðfesta að aldrei hafi verið sam-
þykkt á húsfundi sú trjárækt sem
átti sér stað á lóð stefnanda. Stærð
og fjöldi trjáa á lóðinni hafi verið til
verulegra óþæginda fyrir aðra íbúa
raðhússins og í fullkominni óþökk
allra nágranna.
I dómnum kemur fram að óum-
deilt sé að stefndi felldi tré á lóð
stefnanda þó nokkuð sé á reiki um
fjöldann. Stefndi var dæmdur til að
greiða bætur vegna kostnaðar við
að fjarlægja rótarhnyðjur og vegna
gróðursetningar og frágangs á lóð.
Stefndi var hins vegar sýknaður af
kröfu um miskabætur en dæmdur
til greiðslu málskostnaðar.
Ásgeir Pétur Ásgeirsson héraðs-
dómari kvað upp dóminn.
LANDSSÍMI íslands opnaði nýja
þjónustumiðstöð í Hafnarstræti 102
á Akureyri í gær að viðstöddum
stjórnendum Landssimans, m.a.
Guðmundi Bjömssyni forstjóra og
Þórarni V. Þórarinssyni stjórnar-
formanni og þá var samgönguráð-
herra Halldór Blöndal við opnunina.
Með opnun nýju þjónustumið-
stöðvarinnar sameinast starfsemi
sölusviðs Landssímans undir einu
þaki. Annars vegar er verslun Sím-
ans sem nú nýverið tók við af-
geiðslu fjarskiptaþjónustu og sölu
notendabúnaðar frá Islandspósti
sem fram til þess hafði verið með
SAGA Skautafélags Akureyrar
1937-1997 er komin út og afhentu
ritnefndarmenn Kristjáni Þór Júlí-
ussyni, bæjarstjóra ú Akureyri,
fyrsta eintakið í gær.
I ritnefnd voru Guðmundur Pét-
ursson formaður, Ásgrímur
Ágústsson og Jón Hjaltason, en sú
síðastnefndi skrifaði bókina og Ás-
grímur tók að sér öflun Ijósmynda.
Hann hefur um langt árabil verið
eins konar hirðljósmyndari
Skautafélags Akureyrar og er í
safni hans að finna hundruð ef
ekki þúsundir skautamynda. Mikið
kapp hefur verið lagt á að hafa
Ijósmyndir sem flestar og fjöl-
breytilegastar.
umboð fyrir Landssímann. Verslun
Símans á Akureyri þjónar öllu
Norðurlandi eystra. Þar starfa nú
átta manns og er verslunarstjóri
Andrea Þorvaldsdóttir. Hins vegar
er tækniþjónustudeild, sem hefur
með höndum lagna- og uppsetning-
armál viðskiptavina sem og sölu og
þjónustu vegna einkasímstöðva og
lagnaefnis. Fjórir starfsmenn eru á
tækniþjónustudeild. Verkstjóri er
Anna K. Arnardóttir. Yfirmaður
Landssímans á Akureyri og jafn-
framt þjónustustjóri fyrir Norður-
land eystra er Guðmundur Jó-
hannsson.
Ákvörðun um ritun sögu félags-
ins var tekin í upphafi árs 1996 en
þá var 60 ára afmæli félagsins
framundan. Texti bókarinnar var
að sögn Jóns að mestu tilbúinn á
seinasta ári en undanfarna mánuði
hafa verið tekin viðtöl sem í bók-
inni eru og unnið við að safna sam-
an og velja myndir.
Vænta ritnefndarmenn þess að
bókin megi verða skautaáhuga-
mönnum til ánægju og gleði um
leið og hún varpar fróðlegu ljósi
á sérstakan kafla í sögu Akureyr-
ar. En ekki megi gleyma því að
saga skautaíþróttarinnar hefur í
áratugi verið samofin sögu Akur-
eyrar.
Búmenn
kynna áform
um bygging-
ar á Eyrar-
landsholti
HÚSNÆÐISFÉLAGIÐ Búmenn
heldur fund í félagsmiðstöðinni í
Víðilundi kl. 15 á morgun, sunnudag-
inn 13. desember.
Á fundinum verður stofnuð deild
Búmanna í Eyjafirði, en það verður
fyrsta deildin sem stofnuð verður
innan þessa húsnæðisfélags. Áform-
að er að stofna fleiri deildir víða um
land síðar.
Auk þess sem deildin verður
stofnuð verður á fundinum greint frá
áformum Búmanna um byggingu allt
að 40 íbúða á nýju byggingarsvæði
við Eyi-arlandsholt á Akureyri, en
félagið hefur ásamt Búseta sótt um
lóðir á svæðinu. Áhersla er lögð á
lágar byggingar og er gert ráð fyrir
að byggð verði nokkur raðhús á einni
til tveimur hæðum.
Aldursmark við kaup á íbúðum er
55 ár, en félagið hefur hvatt fólk til
að fara að huga að breytingum á
húsnæðismálum sínum eitthvað fyn-.
Varðandi fjármögnum og rekstur
munu félagsmenn nýta sér svonefnt
búseturéttarfoi-m, þannig að fólk
kaupir sér ákveðinn eignarhluta, bú-
seturétt en greiðir svo allan kostnað
við húsnæðið, búsetugjald og er inni-
falið í því allur kostnaður við rekstur
húsnæðisins, s.s. fasteignagjöld,
tiyggingar, viðhald og fleira.
-------------
Aðventukvöld í
Grundarkirkju
AÐVENTUKVÖLD verður í Grund-
arkirkju sunnudagskvöldið 13. des-
ember og hefst það kl. 21. Ræðu flyt-
ur frú Ingibjörg Bjarnadóttfr frá
Gnúpufelli. Nemendur úr Tónlistar-
skóla Eyjafjarðar flytja tónlist og
Kai’lakór Eyjafjarðar syngur.
Garún
sýnir á
Kardlínu
TRÚAR-AF-LAUSN er heiti á
sýningu Garúnar, Guðrúnar
Þórisdóttur, sem nú stendur yf-
ir á Café Karólínu í Grófargili.
Öll verkin eru unnin með ol-
íulitum á gamla kirkjuglugga
og hurð. Gluggarnir eru úr
Ólafsfjarðarkirkju, frá árinu
1915 um það bil. Garún út-
skrifaðist úr málunardeild
Myndlistarskóla Akureyi’ar
1994 og hefur hún tekið þátt í
samsýningum innanlands og
utan, auk þess sem þetta er
áttunda einkasýning hennar.
Jólatáknið
1998
FASTUR liður í jólaundirbún-
ingi í Jólagarðinum í Eyja-
fjarðarsveit er að leita til lista-
og hagleiksfólks um gerð hlut-
ar, sem verður tákn viðkom-
andi jóla. Að þessu sinni legg-
ur glerlistakonan Katrín Páls-
dóttir til táknið sem er kerta-
skál. Skálin er merkt ártali
auk þess að vera svo sem venja
er með jólatáknin í 110 tölu-
settum eintökum.
Katrín hefur numið mynd-
list bæði hér heima og í Nor-
egi. Hún vinnur að glerlist í
Gallerí Kletti í Hafnarfirði og
starfar auk þess við myndlist-
arkennslu í Lækjarskóla í
Hafnarffrði.
Leikmynda- og ljós-
hönnuður hjá LA
Tilnefndur
til norsku
leikhúsverð-
launanna
KRISTIN Bredal leikmynda-
og ljósahönnuður í jólasýningu
Leikfélags Akureyrar á Pétri
Gaut eftir Henrik Ibsen hefur
verið tilnefnd til norsku leik-
húsverðlaunanna, „Hedda pri-
sen“, sem kennd eru við
Heddu Gabler. Verðlaunin
verða afhent á morgun, sunnu-
dag í Osló.
Verðlaun þessi eru nú veitt í
fyrsta sinn og eru þrír til-
nefndir í hverjum flokki, en
þeir eru alls fimm. Kristin
hlaut tilnefningu í opnum
flokki fyrir Ijósahönnun sína í
ballettinum Sex augu sem
frumsýndur var fyrr á þessu
ári en það var Norski þjóðar-
ballettinn sem sýndi verkið í
Osló.
Hátíð á FSA
STJÓRN Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri minnist
þess með hátíðardagskrá að á
þessu ári eru liðin 125 ár frá
því rekstur sjúki’ahúss hófst á
Akureyri. Jafnframt eru liðin
45 ár frá því starfsemin fluttist
í fyrsta hluta Fjórðungs-
sjúkrahússins. Tímamótanna
verður minnst með hátíðar-
dagskrá á sjúkrahúsinu þriðju-
daginn 15. desember frá kl. 14
til 16 og eru allir hollvinir
sjúkrahússins velkomnir.
Kertagerð
GESTUM Samlagsins í
Grófargili gefst kostur á að út-
búa sitt eigið jólakerti á morg-
un, laugardaginn 12. desem-
ber, frá kl. 14 til 18. Guðrún
Hadda verður á staðnum og
leiðbeinir áhugasömu kerta-
gerðarfólki.
Morgunblaðið/Kristján
LANDSSIMI Islands opnaði nýja þjónustumiðstöð Símans á Akureyri í
gær, á myndinni eru þeir Guðmundur Jóhannsson þjónustusljóri á
Norðurlandi eystra og Guðmundur Björnsson forstjóri.
Ný þjónustumið-
stöð Landssíma Is-
lands á Akureyri