Morgunblaðið - 12.12.1998, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Olafshtís veitinga-
staður í hjarta
Sauðárkrtíks
Sauðárkróki - Fyrstu helgi í að-
ventu opnaði Olafur Jónsson, veit-
ingamaður á Sauðárkróki, nýja
viðbyggingu við veitingahúsið
Pollann sem hann á og rekur við
aðalgötuna á Sauðárkróki.
Pollann, sem var pítsuveitinga-
hús, keypti Olafur í september
1997 og hóf þar veitingarekstur
en hefur nú bætt við tæplega 100
fm viðbyggingu þar sem aðstaða
er fyrir um 90 manns í sal.
Olafur sagði að allt frá opnun-
arkvöldinu hefði verið mjög mikið
að gera en hann opnaði með veg-
legu jólahlaðborði sem aðeins átti
að vera um helgar til jóla en nú
væri svo komið, sagði Olafur, að
hlaðborðið væri öll kvöld og liti út
fyrir að þannig myndi verða fram
til hátíða. Félaga- og vinnuhópar
væru mjög margir og kæmu gest-
ir, auk bæjarbúa, og nærsveita-
manna bæði vestan úr Húna-
vatnssýslum og frá Siglufirði.
Olafur sagðist reka veitinga- og
matsölustað þar sem menn gætu
fengið góðan mat og góðar veit-
ingar í notalegu umhverfi og um
helgar lékju tónlistarmenn fyrir
matargesti en hann hefði ekki hug
á því að í Olafshúsi yrði um dans-
stað að ræða, markmiðið væri að
hver og einn fengi notið hins
besta í veitingum og notalegheit-
um.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra, á miðri mynd, hefur tekið við bifreiðunum af David Architzel flotafor-
ingja, til hægri, og er að afhenda Inga Þór Þorgrímssyni, fulltrúa Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík, þær.
Morgunblaðið/Bjöm Björnsson
ÓLAFUR Jónsson við barinn í Pollanum.
Flugbjörgunarsveitin fær
sex bifreiðar að gjöf
Keflavík - „Þetta er höfðingleg
gjöf og afar þýðingamikil fyrir
starfsemi okkar. Hún gerir okkur
kleift að gera hluti sem við vorum
áður allsendis ófærir um vegna
fjárskorts," sagði Ingi Þór Þor-
grímsson, fulltrúi Flugbjörgunar-
sveitarinnar, eftir að hann hafði
tekið við sex íjórlijóladrifnum
„pick-up“ bifreiðum, sem eru gjöf
frá Bandaríkjaher.
Það voru David Architzel flota-
foringi og yfirmaður varnarliðsins
og Robert E. Sorenson aðstoðar-
sendiherra sem fyrir hönd banda-
rískra stjórnvalda afhentu Hall-
dóri Ásgrímssyni utanríkisráð-
herra bifreiðamar og hann af-
henti þær síðan Flugbjörgunar-
sveitinni.
Ingi Þór sagði að árið 1996
hefðu fulltrúar stjórnar Flug-
björgunarsveitarinnar í Reykjavík
gengið á fund utanríkisráðuneyt-
isins með ósk um aðstoð þess við
að fá búnað til mannúðarverkefna
í gegnum birgðakerfi heija Atl-
antshafsbandalagsríkjanna. Fyrir
milligöngu ráðuneytisins óskaði
flugbjörgunarsveitin eftir sex bif-
reiðum fyrir björgunartæki og
annan búnað. Undanfarið ár hefur
verið unnið að því í ráðuneytinu
og fyrir milligöngu varnarliðsins
og bandaríska sendiráðsins að ná
þessu marki.
Verða notaðar til flutninga
Ingi Þór sagði ennfremur að bif-
reiðamar yrðu aðallega notaðar til
flutninga, svo sem á tækjabúnaði,
vélsleðum, olíu og þá í tengslum
við lendingaraðstöðu fyrir þyrlur
Gæslunnar. Hann sagði að eitthvað
þyrfti að dytta að bílunum áður en
þeir yrðu teknir í gagnið, þó mis-
mikið og einhverjir yrðu brúkiegir
fljótlega.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
FRÁ sýningu helgileiksins á aðventuhátíðinni á Flúðum.
Meiriháttar
pelsálpur með hettu handa
henni í
jólapakkann mjf i
Mörg snið Ai ffWr '
Stuttar og síðar M t v F'
pelskápur
Verð frá kr. 9.900 &
Opið laugard. 10-18. i m
\o^HW5IÐ h Vendiulpur kr. 25.900
Mörkinni 6, sími 588 5518. i ’ 130
Fréttir á Netinu ^mbl.is ALLTAf= £ITTH\SA£> AÍÝT7
Aðventu-
hátíðir í
uppsveitum
Hmnamannahreppi - Að venju var
haldin aðventuhátíð í Félagsheimil-
inu á Flúðum að kvöldi annars
sunnudags í aðventu. Að þessu sinni
var hún fjölbreyttari og dagskráin
lengri en jafnan áður.
Börn úr yngri kór Flúðaskóla
sungu í upphafí tvö jólalög. Krist-
inn Kristmundsson frá Kaldbak,
skólameistari á Laugarvatni flutti
hugvekju. Barnakór Flúðaskóla
flutti helgileikinn Fæðing frelsar-
ans eftir Hauk Ágústsson og söng
einnig ungversk jólalög við texta
eftir sr. Eirík Jóhannsson, stjórn-
andi og undirleikari var Edit Mol-
nár. Leikarar úr leikdeild ung-
mennafélagsins aðstoðuðu við upp-
setningu verksins sem þótti takast
mjög vel. Kirkjukór Hruna- og
Hrepphólasóknar, sem er nú orð-
inn einn kór, söng nokkur jólalög
undir stjórn Edit Molnár en undir-
leikari var eiginmaður hennar,
Miklós Dalmay. Einsöng með
kórnum sungu þeir Hjálmur
Hjálmsson og Kjartan Sigurðsson,
þeir eru 10 ára gamlir. Séra Eirík-
ur Jóhannsson, sóknarprestur í
Hruna, leiddi sameiginlega bæn
allra viðstaddra sem sungu einnig
þrjá sálma saman.
Fyrr um daginn flutti barnakór-
inn jólahelgileikinn við guðsþjón-
ustu hjá séra Agli Halgrímssyni í
Skálholtsdómkirkju og þai’ sungu
einnig börn úr bamastarfi Skál-
holtsprestakalls undir stjóm
Hilmars Agnarssonar. Þá var jóla-
helgileikurinn einnig sýndur í fé-
lagsheimilinu Árnesi í Gnúpverja-
hreppi miðvikudaginn 9. desember.
Þar sungu barnakórar úr Gnúp-
verja-, Skeiða- og Hrunamanna-
hreppi, hver kór fyrir sig og einnig
allir saman.
Mikill fjöldi fólks sótti þessar há-
tíðarsamkomur.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
EFTIRLAUNAÞEGAR á Skagaströnd bjuggu sig uppá eitt kvöldið og
skelltu sér á jólahlaðborð í Kántrýbæ. Þar var glatt á hjalla enda
margur spaugarinn í hópnum.
Aldraðir á Skaga-
strönd skemmta sér
Skagaströnd - Eftirlaunaþegar á
Skagaströnd lifa sannarlega eftir
orðatiltækinu „enginn er eldri en
honum finnst hann vera“. Þannig
skelltu um tuttugu þeirra sér
saman á jólahlaðborð í Kántrýbæ
nú á dögunum og skemmtu sér
vel fram eftir kvöldi með öðru
fólki sem þar var.
Ellilífeyrisþegar á Skaga-
strönd koma saman tvisvar í viku
allan veturinn og spila, spjalla,
föndra og drekka saman kaffi.
Ekki er heldur laust við að þar
fljúgi stökur yfir salinn þegar sá
gállinn er á fólkinu. Allt er það
þó í góðu og gert til gamans. Á
vorin hættir þessi starfsemi enda
er fólkið sammála um að á vorin
og sumrin sé svo mikið að gera
hjá þeim að þau megi ekki vera
að því að mæta.