Morgunblaðið - 12.12.1998, Page 22
22 LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998
MORGUNBLADIÐ
VIÐSKIPTI
íslenskum knattspyrnufélögum
á hlutabréfamarkaði að fjölga
Stofnun hluta-
félags til skoð-
unar hjá IBV
JÓHANNES Ólafsson, formaður
knattspyrnudeildar IBV, segir að
Eyjamenn velti alvarlega fyrir sér
að stofna hlutafélag um rekstur
knattspyrnudeiklar. Stefnt er að
breyttu rekstrarformi knatt-
spyrnudeildar Breiðabliks á næsta
ári en nokkur önnur félög vilja bíða
og sjá hver þróunin verður af
hlutafjárútboði í Fram - Fótbolta-
félagi Reykjavíkur og KR-Sport.
„Ætlunin er að setja saman nefnd
á næstunni til þess að skoða kosti
og galla við breytt rekstarform
deildarinnar. Það sem stendur í
vegi fyrir slíku er að fyrir tveimur
árum stofnuðu knattspymudeild
og handknattleiksdeild nýtt félag,
IBV-íþróttafélag. Eg geri ekki ráð
fyrir að fjárfestum þætti hand-
knattleikur fýsilegur fjárfestingar-
kostur,“ sagði Jóhannes. „Þar af
leiðandi þyrfti að aðskilja deildirn-
ar tvær ef knattspyrnudeild yrði
gerð að hlutafélagi."
Jóhannes segir að einnig komi
til greina að búa til hlutafélag ut-
an um leikmenn deildarinnar.
„Ekki líður á löngu áður en ís-
lensku félagi tekst að selja leik-
Nýr forstjóri
Fjármálaeftir-
litsins
GUNNAR Páll Gunnarsson,
lögfræðingur og fyrrum deild-
arstjóri í viðskiptaráðuneytinu,
hefur verið ráðinn nýr forstjóri
Fjármálaeftirlitsins. Frá þessu
var gengið á stjórnarfundi í
gær.
Að sögn Gunnars mun hann
þegar hefjast handa við að
undirbúa starfsemi Fjármála-
eftirlitsins sem hefst um næstu
áramót. Stofnunin mun taka að
sér þá starfsemi sem Banka-
og Vátryggingaeftirlitið hafa
nú með höndum.
mann fyrir í það minnsta 100
milljónir króna. Slík fjárhæð gæti
gjörbreytt rekstri knattspyrnu-
deilda og því nauðsynlegt að gera
samninga við leikmenn sem trygg-
ir að félögin fái eitthvað í sinn
hlut.“
Keflvíkingar bíða átekta
Kjartan Másson, hjá knatt-
spymudeild ÍBK, segir að Keflvík-
ingar muni fylgjast grannt með
hvernig tekst til við hlutafjánítboð
í Fram - Fótboltafélagi Reykjavík-
ur og KR-Sport í næstu viku. „Við
viljum sjá hver framvindan verður
og ætlum okkur að vera tilbúnir að
taka þátt í þess konar rekstri ef vel
tekst til hjá Reykjavíkurfélögunum
tveimur."
Knattspymudeild Breiðabliks
hyggst breyta rekstrarformi deild-
arinnar á næsta ári. „Ekki liggur
fyiir nein dagsetning um hvenær
hlutafélag um rekstur deildarinnar
verðui' stofnað. Deildin ætlar að fá
fagfjárfesta og almenning til þess
að kaupa hlut í félaginu og er
markmið tilvonandi hlutafélags að
fjárfesta í öðrum fyrirtækjum,“
segir Valgeir Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri knattspymudeildar
Breiðabliks.
f
Hlutafélag um leikmenn
Stefán Gunnlaugsson, formaður
knattspymudeildar KA, sagði í
samtali við Morgunblaðið að rætt
hefði verið um að stofna hlutafélag
um einstaka leikmenn deildarinnar
í stað þess að breyta rekstri þess.
„Engu að síður munum við fylgjast
vel með hvemig til tekst í hluta-
fjárútboði Fram og KR.“
Engar viðræður hafa átt sér stað
um stofnun hlutafélags á Akranesi
að sögn Sæmundar Víglundssonar,
framkvæmdastjóra knattspymu-
deildar ÍA. „Núverandi stjórn
deildarinnar hefur ekki léð máls á
breyttu rekstarformi. Aðalfundur
knattspymudeildar verður haldinn
í janúar og á honum verður kosin
ný stjórn."
S
Hátt lánshæfísmat Islands hjá matsfyrirtækinu Moody’s
Betri kjör á erlend-
um lánamörkuðum
BANDARÍSKA matsfyrirtækið
Moody’s gefur Islandi háa lánshæf-
iseinkunn samkvæmt frétt frá fé-
laginu sem gefin var út í New York
í gær. Moody’s gefur íslandi láns-
hæfiseinkunnina Aa3/Aaa, sem er
sú sama og við síðustu úttekt sem
gerð var á síðasta ári og skipar
landinu áfram á bekk með traust-
ustu lántakendum í heimi. Einkun-
in er fyrst og fremst talin endur-
spegla bætt jafnvægi og aukna
breidd i þjóðarbúskapnum undan-
farin ár.
Þættir sem stuðla að hárri ein-
kunn að dómi fyrirtækisins eru
meðal annars góð og jöfn lífskjör,
stöðugleiki í stjórnmálum, styrkir
innviðir og gjöfular náttúruauð-
lindir. Víðtækar umbætur hafi bor-
ið ávöxt í öflugum hagvexti, hækk-
andi tekjum, hraðri fjölgun nýrra
starfa, bættri samkeppnisstöðu við
útlönd og miklum erlendum fjár-
festingum. Bent er á að atvinnu-
leysi sé orðið óverulegt en samt
hafi verðbólga haldist lág. Fjár-
hagur hins opinbera batni jafnt og
þétt. Búast megi við enn frekari
lækkun á skuldum hins opinbera,
sem teljist vera hóflegar nú þegar.
Horfur séu á stöðugu lánshæfí rík-
isins en einkunnir þess eru Aa3
fyrir skuldbindingar í erlendri
mynt og Aaa fyrir skuldbindingar í
krónum.
Vægi sjávarútvegs
að minnka
Moody’s tekur jafnframt fram að
sífellt skilvirkari fiskveiðistjórnun
sé afar mikilvæg fyrir lánshæfi
landsins í ljósi þýðingar atvinnu-
greinarinnar fyrir þjóðarbúskapinn
og hlut hennar í gjaldeyrisöflun. Þá
sé líka traustvekjandi að hlutur
sjávarútvegs í efnahagslífinu
minnki stöðugt, einkum vegna um-
fangsmikilla erlendra fjárfesting-
arverkefna. Enda þótt þessar
framkvæmdir hafi tímabundið leitt
til mikils halla á vöruskiptum og
viðskiptum við útlönd og hækkunar
á erlendum skuldahlutföllum sé bú-
ist við að þessi staða batni jafnt og
þétt. Þegar nýjar verksmiðjur hafi
náð fullri útflutningsgetu dragi úr
þörf á innflutningi vegna þessara
verkefna og útflutningur vaxi.
Moody’s varar við því að um-
fangsmiklar stóriðjuframkvæmdir
samfara miklum launahækkunum
geti leitt til aukinnar eftirspurnar á
komandi árum. Moody’s bendir á að
vönduð hagstjórn sé nauðsynleg til
að koma í veg fyrir ofþenslu í þjóð-
arbúskapnum, of mikið innstreymi
fjármagns og söfnun erlendra
skulda af hálfu einkaaðila. Þetta
eigi sérstaklega við í Ijósi þess hvað
umfang þjóðarbúskaparins er lítið
og hann opinn út á við.
Skilar sér í hagstæðari kjörum
Ólafur ísleifsson, framkvæmda-
stjóri alþjóðasviðs Seðlabanka Is-
lands, segir lánshæfismat Moody’s
fyrst og fremst staðfesta þann ár-
angur sem náðist við síðustu úttekt
sem fram fór í júlí á síðasta ári þar
sem Island hækkaði um einn flokk
með tilliti til skuldbindinga í er-
lendri mynt. „Þar erum við nú í Aa-
flokki ásamt mörgum ríkjum Vest-
ur-Evrópu. Hins vegar fáum við
bestu hugsanlegu útkomu fyrir
skuldbindingar í krónum, eða Aaa.
Ennfremur hefur ísland hæstu ein-
kunn fyrir skammtímalán“.
Ólafur telur einkunnir Islands
vera mjög vel viðunandi og skipa
okkur á bekk með traustustu lán-
takendum. „Það sem upp úr stend-
ur er að við höfum náð þeim árangri
að vera í hópi þeirra aðila sem mest
traust er borið til á alþjóðlegum
fjármagnsmarkaði enda eigum við
greiðan aðgang að erlendum lána-
mörkuðum í krafti þessara ein-
ÆFINGATÆKI
FRABÆRT VERÐ
PULSMÆLIR.
Hámarks- og lágmarks-
púls, meðalpúls, saman-
burður á meðal- og nú-
verandi púls, klukka,
skeiðklukka.
Verð aðeins kr. 7.600,
stgr. kr.7.220.
5°/«
staðgreiðslu
O afsláttur
GEL-hnakkhlífar
Hjólabuxur
með púða
1. LÆRABANI. Margvíslegar æf-
ingar fyrir laeri, brjóst, handleggi,
bak og maga. Leiðbeiningar fylgja.
Einfalt og áhrifaríkt æfingataeki.
Verð aðeins krv890.
2. MAGAÞJÁLFI. Ódýrt en
gagnlegt tæki til að styrkja maga-
vöðvana. Verð aðeins kr. 1.690.
3. ÞREKPALLAR (AER0BIC).
Frábært æfingatæki, þrek, þol og
teygjur fyrir fætur, handleggi og
maga. Þrekpallur með myndbands
spólu með æfingum kr. 3.900.
Pallur á mynd kr. 5.900.
4. TRAMPÓLÍN. Hentugt fyrir bæði
leiki og æfingar, svo sem skokk og
hopp.
Hagstætt verð, 96 cm kr. 4.500,
120 cm kr. 5.900.
ÆFINGABEKKIR 0G L0Ð.
Bekkur með fótaæfingum og lóða-
sett 50 kg, tilboð kr. 16.800, stgr.
15.960. Lóðasett 50 kg. kr. 6.900,
stgr. 5.850. HANDLÓD mikiö úrval,
verö frá kr. 690 parið, stgr. kr. 621.
SPINNING-HJOL. Vandað bjól,
19 kg kasthjól, stiglaus þynging,
neyðarbremsa, tölvumælir og
lokaður keðjukassi.
Verð frá kr. 29.900,
stgr. kr.28.405.
ÞREKHJÓL. Besta
tækið til að byggja upp
þrek og styrkja fætur.
Mikið úrval af vönduð-
um hjólum með fjölvirk-
um tölvumælum,
Verð frá kr. 14.900,
stgr. kr. 14.155.
ÞREKHJ0L GSE-421.
Mjög vandað þrekhjól á
frábæru verði. 13 kg kasthjól,
sterkbyggt og hljóðlátt með
fjölvirkum tölvumæli með púls.
Verð aðeins kr. 19.900,
stgr. kr.18.905.
Símar: 553 5320 og 568 8860
Ármúla 40
ALVORU SPORTVÖRUVERSLUN - ÓTRULEGT VÖRUÚRVAL
|Ferslunin|
yiMRKlÐ
kunna og njótum þar hagstæðari
kjara í samræmi við það“.
Aðspurður um athugasemdir
Moody’s varðandi hugsanlega of-
þenslu í kjölfar launahækkana sam-
fara vaxandi stóriðju hér á landi,
bendir Ólafur á að Moody’s geri ráð
fyrir að skuldasöfnunin og við-
skiptahallinn sem stóriðjan hefur
leitt af sér, lækki aftur þegar fram-
kvæmdirnar fara að skila hér aukn-
um útflutningi og meiri gjaldeyris-
tekjum inn í landið.
------ ♦♦♦--------
Cadbury selur
Coke Schweppes
og Canada Dry
London. Reuters.
BREZKI drykkjarvöru- og sæt-
indarisinn Cadbury Schweppes Plc.
hefur samþykkt að selja Coca-Cola
Co.-gosdrykkjavörumerki sín utan
Bandaríkjanna fyrir 1,85 milljarða
dollara.
Meðal þessara vörumerkja eru
Schweppes, Dr. Pepper, Canada
Dry og Crush. í fyrra skiluðu þessi
fyrirtæki 56 milljóna punda hagn-
aði, 9% af heildarhagnaði fyrir-
tækjasamsteypunnar.
Skattur og annar kostnaður
vegna sölunnar - sem nær ekki til
Suður-Afríku og Frakklands - mun
nema um 350 milljónum dollara.
Forstjóri Cadbury, John Sunder-
land, sagði að salan gerði fyrirtæk-
inu kleift að efla umsvif sín á sviði
sætinda í heiminum og drykkjar-
vöru í Bandaríkjunum.
Forstjóri Coca-Cola, Doug Ivest-
er, sagði að með kaupunum fengi
Coca-Cola aðgang að mörkuðum
þar sem Coke hefði ekki látið mikið
að sér kveða til þessa.
Hlutabréf í Cadbury hækkuðu
um 6 pens í 990 pens.
Jólatilboð
Skrifborðsstólar
Teg.
Duca
2.950
Teg.
Soft
6.950
ún armo
□□□□□□
HUSGAGNAVEHÖLUIN
Reykjavikurvegi 66, Hafnarfirði, simi 565 4100