Morgunblaðið - 12.12.1998, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998 37
Frumraun Höllu Margrétar
á ítölsku óperusviði
„Fannst ég eiga
heiminnu
HALLA Margrét Árnadóttir
sópransöngkona þreytti
frumraun sína á óperusviðinu í
Teatro Regio í Parma á Ítalíu 11.
október sl. Þar var hún í aðai-
hlutverkinu í óperettunni Sar-
dasfurstynjunni eftir Emmerich
Kálmán og hlaut jákvæða dóma
ítalskra gagnrýnenda. Hún syng-
ur einnig annað aðalhlutverkið í
óperettunni La Scugnizza eftir
Cario Lombardo sem var frum-
sýnd 7. nóvember. Halla Margrét
skrifaði á liðnu hausti undir
samning við óperettuhóp leik-
stjórans Corrados Abbadi, sem er
sá stærsti sinnar tegundar á Ital-
íu, og næsta hálfa árið mun hóp-
urinn sýna 130 sýningar í óperu-
húsum um alla Ítalíu.
Fyrir frumsýningar var sagt
frá því í dagblaðinu Gazzetta di
Parma að frumraunar Höllu
Margrétar væri beðið með eftir-
væntingu. Fram kom að margir
sjónvarpsáhorfendur þekktu
hana, þar sem hún hefði oft verið
gestur í þættinum Quelli del
calcio. Að frumsýningu afstað-
inni var síðan gagnrýni um Sar-
dasfurstynjuna, þar sem fram
kom að óperettunni hefði verið
mjög vel tekið og áhorfendur
hefðu klappað í meira en stund-
arfjórðung að henni lokinni. Um
Höllu Margréti var sagt að frum-
sýningarskjálfta hefði orðið vart
í upphafi, en síðan hefði hún ver-
ið afar sannfærandi í titilhlut-
verkinu. Hún fékk einnig já-
kvæða umsögn á menningarsíðu
blaðsins La Nuova Ferrara fyrir
hlutverk sitt í La Scugnizza, þar
sem henni er lýst sem heillandi
söngkonu. Sú sýning fékk einnig
lofsamlega heildardóma í sama
blaði og þótti leikkonan í hópn-
um, Angela Baviera, standa sig
sérlega vel í hlutverki Graziu
frænku. í tímaritinu L’opera fær
sýningin jafnframt góða dóma.
Þess er getið að Halla Margrét sé
ný hjá Corrado Abbadi, hún sé
afar falleg stúlka með rödd sem
skipti máli, voce importante.
Hugsaði um allar
stórstjörnurnar
Halla Margrét er himinlifandi
með frumraunina. „Að debútera í
einu af frægustu óperuhúsum
heims, Teatro Regio, var stór-
kostleg reynsla. Ég var með öran
hjartslátt meðan ég beið eftir að
tjöldin yrðu dregin frá og hugs-
aði um allar stórsljörnurnar sem
hafa staðið á þessu sama sviði og
ég nú átti eftir að hljóta mína
eldskírn á. Svo bað ég til Guðs og
hugsaði heim til Islands og fyllt-
ist ótrúlegum eldmóði og þegar
tjöldin voru dregin frá fann ég
ekki til neinnar hræðslu, gleymdi
mér gjörsamlega og fannst ég
eiga heiminn. Þetta var frábær
upplifun - núna veit ég hvers
vegna ég er í þessu,“ segir söng-
konan.
HALLA Margrét Árnadóttir sópransöngkona í hlutverki söngkon-
unnar Silvu og tenórinn Domingo Stasi í hlutverki furstasonarins
Edvino á frumsýningarkvöldinu 11. okt. sl. í Teatro Regio í Parma.
Lesið í
Eden
STEINGRMUR
St.Th. Sigurðs-
son les úr ný út-
kominni bók
sinni Lausnar-
steinn - lífsbók
mín á morgun,
sunnudag, kl. 16
í Eden í Hvera-
gerði. Þetta er í
eina skipti á að-
ventunni sem
Steingrímur
kynnir þetta
verk sitt, segir í fréttatilkynningu.
Kristjana Stef-
áns og tríó AOP
í Múlanum
KRISTJANA Stefáns og Tríó ÁÓP
leika á Múlanum, Sóloni Islandusi,
annað kvöld, sunnudagskvöld, kl.
21. Þetta er síðasta kvöldið í tón-
leikaröð Múlans.
Kvartettinn skipa, auk Kristjönu
sem sér um sönginn, þeir Pétur
Grétarsson, trommur, Arni Heiðar
Karlsson, píanó, og Ólafur
Stolzenwald, kontrabassa.
Leikin verða m.a. lög eftir C.
Porter, B. Evans, 0. Nelson, G.
Gershwin o.fl.
Gígja sýnir í
Kaffí Mílano
NU stendur yfir sýning á olíumál-
verkum eftir Gígju (Guðrúnu H.
Jónsdóttur) á Kaffi Mflanó, Faxafeni
11. Allar myndimar era til sölu og
sýnis á afgreiðslutíma kaffihússins.
Jólatónleikar
Tónlistarskóla
ísafjarðar
í SAL Grannskólans á Isafirði verða
femir tónleikar á vegum Tónlistar-
skóla ísafjarðar um helgina. I dag,
laugardag og sunnudag, verða
tvennir tónleikar báða dagana, kl. 15
og kl. 17. Á efnisskrá verða um 160
mismunandi tónlistaratriði, einleik-
ur, samleikur og kórsöngur.
JÓN Reykdal á vinnustofu sinni,
íkJRS 1®J I
1
Vinnustofu-
sýning Jóns
Reykdals
NU stendur yfir vinnustofusýn-
ing Jóns Reykdals, í tilefni af ný-
uppgerðri vinnustofu listamanns-
ins á Bergþórugötu 55.
Jón sýnir málverk og módel-
teikningar frá síðustu fjórum ár-
um. Hann hefur haldið fjölda
sýninga bæði hér heima og er-
lendis.
Sýningin er opin allar helgar,
til 20. desember, frá kl. 14-18, og
aðra daga eftir samkomulagi.
TÓJVLIST
Geisladiskar
SÓLRÚN BRAGADÓTTIR /
SÓLA BRAGA
Sólrún Bragadóttir, sópran. Margar-
et Singer, pianó. Islensk sönglög.
Franz Bumann, klarinetta. Jiirgen
Normann, kontrabassi. Ladislaus
Kosak, fiðla. Höfundar: Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, Sigvaldi S. Kalda-
lóns, Þorkell Sigurbjörnsson (útl. á
þjóðlögum), Karl Ó. Runólfsson, Jón
Ásgeirsson, Tryggvi M. Baldvinsson,
Atli Heimir Sveinsson. Upptaka:
Hrólfur Vagnsson, Hannover. Studio
Vagnsson. 1998 CORD ARIA.
HÉR er á ferðinni mjög gott og
fjölbreytt lagasafn, sumt búið að
gleðja hjörtun síðan María Markan
var og hét, svo sem lög Sigvalda
Kaldalóns, en þau era fimm á þess-
um diski, þ.ám. Svanasöngur á
heiði, Betlikerlingin og Heimir.
Sama má segja um lög Karls Ó.
Runólfssonar, sem á hér fjögur lög,
þ.á m. Enn syngur vomóttin og
Japanskt ljóð. Tvö fyrstu lögin era
öllu minna þekkt og eru eftir
Sveinbjöm Sveinbjömsson, Amið-
urinn og Huldumál. Þetta eru góð
lög og falleg - og svolítið „skandin-
avísk“.
Hin tónskáldin era yngri, Jón
Ásgeirsson trúlega aldursforset-
inn. Hér era þrjú gullfalleg lög eft-
ir hann við jafnfallega texta Hall-
dórs Laxness (Hjá lygnri móðu,
Þótt form þín hjúpi graflín og Vor
hinsti dagur er hniginn) og Regn í
SÓLA
maí við texta Einars Braga. Þor-
kell Sigurbjömsson er hér með
ákaflega snjallar og skemmtilegar
útsetningar á þekktum þjóðlögum
(Ljósið kemur langt og mjótt, Það
var barn í dalnum, Gimbillinn
mælti og Krummi svaf í klettagjá).
Tryggvi M. Baldvinsson er „ung-
lingurinn" í þessum hópi. Eftir
hann era tvö mjög falleg lög og vel
gerð, Krammi við kvæði Davíðs
Stefánssonar og Gömul Ijósmynd
við ljóð Sveinbjöms I. Baldvins-
sonar. Diskurinn endar á fimm lög-
um Atla Heimis við kvæði Jónasar
Hallgrímssonar (Heiðlóarkvæði,
Óhræsið, Sáuð þið hana systur
mína, Dalvísa og Söknuður). Ég
hef áður skrifað um þessi indælu
lög (þegar þau komu fyrst út á
hljómdiski), sem hafa flesta þá
kosti sem góð lög prýðir - að mað-
ur tali nú ekki um kveðskap Jónas-
ar. Yfirlætislaus þokki þeirra við
einstaklega huggulegan undirleik
píanós, klarinettu, kontrabassa og
fiðlu gefur framsetningunni næst-
um „laufskálalegt" yfirbragð, sem
- merkilegt nokk - fer einkar vel
við texta Jónasar.
Sólrún Bragadóttir er sem kunn-
ugt er ein af fremstu söngkonum
okkar, en hún hefur starfað mest
erlendis, aðallega við óperar í
Þýskalandi, síðan hún lauk söng-
námi í Bandaríkjunum. Hún hefur
þó skroppið upp á „gamla skerið“
endram og eins til að gleðja okkur
með söng sínum. Og nú er hann
kominn þessi hljómdiskur hennar
með íslenskum lögum. Söngurinn
mjög góður einsog við er að búast.
Tilfinningin fyrir laglínu ákaflega
fín og músíkölsk. Þó er það einhver
innri birta, eitthvað „spíritúelt“,
sem gerir sönginn oft beinlínis
hrífandi!
Hljóðfæraleikarar allir mjög
góðir, góð upptaka, fallegt útlit.
Oddur Björnsson
Útg*áfut()ii-
leikar á
Kjarvals-
stöðum
ÚT VAR að koma geislaplata
með framsaminni tónlist
Snoraa Sigfúsar Birgissonar,
píanóleikara, og myndbók eft-
ir Halldór Ásgeirsson. Af því
tilefni verður verða útgáfutón-
leikar á Kjarvalsstöðum á
sunnudag kl. 16. Útgáfan er í
tilefni sýningar sem nú stend-
uryfir á Kjarvalsstöðum.
I tilefni sýningarinnar hefur
verið sérprentuð ljósmynd,
hluti af verki Halldórs, og gef-
in út í takmörkuðu upplagi í
veggspjaldastærð, tölusett og
árituð.
I
DeLonghi
i
PRIMA
Lítil og létt,
aöeins 4 kg.
Kraftmikil,
1250W
4 þrepa
síun
Inndregin
snúra
Sogstykkjahólf
Val um tvœr gerbir á abeins
7,900,- og 9,900,
___ FYRSTA ÁFLOKKS
/FOmx
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420
► muiboð
fáaðWnhr^
Nýju örbylgjuofnarnir frá
Dé Longhi heita PERFECTO
og bera nafn sitt svo
sannarlega meö rentu!
17 LITRA OFNAR:
MW-311 m/tímarofa
kr. 15.900,-
MW-345 m/rafeindastýríngu
kr. 19.390,-
MW-401 m/grillelementi
kr. 21.400,-
23 LITRA OFNAR:
MW-530 m/tímarofa
kr. 21.900,-
MW-535 m/rafeindastýríngu
kr. 27.900,-
MW-600 m/grillelementi
kr. 36.000,-
MW-605 m/rafeindastýríngu
og gríllelementi
kr. 38.500,-
MW-675 m/rafeindastýringu,
grilli, blcestri o.fl.
kr. 56.800,-
Þú finnur örugglega rétta ofninn
lijá okkur og nú á stórgóöu
JÓLATILBOÐSVERÐI
_ _ FYRSTA A FLOKKS
/Forax
HÁTÚNI 6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420
Fréttir á Netinu
v§> mbl.is
__ALLTAf= GITTH\SA£> A/ÝTT