Morgunblaðið - 12.12.1998, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998 43
KÓNGAKERTIN úr bývaxinu eru óvenjuleg í laginu og ilmurinn góður.
MIKIÐ úrval er til af handspunnu bandi í ölluni regnbogans litum sem
Þingborgarkonurnar hafa unnið.
hérna í versluninni eða heima hjá
einhverri okkar og berum saman
bækur okkar. Stundum höfum við
verið beðnar að sýna gömlu vinnu-
brögðin við ýmis tækifæri og ger-
um það með glöðu geði.
Við erum einnig í góðu sambandi
við önnur ullarfélög, þá sérstaklega
Ullarselið á Hvanneyri. Hjá þeim
fréttum við hvað hafi selst best og
þau veita þær upplýsingar góðfús-
lega því innan hópanna er ágæt
samhjálp."
Landskeppni ullarfélaga hefur
verið haldin tvisvar og er kölluð Ull
í fat. Þar er keppt um hver
hópanna sem taka þátt í keppninni
sé fljótastur að vinna eina peysu.
Keppnin fer þannig fram að á stað-
inn kemur rúningsmaður og rýjar
kindur, sem áhorfendur hafa gam-
an af að fylgjast með. Liðsstjórar í
hverju liði sækja ullina jafnóðum
fyrir sitt lið og spunnið er band úr
ullinni og prjónuð peysa. Keppnin
tekur einn dag.“
Hafið þið tekið þátt í keppninni?
„Eg hef keppt í bæði skiptin sem
keppnin hefur verið haldin,“ segir
Harpa. „í fyrra skiptið tapaði mitt
lið en síðast þegar keppnin var
haldin fyrir tveim árum unnum við.
I bæði skiptin var um mínútur að
tefla og því mjótt á mununum.
Keppnin er mjög spennandi og erf-
ið, því verið er að vinna með
óhreina ull auk þess sem við erum
hvött óspart áfram svo við vinnum
langtum hraðar en okkur er eðli-
legt. Um kvöldið gi-illum við svo
saman en markmiðið með keppn-
inni er fyrst og fremst að koma
saman og hafa gaman af.“
Það er tekið að rökkva þegar hér
er komið sögu og við farin að hugsa
til heimferðar. Húsráðendur eru
spurðir hvernig sé að búa í þessu
gamla húsi, sem á sér langa og við-
burðaríka sögu. Þingborg var eins
og áður segir skóli og samkomuhús
sveitarinnar í tæp sjötíu ár. Þar
voru haldnir pólitískir fundir,
fjörug böll og sett upp leikrit. Ætli
þau hafi aldrei orðið vör við reim-
leika í húsinu? Hefur enginn af öll-
um þeim fjölda sem þarna hefur
átt sínar góðu stundir gert vart við
sig? Nei, segja þau. Það sé þó til
fólk sem segist hafa orðið vai-t við
eitthvað þarna á sveimi en þau hafi
aldrei orðið vör við neitt. En góður
andi sé í húsinu.
Meiríháttar
pelsúlpur með
hettu handa
henni í
jólapakkann
Mörg snið
Stuttar og síðar
pelskápur
Verð frá kr. 9.900
Opið laugard. 10-18.
Mörkinni 6, sími 5885518.
Vendiúlpur
Jkr. 25.900
ORMSSON
lógmúla 8 • Sími 533 2800
UMBOÐSMENN UM ALLT LAND
Vsx-407 ma
Útvarpsmagnari
2x70w • Rms • 4x50w
30 stöðva minni * Rds
Vsx-906
Útvarpsmagnari
2x110w • Rms • 5x60w
30 stöðva minni • Rds-AC-3
Pd-106 ..
Geisiaspilari
1 bit • forritanlegur
handahófsspilun
.« Mjl-707
l Mini-disk spilari
^ Stafræn upptaka og afspilun
Hægt að setja inn nafn eða titia.
DV-505 ”*7~“
Myndgeislaspilari
AC3 • framtiðinn i hijóð og mynd
Sv-606
Heimabió hátalarar
Aðeins 5sm þykkir • 150W Rms
+100w bassabox
Þegar hijómtæki skipta máii
Biðinni er lokið! Vinsælustu Tinnabækurnar
aftur fáanlegar um allt land!
FJOLVI