Morgunblaðið - 12.12.1998, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MARGMIÐLUN
Frumsaminn íslenskur
ævintýraleikur
ÍSLENSKUM tölvuleikjum vex
fískur um hrygg og fyrir þessi
jól kemur út fyrsti eiginlegi æv-
intýraleikurinn, Tímaflakkar-
inn. Sá er reyndar mjög mark-
aður af fræðslugildi hans, rekur
ýmsa þætti úr Islandssögunni í
bland við ævintýralega fram-
vindu, og bráðvel heppnaður
um margt.
Tímaflakkarinn er ævintýra-
leikur í ætt við til að mynda
Monkey Island-leikina sem
flestir leikjavinir þekkja. Sögu-
þráðurinn er eitthvað á þá leið
að ungur piltur sem heitir
Denni finnur men sem leiðir
hann í ýmsisleg ævintýri í Is-
landssögunni. Denni breytist í þær persónur sem
koma við sogu hverju sinni, er til að mynda Vífill
þræll Ingólfs í fyrsta borði, þá Gissur biskup Ein-
arsson, svo Sigrún, fórnarlamb Hund-Tyrkjans og
svo má telja. Sú hugmynd að vera sífellt að skipta
um ham er bráðvel til fundin og gefur leiknum bæði
kímna framvindu og tengir annars ólíka atburði og
ótengda.
Þeir sem vanir eru ævintýraleikjum eru fljótir að
komast af stað í leiknum, enda lýtm' hann sömu
lögmálum; taka allt sem hægt er að taka, reyna að
nota allt við allt og gæta að því að tala við alla sem
hægt er að tala við til að fá vísbendingar. Fram-
vindan er eðlilega fyrirfram ákveðin, en skiptir
máli að gera hlutina í réttri röð. Ekki er leikurinn
beinlínis spennandi, til þess er framvindan of hæg,
en vekur þó víða spennu, til að mynda í atriðinu þar
sem Sigrún er að reyna að komast undan alsírsku
sjóræningjunum.
Grafíkin í leiknum er ekki mjög íburðarmikil, en
dugir vel til að koma sögunni til skila. Sviðsmyndin
er reyndar víða afskaplega vel heppnuð; til að
mynda er sldpsmyndin bráðvel teiknuð, en
hreyfingar persónanna eru misgóðar.
Samtöl í leiknum eru vel af handi leyst og
sem betur fer stillt í hóf; hægt er að fara til-
tölulega hratt í gegnum þau og velja bara
lykilspurningar, eða spyrja allra spurninga
og fá þannig stutt söguágrip í hverju
borði. Það er reyndar til
ama að vilji viðkom-
andi eða þurfi
að fara aftur
í gegnum
eitthvert
borðið er
engin leið að
flýta samtal-
inu, til að
mynda
með því
að
styðja á
orðabil í
upphafi
setninga
og ekki er
hægt
láta per-
sónurnar
ganga
hraðar.
Víða er
kímilega
komist
að orði
og sumstaðar
koma fyrir nú-
tímaleg orðatiltæki og tilsvör, sem
hljóma óneitanlega spaugilega á
níundu öld svo dæmi séu tek-
in.
Uppsetning á leiknum er
seinleg, enda þarf að setja
upp á tölvunni Java-umhverfi
svo hægt sé að keyra leikinn.
Sérkennileg er sú ráðstöfun að
láta íylgja með honum DirectX
3, enda er það þeirrar náttúru
að yfirskrifa þá gerð af DirectX
sem er fyrir á tölvunni, og skipt-
ir engu þótt um sé að ræða nýrri
útgáfu og betri, til að mynda 5.0
eða 6.0. Víst er þetta ekki sök
Tímaflakkaramanna, þetta var
og er galli frá Microsoft, en leið-
inlegt að þurfa að setja nýju út-
gáfuna upp á nýtt eftir innsetn-
ingu á leiknum.
Eitthvað er af forritunargöll-
um í leiknum og þannig á hann
það til að ftjósa öðru hverju. Þá
er eina ráðið að slökkva á tölvunni og endurræsa,
en ekkert skipulag er á því hvenær hann frýs;
stundum er hægt að spila klukkustundum saman,
en stundum ekki nema nokkrar mínútur. Hægt er
að sækja sér viðbót á heimasíðu leiksins,
http://www.timaflakkarinn.is/, sem lagfærir flesta
galla. Einnig er textafrágangi ábótavant og víða
villur. Ein sem gengur í gegnum allan leikinn er til
að mynda að persónurnar eru sífellt að „opna hurð“
í stað þess að opna dyr. Sumstaðar er stór upphafs-
stafur þar sem á að vera lítill og svo má telja. Þrátt
fyrir þetta er málfar almennt gott og dregur iðu-
lega skemmtilega dám af því tímabili sem sagan
gerist á. Þeir sem spila í gegnum leikinn, og vísast
gera það allir sem á annað borð byrja á honum,
verða og margs fróðari um Islandssöguna, sem gef-
ur leiknum eðlilega aukið vægi.
Tímaflakkarinn er bráðskemmtilegur og fróðleg-
ur fyrir yngri kynslóðina og sagan lifnar við á
skjánum. Ekki verður annað séð en fyrirtaks fram-
haldsmöguleikar séu fyrir hendi og af nógu að taka
í Islandssögunni sem miðla mætti á þennan hátt.
Þeir Dímons-menn hafa tekist á
við mikið verkefni af djörfung
og hugmyndaauðgi og náð að
gera leik sem stenst ágæt-
lega samkeppni við tug-
milljónaleiki að utan. Þó
vissulega sé margt sem
megi betur fara þá skiptir
það ekki meginmáli
í heildarmati á
leiknum; hann er
einfaldlega höf-
undum sínum til
sóma.
Leikurinn var
prófaður á 450
MHz Pentium
II tölvu með
Windows 98,
128 MB
vinnsluminni,
Riva TNT 16
MB skjákorti og
SoundBlaster
Live hljóðkorti.
Samkvæmt um-
búðum gerir
hann kröfur til
Pentium ör-
gjörva, ekki er
um tif-
en lík-
lega þarf um
200 MHz að
minnsta kosti
miðað við Java um-
hverfið, Windows
95/98, skjákort sem styður DirectX og
16 MB vinnsluminni. Innsetning tók 29
MB á hörðum diski en leikurinn er mikið
til keyrður af geisladiskinum og því borgar sig að
hafa hraðvirkt geisladrif.
LEIKIR
*
Islenskir tölvuleikja-
framleiðendur sækja
sífellt í sig veðrið og
fyrir þessi jól kom út
frumsaminn íslenskur
ævintýraleikur. Árni
Matthíasson kynnti sér
íslenska tölvuleikinn
Tímaflakkarann.
Mulan á
DISNEY-kvikmyndarisinn hefur
gefið út tölvuleiki fyrir yngri
kynslóðina með góðum árangri
undanfarin misseri. Yfirleitt er
þá byggt á teiknimynd, enda
hægur leikur að verða sér úti
um myndefni og söguþráð.
Ymist eru leikirnir byggðir á
sögunni meira og minna, og
kallast þá
Storybook, eða
þeir eru ein-
faldari þrauta-
leikir, eins og
til að mynda
Mah-Jong-leik-
ur sem byggir
á nýjustu
myndinni úr
smiðju Disney-
manna, Mulan.
I vikunni
kom út ís-
lenskaður
Mah-Jong-leik-
ur tengdur
Mulan-teikni-
myndinni sem
nú er sýnd í
kvikmynda-
húsum hér heima. Mah-Jong er
þrautaleikur þar sem notandinn
á að finna samsætur kubba sem
hann getur þá fjarlægt. Flestir
kannast væntanlega við Mah-
Jong, enda eru leikir þeirrar
gerðar legíó, til að mynda
Shanghai. Disney-gerðin sem er
á Mulan disknum er aftur á móti
sérdeilis vel uppsett og leikur-
inn að auki íjölbreyltari, því
hægt er að spila einn eða við
vin, en leikendur skiptast þá á
að gera, og síðan er hægt að
spila við einhverja af þremur
persónum úr myndinni, Yao,
Chien-Po eða Ling, sem er
snjallastur þeirra. Drekinn Mus-
hu kemur siðan við sögu, skýtur
inn háðsglósum eða hrósi eftir
því sem við á.
I Mulan-pakkanum sem hér er
gerður að umtalsefni er margt
fleira að finna en Mah-Jong-leik
því einnig fylgir skjásvæfa með
myndum úr teiknimyndinni. Því
íslensku
til viðbótar er síðan myndasafn
sem hægt er til að mynda að
nota sem mynd á skjáborð,
prenta út eða líma inn í skjal til
að mynda. Hægt er að bæta eig-
in myndum inn í safnið ef vill og
þá setja á þær ramma sem fylgja
með og prenta siðan út.
Eins og getið er er leikurinn
íslenskaður,
þ.e. honum
fylgir íslensk-
ur bæklingur
með öllum
upplýsingum,
aukinheldur
sem allt lesmál
í honum er ís-
lenskað. Þýð-
ingin var unn-
in af Japis,
umboðsaðila
Disney-leikja á
Islandi, sem
hefur einnig
þýtt leiðarvísa
með nýlegum
útgáfum frá
Disney Inter-
active. Að
sögn Guðnýjar Danivalsdóttur
hjá Japis var tekin ákvörðun um
að þýða leikinn allan enda sé
metnaður fyrirtækisins að ís-
lenska leiki og annað efni frá
Disney. „Við tökum eitt skref í
einu, erum tekin að bjóða leik-
ina með íslenskum leiðarvísum
og það að þýða Mulan-leikinn
allan er næsta skref í þá átt að
hafa sem mest á íslensku.“ Guð-
ný segir einnig að verði leiksins
sé stillt í hóf, hann eigi ekki að
kosta meira en meðal tónlistar-
geisladiskur og víðast muni
hann væntanlega kosta minna.
Guðný segir að haldið verði
áfram á þessari braut og á næsta
ári komi að minnsta kosti einn
leikur frá Disney á íslensku.
„Eðli málsins samkvæmt er ís-
lenskur markaður lítill og dýrt
að þýða flókna leiki og stóra, en
gott er að byrja á einfaldari
leikjum eins og Mulan og taka
stærri verkefni fyrir síðar.“
HTML/VB Script-veira
EIN helsta iðja vefhönnuða er að
fínna leiðir framhjá HTML síðu-
lýsingarmálinu, enda er það tak-
markað í meira lagi. Fyrir vikið
geta illkvittnir lítið aðhafst sem
spillt getur gögnum eða truflað
keyrslu á tölvu þess sem les. í
viðleitni fyrirtækja til að auka
við HTML, meðal annars með
allskyns netforritunarmálum og
skriftum, kemur aftur á móti
möguleikinn á tölvuvírusum.
Fyrir stuttu birti tölvuveiru-
varnahópur fyrstu HTML-
veiruna, HTML.internal, sem er
að sögn hópsins fyrsta HTML-
veiran sem dreift getur sjálfri
sér og smitað HTML-skjöI á
tölvu viðkomandi. Vakti eðlilega
mikla athygli, en margir urðu til
að benda á að í raun væri þetta
ekki HTML-veira heldur
VBScript-veira, því smituð vef-
síða keyrir VB-skriftu sem síðan
smitar önnur HTML-skjöl á
hörðum disk viðkomandi. Eins
og svo oft áður bitnar veiran
eingöngu á þeim sem eru með
Internet Explorer 4.x og
Windows, enda er VBScript,
sem dregur nafn sitt af Windows
forritunarmálinu VisualBasic,
innbyggt í Windows stýrikerfið,
þá sérstaklega Windows 98.
Samkvæmt upplýsingum frá
Microsoft er ekkert að óttast,
enda varar Internet Explorer
við ef vafrinn vill keyra slíka
skriftu. Notandi verður þó að
gæta að því að vafrinn sé þannig
upp settur og borgar sig að
kanna öryggisstillingar hans.