Morgunblaðið - 12.12.1998, Blaðsíða 62
MORGUNBLAÐIÐ
G2 LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998
Setjum upp
Jólaljós á jólanótt
i PossvogshirkjugarÓi
RaflýsingfarJjjónusta Póla li/f
Sími: 561 8401
Elliðaárdalur
- Land og saga
Loksins er komið út
vandað yfirlitsrit um
þessa náttúruperlu
Reykjavíkur. Náttúru
og sögu dalsins eru gerð
ítarleg skil. Um 200
gamlar og nýjar Ijós-
myndir, teikningar og kort.
Omissandi fyrir alla
náttúruunnendur
Meö framtíðina að vopni
- Hreyflng iönnema, nám og lífskjör í 100 ár
eftir Helga Guðmundsson trésmið
og rithöfund. Fjallað er um iðnað
og iðnmenntun á fyrri tímum,
fyrstu iðnnemafélögin og
baráttu iðnnema fyrir
réttindum sínum. Um 300
Ijósmyndir og teikningar
bregða enn skýrara Ijósi á
þennan mikilvæga þátt í
menningarsögu þjóðarinnar.
t
man
eftir jón R. Hjálmarsson fyrrum
fræðslustjóra. Handhægt uppflettirit
fyrir nemendur og aðra þá sem þurfa
að nálgast sögulegar upplýsingar á
skjótan og einfaldan hátt.
Mál og mynd
Úrvalsbækur um þjóðlíf og sögu
Jólabók iðnaðarmannsins
> Skagfirikur annáll
1847-1947
eftir Kristmund Bjarnason á
Sjávarborg. Fjallað er um það sem
fréttnæmast þótti hverju sinni á
þessu tímabili. Glæsilegt tveggja
binda verk með yfir 400 myndum af
einstaklingum, byggingum,
framkvæmdum og mannamótum.
Bók fyrir alla Skagfirðinga
AÐSENDAR GREINAR
Við boðum
breytingar!
Á ÍSLANDI þarf að vera almenn
sátt um stefnu og þróun í byggða-
málum. Hér er verið að tala um
hina einu sönnu þjóðarsátt því án
hennar mun enginn friður verða.
En því miður er hvor-
ugt til ennþá - stefnan
eða sáttin. Á meðan
blæðir byggðum lands-
ins með tilheyrandi
tjóni fyrir einstaklinga,
fjölskyldur og þjóðina í
heild. Og blóðtakan er
stöðug og streymið er
inná höfuðborgarsvæð-
ið, eins og öllum er
kunnugt. Ástæður þess
ama eru margar og
mismunandi og verða
ekki raktar hér. Þetta
stórvandamál verður
meðal þess, sem lagt
verður fyrir landsfund
Fijálslynda flokksins í
janúar næstkomandi. Þar munu fé-
lagsmál verða í brennidepli og mun
flokkurinn meðal annars afgreiða
þar eftirfarandi drög að markmið-
um:
Um félagsmál
• Stærri, öflugri og sjálfstæðari
sveitarfélög.
• Jafnréttisfræðsla verði skyldu-
námsgrein í skólum.
• Eitt húsnæðiskerfi á einu stjóm-
sýslustigi.
• Verkefnatryggingar í stað at-
vinnuleysistrygginga.
• Tekjutenging bamabóta afnum-
in.
• Þróunaraðstoð í samræmi við al-
þjóðlegar skuldbindingar.
Fyrir utan það, að koma í fram-
kvæmd stefnu Frjáls-
lynda flokksins í sjáv-
arútvegsmálum er
einna mikilvægast, að
stækka og efla sveit-
arfélögin til að sporna
gegn óheppilegri
byggðaröskun hér á
landi. Mikilvægt er, að
sveitarfélögin hafi til
þess bolmagn, að veita
sjálf sem mest af allri
þeirri staðbundnu
samfélagsþj ónustu,
sem almannaheill kall-
ar á í samfélagi nútím-
ans.
Sjálfsagt er, að
jafnréttisfræðsla verði
skyldunámsgrein í grunnskólum
sem og framhaldsskólum. Jafnrétti
kynjanna þarf að verða eðlilegur
og sjálfsagður lífsstfll allra lands-
manna, í stað þess að vera til fram-
búðar einhvers konar varnarbar-
átta viðvarandi minnihluta.
Heildarskipulag og stjórn hús-
næðismála þarf að endurskoða
með það meðal annars að mark-
miði að styrkja húsbréfakerfið.
Stefna skal að því að gera eitt
heildrænt húsnæðiskerfi úr þeim,
sem fyrir eru, og skal kerfið vera
á einu stjórnsýslustigi. Með því
móti verður kerfið einfaldað, en
það samanstendur nú af þremur
þáttum á tveimur stjórnsýslustig-
um, það er húsbréfakerfi ríkisins
og félagslega- og húsaleigubóta-
kerfinu á vegum sveitarfélaga.
Þannig yi-ði til eitt kerfi á einu
stjórnsýslustigi.
Hverfa skal alfarið frá því letj-
andi fyrirkomulagi, að greiða at-
hafnalausu fólki bætur vegna
skorts á atvinnu. Þess í stað skal
greiða atvinnulausum lágmarks
bætur vegna virkrar þátttöku í
skólun eða endurskólun, hæfingu
Sveitarfélögin hafi
bolmagn til að veita
staðbundna samfélags-
þjónustu, segir Gunnar
Ingi Gunnarsson,
í annarri grein sinni
af fjórum.
eða endurhæfingu eða öðrum þeim
verkefnum, sem eru tímabundin,
en gefandi og fyrirbyggjandi.
Tekjutenging barnabóta þekkist
ekki hjá viðmiðunarþjóðum. Engin
haldbær rök mæla með slíkri
tekjutengingu. Þessar bætur
varða réttarstöðu íslenskra barna.
Tekjutenginguna ber að afnema.
Islendingar hafa skuldbundið
sig til að verja 1% af þjóðarfram-
leiðslunni til þróunaraðstoðar. Við
þá skuldbindingu höfum við aldrei
staðið og enn erum við eftirbátar
allra annarra Norðurlanda í þess-
um efnum. Þessa skammarlegu
stöðu verða íslendingar að leið-
rétta sem fyrst.
Höfundur er læknir.
Gunnar Ingi
Gunnarsson
Hvað á að
koma í staðinn?
HUGMYNDIN um
allsherjarútboð veiði-
réttar á leigu til eins
árs í senn er afar rót-
tæk. Hún felur í sér
umsvifalausa niðurfell-
ingu allrar þeirrar út-
hlutunar kvóta, sem
þróast hefur innan
gildandi fyrirkomu-
lags. Vegna þess
hversu slík nýskipan
er alger, þarf að gefa
útgerðinni umþóttun-
artíma, sem hún getur
nýtt sér til að búa sig
undir ráðgerða fram-
tíðarskipan. Gerð verð-
ur nánari grein fyrir
ráðgerðum umþóttunaraðstæðum
síðar í þessum skrifum, en í grund-
vallaratriðum er hugsunin að skapa
Jón
Sigurðsson
Vínlegnar
enskar jólakökur og
jólabúðíngar
Bresk
gæðavara
lr
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44
Sími 562 3614
útgerðinni, t.d. í tvö ár,
kannski þrjú ár, sem
líkastar aðstæður
þeim, sem ríktu síð-
ustu árin áður en fisk-
veiðistjómin var inn-
leidd. Það ættu að vera
eins ákjósanlegar að-
stæður og kostur er á í
stöðunni. Nánar um
það síðar. En breyting-
in hlyti að koma við
marga útgerðaraðila,
væntanlega mest suma
hinna stærri. Menn
hafa í greininni að því
er virðist gengið mjög
mishart fram í kaupum
á aflaheimildum. Allir
hafa gert það vitandi um, að Al-
þingi getur fellt þessar veiðiheim-
ildir niður bótalaust með einfaldri
löggjöf. Þeir sem keyptu tóku því
áhættu, sem í grundvallaratriðum
enginn á að bera ábyrgð á nema
þeir sjálfir. „Verðmæti“, sem menn
tóku við gefins, mundu einfaldlega
gufa upp ásamt með sams konar
„verðmætum", sem menn hafa
keypt.
Skrifari þessara orða hefur ekki
þekkingu eða aðgang að upplýsing-
um um heildarverð keypts kvóta,
hversu mikið af því hefur verið af-
skrifað eftir eldri reglum þar um
o.s.frv. Þetta ber að sjálfsögðu að
leggja mat á. Hitt er víst, að um-
skiptum í fiskveiðistjórn fylgir
fórnarkostnaður og vandséð er, að
sá fórnarkostnaður eigi annars
staðar betur heima en hjá þeim,
sem harðast gengu fram í kvóta-
spekúlasjóninni og í réttu hlutfalli
við hana. Og umþóttunartíminn
ætti að gagnast vel dugmiklum
mönnum til að búa sig undir nýja
og öðru vísi framtíð.
Einhvers konar kaupþing veiði-
heimilda yrði að vera miðstöð út-
boðs á veiðirétti til leigu. Mörg rök
má leiða að því, að sóknarmörk fyr-
ir einstök skip væru boðin út frem-
ur en aflakvóti. Höfundur þessara
skrifa telur sig ekki hafa burði til
Vegna þess hversu slík
nýskipan er alger, segir
Jdn Sigurðsson í
annarri grein sinni af
fimm, þarf að gefa út-
gerðinni umþóttunar-
tíma til að búa sig und-
ir ráðgerða framtíðar-
skipan.
að bollaleggja neitt um svo flókið
mál og mun því takmarka sig við
útboð aflamagns.
Útboð þyrfti að fara fram 6-8
mánuðum fyrir upphaf fiskveiðiárs
og eðlilegt gæti verið að bjóða út þá
strax 80% ráðgerðra aflaheimilda
eða svo. Afganginn og það, sem síð-
ar þætti við hæfi að bæta í leyfileg-
an afla, hefði kaupþing veiðirétt-
inda síðan til ráðstöfunar sem við-
skiptavaki á opnu kaupþingi til við-
skipta með veiðirétt á eftirmarkaði
og sölu á rétti til ótilætlaðs meðafla.
I næstu grein verður fjallað nán-
ar um kaupþing veiðiheimilda og
um ráðstafanir til að koma í veg
fyrir brottkast afla.
Tekið saman að beiðni Frjáls-
lynda flokksins.
Höfundur er fyrrverandi fram-
kvæmdasljóri.
^mb l.is
ALLTAf= eiTTH\TA-0 NÝTT