Morgunblaðið - 12.12.1998, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998 6^
er þar ráða ríkjum, ekkert talið því
til fyi-irstöðu, að systirin, Herdís,
gengi inn í erfðarábúð Gunnars
heitins, með svipuðum hætti og
gerðist á næsta bæ rétt áður. Nú
líður og bíður fram undir jól og
aldrei kemur orð frá ráðuneytinu,
þrátt fyrir að eftir því sé leitað.
Skömmu eftir áramótin kemur svo
í ljós, að í ráðuneytinu hafa skipast
veður í lofti, þar sem Golfklúbbur
Vatnsleysustrandarhrepps er
kominn þar inn með kröfu um að
fá að minnsta kosti væna sneið af
Kálfatjarnartúninu. Er mér næsta
óskiljanlegt með hvaða rökum
ráðuneytismenn hafa ljáð máls á
slíkri kröfugerð á kirkjujörð, en
geta verður þess hér, að Gunnar
frændi minn hafði skömmu fyrir
andlát sitt stuðlað að því að golf-
menn fengju til sinna umráða fyrir
æfingavöll, að hann taldi, hjáleigur
tvær frá Kálfatjörn, er hann hafði
á leigu. Hins vegar var honum
mjög í mun að sjálft Kálfatjarnar-
túnið skertist í engu enda taldi
hann eins og við og vonandi marg-
ir fleiri, að ekki færi saman
skarkali og læti kringum þjótandi
golfkúlur og friðhelgi grafreits og
fagurrar kirkju. -
En um vorið 1997 var Herdísi,
búanda á Kálfatjörn, gert að und-
irskrifa leigusamning við ráðu-
neytið, þar sem í voru freklegar
skerðingar á nytjarétti hennar á
jörðinni og auk þess áttu golfmenn
að fá væna skák af austurtúninu,
sem liggur að kirkjugarði. Er til
átti að taka vildu þeir stækka
þessa skák, svo að hún næmi nán-
ast öllu austurtúni. Var okkur þá
ljóst hvert stefndi, enda munu þá
þegar hafa verið til teikningar af
golfvelli á öllu túninu og raunar
víðar. Náðust engar sættir í mál-
inu og liðu svo tímar í þrúgandi
óvissu og öryggisleysi um lyktir
málsins, þrátt fyrir að Herdís hefði
undirritað leigusamning að jörð-
inni og greitt afgjald af henni. En í
vor sem leið kom í ljós, að ýmislegt
hafði gerst á bak við tjöldin. Hafði
meirihluti hreppsnefndar undir
forystu sveitarstjóra gengið í mál-
ið og fengið því framgengt, að
landbúnaðarráðuneytið var nú líka
búið að leigja Vatnsleysustrandar-
hreppi jörðina til afnota fyrir
golfáhugamenn. Var þó landbún-
aðarráðherra búinn að undirrita
leigusamning við Herdísi í október
"slim-line"
dömubuxur frá
gardeur
Oðumv
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 5611680
Armúla 29, Reykjavík,
sími 588 4699, fax 588 4696
Duplö
Tölvutengdir
fjölritarar
fyrir skóla og fyrirtæki.
Pappírsröóunarvélar
Einfalt og hraðvirkt.
Otto B. Arnar ehf.
SKOÐUN
1997, en Herdís hins vegar ekki
látin vita.
Hér er ekki tóm til að rekja alla
þætti þessa máls eða þær sál-
arraunir, sem það hefur valdiff- -
saklausum, vegna yfirgangs,
frekju og miskunnarleysis ráða-
manna, enda hefur það nú verið
lagt í dóm lögfróðra og kemur svo
vonandi réttlætið fram. En eftir
stendur, að í máli þessu hefur ver-
ið farið fram með lymskubrögðum
og baktjaldamakki, þar sem Her-
dís Erlendsdóttir, ábúandi á Kálfa-
tjörn, hefur verið virt að vettugi og
réttur hennar fyrir borð borinn.
Og ég get fullyrt, eftir að hafa
fylgst með líðan frænku minnar
undanfarin 3 ár, að allt þetta ljóta'’*’
mál og sú skynjun hennar að ráð-
andi öfl í hreppnum vildu bola
henni burt af arfleifð sinni, hefur
hægt og bítandi verið að myrða til-
finningar þessarar góðu og
gi’æskulausu konu.
Og þá er mér spurn: Hvert er
verst af þrennu: Að myrða fólk, að
myrða æru þess eða að myrða til-
finningar og sál þess?
Svari hver fyrir sig.
Höfundur er tannlæknir
og tómthúsmaður, Kálfaljöm.
SIEMENS
SMITH &
Nóatúni 4
105 Reykjavík
Sími 520 3000
www.sminor.is
Umboðsmenn um land allt!
18 m i
m