Morgunblaðið - 12.12.1998, Page 75
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998 75 _
FRETTIR
Morgunblaðið/Halldór
ÁHUGI barnanna Ieyndi sér ekki við „græna borðið".
Fjölsótt Brids-
hátíð barna
BRIDSHÁTÍÐ barna eða Mini-
bridsmót var haldið í fyrsta skipti
fyrir 10-12 ára börn úr Háteigs-
skóla í húsnæði Bridssambands
Islands fyrir skömmu. Mótið var
lokapunktur bridsnámskeiða fyr-
ir börn í 5.-7. bekk í Háteigsskóla
sem yfir 100 böm sóttu.
Mótið þótti takast í alla staði
nyög vel og mátti sjá einbeitingu
og spilagleði hjá þessum ungu og
upprennandi spilurum sem
stundum vill vanta hjá þeim sem
eldri eru. Mótið stóð frá kl. 14-17
með stuttu hléi þar sem þátttak-
endur gæddu sér á pizzum og til-
heyrandi. í mótslok fengu öll
börnin 62 sem þátt tóku í mótinu
verðlaun og þau sem enduðu í
þremur efstu sætunum fengu
verðlaunapeninga að auki. Fjöldi
fyrirtækja studdi mótið.
5 efstu pörin vom:
Christa H. Lehmann -
Signý Heiða Guðnadóttir, 7. bekk
Jón Benediktsson -
Viktor Hrafn Einarsson, 6. bekk
Hrafnhildur Héðinsdóttir-
Sólveig Björg Pálsdóttir, 6. bekk
Matthías Stefánsson -
Máni Guðvarðsson, 7. bekk
Kristófer Dan Sigurðsson -
Arnar Jan Jónsson, 5. bekk
Námskeiðin vora samstarfs-
verkefni Bridsféjags Reykjavfkur,
Bridssambands Islands og Ljós-
brár Baldursdóttur sem leiðbeindi
á námskeiðunum. I ljósi þess hve
vel tókst til er vonast til að hægt
verði að halda þessu námskeiða-
haldi áfram og Bridshátíð bama
verði árlegur viðburður.
Sendu j ólagj afimar
með DHL og sendingin
kemst hratt og
örugglega tii
vina og œttingja
erlendis.
Jólin koma örugglega 24. desember og þá er eins gott að allar jóla-
gjafirnar og jólapósturinn hafi borist vinum og ættingjum erlendis.
Jólasendingar DHL er hröð og örugg leið til að koma jólapökkunum
á áfangastað. Við förum með þá heim að dyrum viðtakanda.
Síðasti sendingardagur er 17. desember.
Jólapakki DHL
síimo verd um allnn heim
Við flytjum jólapakkann fyrir þig til vina og vandamanna hvar
sem er í heiminum fyrir aðeins 3.400 kr. ef sendingin er
staðgreidd. Miðað er við kassa sem er 26x15x35 cm sem þú
færð án endurgjalds hjá DHL. Þyngdin skiptir ekki máli.
Almenn gjaldskrá fyrir jólapakka
Þyngd Norðuriönd Evrópa Bandaríkin og Kanada Önnur lönd
1,0 kg 2.600 2.800 3.000 3.100
1,5 kg 2.950 3.200 3.450 3.600
2,0 kg 3.300 3.600 3.900 4.100
auka kg 350 400 450 500
Fríar staðlaðar umbúðir.
Athugadu ad það er 20% ódýrara ad sanda
jólahortin mvð DHL.
Hringdu í þjónustusímann 535 1122
Opið alla laugardaga fram að jólum kl. 10:00-14:00.
Vió stöndum viö skuldbindingar þínar