Morgunblaðið - 22.12.1998, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Formaður Starfsmannaráðs SHR um samning borgar og ríkis
Starfsmenn ennþá í losti
„SAMNINGUR Reykjavíkurborgar og ríkisins
kom okkur á óvart nú og fólk er almennt séð enn-
þá í losti,“ sagði Már Kristjánsson, læknir og for-
maður starfsmannaráðs Sjúkrahúss Reykjavík-
ur, er hann var spurður um afstöðu starfsmanna
SHR til þess að ríkið tekur yfír rekstur sjúkra-
hússins um næstu áramót.
Um 100 starfsmenn spítalans sátu fund á veg-
um starfsmannaráðs í gær og taldi Már að bæði
ástandið á sjúkahúsinu og frí á þessum árstíma
endurspegluðu að nokkru þessa dræmu fundar-
sókn. „Mér fannst líka fremur dauft hljóð í fólki á
fundinum og menn minntust þess að fyrir ellefu
árum þegar svipaðar hugmyndir voni uppi á ten-
ingnum var hasar í fólki á svipuðum fundi. Nú er
þetta hins vegar búið og gert en fólk greinir að
vísu nokkuð á um það hvert þessi samningur
muni leiða okkur,“ sagði Már ennfremur.
Hann sagði þá skoðun uppi bæði meðal lækna
og annarra starfsmanna að þróunin gæti orðið
svipuð og varð þegar Landakotsspítali og Borg-
arspítali voru sameinaðir. „Þá rann smærri aðil-
inn inn í þann stærri og þess vegna óttast menn
að starfsmenn smærri spítalans verði undir og að
öll starfsemin dragi dám af stærri aðilanum í
þessum samningi."
Mikilvægt að nýta vel
mannafla og fé
Már sagði einnig þá skoðun hafa verið uppi að
starfsmenn SHR ættu að ganga kinnroðalaust til
þessa samstarfs og vera keikir. „Við erum stolt af
starfseminni hér, höfum ýmislegt til brunns að
bera og þeir geta lært af okkur. Almennt séð
held ég að fólk vilji hafa tvær stofnanir til að
tryggja faglegt og rekstrarlegt andrúmsloft."
Formaður starfsmannaráðsins minnti á álykt-
anir Læknafélags Islands, læknaráða SHR og
Landspítala frá fyrri árum þess efnis að vara við
sameiningu stóru sjúkrahúsanna. „Menn vilja
minna á mikilvægi hins faglega og rekstrarlega
sem tvær stofnanir geta tryggt en hins vegar
vilja menn líka stefna að hámarksnýtingu fjár-
muna og mannafla því að á ýmsum sviðum er
ekki hentugt að hafa nema eina deild. Ég minni á
heila- og taugaskurðlækningar, augnlækningar
og síðan háls-, nef- og eyrnalækningar þar sem
er aðeins ein miðstöð. Minni aðgerðir á þessum
sviðum fara fram á læknastofum úti í bæ en allt
sem er flókið og krefst legu er gert á þessum sér-
hæfðu deildum. Þessu skipulagi var hins vegar
komið á án þess að til kæmi samningur um yfír-
töku eins og nú er orðið,“ sagði Már Kristjánsson
að lokum.
Fundur starfsmanna SHR varar við samningi við Ríkisspítala
Reksturinn ekki tryggari
með flutningi til ríkisins
FUNDUR starfsmanna Sjúkrahúss
Reykjavíkur harmar að Reykjavík-
urborg skuli hafa fallið frá rekstri
sjúkrahúss eftir ríflega 30 ára far-
sælt starf, segir meðal annai’s í
ályktun fundarins, sem haldinn var í
gær.
Þar segir einnig að fundurinn
skilji mikilvægi þess að Sjúkrahúsi
Reykjavíkur séu sköpuð eðlileg
rekstrarskilyrði en fái ekki séð að
með flutningi rekstursins til ríkisins
sé hann með nokkru móti tryggari
en áður. „Þvert á móti telur fundur-
inn að aukin yfirbygging geti leitt
til þunglamalegri stjómunarhátta
sem til lengri tíma litið bjóði heim
hættu á auknum kostnaði og minni
afköstum.
Fundurinn varar við hugmyndum
um sameiningu sjúkrahúsanna í
Reykjavík, enda stangast þær á við
Fulltrúar
læknaráða
hittast í dag
FULLTRÚAR læknaráða
Landspítala og Sjúkrahúss
Reykjavíkur munu í dag hittast
á fundi og ræða samninginn
um yfirtöku ríkisins á rekstri
Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Verður ákveðið eftir þann
fund hvort og þá hvaða yfirlýs-
ingar læknaráðin gefa í fram-
haldi af samningnum.
stefnu stjórnar Sjúkrahúss Reykja-
víkur og ályktanir starfsmannaráða
og læknaráða Sjúkrahúss Reykja-
víkur og Ríkisspítala þar að lútandi.
Fundurinn fagnar fregnum af því
að auka eigi framlag til Sjúkrahúss
Reykjavíkur og rétta reksturinn af
fjárhagslega. Þá tekur fundurinn
undir framkomin sjónarmið fjár-
málaráðherra um að reka eigi áfram
tvo spítala í umhverfí faglegrar og
rekstrarlegrar samkeppni."
4 4
áii ■%r
ÁTVR aug-
lýsir Bleikt
og blátt
ÁFENGIS- og tóbaksverslun
ríkisins er farin að selja við-
skiptavinum sínum burðar-
poka með auglýsingum fyrir
tímaritið Bleikt og blátt.
Tvær þeirra eru af ritstjóra
tímaritsins, Davíð Þór Jóns-
syni, sitjandi ofan í þvottabala
og er nakinn að því er séð
verður. Tvær myndanna eru
af nakinni konu, sem hylur
brjóst sín á annarri myndinni.
Þór Oddgeirsson, aðstoðar-
forstjóri ATVR, sagði að
áfengisverslunin seldi þessar
auglýsingar og færu tekjur af
sölunni upp í framleiðslu-
kostnað pokanna. Plastos, sem
sér um að prenta pokana,
leggi til auglýsingarnai', þar á
meðal þessa og ekkert hefði
verið talið athugavert við þær.
Tveir brunar í
íbúðarhúsum
ELDUR kom upp í húsi við
Spítalastíg um klukkan 3 að-
faranótt mánudags. Ibúi í hús-
inu varð eldsins var og gerði
öðrum íbúum viðvart. Ibúarnir
átta komust út af sjálfsdáðum.
Eldurinn kom upp í rafmagns-
töflu í húsinu, en breiddist lítið
út enda var lítið um eldfím
efni í kringum töfluna, sam-
kvæmt upplýsingum lögreglu.
Slökkviliðið í Reykjavík
slökkti með kolsýruslökkvi-
tæki og reykræsti síðan húsið.
Um klukkan eitt eftir mið-
nætti á laugardagskvöld var
slökkviliðinu í Reykjavík til-
kynnt um eld í stigagangi
íbúðarhúss við Skólavörðustíg.
Þegar slökkviliðið kom á vett-
vang höfðu íbúar í húsinu
brotist inn í eina íbúð hússins
þaðan sem reykur barst. Þar
inni var íbúi sofandi og var
hann fluttur á slysadeild með
sjúkrabifreið. Reykurinn hafði
myndast frá pönnu sem skilin
hafði verið eftir á heitri hellu.
Græni herinn tekur til starfa við uppgræðslu landsins
Morgunblaðið/Kristinn
ÓLAFUR Ragnar Grímsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir afhentu Græna hernum eina milljón fræja í gær.
HOLTAGARÐAR
«m í BAC KL.
10-22
BÓNUS FRÁ 12-12
Ein milljón
fræja afhent
FORSETI íslands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, og borgarstjór-
inn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, aflientu Græna hern-
um eina milljón birkifíræja, furu-
fræja, melfræja og grasfræja við
sérstaka athöfn í Höfða í gáer.
Stuðmenn standa fyrir stofnun
Græna hersins, en hann mun
starfa að uppgræðslu og snyrt-
ingu landsins næsta vor. í til-
kynningu frá Græna hernum
segir að starfsemin sé fjármögn-
uð af nokkrum stórfyrirtækjum,
auk þess sem yfirlýsingar um
stuðning fleiri aðila liggja fyrir. I
samráði við bæjar- og sveitarfé-
lög verður ákveðið hvar helst ber
að taka til hendi.
Öllum samtökum og félögum
sem láta sig umhverfismál varða
er boðin aðild. Heimasíða hers-
ins, græni.herinn.is verður opnuð
1. janúar nk.
Utanríkisráðuneytið hafnar ósk Friðar 2000
Ekki grundvöllur
til samstarfs
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hef-
ur tjáð samtökunum Friður 2000 að
vegna reynslu af skipulagi ferðar
samtakanna til Bagdad fyrir jólin
1997 sé ekki grundvöllur til frekari
samvinnu af þvi tagi. Það bendir
Friði 2000 á að leita samstarfs við
„ábyrg" samtök á borð við Rauða
kross Islands og Hjálparstarf kirkj-
unnar. Þetta kom fram í fréttatil-
kynningu frá ráðuneytinu eftir fund
með fulltrúum Friðar 2000 í gær.
Friður 2000 óskaði eftir því 13.
desember sl. að ráðuneytið hefði
milligöngu við Sameinuðu þjóðirnar
vegna flutninga á vörum til íraks,
en þeirri beiðni var hafnað. Ráðu-
neytið bendir meðal annars á að
RKÍ og samtök sem Hjálparstofnun
kirkjunnar er aðili að standi nú þeg-
ar að neyðaraðstoð með virkum
hætti í Irak.
Tveimur öðram beiðnum samtak-
anna, um að ráðuneytið sækti fyrir
þeirra hönd um leyfi til reglubund-
inna flugferða til Bagdad og beiðni
um fjárframlag vegna ferðar til Mið-
Ameríku, var hafnað fyrr á árinu.
Ástþór Magnússon sagði í gær að
utanríkisráðuneytið gæfí tylliástæð-
ur fyrir því að veita ekki leyfið og
benti á að engar athugasemdir
hefðu komið fyrr en nú fyrir utan
ummæli fyrr á árinu um óánægju
með ummæli um viðskiptabannið á
írak.
1
I
I