Morgunblaðið - 22.12.1998, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998 19
1% brezkra
fyrirtækja
er viðbúið
evrunni
London. Telegraph.
INNAN við 1% lítilla og með-
alstórra fyrirtækja í Bretlandi
hafa gert nauðsynlegar ráð-
stafanir til að mæta langtíma
áhrifum evrunnar, hins sam-
eiginlega evrópska gjaldmið-
ils, samkvæmt úttekt brezka
fjármálaráðuneytisins.
Jafnvel fyrirtæki sem eiga
viðskipti við Evrópu hafa ekki
mótað verðlagningarstefnu
gegn evrunni og fá hafa reynt
að gera sér grein fyrir áhrifum
sem evran getur haft á fyrir-
tækin í samkeppnismálum.
Ottazt er að brezk fyrirtæki
neyðist til að lækka verð.
Einnig er hætta á innflutn-
ingsflóði og undirboðum.
Lítið hefur verið gert til að
búa starfsfólk undir að bregð-
ast við áhrifum breytingarinn-
ar. Aðeins nokkrar vikur eru
síðan í Ijós kom að 6% lítilla og
meðalstóra brezkra fyrirtækja
vissu ekkert um sameiginleg-
an evrópskan gjaldmiðil.
500 sagt upp
hjá LA Times
Los Angeles. Reuters.
BANDARÍSKA stórblaðið
Los Angeles Times ætlar að
leggja niður 500 störf í öðrum
áfanga niðurskurðaráætlunar,
sem hófst í nóvember.
Sagt verður upp um 8%
starfsmanna, sem eru um
6.150, að sögn útgáfu blaðsins,
Times Mirror Co. Um 380
þeirra sem hætta vinna að
markaðsmálum, en aðrir fást
við auglýsingar, fjármál, skrif-
stofustörf og starfsmanna-
hald. I fyrri áfanga áætlunar-
innar var sagt upp 250 manns,
þar af um 30 á ritstjórn.
LA Times er eitt stærsta
blað Bandaríkjanna og kemur
út í rúmlega einni milljón ein-
taka á dag. „Nauðsynlegt er að
draga úr kostnaði til að bæta
fjárhaginn og fjárfesta í fram-
tíðinni,“ sagði Kathi'yn Down-
ing aðalframkvæmdastjóri.
Seagram og
Allied slíta
viðræðum
London. Telegraph.
KANADÍSKI drykkjar-
vörurisinn Seagram og Allied
Domeco hafa lokið viðræðum
um samruna eða sameiningu
áfengisdeilda fyrirtækjanna.
Verð bréfa í Allied lækkaði um
21 pens í 540 við tíðindin.
Seagram staðfesti að við-
ræðum væri lokið og sagði að
fyrirtækið væri ákveðið í að
standa á eigin fótum. Talið er
að viðræðurnar hafi strandað
á því að Bronfman-fjölskyldan
hafi ekki viljað rýra 30% hlut
sinn í Seagram.
Til greina kom að sameina
áfengisdeildirnar án þess að til
fulls samruna kæmi. Fræg-
ustu merki Allied eru Beefeat-
er gin og Ballantine viskí, en
meðal þess sem Seagram hef-
ur á boðstólum eru Martell
koníak og Captain Morgan
romm. Samvinna gæfi aukið
svigi'úm til samkeppni við Di-
ageo, umsvifamesta drykkjar-
vörufyrirtæki heims.
Allied hefur áhuga á við-
ræðum við önnur öflug
drykkjarvörufyrirtæki. Nokk-
ur þeirra sem koma til greina
eru í fjölskyldueign eins og
Seagram - til dæmis Pernod
Ricard.
Landsbankinn tilkynnti Verðbréfaþingi
ekki um utanþingsviðskipti
Málið litið alvar-
legum augum af
stjórn þingsins
SÍÐASTLIÐIÐ sumar var Lands-
banka íslands hf. bent á það af
hálfu Verðbréfaþings Islands að til-
kynningar bankans um utanþings-
viðskipti væra ekki í samræmi við
stærð hans á markaði. Með utan-
þingsviðskiptum er átt við viðskipti
bankans með verðbréf _sem skráð
eru á Verðbréfaþingi Islands án
þess að hann noti til þeirra við-
skiptakerfi þingsins. Við eftir-
grennslan innan bankans kom í ljós
að vegna tæknilegra atvika hafði
bankinn ekki tilkynnt Verðbréfa-
þinginu um þau utanþingsviðskipti
sem hann hafði átt aðild að.
I fréttatilkynningu frá Lands-
bankanum kemur fram að Verð-
bréfaþing ítrekaði ábendingar sínar
og með bréfi dags. 1. desember sl.
var óskað skýringa bankans. í
framhaldi af því áttu fulltrúar
bankans fundi með starfsmönnum
Verðbréfaþings þar sem farið var
yfir málið og skýringar veittar. Ur-
bætur á tölvukerfum bankans hafa
verið gerðar þannig að öll utan-
þingsviðskipti eru nú tilkynnt með
sjálfvirkum hætti.
I tilkynningu frá Verðbréfaþingi
kemur fram að vanræksla tilkynn-
inga brjóti gegn þeirri gagn-
kvæmnishugsun að hver þingaðili
fái upplýsingar um viðskipti allra
hinna þingaðilanna gegn því að
leggja fram allar upplýsingar um
eigin viðskipti. Vanræksla tilkynn-
inga veldur því að aðrir þingaðilar
geta ekki gert sér eins glögga
mynd af markaðnum og sá þingaðili
sem ekki tilkynnir.
Utanþingsviðskipti þingaðila
mynda gjaldstofn til veltugjalda og
eiga að stuðla að því að hver þing-
aðili beri sinn hlut af rekstrar-
kostnaði þingsins í samræmi við
þau viðskipti sem hann á með skráð
bréf, enda má ætla að í öllum slík-
um viðskiptum njóti þingaðilinn
ávinnings af verðmyndun og upp-
lýsingagjöf þingsins.
„Stjórn Verðbréfaþings Islands
lítur þetta mál alvarlegum augum,
svo og það hversu langan tíma það
tók bankann að koma málinu í lag.
En þar sem Landsbankinn hefur nú
sent frá sér yfirlýsingu um málið og
gert nauðsynlegar úrbætur á tölvu-
kerfum og vinnulagi við tilkynningu
utanþingsviðskipta hyggst stjórnin
ekki grípa til frekari viðurlaga,“
segir í tilkynningu frá VÞI.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsbankanum eru margvíslegar
ástæður fyrir því að umrædd utan-
þingsviðskipti bankans voru ekki
tilkynnt en einkum má þar nefna
flutninga og sameiningar sviða inn-
an Landsbankasamstæðunnar. Við
þá flutninga voru tekin upp ný kerfi
sem ekki sáu sjálfkrafa um tilkynn-
ingar til Verðbréfaþingins, líkt og
áður hafði tíðkast," segir í frétt frá
Landsbankanum.
Dilbert á Netinu ^mbl.is
/KLLTAf= £/TTH\Sf\£> NÝTl
Skoda Felicia LXi kostar aðeins kr.
718.000
HEKLA
síml 569 5500
www.hekla.is
*Samkvæmt verðlistum bifreiðaumboðanna, útg. Samskiptí nóv. '98.
NYTTUTLIT
AFLSTYRI
HREYFILTENGD ÞJOFNAÐARVÖRN
SAMLÆSINGAR
FORSTREKKJARAR A ÖRYGGISBELTUM
RAFSTÝRÐIR UPPHITAÐIR SPEGLAR
UTVARP OG SEGULBAND
6 ARA ABYRGÐ GAGNVART
GEGNUMRYÐGUN
SAMLITIR STUÐARAR
KRAFTMEIRIVEL,68 hö
jMWnBir! L
— - • -igBW C m *;]