Morgunblaðið - 22.12.1998, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 22.12.1998, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Krossffekar mhl !c fjjm feykirófa |j Skólavöröustíg 1 a III M I ■ I 5 . I a i 11 ■ i.i«v»V» ■ Mikið úrvai af snjóbrettym töppi irÍAitv i' úfCvtit jól OPIÐ TIL KLUKKAN 22 í KVBLD og 23 Á ÞORLÁKSMESSU Skeifan 6 • Reyk|avík • Sími 533 4450 Nýjar tegund- ir af gæsalifur HÆGT hefur verið að kaupa franska gæslifur um árabil hér á landi við góðar undirtektir sæl- kera. Nýkaup í Kringlunni hefur nú á boðstólum nýjar tegundir af niðursoðnum gæsalifrarvör- um sem fluttar eru inn beint frá F. Feyel í Frakklandi. Fyrirtæk- ið er gamalgróið, framleiðslan er byggð á hefðum frá upphafi 19. aldar og með aðsetur í Strassborg í Elsass sem er ann- að af tveim þekktustu héruðum landsins í framleiðslu á gæsalif- ur, hitt er Périgord. Um er að ræða dýra vöru enda líklega fátítt að nokkur standi á blístri af því að gæða sér á henni, ekki fremur en styrjuhrognum. Tegundirnar fást aðeins í Kringlunni og kostar sú dýrasta, 150 g af hreinni gæsalifur í hlaupi nær 2.500 krónur. Einnig er boðið upp á gæsalifrarpaté með 20% lifur, andalifrarmús með 25% lifur, Riesling paté, gæsalifrarmús með 50% gæsalif- ur, andalifrarpaté með 50% lif- ur, gæsalifrarpaté með 50% lif- ur, gæsalifur með jarðsveppum Vínlegnar enskar jólakökur og jólabúðingar Bresk gæðavara PIPAR OG SALT Klapparstíg 44 Sími 562 3614 NEYTENDUR ÝMSAR tegundir af gæsalifur í Nýkaupi. og loks gæsalifur í 75 gramma pakkningu. Gæsalifur er oft borðuð heil og er á matseðlum góðra veit- ingahúsa í Frakklandi, andar- lifrin er ekki síður vinsæll rétt- ur. Kæfan er fyrst og fremst notuð með ristuðu brauði. I sæl- keragrein Morgunblaðsins fyrri tveim árum segir m.a. að oft sé kæfan bragðbætt með trufflum, koníaki eða á annan hátt og bor- in fram í deigi. Stundum er svörtum pipar stráð á diskrönd- ina til að draga enn frekar fram sérstætt bragð kæfunnar. Einnig segir að þekktasta framleiðslusvæðið sé nú Périgord en einnig veiti ódýari gæsalifur frá Ungverjalandi frönsku lifrinni nú samkeppni á alþjóðamarkaði. Sígilt vín með gæsalifur sé eð- alsætt, hvítt Sauternes frá Bor- deaux en einnig megi prófa að dreypa á sætvínum frá Ástralíu. Elsassbúar fái sér gjarnan bragðmikil Gewurztraminer-vín með lifrinni en fátt sé eins gott með réttinum og kampavín og þá helst þurr brut-vín en ekki freyðivín. Sælkerinn sem lýsir aðferðun- um við lifrarbúskapinn segir að frönsk gæsalifur eigi fátt sam- eiginlegt með venjulegri lifrar- kæfu. Fæðu er bókstaflega troð- ið ofan í fuglana til að lifrin verði stór og feit. „Gamla hefðin var sú að bændur sem ólu upp slíkar gæsir eða endur tróðu fæðunni ofan í kokið á fuglunum með sérstökum prikum." Að sögn F. Feyel hafa gæsir þann eiginleika að þeim hættir til að éta yfir sig og safna mikilli fitu í lifur og fleiri líkamshluta á haustin. Heppilegasta stærð lifr- ar sé 600-800 grömm en þær geti orðið 900 grömm, sem er margfalt meiri þyngd en í villi- gæs. Gæsirnar geti náð að éta allt að þijú kíló af rófum, gul- rótum og öðru fóðri á dag. Besta varan sé ljós og án bletta. Elsass er í austurhluta Frakk- lands og er heimsþekkt fyrir vínframleiðslu og matargerð. Þaðan koma vín á borð við Riesl- ing og Gevurztraminer en einnig bjórtegundirnar Kronen- bourg og Fischer. Gæsalifur af því tagi sem er orðin heims- þekkt eða Foie Gras (feit Iifur) var fyrst búin til árið 1780 er Je- an-Pierre Clause, kokkur iand- stjórans í héraðinu fékk það hlutverk að búa til eitthvað al- veg nýtt og spennandi. Konung- urinn, Lúðvík 16., er missti síðar höfuðuð í stjórnarbyltingunni, varð einnig svo hrifinn að hann verðlaunaði Clause með gulli og stórri jörð. Kvótaþing íslands — Afgreiðslutími yfir hátíðarnar — Aðfangadagur: 9.00-12.00 Gamlársdagur: 9.00-12.00 Unnt er að leggja inn tilboð fram að hádegi þessa daga en útreikningur viðskiptaverðs mun fara fram næsta virka dag á eftir. Lokað jóladag, annan í jólum, nýársdag og 4. janúar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.