Morgunblaðið - 22.12.1998, Blaðsíða 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skemmdarverk og
líkamsmeiðingar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Söfnunarbaukur-
inn þyngdur
AGERÐIR lögreglu gegn ölvun-
arakstri héldu áfram þessa helgi.
Samkvæmt skráningum voru rúm-
lega 600 ökumenn stöðvaðh’ og
ástand þeirra kannað. Því miður
eru það alltaf nokkrir ökumenn
sem nauðsynlegt reynist að kæra
vegna ölvunaraksturs. Um helgina
voru 18 ökumenn kærðir.
Umferðaróhöpp -
umferðarslys
Um helgina var tilkynnt um rúm-
lega 60 umferðaróhöpp til lögreglu.
I nokkrum þeirra urðu slys á fólki
en ekki alvarleg. Síðdegis á sunnu-
dag gerði talsverða hálku í höfuð-
horginni og urðu þá allmargir
árekstrar á skömmu tíma. Þá varð
lögreglan að veita mörgum öku-
mönnum aðstoð á Kringlumýrar-
braut við Bústaðabrú síðdegis á
sunnudag vegna hálkunnar. Greini-
legt var að ekki höfðu allir öku-
menn gert sér grein fyrir því að
/ænta mátti vetrarfærðar. Ekið var
á mann á reiðhjóli á Laugavegi að
morgni fóstudags. Maðurinn var á
ieið yfir götuna á gangbraut. Hann
var fluttur á slysadeild með áverka
á höfði og handlegg. Síðdegis á
fóstudag var einnig ekið á mann á
reiðhjóli á Listabraut. Maðurinn
/ar fluttur á slysadeild en hann
kenndi til eymsla í öxl. Bifreið var
ekið á ljósastaur á Stekkjarbakka
um miðjan sunnudag. Ökumaðm'
var fluttur á slysadeild. Þá var ekið
á gangandi vegfai'anda í Lækjar-
götu síðdegis á sunnudag. Hinn
gangandi var fluttur á slysadeild en
hann kenndi til í öxl. Ökumaður bif-
reiðar sem ekið vai' á ljósastaur á
18. til 21.
desember 1998
Kringlumýrarbraut á sunnudag var
einnig fluttur á slysdeild.
Hraðakstur og
vítaverður akstur
Ökumaður var stöðvaður í Hval-
fjarðargöngum eftir að hafa mælst
aka bifreið sinni á 107 km hraða.
Klukkan rúmlega fjögur að morgni
sunnudags óskuðu lögreglumenn í
Kópavogi eftir aðstoð vegna bif-
reiðar sem ekki sinnti stöðvunar-
merkjum þeirra. Voru sex ökutæki
frá lögreglu í efthförinni þegar
mest var, þar af eitt frá Kópavogi.
Eftirfórin var um Breiðholtshverfi
og síðan Suðurlandsveg. Lögreglu-
bifreiðar höfðu þá slökkt á for-
gangsljósum en héldu í humátt á
eftir bifreiðinni sem ekið var á
vítaverðan hátt. Það náðist síðan
að stöðva akstur bifreiðarinnar í
Lögbergsbrekku er tveimur lög-
reglubifreiðum var ekið á bifreið-
ina. Áður hafði tekist að lækka
ökuhraða hennar verulega en ljóst
þótti að ekki myndi takast að
stöðva aksturinn endanlega nema
á þennan hátt. Enginn slasaðist við
eftirförina en skemmdir urðu á
tveimur ökutækjum lögreglu auk
skemmda á bifreiðinni sem veitt
var eftirför. Ökumaðurinn var
handtekinn og hann fluttur á lög-
reglustöð. Hann er 17 ára og hefur
ekki ökuréttindi. Hann hafði tekið
ökutæki fjölskyldunnar án heimild-
ar. Ökumaðurinn var undir áhrif-
um áfengis við aksturinn.
Karlmaður vai- handtekinn eftir
að hafa gengið berserksgang í
veislusal að kvöldi laugadags.
Karlmaður var handtekinn eftir
átök á veitingastað í miðborginni
að morgni sunnudags. Hann var
fluttur í fangahús.
Lögreglu var tilkynnt um átök í
Austurstræti um klukkan 4:30 að
morgni sunnudags. Þegar lögreglu-
menn voru að vinna að lausn máls-
ins veittust nokkrir vegfarendur að
lögreglu svo kalla varð til fleiri lög-
reglumenn til aðstoðar. Lögreglu-
menn beittu varnarúða á tvo þeirra
atkvæðamestu. Tveir voru fluttir í
fangamóttöku vegna málsins.
Innbrot
Lögreglu var tilkynnt um 12 inn-
brot um helgina. Rúða var brotin á
hljóðfæraverslun í miðborginni að
morgni sunnudags og þaðan stolið
hljóðfærum. Ekki er vitað hverjir
stóðu að þjófnaðinum. Brotist var
inn í fjögur ökutæki í bílskýli í
Breiðholtshverfi aðfaranótt sunnu-
dags. Karlmaður var handtekinn
þar sem hann var að brjótast inn i
íbúð í miðborginni að morgni
mánudags. Hann var fluttur í
fangahúsið við Hverfisgötu.
Annað
Vinnuslys varð við byggingu við
Egilsgötu síðdegis á fóstudag.
Karlmaður fékk stálbita í höfuðið
og vai' fluttur á slysadeild til að-
hlynningar. Meiðsli eru ekki talin
alvarleg.
MEIRA en hundrað kíló af er-
lendri smámynt er nú komið í
söfnunarbauk Umhyggju, Fé-
lags til stuðnings langveikum
börnum, í Múlaútibúi Lands-
bankans. Sigurður Guðmunds-
son landlæknir og Sigríður
Snæbjörnsdóttir, eiginkona
hans, lögðu leið sína í bankann í
gær og þyngdu baukinn enn.
Sams konar söfnunarbaukar
eru í öllum útibúum Lands-
bankans og Hrafnhildur B. Sig-
urðardóttir, útbússtjóri Múla-
útibús, sem stendur fyrir aftan
landlæknishjónin á myndinni,
VAAÁÁÁ!
Háfækni
Ármúla 26 • sími 588 5000
Hafðu samband!
hvetur alla til að taka til í skáp-
um og skúffum heima hjá sér
og styrkja gott málefni.
------------------
LEIÐRÉTT
AHt í dollurum
I frétt í laugardagsblaði um sölu
birgða frystrar loðnu til Rússlands
kom fram að loðnan væri seld í rúbl-
um. Það er rangt hvað varðar Is-
lenskar sjávarafurðir sem selja allt í
dollurum og nánast allt gegn stað-
greiðslu. I fréttinni misritaðist
einnig fóðurnafn Bjarna Sölvasonar
starfsmanns ÍS. Beðist er velvh'ðing-
ar á mistökunum.
Hlaut heiðursviðurkenningu
í FRÉTT í laugardagsblaðinu um af-
hendingu heiðursviðurkeningar úr
Bókasafnssjóði láðist að geta eins
höfundai' sem hlaut 250.000 kr.
styrk, þ.e. Þórunnar Blöndal
kennslubókahöfundar.
Áfall fyrir Reykjavíkurlistann
I tilvitnun í forystugrein Morgun-
blaðsins með ofansrkáðri fyrirsögn
(20. desember sl.) féll niður eitt orð.
Velvirðingar er beðist á þeim mis-
tökum. Ttilvitnunin í úrskurð félags-
málaráðuneytisins fer hér á eftir:
,Af framsögðu er ljóst að R-listinn
var í borgarstjórnarkosningunum,
sem fram fóru í Reykjavík 23. mai sl.
formlega borinn fram af Reykjavík-
urlistanum einum, en ekki af öðrum
stjórnmálaflokkum eða samtökum.
Samkvæmt þessu og með hliðsjón af
því að kjósendur verða að geta
treyst því að kjörseðill hafi að geyma
tæmandi upplýsingar um hvaða
stjórnmálasamtök bera fram fram-
boðslista verður að telja að skilyrð-
um 2. mgr. 35. gr. laga nr. 8/1986
hafi ekki verið fullnægt í því tilviki
sem hér um ræðir. Varamaður átti
því ekki að taka sæti Hrannars B.
Arnarssonar í borgarstjórn sam-
kvæmt ákvæði 2. mgr. 35. gr., heldur
samkvæmt ákvæði 1. mgr. 35. gr.
laga nr. 8/1986, þ.e. í þeirri röð sem
varamenn eru kosnir. - Með vísan til
framangreinds verður ekki hjá því
komist að fella hina kærðu samþykkt
borgarstjómar Reykjavíkur úr
gildi.“
Auglýsendur
athugið!
Fullunnum sérauglýsingum,
sem eiga að birtast á aðfangadag, 24. desember,
þarf að skila fyrir klukkan 16 þriðjudaginn 22. desember.
Atvinnu-, rað- og smáauglýsingum,
sem eiga að birtast á aðfangadag, fimmtudaginn 24. desember,
þarf að skila fyrir klukkan 16 þriðjudaginn 22. desember.
AUGLÝSINGADEILD
Sími: 569 1111 • Bréfasími: 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is
Englakoddaver
með barnabeen if ígxráZ&zBKi
fást á eftirfarandi stöSum: Kirkjuhúsinu, Reykjavík, Bókab. Grimsbte Reykjavik, i jsCxI
Bókaskemmunni, Akranesi,
Ósbær ,Blönduósi,
Legg og skel, fsafirði,
Blóma- og gjafavversL, Sauðárkróki,
Lipurtá, Akureyri,
Blómasetrinu, Húsavík,
KASKHöfii,
Eyjablómi Vestmannaeyjum.
Reynslan sýnir að börn læra bænina á
koddanum sínum og leiðir það huga þeirra á
bjartari braut fyrir svcfninn.
Þrjár mism. bænir og tveir litir.
Dreifing: Listfetigi ebf, s. 561 0865.
www.centrum. isl^oktavia
e-maih oktavia @cen trurn. is