Morgunblaðið - 22.12.1998, Side 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
/ BG HEFGBÍHT FÁBlH \ ^MISTÖK i'í-fFlNU j íHA HA HA HA HA \ | , \HA HA HA HA HAÍ J | / E/NS oe T- p. AE> BÓA Sr V'/O 1 SAmOoffzA. ÞéR, <see.Trify
j ^
j 'j/f,
I
X mXú-X —X
Hundalíf
Ferdinand
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Láttu þér líða vel -
gerðu góðverk um jólin!
Frá Guðrúnu Bergmann
Reynisdóttur:
HÚN ER átta ára hnáta, heilsu-
hraust og fjörug. Hún á allt lífið
framundan með öllum þeim tæki-
færum, sem ungu fólki standa til
boða í dag. Já, lífið er dásamlegt,
hvað er hægt að hugsa sér betra?
En hér er ekki allt sem sýnist. Þessi
stelpa á nefnilega ekki heima á Is-
landi þar sem allir hafa greiðan að-
gang að skólagöngu og flestum
gengur nokkuð vel að fæða og
klæða sig og sína. Hún býr á Ind-
landi og þar eru tækifærin annars
konar. Hún er munaðarlaus og líf
hennar er í alla staði bágborið og
sjálfsagðar nauðþurftir eins og fót
eru af skornum skammti. Og skóla-
gangan, helsta tækifæri ungs fólks í
dag, er ekki fyrir hverja sem er.
Þessi stelpa gengur ekki að skóla-
göngunni vísri!
Hún leggur allt sitt traust á
„tækifæri götunnar". Þetta er ekki
falleg saga en hún er kannski dæmi-
gerð fyrir „samferðarbörn“ okkar
víða um heim. En hvað er til ráða?
Getum við gert eitthvað í þessu! Já,
við getum lagt þeim lið. ABC hjálp-
arstarf Ieggur alla sína krafta í að
hjálpa bágstöddum börnum þessa
heims en starfið er að fullu unnið
með sjálfboðaframlagi í þeirri trú
að hægt sé að kveikja ljós í hjörtum
einhverra þessara ógæfusömu
bama.
Eins og marga Islendinga hefur
okkur fjölskylduna lengi langað að
gefa einhveru barni tækifæri til
bjartrar framtíðar og þegar við
loksins létum verða af því reyndist
það ótrúlega einfalt og gefandi. Það
var okkur mikils virði að vita að öll
framlög renna óskert til barnanna
og eru m.a. notuð til að kosta skóla-
göngu, fyrir læknisaðstoð, mat eða
jafnvel heimili. En nú þurfa börnin
og þau hjá ABC hjálparstarfi að fá
fleiri með sér á „árarnar".
Hægt er að taka þátt í hjálpar-
starfinu með ýmsum hætti m.a. með
kaupum á minningargjöfum, með
peningagjöfum eða með því að
styrkja bam. Peningagjafirnar
standa fyrir ýmiss konar kennslu-
verkefnum, skólar em byggðir og
þak reist yfir munaðarlaus böm.
Þannig tók ABC hjálparstarf ný-
lega þátt í byggingu neyðarþorps
fyrir alnæmissmitaðar ekkjm' með
ungabörn í Uganda.
Að styrkja böm, eða taka töku-
böm eins og það er kallað, gengur
út á það að fyrir 500-1950 kr. fram-
lag á mánuði tekur þú bam í fóstur
og skapar því, með þessari lágu
upphæð, hugsanlega tækifæri lífs-
ins t.d. í formi skólagöngu, matar,
klæðis og húsaskjóls. Þú færð senda
mynd af barninu ásamt ýmsum
upplýsingum um hagi þess og þú
færð að fylgjast með námsárangri
þess. Og þú getur skrifast á við
börnin og myndað þannig persónu-
leg tengsl við þau ef áhugi er fyrir
hendi. Þegar ég tók ákvörðun um að
styrkja barn ákvað ég að taka tvö
fósturbörn og þannig eigum við fjöl-
skyldan nú átta ára fósturdóttur á
Filippseyjum og sautján ára fóstur-
dóttur í Uganda. Að aðstoða bág-
stödd böm með þessum hætti er lík-
lega eitthvað sem allir eru sammála
um að sé rétt og sjálfsagt að gera.
En margir koma því seint eða alls
ekki í verk enda neyðin fjarlæg í
daglegu amstri okkar Islendinga.
Við vitum það hins vegar hvaða
vellíðan fylgir því að hjálpa til með
þessum hætti og á það ekki síst við
á aðventunni svona rétt fyrir jólin.
Og okkur líður vel því við vitum að
okkar lága framlag gefur bjargar-
lausu barni nú von um bjarta fram-
tíð og betra líf.
Láttu þér líða vel um jólin!
Með jólakveðju.
F.h. ABC hjálparstarfs,
GUÐRÚN BERGMANN
REYNISDÓTTIR,
Sóltúni 3, Reykjavík.
I UIANTEP TO BUV PE66V JEAN S0ME 6L0VE5 F0R CHRI5TMA5,BUTTHEV C05T TWENTY-FIVE D01LAR5 5HE'5 60IN6T0 BEPI5APP0INTED OJHEN SHE FIND5 OUTHERBOVFRIEWD 15 A CHEAPSKATE IcA t 1M N0T A CHEAP5KATE.. I JU5T DON’T I4AVE TWENTY- FIVE D0LLAR5/ YjV /PUT IT\ ON YOUR i CREPIT / \CARD../ /1 DON T HAVeY ( A CREDIT ) ycARp. y 50 L0N6, PE66Y JEAN*
1 I 1 & rch y SJ&
Mig langar að kaupa Jún verður fyrir von _ Ég er ekki Borgaðu Ég á ekki Vertu sæl
hanska handa Pálu Jónu í brigðum þegar hún jólagjöf, en þeir kostuðu kemst að því að kær- 2.000 krónur. astinn hennar er nánös. nánös... ég á bara ekki 2.000 krónur. með VISA- kortinu þinu. .. VISA-kort. Pála Jóna!
Hlutdræg fréttamiðlun
Frá Bárði G. Hulldórssyni:
í HÁDEGINU, mánudag 16. des-
ember sl., var haldinn fundur á veg-
um ungra framsóknarmanna á Kaffi
Reykjavík. Meðal ræðumanna var
Halldór Asgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, og aðrir
framsóknarmenn nýlega fram-
gengnir. Halldór fullyrti þar að eng-
inn hefði nokkru sinni komið fram
með neinar aðrar tillögur um físk-
veiðistjórnun heldur en þær sem nú
væri stjórnað eftir. Valdimar Jó-
hannesson, stjómarmaður í Sam-
tökum um þjóðareign og ritari
Frjálslynda lýðræðisflokksins, stóð
upp að loknum ræðum framsóknar-
manna og sagði að fjöldi manna -
innan og utan Samtakanna - hefði á
liðnum árum komið fram með heild-
stæðar tillögur um breytta fisk-
veiðistjóm - í ræðu og riti og spurði
síðan ráðherrann (sem hlýtur að
teljast eðlileg spuming í ljósi við-
bragða forsætisráðherra við undir-
skriftum prófessoranna): ertu ólæs
Halldór - eða heyrirðu kannski ekk-
ert?
Þegar fréttamanni Stöðvai' 2
þóknaðist að segja frá fundinum í
kvöldfréttatíma var mikið gert úr
ræðum allra framsóknarmannanna
og sagt að Valdimar hefði spurt
Halldór hvort hann væri ólæs og
heyrnarlaus. Engin greinargerð kom
fram um mjög skýra og greinargóða
ræðu Lúðvíks Kaabers lögmanns né
annarra fundarmanna og fyrirspyrj-
enda. An nokkurs formála er sagt
frá orðum Valdimars, svona rétt eins
og hann hefði kallað þetta íram líkt
og ótíndur dóni, án tilefnis og for-
málalaust. Þetta er léleg fréttamiðl-
un. Hún er hlutdræg og hallar réttu
máli. Er hugsanlegt að þetta sé gert
af ásetningi? Það skiptir miklu fyrir
umræðuna um fiskveiðistjóm, að
fréttamenn gæti hlutleysis og full
ástæða til þess fyrir almenning að
fylgjast grannt með þeim.
BÁRÐUR G. HALLDÓRSSON,
formaður Samtaka um þjóðareign.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.