Morgunblaðið - 22.12.1998, Page 58

Morgunblaðið - 22.12.1998, Page 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Grettir / BG HEFGBÍHT FÁBlH \ ^MISTÖK i'í-fFlNU j íHA HA HA HA HA \ | , \HA HA HA HA HAÍ J | / E/NS oe T- p. AE> BÓA Sr V'/O 1 SAmOoffzA. ÞéR, <see.Trify j ^ j 'j/f, I X mXú-X —X Hundalíf Ferdinand BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Láttu þér líða vel - gerðu góðverk um jólin! Frá Guðrúnu Bergmann Reynisdóttur: HÚN ER átta ára hnáta, heilsu- hraust og fjörug. Hún á allt lífið framundan með öllum þeim tæki- færum, sem ungu fólki standa til boða í dag. Já, lífið er dásamlegt, hvað er hægt að hugsa sér betra? En hér er ekki allt sem sýnist. Þessi stelpa á nefnilega ekki heima á Is- landi þar sem allir hafa greiðan að- gang að skólagöngu og flestum gengur nokkuð vel að fæða og klæða sig og sína. Hún býr á Ind- landi og þar eru tækifærin annars konar. Hún er munaðarlaus og líf hennar er í alla staði bágborið og sjálfsagðar nauðþurftir eins og fót eru af skornum skammti. Og skóla- gangan, helsta tækifæri ungs fólks í dag, er ekki fyrir hverja sem er. Þessi stelpa gengur ekki að skóla- göngunni vísri! Hún leggur allt sitt traust á „tækifæri götunnar". Þetta er ekki falleg saga en hún er kannski dæmi- gerð fyrir „samferðarbörn“ okkar víða um heim. En hvað er til ráða? Getum við gert eitthvað í þessu! Já, við getum lagt þeim lið. ABC hjálp- arstarf Ieggur alla sína krafta í að hjálpa bágstöddum börnum þessa heims en starfið er að fullu unnið með sjálfboðaframlagi í þeirri trú að hægt sé að kveikja ljós í hjörtum einhverra þessara ógæfusömu bama. Eins og marga Islendinga hefur okkur fjölskylduna lengi langað að gefa einhveru barni tækifæri til bjartrar framtíðar og þegar við loksins létum verða af því reyndist það ótrúlega einfalt og gefandi. Það var okkur mikils virði að vita að öll framlög renna óskert til barnanna og eru m.a. notuð til að kosta skóla- göngu, fyrir læknisaðstoð, mat eða jafnvel heimili. En nú þurfa börnin og þau hjá ABC hjálparstarfi að fá fleiri með sér á „árarnar". Hægt er að taka þátt í hjálpar- starfinu með ýmsum hætti m.a. með kaupum á minningargjöfum, með peningagjöfum eða með því að styrkja bam. Peningagjafirnar standa fyrir ýmiss konar kennslu- verkefnum, skólar em byggðir og þak reist yfir munaðarlaus böm. Þannig tók ABC hjálparstarf ný- lega þátt í byggingu neyðarþorps fyrir alnæmissmitaðar ekkjm' með ungabörn í Uganda. Að styrkja böm, eða taka töku- böm eins og það er kallað, gengur út á það að fyrir 500-1950 kr. fram- lag á mánuði tekur þú bam í fóstur og skapar því, með þessari lágu upphæð, hugsanlega tækifæri lífs- ins t.d. í formi skólagöngu, matar, klæðis og húsaskjóls. Þú færð senda mynd af barninu ásamt ýmsum upplýsingum um hagi þess og þú færð að fylgjast með námsárangri þess. Og þú getur skrifast á við börnin og myndað þannig persónu- leg tengsl við þau ef áhugi er fyrir hendi. Þegar ég tók ákvörðun um að styrkja barn ákvað ég að taka tvö fósturbörn og þannig eigum við fjöl- skyldan nú átta ára fósturdóttur á Filippseyjum og sautján ára fóstur- dóttur í Uganda. Að aðstoða bág- stödd böm með þessum hætti er lík- lega eitthvað sem allir eru sammála um að sé rétt og sjálfsagt að gera. En margir koma því seint eða alls ekki í verk enda neyðin fjarlæg í daglegu amstri okkar Islendinga. Við vitum það hins vegar hvaða vellíðan fylgir því að hjálpa til með þessum hætti og á það ekki síst við á aðventunni svona rétt fyrir jólin. Og okkur líður vel því við vitum að okkar lága framlag gefur bjargar- lausu barni nú von um bjarta fram- tíð og betra líf. Láttu þér líða vel um jólin! Með jólakveðju. F.h. ABC hjálparstarfs, GUÐRÚN BERGMANN REYNISDÓTTIR, Sóltúni 3, Reykjavík. I UIANTEP TO BUV PE66V JEAN S0ME 6L0VE5 F0R CHRI5TMA5,BUTTHEV C05T TWENTY-FIVE D01LAR5 5HE'5 60IN6T0 BEPI5APP0INTED OJHEN SHE FIND5 OUTHERBOVFRIEWD 15 A CHEAPSKATE IcA t 1M N0T A CHEAP5KATE.. I JU5T DON’T I4AVE TWENTY- FIVE D0LLAR5/ YjV /PUT IT\ ON YOUR i CREPIT / \CARD../ /1 DON T HAVeY ( A CREDIT ) ycARp. y 50 L0N6, PE66Y JEAN* 1 I 1 & rch y SJ& Mig langar að kaupa Jún verður fyrir von _ Ég er ekki Borgaðu Ég á ekki Vertu sæl hanska handa Pálu Jónu í brigðum þegar hún jólagjöf, en þeir kostuðu kemst að því að kær- 2.000 krónur. astinn hennar er nánös. nánös... ég á bara ekki 2.000 krónur. með VISA- kortinu þinu. .. VISA-kort. Pála Jóna! Hlutdræg fréttamiðlun Frá Bárði G. Hulldórssyni: í HÁDEGINU, mánudag 16. des- ember sl., var haldinn fundur á veg- um ungra framsóknarmanna á Kaffi Reykjavík. Meðal ræðumanna var Halldór Asgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, og aðrir framsóknarmenn nýlega fram- gengnir. Halldór fullyrti þar að eng- inn hefði nokkru sinni komið fram með neinar aðrar tillögur um físk- veiðistjórnun heldur en þær sem nú væri stjórnað eftir. Valdimar Jó- hannesson, stjómarmaður í Sam- tökum um þjóðareign og ritari Frjálslynda lýðræðisflokksins, stóð upp að loknum ræðum framsóknar- manna og sagði að fjöldi manna - innan og utan Samtakanna - hefði á liðnum árum komið fram með heild- stæðar tillögur um breytta fisk- veiðistjóm - í ræðu og riti og spurði síðan ráðherrann (sem hlýtur að teljast eðlileg spuming í ljósi við- bragða forsætisráðherra við undir- skriftum prófessoranna): ertu ólæs Halldór - eða heyrirðu kannski ekk- ert? Þegar fréttamanni Stöðvai' 2 þóknaðist að segja frá fundinum í kvöldfréttatíma var mikið gert úr ræðum allra framsóknarmannanna og sagt að Valdimar hefði spurt Halldór hvort hann væri ólæs og heyrnarlaus. Engin greinargerð kom fram um mjög skýra og greinargóða ræðu Lúðvíks Kaabers lögmanns né annarra fundarmanna og fyrirspyrj- enda. An nokkurs formála er sagt frá orðum Valdimars, svona rétt eins og hann hefði kallað þetta íram líkt og ótíndur dóni, án tilefnis og for- málalaust. Þetta er léleg fréttamiðl- un. Hún er hlutdræg og hallar réttu máli. Er hugsanlegt að þetta sé gert af ásetningi? Það skiptir miklu fyrir umræðuna um fiskveiðistjóm, að fréttamenn gæti hlutleysis og full ástæða til þess fyrir almenning að fylgjast grannt með þeim. BÁRÐUR G. HALLDÓRSSON, formaður Samtaka um þjóðareign. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.