Morgunblaðið - 22.12.1998, Page 59

Morgunblaðið - 22.12.1998, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998 59 - BRÉF TiL BLAÐSINS Taka þarf upp tvö kerfi í Flóka-inniskór sjávarútveg’i og landbúnaði Frá Guði-únu Maríu Óskarsdóttur: ALLNOKKUÐ hefur verið rætt og ritað um nýgenginn dóm Hæsta- réttar, þar sem synjun sjávarút- vegsráðuneytisins á veiðileyfi til handa einum af þegnum landsins var dæmd ógild. Jafnt lærðir sem leikir hafa túlkað niðurstöður í dómi þessum á allra handanna máta, þröngt og vítt, afmarkað og óafmarkað. Fróðlegt er eins og áð- ur að fylgjast með umræðu um málin öll, því það eitt gerir mann sjálfan ögn víðsýnni á viðfangsefn- ið. Skilaboð í dómi þessum verða eigi vefengd, hvað varðar það atriði að virða beri stjórnarskrá lýðveld- isins, og eigi skuli uppi höfð mis- munun meðal þegna landsins, í einu eða öðru. Athyglisvert verður að telja að eftir niðurstöðu Hæsta- réttar í máli þessu virtist sem stjórnarskráin væri allt í einu uppi á borði í ræðum þingmanna á Al- þingi, til dæmis varðandi gagna- grunnsfrumvarpið, þingmenn höfðu þó flestir samþykkt lögin um fiskveiðistjórnunina er Hæstirétt- ur var einmitt að dæma sem brot á stjórnarskránni. Merkilegt má telja að ekki skuli fyrir löngu vera búið að skilja í sundur verksmiðjuskip og trillur í tvö aðskilin kerfi í sjávarútvegi. Eg tel að tvö kerfí þurfi að taka upp hið fyrsta, einkum og sér í lagi vegna þess að sömu forsendur geta ekki gilt hvað varðar úthafsveiði- skip er vinna afla á sjó úti, og þau skip er leggja afla upp til vinnslu í landi. Skip og bátar sem leggja afla upp til vinnslu í landi skapa eðli- lega atvinnu í sjávarþorpum allt í kringum ísland. Úthafsveiðiskip skapa aðeins takmarkaða atvinnu en leggja eigi að síður sinn skerf í þjóðarbúið, svo fremur hagkvæmur rekstur sé fyrir hendi er skilar inn þjóðartekjum í formi skatta. Út- hafsveiðiskip eiga að geta verslað með kvóta sín á milli í kerfi númer eitt en í kerfi tvö, þ.e. skip og bátar er leggja upp afla í landi, skal einnig leyft að versla með kvóta sín á milli í kerfi númer tvö. Taka þarf í notkun gæðastaðla í auknum mæli í mati á fiskmörkuðum, gæðastaðla er hækka verð afurða og stuðla að verðmætri nýtingu afurða. Stórar og smáar einingar eiga nefnilega að geta þrifist hlið við hlið í sjávar- útvegi svo fremi að til þess séu sköpuð skilyrði. Nákvæmlega hið sama þarf að koma til í landbúnaði en þar hefur hingað til verið lögð áhersla á að stækka og stækka bú, með uppkaupum á greiðslumarki og endursölu til stækkunar búa, og þar með flótta bænda úr sveitum landsins. Varla nokkur skapaður hlutur hefur átt sér stað til þess að hvetja bændur til þess að snúa sér að til dæmis lífrænum búskap, en sá búskapur þýðir það að bóndinn verður að leggja á sig aðlögunar- tíma til þess að losa jörðina við til- búinn áburð, byggja upp bústofn sem er alinn á fóðri sem lífkeðjan gefur af sér, en slíkt tekur tíma. Eg tel að íslenskir neytendur séu tilbúnir til þess að kaupa til dæmis lífrænt ræktað kjöt, en hinu vist- væna, sem er framleiðsla venju- legi'a stórbúa, því getum við gleymt sem vöru á alþjóðlegum markaði. Hér vantar því einnig tvenns konar kerfi, stórbú og smærri bú, er þýðir aftur nýtingu jarða í sveitum landsins og at- vinnusköpun, en stórbú og smærri bú eiga einnig að fá skilyrði til þess að þrífast hlið við hlið. Auðlindastefna almennt Sú er þetta ritar hefur áður lagt það til, að stofnaður verði auðlinda- sjóður Iandsmanna, er hafi það að markmiði að leggja ákveðið gjald í formi nýtingarheimilda viðkomandi auðlinda á þá er nýta þær hinar sömu auðlindir og gæði landsins alls. Akveðið prósentuhlutfall af út- hlutuðum aflaheimildum á ári hverju, ellegar veiddum afla, sem og greiðslumarki í landbúnaði, ellegar framleiðslu og ef til vill einnig orkunýtingu fallvatna, elleg- ar raforkusölu, myndi safnast í sjóð þennan er aftur myndi útbýta þeim hinum sömu heimildum til baka undir formerkjum þess að hófleg nýting (sjálfbær) til lands og sjávar Litir: Svartir, bláir • Stærðir: 36-46 Tegund: Liberty • Verð kr. 7.995 Ath. Fleiri tegundir af Roobin's I DOMUS MEDICA ft við Snorrabraut • Reykjavik Sími 551 8519 STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN KRINGLAN Kringlunni 8-12« Reykjavík Sími 5689212 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR yrði um aldur allan aðalsmerki okk- ar íslendinga, en við höfum enn sem komið er alla burði til þess að taka forystu annan-a þjóða hvað varðar þessi atriði. Von mín er sú að því fyn- sem menn ná að eygja mögu- leika okkar íslendinga í umhverfis- málum almennt, því betra Island fyrir afkomendur okkar í allri fram- tíð. GUÐRÚN MARÍA ÓSKARSDÓTTIR, húsmóðir, Herjólfsgötu 18, Hafnarfirði. ÁRVÍK ÁRMÚLA1 • SI'MI 568 7222 • FAX 568 7295 vaaAAA! It. iTÉtækni Ármúla 26 • sími 588 5000 Hafðu samband! OMEGA OMEGA-úrin eru enn í gangi frá síðustu öld Garðar Ólafsson úrsmiður Lækjartorgi, s. 551 0081. Listrænar jólagjafir galleri ^ Listakot Einnig til með hælkappa Teg. 7210 Litir: Brúnir m/bláu o.fl. Stærðir: 40-46 v"a 1.295,- 5% staðgreiðslualsláttur Jóla og áramótakjólar Úrval af fallegum sparifatnaði Stœrðir frá 36-54 Tískuverslun • Kringlunni 8-12 • Sími 5533300 TOSHIBA Myndbandstæki T0SHIBA V828 G - 6 hausa PR0-DRUM - Hi Fi. Nicam stereo - Show view - Long play - Sjálfhreinsandi myndhausar - Hraðspólun - DNR-kerfi. Kr. 49.410 stgr. T0SHIBA V 728 W - 6 hausa PR0-DRUM - Hi Fi stereo - Long play - Hraöspólun - Sjálfhreinsandi myndhausar - Kr. 39.510 Sigr. með PR0-DRUM myndhausum eins og notaðir eru í tækjum atvinnumanna. 40% færri hlutir en í eldri gerðum, mikiu betri myndgæði og minni bilanatíðni! T0SHIBA V227 G - 2 hausa PR0-DRUM - Long play - Show view - Sjálfhreinsandi myndhausar - Kr. 26.910 Stgr. Aðrar gerðir stereo-myndbandstækja frá kr. 28.900 stgr. AWARDS 99 T0SHIBA PR0-DRUM MYNDBANDSTÆKI Enn einu sinni valið til toppverðlauna!! Fáðu þér það besta - Það kosta ekki meira! Einar Farestveit & Co. hf. Borgartúni 28 - Sími 562 2901 og 562 2900 LAUGAVEGI 7D, SÍMI/FAX 552 8141

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.