Morgunblaðið - 22.01.1999, Síða 4

Morgunblaðið - 22.01.1999, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Station veró frá: Kr. 1.384.000,- FRÉTTIR Einkaframkvæmd á hjúkrunarheimili í Reykjavík Þrír tóku Morgunblaðið/Kristján ÁRNI Helgason, sem sér um snjómokstur milli Ólafsfjarðar og Dalvík- urbyggðar, fer hér í gegnum stóra flóðið sem féil norðan við Sauða- nes. Flóðið var á þriðja metra á þykkt á veginum. Ófærð í 28 BÖRN í 6. bekk í Austurbæjarskóla í Reykjavík missa um- sjónarkennarann sinn um mánaðamótin þegar Maggý Hrönn Hermannsdóttir lætur af störfum. Hún hefur sagt starfmu lausu til að mótmæla afskiptaleysi Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur af vandræðaástandi sem hún segir hafa skapast vegna fjölmennis í bekknum og þess að í hópi 28 nemenda eru þrír veikir nemendur, þar af tveir sem þurfa lyfjagjöf vegna ofvirkni. Tveir aðrir nem- endur þurfa sérkennslu vegna námsörðugleika. þátt í forvali Umsjónarkennari 11 ára barna í Austurbæjarskóla hættir störfum um mánaðamótin ÞRJÁR þátttökutilkynningar bárust í forvali fyrir útboð vegna einkaframkvæmdar á hjúkrunarheimili aldraðra í Reykjavík. Þeir sem lýstu áhuga á þátttöku eru Nýsir hf. og Istak hf., Securitas ehf. og Verkafl hf. og Sjómanna- dagsráð og Hrafnista Reykja- vík. Framkvæmdin er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Skúli Haraldsson hjá Ríkis- kaupum, sem annast forval og útboð verkefnisins, segir að þeim sem verða taldir hæíir verði send útboðsgögn. Eftir er að meta hæfí þátttakenda. Ekki er ljóst hvenær útboð fer fram. Stefnt er að því að hjúkrunarheimilið hefji starf- semi á fyrri hluta næsta árs. Með tilkynningum um þátt- töku bárust frá þátttakendum upplýsingar um fyrri reynslu af svipuðum verkefnum og fjárhagslega stöðu. Skúli segir að þessar upplýsingar séu trúnaðarmál. Það er síðan ekki fyiT en í útboðinu sjálfu sem þátttakendur greina frá hugmyndum sínum um einka- framkvæmdina sem felst í að leggja til og reka í 25 ár hjúkrunarheimili íyrir 60 aldraða sjúklinga með öllu því sem til þarf. þess hafí hún neitað að bera áfram ábyrgð á lyfjagjöfum til nemend- anna, sem þurfa rítalín vegna of- virkni. Fyrir veturinn í vetur fjölgaði einnig um þrjá nemendur í bekknum og einn nemandi til viðbótar greind- ist með misþroskaeinkenni vegna sjúkdóms. Hún segist hafa viljað að brugðist yrði við vandanum með því að brjóta bekkina tvo upp í þrjár bekkjardeildir með um 18 nemendur í hverjum bekk. Fræðslumiðstöð hefði ekki fallist á það. Réttur hinna er fótum troðinn „I þremur bekkjum væri miklu betur hægt að sinna bæði þeim sem eru með vandamál og hinum. Ég vil að hinir krakkarnir fái sömu þjón- ustu og þeir sem eiga í vandamálum. Núna verða hinir krakkarnir að bíða og þau eru búin að læra að bíða. Réttur þeirra sem eiga við vandamál að stríða til að sitja í bekknum er virtur en réttur hinna er fótum troð- inn,“ segir Maggý Hrönn Her- mannsdóttir. „Ég er ekki útbrunnin í starfi; þetta snýst um hvort allir krakkamir eigi að eiga sama rétt og hafa sömu skyldur og hvort allir eigi rétt á umhverfí þar sem þeim getur liðið vel. Ég vil ekki taka þátt í því lengur að loka vandamálin inni og tala ekki um ástandið eins og það er.“ Þegar beiðni um þrjár bekkjar- deildir var ekki sinnt segist hún hafa beðið um að tveir erfíðustu nemend- urnir yrðu ekki hafðir í sama bekk. Þegar mánuður var liðinn án þess að beiðni um það væri virt svars, sagði hún upp störfum í október. Sú upp- sögn tekur gildi um næstu mánaða- mót. Hún segist ekki hafa endur- skoðað ákvörðun sína þótt skólastjór- inn hafi komið því þannig fyiir að stuðningur er veittur inni í bekknum níu kennslustundir á viku. Einn fermetri á nemanda Maggý segir að foreldrar bai'n- anna í bekknum hafi stutt kröfur sín- ar um að skipta bekknum upp. For- eldrar nemendanna, sem þurfa meiri athygli, séu einnig þeirrar skoðunai'. M.a. skorti lausar kennslustofur við skólann. Nemendur í bekknum sín- um, 28 talsins, hafi rétt um það bil einn fermetra hver í kennslustof- unni. Þai- þurfí að skáskjóta sér milli boi'ða og ekkei't hægt að bjóða upp á hreyfanlegar vinnustöðvar í stof- unni. Maggý Hrönn segii- að kennarar við Austurbæjai'skóla hafí einnig stutt baráttu sína. M.a. hafi þeir rit- að Fræðslumiðstöð bréf málinu til stuðnings. Því bréfí hafi aðeins verið svarað með bréfi til skólastjóra þar sem Arthur Morthens harmaði fyrii' hönd Fræðslumiðstöðvar stuðning annarra kennara við mál Maggýjar og fullyrti að málið snerist ekki um annað en það að hún vildi ekki gang- ast við skyldum sínum sem umsjón- arkennari. Hún sagði að sér þætti sárt til þess að vita að afrit af þessu bréfi, sem snerist um persónu henn- ar, lægi á borði borgarstjóra, sem var sent afrit af því. RÓBERT Fanndal frá Litla-Dunhaga stendur þar sem stærra snjóflóð- ið sem féll í Hörgárdalnum stöðvaðist. Vegghæðin var nálægt fjíirum metrum eins og sjá má á myndinni. flóðið, sem féll úr Húsárskarði milli Þríhyrnings og Stóra-Dun- haga, rann niður fyrir miðja hlíð og olli skemmdum á girð- ingum. Minna flóðið féll úr Dunhagaskarði, fyrir ofan Litla-Dunhaga, og hafði það rif- ið upp jarðveg á leið niður hlíð- ina. Engar byggingar voru í hættu vegna snjóflóðanna. „Ég tek ekki lengur þátt í því að svíkja stóran hluta barnanna um sinn rétt,“ segir Maggý. „Eg vil að bömin fái þá þjónustu sem þau eiga rétt á, al- veg eins og hin, sem eiga erfitt." I Austurbæjarskóla eru tvær bekkjardeildir í 6. bekk. 28 nemend- ur í þeirri, sem Maggý hefur umsjón með og 27 í annarri. Fyrstu fjögur skólaárin var þessum hóp, sem þá var fámennari en nú, að sögn kenn- arans, skipt í þrjár bekkjardeildir. Það breyttist á síðasta ári. Þá voru 25 í bekk Maggýjar, tveir ofvirkir. Hún segir að vegna annars þeirra hafi Fræðslumiðstöð sett upp verk- efni í fyrra, sem byggðist á atferlis- mótun og unnið hafi verið eftir í fyrravetur. Það verkefni hafi kallað á að þessum eina nemanda væri sinnt í allt að tíu mínútur á hverri kennslu- stund, en í 28 manna bekk hafi kenn- ari rúmlega mínútu til ráðstöfunar á hvern nemanda. Hún segir að Fræðslumiðstöð hafi viljað halda áfram að vinna eftir þessu verkefni í vetur en Maggý segist ekki hafa vilj- að taka þátt í því vegna tímans sem það tók og efasemda um aðferðina, sem beitt var, og árangurinn. Auk Þýskt eðalmerki Opel Astra Station Bílheimar ehf. Sœvarhöfða 2a • Sími 525 9000 Mótmælir afskiptaleysi yf- irvalda af nemendaQölda Eyjafírði VEGURINN frá Dalvík til Olafsljarðar var opnaður á ný um miðjan dag í gær en vegin- um var lokað af lögreglunni í Dalvíkurbyggð í fyrrakvöld vegna veðurs og ófærðar. Síð- ar um kvöldið féllu tvö snjóflóð á veginn norðan við Sauðanes, „á hefðbundnum stöðum“. Einnig féllu spýjur á veginn úr klifinu skammt frá gangamunn- anum Dalvíkurmegin. Stóra flóðið var um 60 metra breitt og á þriðja metra að dýpt á veginum en hitt flóðið var mun minna. Erfiðlega gekk með snjómokstur í gær- morgun vegna veðurs en eftir að lægði um hádegið, var Arni Helgason í Ólafsfirði skotfljót- ur að opna leiðina með snjó- biásara sinum. Þá féllu tvö snjóflóð í Hörg- árdal í fyrrinótt og var annað þeirra um 200 metra breitt á kafla en hitt mun minna. Stóra

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.