Morgunblaðið - 26.02.1999, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hæstiréttur staðfestir dóm
vegna Sálumessu syndara
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
áfellisdóm Héi-aðsdóms Reykjavík-
ur yfir Ingólfi Margeirssyni rithöf-
undi vegna bókarinnar Sálumessu
syndara sem út kom fyrir jólin
1997.
Var hann sakfelldur fyrir hlut-
deild í broti gegn 230. gr. alm. hgl.
með því að hafa í samvinnu við
Esra S. Pétursson lækni skráð og
birt frásögn Esra af einkamálefn-
um fyrrverandi sjúklings hans. Var
Ingólfi gert að greiða 350.000 kr. í
sekt auk alls sakarkostnaðar og
málsvarnarlauna. Esra hafði unað
héraðsdómi þar sem hann hafði
hlotið sömu refsingu.
Hæstiréttur segir að þrátt fyrir
að tjáningarfrelsi hafi löngum ver-
ið talið til mikilvægustu mannrétt-
inda heimili 3. mgr. 73. gr. stjóm-
arskrárinnar að því séu settai-
skorður „með lögum í þágu alls-
herjan'eglu eða öryggis ríkisins, til
vemdar heilsu eða siðgæði manna
eða vegna réttinda eða mannorðs
annarra, enda teljist þær nauðsyn-
legar og samrýmist lýðræðishefð-
um“. 230. gr. almennra hegningar-
laga, sem leggur bann við því að sá
sem hefur með höndum opinbert
starf segi frá einkamálefnum sem
hann hefur fengið vitneskju um í
starfi sínu, fullnægi þessum skil-
yrðum að því leyti að takmarkanir,
sem þar em gerðar á tjáningar-
frelsi, séu settar með lögum vegna
réttinda og eftir atvikum mannorðs
annarra. Reyni því á hvort skorð-
ur, sem ákvæðið myndi setja við
tjáningarfrelsi ákærða með sakfell-
ingu hans, séu nauðsynlegar og
samrýmanlegar lýðræðishefðum.
I máli því, sem hér um ræðir,
hafi læknir brotið trúnað með því
að birta frásögn af einkamálefnum
sjúklings, sem hann komst að í
starfi sínu, og vanvirða minningu
hans. Við ákvörðun á mörkum tján-
ingarfrelsis hafi í dómaframkvæmd
hin síðari ár verið litið mjög tii þess
að vegna lýðræðishefða verði að
tiyggja að fram geti farið þjóðfé-
lagsleg umræða. Gildi þetta meðal
annars við úrlausn um mörk tján-
ingarfrelsis rithöfunda og blaða-
manna.
Framið í atvinnustarfsemi
Segir Hæstiréttur að í málinu
séu ekki í húfi neinir slíkir hags-
munir, sem réttlætt geti að gengið
sé svo harkalega á friðhelgi einka-
lífs, sem nýtur verndar 71. gr.
stjórnarskrárinnar, eins og hér
hafi verið gert með því að birta
ummæli þau, sem ákært hafi verið
fyrir. Sakfelling ákærða sé því
samrýmanleg heimild 3. mgr. 73.
gr. stjórnarskrárinnar og 2. mgr.
10. gr. Mannréttindasáttmála Evr-
ópu.
Þá segir Hæstiréttur að í hér-
aðsdómi liafi það verið virt ákærða
til þyngingar refsingar, að hann
hefði gert sér grein fyrir því, að
brot hans gæti raskað tilfinningum
barna konunnar sem í hlut átti.
Eigi það ekki að öllu leyti við, þar
sem í ljós sé leitt, að ákærði reyndi
að taka tillit til bamanna með því
að umskrifa einn kafla bókarinnar.
Við ákvörðun refsingar beri að líta
til þess, að brot ákærða hafi verið
framið í atvinnustarfsemi hans,
þótt ágóði yrði enginn að hans
sögn.
Málið flutti Bogi Nilsson ríkis-
saksóknari af hálfu ákæruvaldsins.
Skipaður verjandi ákærða var
Gestur Jónsson hæstaréttarlög-
maður.
LJthlutun bæjarstjórnar P
Seltjarnarness
Verslunin
10-11 fékk
seinustu at-
vinnulóðina
BÆJARSTJÓRN Seltjamarness
hefur úthlutað síðustu atvinnulóð-
inni í bænum til verslunarkeðjunn-
ar 10-11. Lóðin er við Austur- .
strönd á milli bankaútibúa og bens-
ínstöðvarinnar. Samkvæmt skil-
málum á fi'ágangi utanhúss að vera t
lokið innan 18 mánaða.
„Við voram að úthluta 10-11 lóð
við Austurströnd, sem er reyndar I
síðasta lóðin þar,“ sagði Sigurgeir
Sigurðsson bæjarstjóri. Lóðin er
um 2.000 fermetrar og þar á að
rísa tveggja hæða hús og ég reikna
með að 10-11 verði á neðri hæðinni
en skrifstofur á annarri hæð.“
Gert er ráð fyrir að neðri hæðin
verði 700 fermetrar en sú efri 500
fermetrar.
Morgunblaðið/Golli
MIKILL umferðarhnútur myndaðist á Kringlumýrárbrautinni meðan sjúkralið athafnaði sig á vettvangi.
Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur
Bólusetningar taldar
gefa 70-80% árangur
Geta verið
aðrir sjtík-
dómar en
infltíensa
BÓLUSETNING gegn inflú-
ensu hefur milli 70 og 80%
virkni og því verða margir
veikir þrátt fyrir bólusetning-
ar, að sögn Haraldar Briem
sóttvarnalæknis. Hann vildi
hins vegar ekki taka undir að
meira væri um að þeir sem
hafa vei'ið bólusettir hefðu
veikst.
Haraldur Briem segist hafa
fengið niðurstöður úr all-
mörgum veirarannsóknum að
undanfórnu og þar komi fram
að þeir sem greinist með in-
flúensu séu flestir undir sex-
tugu en við bólusetningar er
lögð aðaláhersla á þá sem era
eldri en það. Staðhæfir Har-
aldur að ekki sé minni árang-
ur af bólusetningum nú en áð-
ur, hann sé yfirleitt milli 70-
80%. Það þýði því að margir
veikist en einkenni væra þá
yfirleitt vægari og hann benti
einnig á að þama gætu íleiri
sjúkdómar komið til. Sagði
hann því ekki rétt að halda því
fram að bólusett fólk væri að
veikjast unnvörpum af völd-
um inflúensu.
ÞRIR voru fluttir með sjúkrabif-
reið á slysadeild Sjúkrahúss
Reylgavíkur eftir allharðan
árekstur sendiferðabifreiðar og
jeppabifreiðar við göngubrúna
yfir Kringlumýrarbraut, um
klukkan.17.45 í gær.
Einn hinna þriggja, ökumaður
sendiferðabifreiðarinnar, slasað-
ist sýnu mest, en var þó ekki al-
varlega slasaður. Klippa vai'ð
hann út úr flakinu og myndaðist
mikill umferðarhnútur á
Kringlumýrarbrautinni allt frá
Miklubraut að slysstaðnum í
klukkustund á meðan lögregla
og sjúkralið unnu á vettvangi.
Tildrög slyssins voru þau að
jeppabifreið var ekið norður
Kringlumýrarbraut og missti
ökumaður hennar stjórn á henni
með þeim afleiðingum að bifreið-
in hentist yfir umferðareyju, yfir
á öfugan vegarhelming og skall á
sendiferðabflnum sem kom úr
gagnstæðri átt.
Mikil olía lak úr sendiferðabif-
reiðinni við áreksturinn og ann-
aðist Slökkvilið Reykjavíkur
hreinsun götunnar með sérhönn-
uðum útbúnaði.
Sendiferðabifreiðin er ónýt
eftir áreksturinn.
Hús verða rifin
Sigurgeir sagði að úti við Bygg-
garða vestast á nesinu væri gert
ráð fyrir lóðum undir atvinnurekst-
ur en að þær lóðir væra allar farn-
ar. Á Hrólfsskálamel væri einnig
talsverður atvinnurekstur, þar sem
Bónus og fleiri væra til húsa en
það yrði ekki til langframa. Þau
hús ætti að rífa innan nokkurra ára
og endurskipuleggja svæðið.
--------------------
Bankarnir
áfrýja dómi
STJÓRN Sambands íslenskra við-
skiptabanka hefur ákveðið f.h.
banka og sparisjóða að áfrýja til
Hæstaréttar dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur í prófmáli, sem ríkis-
skattstjóri höfðaði gegn Lands-
banka íslands hf. til að fá upplýs-
ingar um innstæður, vexti og af-
dregna staðgreiðslu fjár-
magnstekjuskatts 1.347 aðila.
Niðárstaða Héraðsdóms var sú
að bankanum væri skylt að veita
skattstjóra þessar upplýsingar.
Að mati stjórnar SIV þýðir dóm-
ur Héraðsdóms að óbreyttu að búið
sé í reynd að aflétta bankaleynd-
inni gagnvart skattyfirvöldum.
Dómurinn leiði að til þess skattyf-
ii-völdum sé heimilt að óska eftir
hvaða upplýsingum sem er frá
bönkum og sparisjóðum um alla
framteljendur bui'tséð frá því
hvort þeir sæti skattrannsókn.
„Með áfrýjun málsins vilja bankar
og sparisjóðir freista þess að fá
þessari niðurstöðu Héraðsdóms
hnekkt," segir í frétt fi’á SIV.
Hðiisií- og hægindostóllinn tró
Peoplöiingers iagnr sig eindoklego
vei nð boki og herðum iíkomons
oo veltír bor rneð góðon stuSnincj
og slökun. Með einu bondtoki lyflir
pú innbyggðum fófaskommeii og
uummmmmhh.
Befra
Faxafeni 5 « 103 Rvk » Simi:583-3477
Gerðu kröfur um þægindi
••••
Tillögur starfshóps um öryggis- og varnarmál Islands
íslendingar axli stærra
hlutverk
ÞRIGGJA manna starfshópur ut-
anríkisþjónustunnar leggur til að
kannaðar verði leiðir til þess að ís-
lendingar geti axlað stærra hlut-
verk, einir eða í samstarfi við önn-
ur ríki, í vömum landsins. Þar á
meðal á sviði löggæslu, vama gegn
hryðjuverkum, almannavama,
björgunarstarfa, æfinga og eftirlits
á hafinu í kringum landið.
Friðargæslustörf verði reglu-
bundinn liður
Þá leggur starfshópurinn til að
þátttaka Islands í friðargæslustörf-
um hins alþjóðlega samfélags verði
reglubundinn liður í starfi íslenska
i vörnum
ríkisins að öryggismálum og að það
sem þeir kalla „stofnana- og skipu-
lagslegar ráðstafanir“ verði gert á
vegum utanríkisráðuneytisins til
að samhæfa þátttöku íslenska rík-
isins í friðargæslustarfi.
Ofangreindar tillögur eru lagðar
fram í greinargerð starfshópsins,
sem utanríkisráðherra, Halldór
Ásgrímsson, kynnti á Alþingi í
gær. Hópurinn var skipaður af ut-
anríkisráðherra í september sl. til
þess að leggja mat á íslensk örygg-
is- og varnarmál á tímum breyt-
inga í alþjóðamálum og í honum
era þeir Gunnar Pálsson, fastafull-
trúi íslands hjá Atlantshafsbanda-
landsins
laginu, Þórður Ægir Óskarsson,
skrifstofustjóri varnannálaskrif-
stofu og Hjálmar W. Hannesson,
skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu.
I greinargerðinni segir meðal
annars að að kalda stríðinu loknu
hafi mai-gir gert sér vonur um að
tímabil togstreitu og vígbúnaðará-
taka í heiminum væri á enda runn-
ið, en friðsamleg sambúð ríkja
myndi dafna á grunni frjálsra við-
skipta og fjármagnsflutninga.
„Þessi hefur ekki orðið raunin.
Þvert á móti era nú öryggis- og
vamarmál í forgrunni alþjóðasam-
starfs á nýjan leik,“ segir í greinar-
gerðinni.