Morgunblaðið - 26.02.1999, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999 53
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Ársæll Þorsteinsson, Löggildingarstofu, Franklín Georgsson, forstöðumaður rannsóknastofu, Dóra Gunnars-
dóttir gæðastjóri og Hermann Sveinbjörnsson, forstjóri Hollustuverndar, með faggildingarskjalið.
Rannsóknastofa Hollustu-
verndar fær faggildingu
Ályktun framkvæmda-
stjórnar Frjálslynda
flokksins
Stjórnvöld
einangra
Island í um-
hverfismálum
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun framkvæmda-
stjórnar Frjálslynda flokksins:
„Enn ætla íslensk stjómvöld að
auka á vansæmd sína í umhverfis-
málum. Nú hefur ríkisstjórnin lýst
því yfir, að Island muni ekki undir-
rita Kyoto-bókunina að sinni, þrátt
fyrir að öll önnur ríki OECD hafi séð
sóma sinn í því. Island hefur því
ákveðið að einangra sig í alþjóðlegri
umræðu um umhverfismál.
Þessi sama ríkisstjórn barði sér á
brjóst að lokinni Kyoto-ráðstefnunni
í desember 1997, vegna þess árang-
urs sem hún taldi sig hafa náð þar
sem samþykkt var að árleg losun
gróðurhúsalofttegunda hér á landi
megi að jafnaði vera 10% meiri á
tímabilinu 2008 til 2012 en hún var
árið 1990. Ekkert annað iðnríki, að
Astralíu undanskilinni, fékk slíka
undanþágu, en íslensk stjórnvöld
halda áfram að styðjast við betlistaf-
inn á alþjóðavettvangi, í von um
meiri mengunarkvóta.
Þeir ráðherrar, sem hafa lofað
kjósendum sínum nýju álveri, vita að
tíu prósentin duga ekki tU. Þeir telja
sig líka vita betur um áætlanir er-
lendra stóriðjuhölda en þeir sjálfir
og hefur talsmaður Norsk Hydro
beðist undan því í íslenskum fjöl-
miðlum að taka þátt í kosningabar-
áttunni á Islandi.
Verði gamla stóriðjudýrkunin
áfi-am við lýði er dýrmætum svæðum
á hálendinu ógnað. Sérfræðingar
hafa bent á að öll röskun hér á landi
á búsvæðum íslensk-grænlenska
heiðagæsastofnsins skipti miklu máli
fyrir afkomu tegundarinnar í heim-
inum, því yfir 90% af nýliðun stofns-
ins eru á Islandi. Röskunin væri ekk-
ert einkamál Islendinga.
Stjómvöld kalla skömm yfir Is-
lendinga í umhverfismálum með því
að fresta undirritun Kyoto-bókunar-
innar. Þau geta ekki lengui’ barið
höfðinu við steininn. Nú er kominn
tími til að móta skýra stefnu um
hvernig Islendingar geti uppfyllt
ákvæði bókunarinnar. Frjálslyndi
flokkurinn sér enga ástæðu til að ís-
lensk stjórnvöld veigri sér við að
gangast undir sömu skilyrðj og aðrar
þjóðir í umhverfismálum. Islending-
ar eru hluti af heiminum öllum.
Mengun eins ræður framtíð annars."
Skinna- og
tískusýning á
Hótel Sögu
SAMBAND íslenskra loðdýrabænda
og Eggert feldskeri, standa að sýn-
ingu á skinnum og loðfeldum á Hótel
Sögu, á morgun, laugardag. Sýning-
in hefst kl. 13 og lýkur kl. 16.30.
Verðlaunaafhending hefst kl. 14.15.
Tískusýning á vegum Eggerts feld-
skera hefst kl. 15.15 í Súlnasal en
þar verða auk hefðbundinna loðfelda
kynntar ýmsar nýjungar, segir í
fréttatilkynningu.
A skinnasýningunni verða skinn
frá allflestum loðdýrabúum í land-
inu. Veitt verða verðlaun fyrir stiga-
hæsta búnt í hverjum litarflokki, þ.e.
búnt með fimm minkahögnaskinnum
eða þremur refaskinnum, þar sem
gefin eru stig fyrir stærð, gæði, lit
og hreinleika í litnum. Einnig eru
veitt verðlaun fyrir bestu verkun á
skinnum.
A sýningunni verða sýnishorn af
fyrstu feldkanínuskinnunum sem
framleidd hafa verið í landinu en
fyrstu feldkanínumar voru fluttar til
landsins haustið 1997.
I dag eru 93 Ioðdýrabú í landinu
sem líklega munu framleiða um
160.000 minkaskinn, 20.000 refa-
skinn og 4.000 feldkanínuskinn á
þessu ári. Gert er ráð fyrir að um
110 ársverk séu bundin í búgrein-
inni, framleiðslu fóðurs, skinnaverk-
un og öðrum sérhæfðum þjónustu-
störfum.
RANNSÓKNASTOFA Hollustu-
verndar ríkisins hlaut á föstudag
faggildingu Löggildingarstofu og
tók Hermann Sveinbjörnsson,
forstjóri Hollustuverndar, við
viðurkenningunni frá Arsæli
Þorsteinssyni, forstöðumanni
faggildingarsviðs Löggildingar-
stofu.
Hollustuvernd hefur yfirum-
sjón með framkvæmd laga og
reglugerða, sem snerta matvæli,
mengunarvamir og eiturefnaeft-
Athugasemd frá
orkuspárnefnd
Notkun
heldur minni
en spáð var
ATHUGASEMD hefur borist frá
orkuspárnefnd við frétt sem birtist í
Morgunblaðinu í vikunni um raf-
orkunotkun á síðasta ári. Mistök
urðu þegar gerður var samanburð-
ur við raforkuspá frá árinu 1997.
Samanburðurinn á almennri notkun
og spá hefði átt að vera á þessa leið:
Almenn notkun 1998, rauntala
2.542 GWh
Spá frá 1997 2.673 GWh
Stórnotkun 1998, rauntala 3.470
GWh
Spá frá 1997 3.697 GWh
Flutningstöp 1998, rauntala 264
GWh
Spá frá 1997 200 GWh
Vinnsla alls 1998, rauntala 6.276
GWh
Spá frá 1997 6.570 GWh
Notkunin er því minni en spáð
var vegna þess að ótryggð orka var
skert á seinni hluta ársins.
Ef einungis er horft á for-
gangsorkuna fást eftirfarandi tölur:
Almenn forgangsorka 1998,
rauntala 2.277 GWh
Spá frá 1997 2.297 GWh
Stórnotkun, forgagnsorka 1998,
rauntala 2.942 GWh
Spá frá 1997 3.019 GWh
Flutningstöp forgangsorku 1998,
rauntala 229 GWh
Spá frá 1997 167 GWh
Vinnsla vegna forgangsorku 1998,
rauntala 5.448 GWh
Spá frá 1997 5.483 GWh
Meginástæða þess að for-
gangsorkan er minni en spáð var er
að notkun Norðuráls reyndist minni
en ráð var fyrir gert, segir í athuga-
semd orkuspárnefndar. Flutnings-
töp hafa verið vanáætluð en einnig
er tekin með nokkur notkun vegna
framkvæmda við nýjar virkjanir
sem ætti að flokkast með almennu
notkuninni.
irlit. í því felst að Hollustuvernd
skuli samræma heilbrigðiseftirlit
í landinu ásamt vöktun og rann-
sóknum á þessum sviðum. Beint
eftirlit er í framkvæmd að mestu
í höndum heilbrigðiseftirlits
sveitarfélaga.
Rannsóknastofa stofnunarinn-
ar fæst að mestu við örverurann-
sóknir á matvælum, þar á meðal
neysluvatni, en gerir einnig af-
markaðar efnarannsóknir á
sömu vörum, bæði eftirlits- og
SÝNINGIN Samspil manns og nátt-
úru verður haldin í Perlunni 22. til
25. apríl og verður hún með svipuðu
sniði og sýning með sama nafni, sem
haldin var í fyrravor. Sýningin verð-
ur opnuð 22. apríl, sem er sumar-
dagurinn fyrsti og alþjóðlegur dagur
jarðar. Heiðursgestur við opnunina
verður frú Vigdís Finnbogadóttir
fyrrverandi forseti Islands.
Steingrímur Hermannsson, for-
maður Umhverfissamtaka íslands,
mun opna sýninguna og verða fyi’ir-
IJrslit í frjáls-
um dönsum
10-12 ára
ÚRSLIT íslandsmeistarakeppni
unglinga í frjálsum dönsum
(Freestyle) 10-12 ára fer fram í
Tónabæ laugardaginn 27. febrúar kl.
14. Keppendur á aldrinum 10-12 ára
munu berjast um Islandsmeistaratit-
ilinn í frjálsum dönsum. 100 kepp-
endur munu keppa í hóp- og einstak-
þjónusturannsóknir. Á henni
starfa 14 manns í 11 stöðugild-
um.
Hollustuvernd var stofnsett
með lögum árið 1981 og tóku þau
gildi 1982. Voru þá þijár minni
ríkisstofnanir sameinaðar, Mat-
vælarannsóknir rfkisins, Heil-
brigðiseftirlit rikisins og Geisla-
varnir ríkisins. Starfseminni var
skipt í þrjú fagsvið, rannsókna-
stofu, heilbrigðiseftirlitssvið og
mengunarvarnir.
lestrar haldnir fimmtudag, laugar-
dag og sunnudag. Erla Stefánsdótt-
ir, tónlistarkennari og sjáandi, mun
fara með þá, sem þess óska í göngu-
ferð um Óskjuhlíð og segja frá álfa-
byggðum, segir í fréttatilkynningu.
Þar kemur fram að ætlunin sé að
benda á fyrirtæki, sem selja og
kynna vöru og þjónustu, sem telst
vistvæn, lífræn, umhverfisvæn eða
náttúruvæn.
Fyrirtækið Leiðarljós ehf. stend-
ur að sýningunni.
lingsdansi. Til skemmtunar verður
dansatriði frá Dansskóla Jóns Pét-
urs og Köru, unglingar frá Dans-
skóla Heiðars Ástvalds sýna break-
dans, unglingar frá Aerobic Sport
sýna þolfimiatriði og sigurvegarar í
eldri keppni Frístæl 99, hópurinn
Kristall og sigurvegari í einstak-
lingskeppni, Eyrún Anna Eyjólfs-
dóttir, munu dansa sigurdansa.
Einnig mun Reykjavíkurmeistarinn í
Frístæl 99, Sunna María Schram,
sýna dans.
Kynnir verður Gunnar Helgason.
Ferðahapp-
drætti Urvals-
Utsýnar
ÚRVAL-ÚTSÝN efndi til ferða-
happdrættis í tilefni af því að opið
hús var á öllum söluskrifstofum
ferðaskrifstofunnar og hjá helstu
umboðsmönnum á landsbyggðinni
um fyrri helgi. Þúsundir manna
komu á skrifstofumar að nálgast
bæklingana og var happdrættið opið
öllum þeim sem komu á staðina til að
sækja bækling og/eða bóka sig í ferð.
Dregið var úr ferðapottinum 22.
febrúar og hlutu eftirtaldir aðilar
vinninga: Vikuferð fyrir tvo til
Portúgal: Guðlaug Þorsteinsdóttir,
Heiðarbóli 51, Keflavík. Vikuferð
fyrir tvo til Mallorca, Magnea Sig-
m-ðardóttir, Efstuhlíð 2, Hafnarfirði.
30.000 kr. ferðaúttekt í leiguflugi Úr-
vals-Útsýnar, 4 vinningar: Maríanna
Einarsdóttir, Hrauntungu 60, Kópa-
vogi, Dóra Bjarnadóttir, Berugötu
14, Borgarnesi, Anna María Sig-
hvatsdóttir, Reykjafold 20, Reykja-
vík og Valrós Svansdóttir, Móasíðu
4A, Akureyri. Flugfarseðlar fyrir 2
tii Mílanó: Páll Guðmundsson, Sæ-
bóli 18, Grundarfirði. Flugfarseðlar
fyrir 2 til Parísar: Guðbjörg Helga-
dóttir, Kmmmahólum 57, Reykjavík.
Flugfarseðlar fyrir 2 til London:
Helena Jónsdóttir, Vestursíðu 24.
Húnakvöld
á færeyska
sjómanna-
heimilinu
FÆREYSK kvöldvaka eða húna-
kvöld eins og það kallast á færeysku
verður haldin laugardagskvöldið 27.
febrúar á færeyska sjómannaheimil-
inu, Brautarholti 29; hefst hún kl. 20.
Á kvöldvökunni verður mikið
sungið og spilar Trondur Enni undir
á gítar. Einnig verður boðið upp á
leiki og spil en endað með stuttri
hugvekju. Síðar um kvöldið verður
m.a. hægt að kaupa fyrir vægt gjald
ferska, færeyska mjölsúpu en hún er
mjög þekkt meðal Færeyinga.
Ætlunin er að hafa slíkar kvöld-
vökur síðasta laugardagskvöld í
hverjum mánuði fram að sumri, seg-
ir í fréttatilkynningu.
Tvær kvikmynd-
ir í MIR-salnum
SKREYTINGAMAÐURINN nefn-
ist kvikmyndin sem sýnd verður í
bíósal MIR á Vatnsstíg sunnudaginn
28. febrúar kl. 15. Myndin er frá átt-
unda áratugnum en leikstjóri er A.
Teptsov og meðal leikenda V. Abilov,
A. Demjamko og M. Kozakov. Skýr-
ingatal á ensku.
Stórmynd Sergeis Bondarsúk
Stríð og friður, byggð á skáldsögu
Lévs Tolstojs, verður sýnd á mara-
þonsýningu laugardaginn 6. mai’s.
Aðgöngumiðar að þeirri sýningu eru
afgreiddir á sunnudagssýningunni og
síðan ki. 17-18 fyrstu dagana í mai-s.
Leiðrétting
í GREIN um höfund Charles
Thorson, höfund Kalla kanínu, var
rangt farið með föðurnafn móðm’
Charlies. Hún hét Sigríður
Þórarinsdóttir frá Ásakoti í
Biskupstungum.
Leiðrétting við
„Leita betri ávöxtunar"
í grein sem birtist í viðskiptablaði
Morgunblaðsins í gær um
fjárfestingar íslendinga í erlendum
verðbréfum féll niður hluti
setningar, sem átti að vera svona:
Rétt er að leggja áherslu á að
ávöxtun sjóða þarf ekki að segja til
um ávöxtun í framtíðinni, og eins
getur raunávöxtun til hins íslenska
fjárfestis breytst vegna sveiflna í
gengi gjaldmiðla sem hafa einnig
áhrif á loka niðurstöðuna. Er beðist
velvirðingar á þessum mistökum.
Þröstur ekki í kosningastjórn
Mishermt var í frétt í blaðinu gær
að Þröstur Olafsson eigi sæti í
kosningastjórn samfylkingarinnar.
Beðist er velvirðingai’ á þessu.
BÁS Olís var einn af fjölmörgum, sem vöktu athygli á sýningunni
Samspil manns og náttúru í Perlunni í fyrravor.
Sýningin Samspil
manns og náttúru