Morgunblaðið - 26.02.1999, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999
MORGUNB LAÐIÐ
ERLENT
A.m.k. þrjátíu og tveir fórust í snjóflóðunum mannskæðu í austurrísku ölpunum
Á sjötta tug
hafa farizt
í vikunni
Ziirich. Reuters.
ENN eitt snjóflóðið olli í gær skaða
í vetrarorlofsbæ í Sviss og austar í
Ölpunum var greint frá því að stað-
fest tala látinna eftir snjóflóð und-
anfarinna daga í Tíról væri 32. Um
100.000 manns eru talin teppt vegna
fannfergis í Ölpunum, aðailega í
Sviss og Austurríki. Vetrarríkið í
Evi-ópu hefur kostað á sjötta tug
manna lífið það sem af er þessum
mánuði.
Snjóflóðið í gær féll um kl. níu að
morgni að staðartíma á skíðabæinn
Leukerbad í Wallis-kantónu í Sviss.
Nokkrir orlofsskálar urðu fyrir
tjóni. Ekki fréttist af því að neinn
hefði orðið undir snjóflóðinu en 30
manns var bjargað ómeiddum úr
einum skálanum. Lögregia sagði
björgunarsveitarmenn að störfum í
bænum.
í Austurríki tjáði Wendelin Wein-
gartner, héraðsstjóri Tíról, frétta-
mönnum að 27 lík hefðu nú verið
grafín út úr snjóflóðinu sem plægði í
gegn um skíðabæinn Galtiir á þriðju-
dag, og fimm hefðu fundizt látnir í
þorpinu Valzur í næsta nágrenni við
Galtiir, en þar féll snjóflóð síðdegis í
fyiTadag. Hann sagði sjö manns enn
vera saknað.
Nýfallinn snjór
eykur á hættuna
Hlé á snjókomunni var nýtt í gær
til að flytja innlyksa ferðamenn ft’á
snjóflóðahættusvæðunum með her-
þyrlum austurríska, þýzka og banda-
ríska hersins. Talsmenn yfirvalda
sögðu mögulegt að takast myndi að
flytja með þessum hætti allt að 2.500
manns yfir daginn. Vegasamgöngur
Reuters
BJÖRGUNARSVEITARLIÐ leitar þeirra sem saknað er eftir snjóflóðin í Valzur í Austurríki.
voru áfram lokaðai- til Galtiir og
nágrennis vegna fannfergisins og yf-
irvofandi snjóflóðahættu.
Nýfallinn blautur snjór, sem
lagzt hefur ofan á þurrari og laus-
ari snjóalög, hefur aukið enn á
hættuna á að snjómassinn í fjalls-
hlíðunum, sem er sá mesti í a.m.k.
40 ár, þjóti af stað niður í dalina
með allt að 300 km hraða.
Um 15.000 manns voru innlyksa í
Zermatt, kunnum svissneskum
skíðabæ við rætur Matterhorn-
fjalís, og 30 sm af nýföllnum snjó
jók enn á fannfergið í Berner Ober-
land, þar sem einnig eru þúsundir
ferðamanna tepptir í þekktum
skíðabæjum, svo sem Adelboden og
Grindelwald. Sömu sögu er að
segja af Davos og Klosters og fleiri
skíðabæjum.
Herþyrlur notaðar til fólksflutninga
BJORGUNARSVEITARMENN í
Galtiir á leið úr þyrlu við höfuð-
stöðvar sínar í bænum Landeck í
Tíról. Austumskar, þýskar og
bandarískar herþyrlur hafa verið
notaðar til að flylja ferðafólk frá
hættusvæðum. Yfirvöld töldu að
allt að því 25.000 manns hafi ver-
ið flutt til öruggari svæða í gær.
Hírðust í snjóhúsi í 3.000 metra hæð í níu daga
Þrekraun
óriggja
. j'rakka
Pralognan-la-Vanoise, Vín. Reuters.
ÞREMUR frönskum fjallgöngu-
mönnum var í gær bjargað með
þyrlu úr snjóhúsi í 3.000 metra
hæð í frönsku Ölpunum. Mennirnir
höfðu hírst í hvolflaga snjóhúsi á
klettasyllu í níu daga þegar leitar-
mönnum tókst að koma þeim til
bjargar. Þeir höfðu orðið uppi-
skroppa með mat á íjórða degi og
voru að sögn björgunarmanna
veikburða en í ótrúlega góðu
líkamlegu ástandi miðað við þá
þrekraun sem þeir höfðu lent í.
Þremenningarnir eru á fertugs-
aldri og vanir fjallamenn.
Leitarmenn námu hringingu úr
farsfma þremenninganna á þriðju-
dag, en þá hafði ekki heyrst til
þeirra síðan á sunnudag og leitar-
ínönnum í þyrlum ekki tekist að
koma auga á snjóhúsið úr lofti. Sér-
fra»ðingar franska landssímans
gátu staðsett mennina nokkuð
nákvæmlega með því að miða út
farsímahringinguna á þriðjudaginn
og var fyrsta tækifærið gripið þeg-
ar veðrinu slotaði um hríð til þess
að senda þyrlu á loft í leit að mönn-
Reuters
EINN Frakkanna þriggja, sem bjargað var eftir níu daga dvöl í
snjóhúsi í 3.000 m hæð í frönsku Ölpunum.
unum. „Okkur Iétti ósegjanlega
þegar þeir veifuðu til okkar úr
snjóhúsinu," sagði franski fjallalög-
reglumaðurinn Jerome Graille er
hann lýsti þvf er mennimir fundust.
Með hjálp leitarhunds tókst að
bjarga og lffga við fjögurra ára
gamlan dreng, sem grafist hafði í
snjóflóðinu í Valzur í Austurríki.
Drengurinn litli, sem heitir AIois,
hafði verið fastur í snjóflóðinu í
tvær klukkustundir er björgunar-
menn náðu til hans.
„Drengurinn sýndi ekkert Iífs-
mark,“ sagði skurðlæknir við
sjúkrahús nærri Valzur í viðtali við
Reuters. „En það voru gerðar á
honuin lífgunartilraunir á staðnum
og undireins flogið með hann til
Galtiir, þrátt fyrir myrkur og byl.
Flugmaðurinn hætti lífi sínu til þess
að bjarga lífí drengsins."
Ekki var vitað í gær hvort for-
eldrar AIois litla hefðu farist í
snjóflóðinu í Valzur, ellegar væni í
hópi þeirra sem enn væri saknað.
> ••
Islendingar á skíðasvæðum í Olpunum
„Stanslaus
snjór í fjórar
vikur“
KLARA Hallgrímsdóttir sem
starfar sem skíðakennari í Neu-
kirchen, í rúmlega klukkutíma
akstursfjarlægð frá skíðabænum
Galtur í Austumki sagði í samtali
við Morgunblaðið síðdegis í gær
að enn væri gifurleg snjóflóða-
hætta í Ölpunum. Gærdaginn
kvað hún vera fyrsta daginn á
nokkrum vikum þar sem sást til
sólar. „Það er búið að snjóa stans-
laust i fjórar vikur.“
Klara sagði skíðasvæðið sem
hún er á, Königsleiten, þó vera
nokkuð öruggt þar sem trén eru
mjög há og dalirnú- breiðir. Klara
sagði „lítil“ snjóflóð hafa fallið þar
sem hún er, en snjólagið væri
helmingi minna þar heldur en í t.d.
Galtúr. „Eg er miðsvæðis. Fyrir
vestan þar sem snjóflóðin voru,
vai- jafnfallinn snjór 5 m hár. Hjá
okkur er hann u.þ.b. 2,5 m.“
„Allir eru slegnir"
Klara sagði eftMitsmenn hvergi
hika við að vísa fólki frá heimilum
sínum vegna sryóflóðahættu. Að-
spui’ð sagði hún fólk taka því vel.
„Já fólk veit núna hversu alvarlegt
ástandið er, eftir allt sem búið er
að ganga á.“
Um viðbrögð fólks við áföllun-
um sagði Klæa: „Það eru allir
slegnir yfir þessu, en það bMi yfir
í dag, fyrst hjálp er komin.“ En
síðdegis í gær voru í notkun um 30
þyrlur til að koma fólki út úr
Galtúr og Ischgl. „Öll tæki eru
notuð, einkaþyrlur og allt“, sagði
Klara. „Þetta er eins og á flugvelli,
þú færð númer, svo er þér sagt
klukkan hvað þú ferð nákvæmlega
og menn verða bara að vera til-
búnir þá.“
„Ástandið hræðilegt“
í St. Anton og Lech ei-u staddir
um 20 Islendingar. Sjö hafa verið
innlyksa í Lech en leiðin til bæjar-
ins opnaðist í gær. Marta Páls-
dóttir leiðsögumaður er ein af 13
Islendingum sem staddir eru í St.
Anton. Þau fara heim á morgun og
eru þá búin að vera í viku. Marta
sagði daginn í gær hafa verið þann
fyrsta sem þau gátu rennt sér á
skíðum, en fimm lyftur voru þá
opnar. Marta sagði ástandið í Ölp-
unum hræðilegt, snjóflóðahætta
væri á svæðinu og þau væru
stöðugt minnt á ástandið. „Við
horfum á þyrlurnar þar sem þær
flytja nauðþurftir til Galtúr og
Ischgl.“
Óttaðist slæmt ástand
Marta sagðist frá byi'jun ferð-
arinnar hafa verið vör um sig þar
sem veðurspá hefði ekki verið góð
áður en þau héldu út, en starfs-
fólkið á ferðaskrifstofunni hefði
sagt þeim ekki að hafa áhyggjur.
í rútunni sem keyrði þau til St.
Anton voru tveir bílstjórar í
staðinn fyrir einn, „ef eitthvað
kæmi upp á,“ sagði Marta. „Með
rútunni komust við til St.
Christophei', sem er ekki langt
frá St. Anton, en þar var strax
kominn rauður borði til merkis
um að langferðabifreiðar mættu
ekki fara lengra." Þau voru síðan
keyrð til St. Anton í minni bíl
stuttu síðar.
Farþegar ekki tryggðir
Marta sagðist ósátt við þjón-
ustu ferðaskrifstofunnai'. „Eng-
inn hefur haft samband við okkur
til að athuga hvernig við höfum
það. Sumir taka ástandinu mjög
illa. Tveir úr okkar hóp_ hafa ekki
sofið síðustu nætur.“ Eg veit að
þau geta ekkert gert vegna þessa
ástands en þau geta a.m.k. spurt
okkur hvernig við höfum það,“
sagði Marta og bætti því við að
henni fyndist aumt að borga háa
upphæð fyrir að labba um skíða-
bæ, en stíga vart á skíði.
Samkvæmt upplýsingum fi'á
ferðaskrifstofunni Úi'vali-Útsýn
eru farþegar ekki tryggðir fyrh'
tjóni af völdum náttúruhamfara.
Hins vegar mun reynt að koma til
móts við viðskiptavini með því að
reyna að fá hótel- og flugfargjöld
lækkuð, hafi menn neyðst til að
breyta ferðaáætlunum sínum.