Morgunblaðið - 26.02.1999, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HALLDÓR Ásgrímsson flytur skýrslu sína á Alþingi í gær.
Morgunblaðið/Þorkell
Utanrikisráðherra flutti Alþingi árlega skýrslu sína í gær
Sjálfsagt að hafa opinn huga
gagnvart aðild að ESB
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra hóf umræðuna um utanrík-
ismál á AJþingi í gær og fór í ræðu
sinni yfír þátttöku íslands á alþjóða-
vettvangi á sl. ári. Þar lýsti hann því
m.a. yfír að hann teldi rétt að ísland
gerðist aðili að CITES-samningnum
um viðskipti með villt dýr og plöntur
í útrýmingarhættu. Aðildarríki að
samningnum væru nú rúmlega 140
og Island væri því eitt fárra ríkja
sem ekki væru með i þessum samn-
ingi. „Ég tel rétt að ísland gerist að-
ili að þessum samningi, en það styrk-
ir verulega þátttöku okkar í alþjóð-
legri samvinnu um vemd, nýtingu og
viðskipti með lifandi náttúruauðlind-
ir,“ sagði ráðherra. „Nokkur aðildar-
ríkja telja nú mikilvægt að sérstakur
fískveiðihópur verði settur á stofn í
Hugsanleg aðild íslands að Evrópusam-
bandinu (ESB) og afstaða stjórnmálaafl-
anna til aðildarumsóknar voru meðal
þess helsta sem bar á góma í umræðum
um utanríkismál á Alþingi í gær.
tengslum við samninginn. Þar þurf-
um við sannarlega að vera á varð-
bergi og besta leiðin til þess er að
verða aðili að samningnum með þeim
fyrirvörum sem við teljum nauðsyn-
lega til að sjá hagsmunum okkar
borgið.“ Ámi M. Mathiesen, þing-
maður Sjálfstæðisflokks, tók reynd-
ar fram síðar í umræðunni að hann
hefði efasemdir um réttmæti þess og
skynsemi að Islendingar gerðust að-
ilar að CITES-samningnum. Tækju
íslendingar þátt í honum yrðu þeir
að minnsta kosti að hafa ákveðna
fyrirvara.
Halldór fór í ræðu sinni einnig inn
á samskipti íslands við Evrópusam-
bandið (ÉSB) og sagði m.a. brýnt að
auka stuðning ríkja ESB við sér-
stöðu Islands á sviði sjávarútvegs.
„Ekkert er eilíft í þessum heimi og
einnig sjávarút-
vegsstefna ESB
er endurskoðun
háð,“ sagði hann.
„Ég tel því rétt að
við höldum okkar
sjónarmiðum á
loft gagnvart
ESB og leggjum
okkar af mörkum
í umræðu um
sjávarútvegsmál ____________________
innan þess.
Einnig tel ég rétt að við ræðum það
við nágranna okkar, Færeyinga og
Grænlendinga, sem eru eins og við
háðir fiskveiðum til lífsviðurværis og
ALÞINGI
viðskiptum við ESB. Hér eiga Danh-
auðvitað einnig hlut að máli.
Ég hef einnig orðið þess var að
meðal ýmissa aðildamkja er langt í
frá að litið sé á sameiginlega sjávar-
útvegsstefnu sem ginnheilaga og
óumbreytanlega. Skýr efnisleg rök
hníga að því að færa eigi fiskveiði-
stjórnun nær þeim svæðum sem eiga
beinna hagsmuna að gæta fremur en
að taka ákvarðanir á ráðheirafund-
um þar sem fjöldi þátttakenda kem-
ur frá landluktum ríkjum. Island
hefur aldrei sótt um aðild að ESB og
íslandi hefur því aldrei verið hafnað.
Ég tel samningsstöðu okkar gagn-
vart ESB best borgið með því að
skilgreina sem nákvæmast hvað það
er sem helst stendur í vegi fyrir að-
ild. Engin knýjandi nauðsyn rekur
okkur til hennar en það er sjálfsagt
að hafa hugann opinn og athuga
reglulega í ljósi þróunar hvaða kostir
og gallar gætu fylgt fullri aðild.“
Samfylkingin sækir ekki um
aðild á næsta kjörtímabili
Þingmenn stjórnarandstöðu vöktu
mai-gir hverjir athygli á ummælum
utamTkisráðherra um málefni ESB
og hugsanlega aðild íslands að því.
„Mér sýnist af ræðu ráðherra að
Évrópumálin séu tryggilega komin á
dagskrá aftur. Og það er vel að mínu
viti,“ sagði Össur Skarphéðinsson,
þingflokki Samfylkingarinnar, meðal
annars. Taldi Össur að með ummæl-
um sínum væri utanríkisráðherra
„að slíta sig frá því helsta sem hefði
tjóðrað hann við“ Davíð Oddsson for-
sætisráðherra. „En forsætisráðherra
hefur sem kunnugt er nánast bannað
að Evrópumálin væru á dagskrá,“
fullyrti Óssur. Þessu hafnaði Arni M.
Mathiesen, þingmaður Sjálfstæðis-
flokks, og utani'íkisráðheiTa sá
ástæðu til að taka fram að umrædd
ummæli um Evrópusambandið lýstu
stefnu ríkisstjómarinnar í utanríkis-
málum.
Nokkrar umræður urðu einnig um
afstöðu Samfylkingarinnar til aðildar
að ESB og sagði Sighvatur Björg-
vinsson, þingflokki Samfylkingarinn-
ar, m.a. að Samfylkingin gerði ekki
ráð fyrh' því að
ísland sækti um
aðild að ESB á
næsta kjörtíma-
bili. Á hinn bóg-
inn væri nauðsyn-
legt að undirbúa
þjóðina undir um-
ræðuna um kosti
og galla hugsan-
legrar aðildar.
Ögmundur Jónas-
son, þingflokki
óháðra, tók hins vegar fram við þetta
tækifæri að Vinstrihreyfingin -
grænt framboð væri andvíg aðildar-
umsókn að ESB.
Þingmenn stjórnarandstöðu gagnrýna ríkisstjórn
Vilja að Kyoto-bók-
unin verði undirrituð
ÞINGMENN úr báðum stjómarand-
stöðuflokkunum á Alþingi gagnrýndu
í upphafi þingfundar í gær þá ákvörð-
un ríkisstjómarinnar að undirrita
ekki hina svonefndu Kyoto-bókun við
loftslagssamning Sameinuðu þjóð-
anna fyrir tilskilinn frest, hinn 15.
mars nk. „Þetta er afar afdrifarík
ákvörðun [...] og ég hefði talið eðlilegt
og sjálfsagt að Alþingi íslendinga
væri gerð grein fyrir fyrirætlun ríkis-
stjómarinnar í þessum efnum áður en
ákvörðunin var tekin af hennar
hálfu,“ sagði Hjörleifur Guttormsson,
þingflokki óháðra, en hann var upp-
hafsmaður gagnrýninnar á þingfund-
inum í gær. Utanríkisráðherra, Hall-
dór Ásgrímsson, lagði hins vegai'
áherslu á að það væri ríkisstjómar-
innar að ákveða hvort Kyoto-bókunin
skyldi undirrituð. „Það var mat ríkis-
stjómarinnar að samningsstaða og
staða Islands væri betri í framhaldinu
með því að undirrita ekki þessa bók-
un,“ sagði hann meðal annars.
Margrét Frímannsdóttir, Össur
Skarphéðinsson og Sighvatur Björg-
vinsson, þingflokki Samfylkingarinn-
ar, tóku undir gagmýni Hjörleifs.
„Það er nauðsynlegt að þingið fái að
segja skoðun sína á máli eins og
þessu áður en ríkisstjómin tekur
jafnafdrifaríka ákvörðun,“ sagði Öss-
ur meðal annars. Steingrímur J. Sig-
fússon, þingflokki óháðra, tók í sama
streng og benti jafnframt á að enn
væri tími til stefnu til að undirrita
bókunina.
Stjómarandstæðingar gagnrýndu
það einnig að umrædd ákvörðun rík-
isstjórnarinnar skyldi ekki hafa ver-
ið tekin í samráði við utanríkismála-
nefnd Alþingis og bentu á að fyrir
umhverfisnefnd Alþingis lægi þings-
ályktunartillaga frá Agústi Einars-
syni, þingflokki Samfylkingarinnar,
og fleirum um að skora á ríkisstjóm-
ina að undirrita Kyoto-bókunina.
Þingmennimir töldu auk þess að
umrætt mál hefði verið tekið úr
höndum Guðmundar Bjarnasonar
umhverfisráðherra sem hefði lýst því
yfir að hann vonaðist til þess að ís-
land gæti orðið aðili að bókuninni.
„Ljóst er að sjónarmið umhverfis-
ráðherra hafa ekki komist langt í
málinu. Það blasir við, enda kýs
hann að vera í fríi úti í löndum á
þeim tíma sem ákvörðunin er hér til
umræðu,“ sagði Hjörleifur,
„Um þetta mál hefur verið veruleg
umræða í ríkisstjóm að undanfomu
og umhverfisráðherra hefur að sjálf-
sögðu komið að því máli,“ sagði Hall-
dór Ásgrímsson. „Hins vegar er und-
irritun alþjóðasamninga málefni ut-
anríkisráðuneytisins, bæði í þessu
máli og ýmsum öðrum.“ Ráðherra
skýrði frá því að það væri ríkis-
stjómarinnar að ákveða hvort
Kyoto-bókunin skyldi undirrituð en
að það væri Alþingis að ákveða, þeg-
ar þar að kæmi, hvort íslendingar
ættu að gerast aðilar að loftslags-
samningi Sameinuðu þjóðanna og
samþykkja hann. Sagði hann að rík-
isstjómin hefði lýst því yfir að hún
vildi að íslendingar gerðust aðilar að
samningnum.
Kyoto-bókunina bar oft á góma í
umræðunum um utanríkismál á Al-
þingi í gær sem fylgdu í kjölfarið og
lýsti Guðný Guðbjörnsdóttir, þing-
flokki Samfylkingai-innar, þar einnig
yfir vonbrigðum með afstöðu ríkis-
stjórnarinnar til undirritunar bókun-
arinnar.
Alþingi
Ólafs Björnssonar
minnst á Alþingi
FORSETI Alþingis, Ólafur G. Einarsson, minntist Ólafs
Björnssonar, fyrrverandi alþingismanns og prófessors, í
upphafi þingfundar á Alþingi í gær. Ólafur andaðist mánu-
daginn 22. febrúar sl., 87 ára að aldri. Forseti Alþingis fór í
minningarorðum sínum yfír menntun og starfsferil Olafs, en
hann var landskjörinn alþingismaður árið 1956 fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn og sat á 18 þingum alls.
„Alþingi naut starfa hans hálfan annan áratug. Hann flutti
mál sitt af festu og víðsýni, óáleitinn en stefnufastur við
skoðanir sínar um fijálsræði. Undir lok starfsdaga sinna
naut hann ýmissa heiðursviðurkenninga fyrir ævistörfín. Ár-
ið 1986 sæmdi Háskóli íslands hann nafnbót heiðursdoktors í
hagfræði," sagði forseti Alþingis og bað alþingismenn að
minnast Ólafs Björnssonar með því að rísa úr sætum.
Svanhildur Árnadóttir á þing
SVANHILDUR Árnadóttir, bæjarfulltrúi og fyrsti varaþing-
maður Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandi eystra, tók sæti á
Alþingi í gær í fjarveru Halldórs Blöndals samgönguráð-
herra. Halldór er á förum til útlauda í opinberum erindum.
Svanhildur hefur áður tekið sæti á Alþingi og bauð forseti
Alþingis hana velkomna til starfa.
Alþingi
Dagskrá
ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 10.30 í dag. Meðal þess
sem verður á dagskrá er fyrsta umræða um frumvarp til
orkulaga, sem iðnaðarráðherra flytur og fyrsta umræða um
frumvarp um þingsköp Alþingis, sem forseti Alþingis flytur.