Morgunblaðið - 26.02.1999, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Glerárkirkju
Morgunblaðið/Krisyán
JÓN Halldór Finnsson leikur einleik á básúnu á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands í Glerárkirkju á sunnudag, en hér blæs
hann nokkra létta tóna fyrir Marínu Herdísi, tveggja ára dóttur sína.
Punkturinn
flytur í hús-
næði Lista-
safnsins
STARFSEMI Handverks- og tóm-
stundamiðstöðvarinnar Punktsins
verður flutt á fjórðu hæð í húsnæði
Listasafnsins á Akureyri í Kaup-
vangsstræti, svonefndu Listagili.
Bæjarráð samþykkti flutninginn á
fundi sínum í gær og jafnframt að
vísa kostnaði sem af honum leiðir til
endurskoðunar fjárhagsáætlunar, en
ráðið leggur áherslu á að kostnaði við
framkvæmdina verði haldið í algeru
lágmarki.
Handverks- og tómstundamiðstöð-
in Punkturinn hefur verið starfrækt í
fímm ár í húsnæði í eigu Landsbanka
Islands á Gleráreyrum, en nú hefur
verið ákveðið að starfsemi Sjóklæða-
gerðarinnar verði komið fyrir í hús-
næðinu.
Eiríkur Bj. Björgvinsson, íþrótta-
og tómstundafulltrúi Akureyrarbæj-
ar, sagði að ekki lægi endanlega fyrir
hvenær af flutningi yrði, semja þyrfti
við forsvarsmenn Brauðgerðar Krist-
jáns sem nú væru með bakarí í hús-
næðinu og hefðu yfir því að ráða
fram á sumar. Þeir hefðu hins vegar
áhuga á að flytja bakaríið í sitt eigið
húsnæði við fyrsta tækifæri. „Við
gerum ráð fyrir að allt smelli saman,
að við fáum að vera á Gleráreyrum
þar til húsnæðið í Gilinu losnar,“
sagði Eiríkur.
Aðgengi verður bætt
„Það eru allir spenntir að flytja í
Listagilið og ég vona að við munum
eiga gott samstarf við fólkið í ná-
grenninu," sagði Eiríkur. Fyrirhugað
er að gera nokkrar nauðsynlegar
breytingar á húsnæðinu, en m.a. á að
bæta aðgengi fatlaðra að Punktinum.
„Það hafa komið fram ítrekaðar óskir
frá þeim hópi en aðgengið var ekki
nægilega gott. Nú viljum við bæta úr
svo að fatlaðir eigi þess kost að taka
þátt í starfseminni enda virðist mikill
áhugi þeirra á meðal,“ sagði Eiríkur.
Frumflytur
verk eftir
Þorkel
Sigur-
björnsson
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT
Norðurlands heldur tónleika í
Glerárkirkju á sunnudag, 28.
febrúar, kl. 16.
Á efnisskrá hljómsveitarinn-
ar eru þrjú verk, Sinfónía nr. 7
eftir Beethoven, Gletscherlied
eftir Þorkel Sigurbjörnsson
sem er frumflutningur hér á
landi og Konsert fyrir básúnu
eftir Henry Tomasi. Stjórnandi
hljómsveitarinnar er Guðmund-
ur ÓIi Gunnarsson. Einleikari á
tónleikunum er Jón Halldór
Finnsson básúnuleikari.
Jón Halldór er fæddur í
Reykjavík árið 1964 og stund-
aði básúnunám við Tónlistar-
skólana í Mosfellsbæ og Reykja-
vík. Hann lauk BM-prófi árið
1990 í einleik á básúnu frá
Shenandoah College an
Conservatoroty of Music í Virg-
iníu í Bandaríkjunum og stund-
aði mastersnám við Catholic
University of America í Was-
hington. Hann var í blásarak-
vintett og kenndi við mennta-
skóla á Dayton-svæðinu þar
sem hann hafði einnig einka-
hljóðver. Jón Halldór hefur
kennt við tónlistarskólana í
Mosfellsbæ, Ólafsvík og Eyja-
fírði en kennir nú við Tónlistar-
skólann á Akureyri. Hann hefur
leikið með Sinfóníuhljómsveit
íslands, íslensku óperunni og í
Þjóðleikhúsinu. Hann sljórnar
Barna- og unglingakór Akur-
eyrarkirkju og hefur leikið með
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
frá árinu 1993.
Spennandi verk og kreljandi
„Þetta er mjög spennandi
verk og þekkt í brassheimin-
um,“ sagði Jón Halldór um
Konsert fyrir básúnu sem
Henry Tomasi samdi árið 1956.
„Konsertinn er í þremur köfl-
um, sá fyrsti byijar á einu
höggi hjá hljómsveitinni, en svo
er básúnan ein og yfirgefín, þá
tekur við liðleg og nautnafull
lota en síðasta lotan minnir
helst á franskan harmonikku-
vals. Annar kafli, Næturljóð,
byrjar með einmanalegu ljúfu
stefí básúnunnar, svo magnast
tónlistin upp en endar svo á
bliðlegum nótum. Lokakafíinn,
tambourine, er léttur og lífleg-
ur, með suðuramerískum takti
og endar með dúndrandi hái í
básúnunni."
Jón Halldór sagði að Guð-
mundur Óli hljómsveitarsljóri
hefði beðið sig um að leika
konsertinn og hann hefði aldeil-
is verið til í það. „Þetta er afar
spennandi og kreljandi verk
fyrir básúnuleikara að spreyta
sig á,“ sagði hann.
Fj órðungssjú kra-
húsið á Akureyri
Fram-
kvæmdir
hefjast inn-
an skamms
GERA má ráð fyrir að fram-
kvæmdir við nýja barnadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri hefjist innan tíðar eftir
nokkurt hlé. Bæjarráð Akureyr-
ar samþykkti í gær að leggja til
við bæjarstjórn að samþykkja
viðaukasamning vegna verkloka
við barnadeildina en málið verð-
ur til umfjöllunar á fundi Sam-
starfsnefndar um opinberar
framkvæmdir í næstu viku.
Halldór Jónsson fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri sagði að áætl-
aður kostnaður við verklok væri
163 milljónir króna, en fjárveit-
ingar ársins og fé sem til var og
ekki hafði verið nýtt til fram-
kvæmda dygðu ekki til að ljúka
verkinu. Á vantaði á bilinu 60 til
70 milljónir, en samkomulag hef-
ur verið gert um á hvern hátt því
dæmi verði lokað.
Verði samningarnir samþykkt-
ir í bæjarstjóm og veiti sam-
starfsnefndin heimild til að hefja
framkvæmdir, sem allt bendir til
að verði, má búast við að verk-
efnið verði boðið út, en að sögn
Halldórs eru útboðsgögn þegar
tilbúin. Gert er ráð fyrir að verk-
lok verði í október næstkomandi
og telur Halldór að sú áætlun
ætti að geta gengið upp.
Námskeið
á vegum
KFUMogK
AF hverju var Jesús svona ein-
stakur? er yfírskrift námskeiðs
sem haldið verður á vegum
KFUM og K á Akureyri í félags-
heimili þess í Sunnuhlíð á laugar-
dag, 27. febrúar, frá kl. 14 til 17.
Kennari er Christian Bastke,
Þjóðverji búsettur í Bandaríkj-
unum, en hann kennir og predik-
ar um allan heim. Allir eru vel-
komnir á námskeiðið en skráning
fer fram hjá Jóni Oddgeiri Guð-
mundssyni á Akureyri. Christian
Bastke talar einnig á samkomu
hjá KFUM og K í Sunnuhlíð
næstkomandi sunnudag, 28.
febrúar, kl. 17.
Færeyskri
sýningu lýkur
„FRAMSÝNING - Föroysk nú-
tíðarlist" sem nú stendur yfir á
Listasafninu á Akureyri lýkur
um helgina. Sýningin er samsýn-
ing 13 færeyskra listamanna og
er unnin í samstarfi Listasafns-
ins á Akureyri, Kjarvalsstaða og
Listaskálans í Þórshöfn í
Færeyjum. Afbragðsgóð aðsókn
hefur verið að sýningunni en nú
fer hver að vera síðastur. Lista-
safnið er opið um helgina frá kl.
14 til 18.
Kirkjustarf
LAUFÁSPRESTAKALL:
Kirkjuskóli verður í Svalbarðs-
kirkju á morgun, laugardaginn
27. febrúar, kl. 11. Kirkjuskóli
verður í Grenivíkurkirkju sama
dag kl. 13.30. Bænastund verður
í Grenivíkurkirkju kl. 21 á
sunnudagskvöld, 28. febrúar.
Messa í Grenilundi kl. 16 á
sunnudag.
MÖÐRUVALLAPRESTAKALL:
Æskulýðsguðsþjónusta - sunnu-
dagaskóli verður í Möðruvalla-
kirkju næstkomandi sunnudag,
28. febrúar kl. 11 í umsjón Söru
Helgadóttur og sóknarprests.
Fermingarböm aðstoða við at-
höfnina. Foreldrar eru hvattir til
að mæta.
Hádegisverðarfundur á Akureyri
Þriðjudaginn 2. mars 1999, kl. 12:00 - 13:30 á Fosshótel KEA
ATVINNULIFIÐ
A LANDS,BYGGÐINNI
OG ALÞJOÐAVÆÐING
» ■
• Hvemig hefur alþjóðavæðingin áhrif á atvinnulíf landsbyggðarinnar?
• Veröur landsbyggðin hálauna- eða láglaunasvæði?
• Veröa ný störf líka til á landsbyggðinni?
• Er landsbyggðin aðlaöandi kostur fyrir langskólamenntaö fólk?
• Hvemig getur landsbyggðin nýtt sér sérstöðu sína?
FRAMSÖGUMENN: ______________________________________________________^
Andri Teitsson, ftamkvæmdastjóri Þróunarfélags íslands hf.
Vilhjálmur Egilsson, alþingismaöur og framkvæmdastjóri Verslunarráös íslands.
V________________________________________________
Að loknum framsöguerindum geta fundarmenn komiö á framfæri fyrirspumum eða
komiö meö athugasemdir.
Fundargjald (hádegisveröur innifalinn) kr. 2.000,-
Fundurinn er öllum opinn en æskilegt er
að tilkynna þátttöku fyrirfram í síma 510 7100 eða
bréfasíma 568 6564 eða með tölvupósti mottaka@chamber.is.
VERSLUNARRAÐ ISLANDS
4