Morgunblaðið - 26.02.1999, Síða 21

Morgunblaðið - 26.02.1999, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999 21 VIÐSKIPTI Tölvumyndir og Infínity í samstarf Eykur sóknarmögu- leika erlendis Netsími frá Nokia kem- ur á óvart Helsinki. Reuters. HLUTABRÉF í finnska far- símafyrirtækinu Nokia hafa hækkað í verði síðan fyrirtækið markaðssetti nýjan nettengdan fai’síma. Sérfræðingar sögðu að markaðssetning nýja 7110-sím- ans treysti forystu fyrirtækis- ins á markaðnum, þótt franski keppinauturinn Alcatel ætli að hefja sölu nettengds GSM-síma 26. marz. Sérfræðingar hafa talið að nýjar gerðir kunni að veita Ericsson yfirburði, en skoðanir þeirra kunna að breytast þegar sala Nokia-sím- ans hefst. Ericsson hefur þegar kynnt nýjan R250 PRO-síma, sem þolir vatn, ryk og hnjask. Sérfræðingur Leonia-banka í Helsingfors sagði að 7110- gerð Nokia kæmi á óvart. „Þetta eru mjög jákvæðar fréttir," sagði hann. Nokia telur að eftirspurn eftir nýja símanum verði 10- 15% af heildareftirspurn eftir farsímum á næsta ári. NYVERIÐ gerðu Tölvumyndir og Infinity með sér samkomulag um aukið samstarf milli fyrirtækjanna. í samkomulaginu er kveðið á um möguleika Tölvumynda að nota sölu- og dreifikerfi Infmity til að selja Verðbréfavogina. I fréttatilkynningu kemur fram að samkomulagið auki möguleika Tölvumynda til muna á sókn erlend- is. „Ekki er fyllilega komið í ljós hversu víðtæk áhrif þetta sam- komulag mun hafa á starfsemi Tölvumynda en ljóst er að þetta er mikil viðurkenning fyrir íyrirtækið og starfsmenn þess.“ Samkomulag þetta kemur í kjöl- far heimsóknar Robert E. Lang stofnanda og forstjóra hugbúnaðar- fyrirtækisins Infinity, en hann kom hingað til lands á haustdögum. Hann kynnti sér íslenskan fjármála- markað og heimsótti m.a. Kaup- þing, FBA og Landsbankann, en Kaupþing og FBA hafa tekið í notk- un hugbúnað frá Infmity sem meðal annars sér um áhættustjórnun fyrir fyrirtækin. Islenskur íjárinála- hugbúnaður Verðbréfavogin eða „Libra“, sem er vinnuheiti kerfisins erlendis, er alíslenskur fjármálahugbúnaður. Kerfið er hannað af Tölvumyndum í samvinnu við aðila á íslenska fjár- málamarkaðnum og er nú í notkun hjá Búnaðarbankanum Verðbréf- um, Kaupþingi, FBA og Lands- bankanum. „Ljóst er að sérhæft kerfi á borð við Verðbréfavogina hefur takmarkaða stækkunarmögu- leika á íslenskum markaði og því var ákveðið að leita samstarfs við erlenda aðila um dreifingu á hug- búnaðinum erlendis,“ að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Helstu undirkerfi í Verðbréfavog- inni eru sölu- og afgreiðslukerfi, sjóðakerfi, viðskiptamannakerfi, birgðakerfi, eignaumsýsla, fjár- varsla og greiningarkerfi. Vogin hefur m.a. bein samskipti við Verð- bréfaþing íslands, SWIFT og Reiknistofur bankanna. Einnig er boðið uppá sérstaka útgáfu af Verð- bréfavoginni fyrir fagfjárfesta sem geta raðað saman þeim einingum úr Verðbréfavoginni sem nýtast til að halda utan um eigin verðbréfasöfn, eða söfn þeirra sem sjóðurinn er með í fjárvörslu. Þá getur Verð- bréfavogin tengst áhættustýringar- kerfinu Infinity á þann hátt að upp- lýsingaflæði milli kerfanna er í báð- ar áttir. Myndar það samfellt flæði milli kerfi (straight through processingjsem er mikilvægur þátt- ur í nútíma áhættustýringu. Allt það óhagræði sem fylgir mörgum ósamrýmanlegum kerfum og pappírsumstangi milli aðila inn- an fyrirtækis mun heyra sögunni til, að því er fram kemur í fréttatil- kynningu. Rover 75 valinn bíll ársins 1999 London. Reuters. ROVER-deild BMW í Bretlandi getur loksins hrósað sigri eftir mik- ið tap, sem frægt er orðið: brezkt bílablað hefur valið hina nýju gerð Rover 75 „bíl ársins“. Rover 75 er ætlað að gegna lykil- hlutverki í tilraunum til að rétta við hag Rover-fyrirtækisins. Þegar bíll- inn var fyrst kynntur á alþjóðlegu bílasýningunni í Birmingham í októ- ber sögðu forsvarsmenn Rovers að hann yrði að „hleypa nýju lífi í Rover-merkið“. Tímaritið What Car? tók Club-út- gáfu Rover 75 fram yfir 15 aðra bfla þegar það valdi hana bfl ársins 1999. Rover 75 er fyrsti nýi bfllinn, sem fyrirtækið hefur smíðað síðan BMW tók við stjórn þess fyrir fimm árum. Verkefnisstjóri Rover 75 sagði í yf- irlýsingu að bfllinn væri „árangur þrotlauss starfs í fjögur ár“. BMW hefur veitt Rover frest til vors til að sýna „frambærilegan frumárangur". Ritstjóri What Car?, Julian Rendell, sagði að með meiri fjárfestingu frá Þýzkalandi gæti Rover hiklaust keppt við beztu bfla- framleiðendur heims. stööugt að aukast, bæði hér heima og erlendis. Við hjá SH höfum notað Bay Networks netbúnað frá Nýherja undanfarin 3 ár og hefur hann margsannað gildi sitt. Bay Networks er búnaður sem bregst ekki og uppfyllir allar kröfur okkar um áreiðanleika og öryggi. Einu tilvikin sem ég hef samband við tæknimenn Nýherja eru þegar við þurfum viðbótar tengingar eða útfærslur. Öflugur uppsetningar- og stjórnunarhugbúnaður frá Bay Networks tryggir að breytingar ganga fljótt og örugglega Bay Networks fynr slg/ Bay Networka er leiðandi fyrirtœki i heiminum á sviði netbúnaðar og eelur meira af slíkum búnaði en nokkurt annað fyrirtmki. Allur búnaður fra Bay Nntworks á það sammerkt að vera auðveldur í uppsBtningu og stjárnun og er reiðubúinn fyrir árið 2000. Kynntu þár kosti netbúnaðar frá Bay Networks g þú leitar akki annað. CQ> NÝHERJI Skaftahlíð 24 • Sími 5B9 7700 http ://www.nyherji.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.