Morgunblaðið - 26.02.1999, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999 29
LISTIR
Bókmenntakynning á Tálknafirði
Tálknafirði. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Finnur
RITHÖFUNDURINN Einar Már Guðmundsson las úr verkum sínum
og sagði sögur, sem vöktu mikla kátínu meðal viðstaddra.
Sigurður Magnússon
sýnir í Listhúsi Ofeigs
BOKMENNTAKYNNING var
haldin á Tálknafirði á dögunum
í boði Grunnskólans, Verka-
lýðs- og sjómannafélags
Tálknafjarðar og Kvenfélags-
ins Hörpu.
Það er ekki á hverjum degi,
sem vii-tir listamenn heimsækja
Tálknfirðinga og miðla þeim af
list sinni. Það má því teljast
merkur viðburður, þegar Einar
Már Guðmundsson rithöfundur
sótti Tálknafjörð heim til þess
að kynna verk sín og hitta íbú-
ana. Var Einari alls staðar rnjög
vel tekið. Hann kom víða við,
heimsótti Grunnskólann, kom
við í félagsmiðstöð eldri borg-
ara og að lokum var opið hús í
Dunhaga þar sem dagskráin
hófst á því að Þórunn Magnús-
dóttir flutti stutta kynningu á
skáldinu. Þá var lesið úr verk-
um skáldsins og hann Ias sjálfur
valda kafla úr skáldsögum sín-
um og einnig nokkur ljóða
sinna. Þá sagði hann sögurnar á
bak við sum ljóðanna og hvern-
ig fyrsta ljóðabókin varð til.
Góð mæting var á bók-
menntakvöldið og skemmtu
gestir sér konunglega og ekki
spillti kaffið og konfektið sem
boðið var upp á, meðan menn
svifu í faðmi listagyðjunnar.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að hafa mál-
verkasýningu Sigurðar Magnússon-
ar myndlistarmanns, sem stendur
yfír í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg
5, opna frá kl. 14-17 á sunnudögum.
Sýningunni lýkur laugardaginn 6.
mars og verður opin á verslunartíma
Listmunahússins, mánudaga til
fóstudaga frá ki. 10-18 og, laugar-
daga og sunnudaga frá 14-17.
ALVÖRU ÁST
KVIKMYJVPIR
Háskólabfó
SHAKESPEARE IN LOVE
★ ★★V2
Leikstjóri: John Madden. Handrit:
Tom Stoppard og Marc Norman.
Aðalhlutverk: Gwyneth Paltrow,
Joseph Fiennes, Colin Firth, Judi
Dench, Tom Wilkinson, Simon Call-
ow og Geoffrey Rush. Universal
Pictures & Miramax Films 1998.
WILL Shakespeare er ungt og
efnilegt leikritaskáld í Lundúnum
með innblástursteppu og skottu-
læknir nokkur segir ástina eina
geta losað um stífluna. Shake-
speare fer af stað og finnur ást
lífs síns í hefðardömunni Víólu De
Lesseps. En er leikritaskáld fært
um að sýna okkur sanna náttúru
ástarinnar? „Skáldin fegra ástina,
lýta hana eða gera hana fyndna,
en þeim tekst ekki að gera hana
sanna,“ heldur Elísabet Eng-
landsdrottning fram. Will veðjar
50 pundum um að hún hafi rangt
fyrir sér.
Handrit þessarar myndar er
sérlega vel skrifað og skemmti-
legt. Rauði þráðurinn er eldheit
ástarsaga ungmennanna, en utan
um hann fléttast margar minni
sögur, ekki síður áhugaverðar og
fróðlegar. Persónusköpun er
sterk og höfundar næmir fyrir
misjöfnum manngerðum, með
sínum kostum og göllum, og
hvaða áhrif hver og ein hefur á
framgang mála. Myndin er einnig
bráðfyndin... svo er líka atriði
með hundi. Það er ekki langt liðið
á mynd þegar maður gerir sér
grein fyrir að handritið minnir
einmitt um margt á leikrit eftir
Shakespeare með öllu sem maður
getur óskað sér í dramatískri frá-
sögn. Leikritahöfundurinn Tom
Stoppard á heiðurinn af því og
gengur það út á að segja sögu,
eða frekar búa til sögu, um tilurð
leiki-itsins „Rómeó og Júlía“ og
síðar „Þrettándanætur". Þessi
hringverkun er frábær hugmynd
sem er sérlega skemmtilega
framsett, og gefur handritinu
óvænta dýpt. Líkt og þegar ég sá
kvikmyndina „Amadeus" á sínum
tíma, vildi ég óska þess að allt
væri þetta satt og rétt, svona
skemmtilegt, og snillingurinn svo
viðkunnanlegur. Annað hvort er
það löngunin til að skyggnast inn
í leyndardóminn á bakvið tilurð
ódauðiegra verka eða hreinlega
löngun til að eignast örlítið í snill-
ingum sögunnar. Nema hvort
tveggja sé.
Stoppard gefur líka skemmti-
lega sýn á starf rithöfunda, leik-
ritaskálda; hvernig þeii- draga at-
burði úr lífinu inn í verkin sín,
(sem í þessu tilfelli gerir söguna
mun raunverulegri) hvernig þeir
kunna að sanka að sér, þiggja og
stela hugmyndum frá öðrum.
Sagt er að af þeim 32 leikritum
sem Shakespeare samdi, hafi að-
eins „Óveðrið" verið unnið eftir
hans eigin hugmynd. Hin vann
hann upp úr lélegum leikritum
annan-a. Sem og sýnir að hug-
mynd er bara hugmynd, og ekk-
ert meira. Það þarf andagiftina,
mælskuna, tilfinningarnar og um-
fram allt ástríðuna til að glæða
hana lífi og breyta í ódauðlegt
listaverk. I því felst snilligáfan.
Tvö önnur þresk samtíma leik-
ritaskáld koma til sögunnar.
Christopher Marlovve, sem hér er
sagður keppinautur Shakespeares,
og John Webster á unga aldri. Er
gefið í skyn á skemmtilegan og
sniðugan hátt að sú átakamikla
dramatík sem síðar átti eftir að
einkenna leikverk hans, hafi átt
hug hans allan strax frá blautu
barnsbeini.
Umfram allt er þó kvikmyndin
„Shakespeare in Love“ saga um
alvöru ást. Hún er saga um ást
utan og innan veggja leikhússins,
saga um ást í leikritum og í lífinu,
saga um ást sem nær út fyrir leik-
ritið, þar sem goðsögnin verður
að veruleika. Besta atriði kvik-
myndarinnar því til sönnunar er
lokaatriði leikritsins um elskend-
urna ungu „Rómeó og Júlíu“. AU-
ir áhorfendur leikhússins eru orð-
lausir, hrifnir upp úr skónum,
leikararnir ráða ekki við tilfinn-
ingar sínar, bíóáhorfendur era yf-
ir sig glaðir, og það kæmi mér
ekki á óvart að kvikmyndagerðar-
fólkið hafi verið snortið á tóku-
stað. Mér finnst þetta dásamlegt.
Þetta er fegurð mannlífsins í
hnotskurn, þar sem maður er
manns gaman, þar sem ástin og
ástríðan taka öll völd.
Gwyneth Paltrow og Joseph
Fiennes leika Víólu de Lesseps og
William Shakespeare. Það eru
miklir straumar á milli þessara
heillandi leikara og samleikur
þeirra er yndislegur og fullkom-
lega sannfærandi. Enda, ef svo
hefði ekki verið, hefði myndin og
umfjöllunarefnið fallið um sjálft
sig. Paltrow sýnir mjög þroskað-
an, látlausan og sterkan leik, sem
er eiginlega undranarvert af
hendi svo ungrar leikkonu. Jos-
eph Fiennes ljáir Shakespeare
mikla ástríðu sem stundum á það
til að vera yfirdrifin. En þegar
ungur og fallegur karlmaður fær
að leika aðalhetjuna ræður hann
örugglega ekki við eigin ástríður
samfara því. Joe Fiennes er samt
býsna góður enda trúverðugt að
nokkuð öflugar tilfinningar hafi
hrærst innra með ungum Will, og
verða leikskáldið Marlowe og
fleiri fulldaufar persónur við hlið-
ina á honum, svo hrífandi er hann
og uppnuminn af lífinu. Myndin
er barmafull af góðum leikuram.
Judi Dench fer á kostum í hlut-
verki Elísabetar I, sem hún gerir
háðska og klára kerlingu. Colin
Firth er ótrúlega fúll og leiðinleg-
ur sem Lord Wessex. Þessi mynd
ætti því að geta orðið afvötnun
fyrir þær dömur sem enn era ást-
fangnar af honum síðan þær sáu
„Hroka og hleypidóma". Furðu-
legast fannst mér að sjá Ben
Affleck þarna í miðjum breskum
leikarahóp. Hver er tilgangurinn
með að gefa amerískri stjörnu
millistórt en áhrifalítið hlutverk í
mynd sem gerist á 16. öld í
Englandi? Skrítið val.
„Shakespeare in Love“ er
margföld skemmtun og listilega
vel gerð. Búningar og sviðsmynd-
in öll er sérlega falleg og
skemmtileg, ekki síst kjólar
drottningar. Hún er listilega
mynduð og atriðið þar sem Will
og Víóla tala saman í fyrsta sinn í
miðjum dansi er sérlega áhrifa-
ríkt. Síðast en ekki síst er þetta
falleg saga, rómantískt og sann-
arlega þannig að allir, burtséð frá
ólíkum kvikmyndasmekk, ættu að
geta lifað sig inn í hana.
Hildur Loftsdóttir
Gallerí Fold
ÓMAR Stefánsson við verk sín á vinnustofunni.
Olíumálverk Om-
ars Stefánssonar
ÓMAR Stefánsson opnar sýningu
á olíumálverkum í baksal Gallerís
Foldar, Rauðarárstíg 14, á morg-
un, laugardag, kl. 15.
Ómar Stefánsson stundaði nám
við Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1977-81 og lauk prófi frá ný-
listadeild. Árin 1982-86 stundaði
hann framhaldsnám við
Hochschule der Kunste í Vestur-
Berlín. Ómar hefur tekið þátt í
fjölmörgum samsýningum hér-
lendis og erlendis, og þetta er ell-
efta einkasýning hans. Þá hefur
Ómar starfað við Listamiðlunina
Infemo, sem hefur séð um listvið-
bui’ði og ýmiss konar útgáfu á liðn-
um áram.
Gallerí Fold er opið daglega frá
kl. 10-18, laugardaga kl. 10-17 og
sunnudaga kl. 14-17 og stendur
sýningin til sunnudagsins 14.
mars.
Anna Torfadóttir
sýnir í Osló
NÚ stendur yfir sýning á verkum
Önnu Torfadóttur grafíklista-
manns í IS Kunst gallery & café,
Leirfallsgatan 6 í Ösló. Sýningin
ber yfirskriftina Víkingar og er
haldin í „Kaffekroken", kaffirým-
inu, en í galleríinu era þrjú sýn-
ingarrými.
Anna útskrifaðist frá Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
1976 úr vefnaðarkennaradeild og
árið 1987 frá grafíkdeild MHI.
Anna var gestalistamaður í Au-
burn, New York, 1996 til 1997.
Anna hefur áður tekið þátt í fjöl-
mörgum samsýningum og meðal
annars haldið einkasýningar í
Þýskalandi og Bandaríkjunum.
Undanfarin ár hefur Anna unn-
ið með efni frá víkingatímanum -
aðallega skart, fatnað og skreyti-
list.
Sýningin stendur til 11. mars.
27. og 28. febrúar
í Reiðhöll Gusts í Kópavogi
Dómarar eru frá Tékklandi, Englandi og
Hollandi.
Aðgangseyrir
Fullorðnir
kr. 500,
IPurina)
Purina
PKDPIAN