Morgunblaðið - 26.02.1999, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999 5 V
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Isak og Hall-
dóra í 1. sæti
DAJVS
Valbí'hallen,
Kaupinannahöfn
OPNA KAUPMANNAHAFNAR-
KEPPNIN
Haldin dagana 19.-21. febrúar sl.
OPNA Kaupmannahafnarkeppn-
in í samkvæmisdönsum var haldin
um síðustu helgi, 19.-21. febrúar, í
Valbyhallen, rétt fyrir utan Kaup-
mannahöfn. Var þetta í 21. skipti
sem þessi keppni var haldin og er
hún í dag talin ein af virtustu og
sterkustu danskeppnum í Evrópu.
Keppt var í öllum aldursflokkum,
allt frá 8 ára aldri upp í 50 ára og
eldri, og keppt var bæði í suður-
amerískum dönsum og sígildum
samkvæmisdönsum.
Þrjátíu íslenzk pör tóku þátt í
keppninni að þessu sinni og hefur
íslenzki keppnishópurinn aldrei
verið fjölmennari í þessari keppni.
Keppnin var í alla staði til fyrir-
myndar svo og allt skipulag henn-
ar. Það eina sem Islendingarnir
settu út á var að erfitt var að fínna
borðið með upplýsingum um dag-
skrá keppninnar.
Þessi keppni tekur þrjá daga og
hér á eftir verða helztu viðburðir
hvers dags útlistaðir.
Föstudagur
Yngstu dansararnir, Börn I, hófu
keppnina þennan dag með sígildum
samkvæmisdönsum. I keppnina
voru skráð 24 pör, þar af 5 íslenzk.
Að sögn viðstaddra stóðu þessir
ungu fulltrúar okkar sig með stakri
prýði og dönsuðu ákaflega vel.
Björn Ingi Pálsson og Ásta Björg
Magnúsdóttir og Haukur Freyr
Hafsteinsson og Hanna Rún Óla-
dóttii- náðu þeim glæsilega árangri
að komast í undanúrslit og Haukur
og Hanna komust síðan í úrslit og
unnu þar til 7. verðlauna.
Unglingar I kepptu einnig í sí-
gildum samkvæmisdönsum þennan
dag. Til keppninnar voru skráð 43
pör, þar af 5 frá íslandi. Þrjú þeirra
komust áfram í aðra umferð og tvö
þeirra, Davíð Gill Jónsson og Hall-
dóra Sif Halldórsdóttir og Hrafn
Hjartarson og Helga Björnsdóttir,
komust í 24 para úrslit. Sigurvegar-
ar í þessum flokki komu frá Lit-
háen, Simonas Dargis og Viktorija
Puzirauskaite. Þau sigruðu einnig í
suður-amerískum dönsum. Sér-
staklega létt og skemmtilegt par
með mikla útgeislun.
Unglingar II kepptu í suður-am-
erískum dönsum. Til keppninnar
voru skráð 75 pör, þar af 10 íslenzk.
Sex þeirra komust áfram í aðra um-
ferð og Hilmir Jensson og Ragn-
heiður Eiríksdóttir, Gunnar Hrafn
Gunnarsson og Sigrún Ýr Magnús-
dóttir og Isak Halldórsson Nguyen
og Halldóra Ósk Reynisdóttir
komust öll í 24 para úrslit. Þau tvö
síðastnefndu komust í undanúrslit.
Isak og Halldóra gerðu það ekki
endasleppt og dönsuðu sig inn í úr-
slitin og stóðu að lokum uppi sem
sigurvegarar. Þau sigimðu mjög ör-
ugglega í öllum 5 dönsunum og
voru landi og þjóð til mikils sóma.
Islendingar mega svo sannarlega
vera stoltir af þessu unga og efni-
lega pari, en síðasti stórsigur
þeirra var Norðurlandameistaratit-
ill í byrjun desember sl.
Laugardagur
Unglingar II hófu daginn með
keppni í sígildum samkvæmisdöns-
um. Til keppninnar voru skráð 72
pör, þar af 10 íslenzk. Átta þeirra
fóru áfram í aðra umferð og í 24
para úrslit fóru Guðni Rúnar Krist-
insson og Helga Dögg Helgadóttir,
Hilmir Jensson og Ragnheiður Ei-
ríksdóttir, Gunnar Hrafn Gunnars-
son og Sigrún Ýr Magnúsdóttir og
ísak Halldórsson Nguyen og Hall-
dóra Ósk Reynisdóttir. Gunnar
Hrafn og Sigrún og Isak og Hall-
dóra komust í undanúrslit, Isak og
Halldóra fóru svo alla leið inn í úr-
slitin og unnu þar glæsilega til 5
verðlauna. Það voru þreyttir en
ánægðir Islendingar sem héldu
heim á hótel að afloknum mjög
löngum degi. Keppnin hafði hafizt
klukkan 10 um morguninn en var
ekki lokið fyrr en laust fyrir mið-
nætti.
Börn II kepptu einnig í sígildum
samkvæmisdönsum. Arnar Georgs-
son og Tinna Rut Pétursdóttir,
Þorleifur Einarsson og Ásta
Bjarnadóttir, Friðrik Árnason og
Sandra Júlía Bernburg og Jónatan
Arnar Örlygsson og Hólmfríður
Björnsdóttir komust öll í 25 para
úrslit. Friðrik og Sandra og Jónat-
an og Hólmfríður komust í undan-
úrslit og komust þau síðamefndu,
Jónatan og Hólmfríður, alla leið í
úrslit þar sem þau unnu til 6. verð-
launa. Þetta er glæsilegur árangur
þegar til þess er litið að Jónatan og
Hólmfríður eru einungis 10 ára og
voru að keppa á sínu fyrra ald-
ursári í þessum flokki.
Liðakeppni fór fram þennan dag
og er hún fastur liður í Öpnu Kaup-
mannahafnarkeppninni í dansi og
fer hún ávallt fram á laugardags-
kvöldinu. Danir sigruðu eins og sl
ár en lið Islendinga hafnaði í 6.
sæti.
Sunnudagur
Flokkur áhugamanna dansaði
suður-ameríska dansa þennan dag.
Oft hefur þessi flokkur verið kallað-
ur rúsínan í pylsuendanum þar sem
þarna fara mörg af sterkustu og
beztu pörum heims í flokkum
áhugamanna. Til leiks voru skráð
116 danspör, þar af tvö íslenzk, þau
Árni Þór og Erla Sóley Eyþórsbörn
og Elísabet Sif Haraldsdóttir og
Rafick Hoosain. Bæði pörin döns-
uðu mjög vel. Árni og Erla komust í
30.-33. sæti en Elísabet og Rafiek
komust í undanúrslit og lentu í 9.
sæti.
Flokkur ungmenna dansaði sí-
gUda samkvæmisdansa og var ein-
ungis eitt par frá Islandi skráð til
leiks. Skafti Þóroddsson og Linda
Heiðarsdóttir náðu að komast í 24
para úrslit, sem verður að teljast
góður árangur.
Unglingar I kepptu í suður-am-
erískum dönsum. Davíð Gill Jóns-
son og Halldóra Sif Halldórsdóttir
og Hrafn Hjartarson og Helga
Björnsdóttir komust í 24 para úrslit
þann daginn. Bæði þessi pör hafa
verið meðal okkar sterkustu para
og höfðu margir gert sér vonir um
betri árangur þeim til handa. En
svona er keppni, það geta því miður
ekki allirverið í 1. sæti.
Börn II kepptu í suður-amerísk-
um dönsum þennan síðasta keppn-
isdag og komust 4 íslenzk pör
áfram í aðra umferð og Þorleifur
Einarsson og Ásta Bjarnadóttir og
Jónatan Arnar Örlygsson og Hólm-
fríður Björnsdóttir komust alla leið
í undanúrslit en þar við sat þó svo
íslenzku pörin hafi dansað mjög vel
að sögn viðstaddra.
Það voru glaðir en þreyttir ís-
lendingar sem flugu heimleiðis á
mánudaginn að lokinni skemmti-
legri keppni og ekki skemmdi fyrir
að hafa nokkur verðlaun með í
farteskinu.
Það verður þó ekki mikið um
hvfld fyrir dansarana því næsta
keppni verður haldin 28. febrúar og
er það Bikarkeppni Dansráðs ís-
lands og svo verða Islandsmeist-
arakeppnin með frjálsri aðferð og
gömludansakeppnin haldnar 7.-8.
mars.
Við megum vera stolt af þessu
unga og efnilega íþróttafólki, sem
svo sannarlega hefur aukið hróður
Islendinga á erlendum vettvangi
síðastliðin misseri. Þetta er ungt,
heilbrigt og fallegt og umfram allt
skemmtilegt fólk.
Jóhann Gunnar Arnarsson
ef pantað í febrúar
10% afsláttur
3
INNLENT
Ráðstefna um
upplýsingatækni
í skólastarfi
RÁÐSTEFNA um upplýsinga-
tækni í skólastarfi verður hald-
in í Menntaskólanum í Kópa-
vogi í dag og á morgun. Ráð-
stefnan er samstarfsverkefni
menntamálaráðuneytis og
Skýrslutæknifélags íslands.
Ráðstefnan stendur frá 13 til
17 í dag og 9 til 17 á morgun.
Málstofur með fyrirlestrum og
pallborðsumræðum verða í
fimm sölum samtímis, hver
málstofa er 50 mínútur og
verða rúmlega 50 málstofur í
allt. Málstofur eru í eftirtöldum
yfirflokkum og verður hverjum
flokki lokið með pallborðsum-
ræðum: Fjarnám, hugbúnaður,
Netið, þróun og endurmenntun.
Á miðjusvæði verður sýning
á hugbúnaði, vélbúnaði og ýmsu
öðru sem við kemur upplýs-
ingastækni í skólastarfi. Verða
þar bæði fyrirtæki, skólar og
hópar einstaklinga. Auk þess
verður sett upp kennslustofa
framtíðar þar sem fylgjast má
með kennurum og nemendum
að störfum við kjöraðstæður.
Við kennsluna verða m.a. not-
aðar þráðlausar nettengdar
tölvur.
Ráðstefnan er ætluð kennur-
um, skólastjórnendum, foreldr-
um og öðrum sem áhuga hafa á
upplýsingatækni. Efni ráðstefn-
unnar þjónar öllum skólastig-
um, allt frá leikskólum upp í há-
skólastig, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Mest efni ráðstefnunnar fjall-
ar um það hvernig má nota upp-
lýsingatækni inni í skólastof-
unni eða í fjarkennslu, kynntar
verða nýjar kennsluaðferðir, ný
forrit, nýjar aðferðir við notkun
Netsins og ýmis samskiptaverk-
efni. Annað efni fjallar um
tölvuvæðingu skólanna, kynntar
verða niðurstöður kannana um
tölvulæsi og notkun kennslufor-
rita og fjallað verður um stefnu
yfirvalda í upplýsingatækni í
menntamálum.
Heimasíða ráðstefnunnar er
http://www.ismennt.is/vefir/ut99
SMAAUGLYSINGAR
FÉLAGSLÍF
íslandsgangan 1998
íslandsgangan fer fram laugar-
daginn 27. febrúar kl. 14.00 I Blá-
fjöllum. Skráning og upplýsingar
eru í síma 896 6971. Einnig verð-
ur skráð I Ármannsskálanum í
Bláfjöllum til kl. 13.00 á móts-
degi. Islandsgangan er 20 km al-
menningsganga. Einnig verða
gengnir 10 og 5 km.
Skíðaráð Reykjavíkur.
Frá Guðspeki-
félaginu
Ijigólfsstræti 22
Askriftarsími
Ganglera er
896-2070
I kvöld kl. 21 heldur Guðjón
Bergmann erindi um Tantra I
húsi félagsins, Ingólfsstræti 22.
Á laugardag kl. 15—17 er opið
hús með fraeðslu og umræðum,
kl. 15.30 í umsjón Jóns L. Arn-
alds, sem raeðir um hug og
hugljómun. Á sunnudag kl. 17—
18 er hugleiðingarstund með
leiðbeiningum fyrir almenning.
Á fimmtudögum kl. 16.30—
18.30 er bókaþjónustan opin
með miklu úrvali andlegra bók-
mennta. Guðspekifélagið hvetur
til samanburðar trúarbragða,
heimspeki og náttúruvísinda.
Félagar njóta algers skoðana-
frelsis.
FERÐAFÉLAG
© ÍSLANDS
uoæmíí^sjMLm^ss
Helgarferð 26.-28. febrúar
Tindfjöll, skíðagönguferð.
Pantanir og miðar á skrifstofu.
Sunnudagsferðir 28. febrúar.
Kl. 10.30 Bláfjöll - Geitafell -
Hlíðardalsskóli, skfðaganga.
Kl. 13.00 Skíðaganga. Brott-
för frá BSÍ, austanmegin og
Mörkinni 6.
Kl. 13.00 Mörkin 6 Þvotta-
laugarnar — Laugarás, fjöl-
skylduganga. Brottför frá
Mörkinni 6.
Þriðjudagur 2. mars kl. 20.30
Opið hús í Mörkinni 6 (risi).
Kynningarfyrirlestur á skíða-
göngunámskeiði og mynda-
sýning.
Námskeiðið verður 2—3
kvöld á skíðasvæðum og
dagsferð.
Kennd verður m.a. Þelamerk-
ursveifla.
I.O.O.F.12 = 1792267 - Dd.
I.O.O.F. 1 = 1792268V2 = Sp.
KENIMSLA
Kennsla f ungbarnanuddi
fyrir foreldra
barna á aldrinum
1-10 mánaða.
Næsta nám-
skeið byrjar
fimmtudaginn
4. mars.
Jngbarnanudd er gott fyrir öll
böm og hefur reynst gagnlegt
m.a. við magakrampa, lofti í
þörmum og óróleika. Hafa nýleg-
ar rannsóknir sýnt að nudd af
hendi foreldra hraðar almennt
tauga- og heilaþroska, líkams-
vexti og hormóna- og frumu-
starfi ungbarna.
Fagmenntaður kennari.
Uppl. og innritun á Heilsusetri
Þórgunnu í síma 562 4745,
552 1850 og 896 9653.
HEILSUSETUR
ÞÓRGUNNU
Námskeið í smáskammta-
lækningum (Hómópatíu)
Til sjálfshjálpar og heimanotkun-
ar laugardaginn 6. mars á Heilsu-
setri Þórgunnu, Skipholti 50c.
Kennari Þórgunna Þórarinsdóttir
smáskammtalæknir LCPH. Upp-
lýsingar og innritun I símum 552
1850 / 562 4745 og 896 9653.
TILKYNNINGAR
Frá Sálar-
rannsóknar-
félagi íslands
Opið hús
Laugardaginn 27. febrúar frá kl.
14—16 verður opið hús í Garða-
stræti 8.
Nemendur úr hringjum verða
með heilun. Einnig bjóða þeir upp
á að lesa i Tarot, indíánaspil, lófa
og bolla. Síðan verða almennar
umræður. Allir velkomnir.
SRFÍ.