Morgunblaðið - 26.02.1999, Side 56
56 FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
BRIDS
IJinsjún Arnðr G.
Ragnarsson
fslandsmótið í sveita-
keppni -
MasterCard-mótið
DREGIÐ hefir verið í riðla í und-
ankeppni Islandsmótsins í sveita-
keppni. Bridssamband íslands og
Europay Island hafa gert með sér
samstarfssamning og heitir Is-
landsmótið í sveitakeppni 1999
MasterCard-mótið, en Europay Is-
land hefur stutt bridshreyfinguna
á íslandi mjög vel undanfarin ár.
Undankeppnin verður haldin í
Þönglabakkanum 5.-7. mars, en þá
spila 40 sveitir úr öllum landshlut-
um um 10 sæti í úrslitunum sem
verða spiluð 31. mars-3. apríl.
Dregið hefur verið í 5 riðla sam-
kvæmt styrkleika sveitanna:
A-riðill:
Landsbréf, Reykjavík
Spotlight Club, Reykjavík
Sigfús Þórðarson, Suðurlandi
Aðalsteinn Jónsson, Austurlandi
Árni Bragason, Vesturlandi
Guðrún Oskarsdóttir, Reykjavík
Sveinn T. Pálsson, N-eystra
Sparisj. Húnaþings, N-vestra
B-riðill:
Samvinnuferðir, Reykjavík
Grandi hf., Reykjavík
Heitar samlokur, Reykjavík
Gummi Pé & pjakk., Reykjavík
Kristinn Kristjáns., Vestfjörðum
Bflaspítalinn, Reykjanesi
Lífeyrissj. Austurl., Austurlandi
Sigurður Skagfjörð, Vestfjörðum
C-riðilI:
Strengur, Reykjavík
Þrír Frakkar, Reykjavík
ÍR-sveitin, Reykjavík
Herðir, Austurlandi
Nota bene, Reykjavik
VÍS, Reykjanesi
Eimskip, Reykjavík
Síldarvinnslan, Austurlandi
D-riðilI:
Stilling, Reykjavík
Þröstur Ingimarsson, Reykjanesi
Kf. Þingeyinga, N-eystra
Vímet, Vesturlandi
Kjötv. Sigurðar, Reykjavík
Neta- og veiðarfærag., N-vestra
Sparisj. Norðlendinga, N-eystra
Skúli Jónsson, N-vestra
E-riðill:
Holtakjúklingur, Reykjavík
Ingvar Jónsson, N-vestra
Kristján M. Gunnars, Suðurlandi
Þróun, Reykjanesi
Mjólkurbú Flóam., Suðurlandi
Ríkiskaup, Reykjavík
Sigurður Tómasson, Vesturlandi
KEA Búbót, N-eystra
Undanúrslitin hefjast föstudag-
inn 5. mars kl. 14 á fyrirliðafundi.
Spilamennska hefst kl. 15 og verða
spilaðir 2 leikir. A laugardag hefst
spilamennska kl. 11 og verða
spilaðir 3 leikir. A sunnudag verð-
ur byrjað kl. 10.30 og spilaðir 2
leikir.
Bridsfélag
Borgarljarðar
Mánudaginn 22. febrúar var
spilaður eins kvölds tvímenningur
með þátttöku 11 para. Keppnin var
að venju hörð og spennandi en eftir
harkaleg átök tveggja efstu par-
anna í síðustu umferðinni, þar sem
flestir „fóru um víðan völl“ í sögn-
um, urðu úrslit þessi:
Sveinbjörn - Þorvaldur 148
Orn - Jón Einars 146
Magnús M. - Jón Pétur 133
Jón Eyjólfs - Baldur 128
Seinna Venusarmóti vetrarins
lauk þriðjudaginn 23. febrúar og
var þátttaka ágæt víða af Vestur-
landi. Nokkur pör áttu möguleika á
sigri og mátti glöggt greina vænt-
ingar og vonir víða um salinn. En
það er aldrei rúm nema fyrir einn
sigurvegara og þegar Guðjón Ingvi
Stefánsson breiðir úr sér við spila-
borðið með ekki ómerkari aðstoð-
armann en Kristján Bjöm Snorra-
son þá verður allt undan að láta.
64,9% skor þeirra félaga fleytti
þeim ömgglega í efsta sætið og
aðrir sátu eftir með mismunandi
sárt ennið. Annars urðu úrslit
þessi:
Guðjón Ingvi - Kristján, Borgamesi 516
Erlingur - Þorsteinn, Akranesi 477
Jón E. - Guðmundur A, Borgamesi 449
Mánudagana 8. og 15. mars
verður Þórismótið spilað í Loga-
landi. Mótið er kennt við okkar
ágæta félaga Þóri Leifsson og
hann lætur sig ekki muna um að
renna í Borgarfjörðinn og taka í
spil við gömlu félagana. Spilarar
eur hvattir til að fjölmenna og ekki
væri verra ef þeir létu vita af þátt-
töku síma 437 0020 eða 437 0029.
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Þegar búin er 21 umferð af
Aðaltvímenningi er staða efstu
para eftirfarandi:
Sigurður Ámundason - Jón Þór Karlsson 192
Baldur Bjartmarss. - Halldór Þorvaldss. 182
Jens Jensson - Jón Steinar Ingólfsson 147
Páll Agúst Jónsson - Arni Már Arason 129
Guðrún Jörgensen - Guðlaugur Sveinsson 123
Besta skor 22. feb. sl.:
Guðjón Bragason - Helgi Bogason 87
Jónína Pálsdóttir - Jón Stefánsson 86
Eðvarð Hallgrimss. - Valdimar Sveinss. 84
Leifur Jóhannesson - Bjami Amason 84
í DAG
Listin að gefa
af sjálfum sér
UM miðja öldina átti ís-
lenska þjóðin sér nokkra
framúrskarandi
fijálsíþróttamenn sem
héldu uppi merki landsins
á erlendum vettvangi.
Einn þessara frábæru
kappa var Haukur
Clausen sem heyr nú sína
hörðustu baráttu á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Væri ekki tilvalið fyrir
þig, lesandi þessara lína,
að fórna hluta af tíma þín-
um til að hugsa hlýlega til
Hauks og aðstandenda
hans, sem hefur gefið þjóð
sinni svo miklu meii’a en
flestir aðrir. Ég er sann-
færður um að ef þú les-
andi þessara lína verður
margfaldur við að senda
jákvæðar hugsanir, þá
verðum við vitni að sönnu
kraftaverki. Við erum
einskonar lífræn
senditæki og getum haft
jákvæð áhrif t.d með
bænahaldi.
Baráttukveðjur,
Ólafur Þór Eiríksson.
Hvenær fáum
við endurgreitt?
HVENÆR á að skila end-
urgreiðslu til greiðend-
anna, þeirra sem borguðu
of háar tryggingar til
Brunabótafélags Islands,
þar til það var lagt niður.
Sumir tala um eignir upp á
ca. 2 milljarða. Það verður
ekkert embættismanna-
mix í kringum þetta. Þess-
um peningum á að skila til
eigenda þeirra sem borg-
uðu þá, svo einfalt er það.
Tilfærsla stenst enga
EES-samninga. Ekkert
alþingismix um óheiðar-
leika, nóg er samt.
Fyrrverandi
tryggingatakar.
Góður þáttur
í sjónvarpinu
ÞEIR sem eru fróðleiks-
fúsir ættu að horfa á þátt í
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
RÚV á mánudagskvöldum
um lok síðari heimsstyrj-
aldarinnar og kalda
stríðið. Þetta eru mjög
vandaðir þættir og mjög
vel gerðir. Talað er við
fyrrv. ráðgjafa, hermenn
og borgara. Þetta eru góð-
ir þættir sem vert er að
horfa á.
Sammála
miðbæjarkonu
ÉG vil taka undir þau
skrif sem miðbæjarkona
skrifaði í Velvakanda 23.
febrúar sl. Það er með
ólíkindum hvað verslanir
við Laugaveginn og
Bankastræti komast upp
með að hafa gangstéttar
fyrir framan verslanir sín-
ar illa hreinsaðar. Fyrir
réttu ári síðan datt ég í
Bankastræti 12, fyrir
framan skartgripaverslun
Guðmundar Þorsteinsson-
ar, og handleggsbrotnaði
illa og bíð þess aldrei bæt-
ur. Og enn í dag er sami
slóðaskapur hjá verslun-
um við Laugaveg og
Bankastræti.
Mig langar að þakka
Brynjólfir Mogensen
lækni fyrir alla hjálpina.
Kona úr vesturbænum.
Góður fiskréttur
burtu vegna slysahættu og
hávaða, ég vildi í staðinn
eyða þessum rúma millj-
arði, sem talað er um að
eigi að setja í endurbætur
á vellinum, í að búa til raf-
magnsjámbraut frá Kefla-
víkurflugvelli beint niður
að Loftleiðahóteli með
stöðugum ferðum. Um leið
og flugvélar lenda fari
brautin af stað o.s.frv.
Þætti gaman að heyra frá
fólki sem hefur vit á þess-
um málum en þetta er
vistvænn ferðamáti.
Miðbæjarbúi.
Didda. Síðbúnar innilegar
hamingjuóskir með 65 ára
afmælið. Frá bróður þin-
um og mágkonu. Þeir sem
kannast við pakkann geta
haft samband í síma
437 1200 eða 473-1173 eft-
ir kl. 18.
Grátt seðlaveski
týndist
GRÁTT seðlaveski týndist
sl. sunnudagsmorgun, lík-
lega milh Safamýrar og
Blöndubakka. Skilvís ftnn-
andi hafi samband í síma
895 7762.
Gefum fuglunum á Tjöminni
LESANDI hafði samband við Velvakanda og biður
hann fólk um að vera vakandi yfir fuglunum á Tjöm-
inni. Nú sé búinn að vera langur kuldakafli og fuglarnir
fái ekki nóg æti. Hvetur hún fólk til að fara niður að
Tjörn og gefa fuglunum. Einnig biður lesandi fugla-
fræðinga um að svara þvi hvort nægilegt æti sé til stað-
ar fyrir gæsina, annars staðar en við Tjömina.
ÉG fór út í Kringlu í gær
og þar var kynning á ýsu í
kryddhjúp. Var þetta ný
ýsa og mjög góð. Ég er
gömul kona og finnst mér
gott að fá tilbúinn mat.
Þessi réttur, ýsa með
sítrónu og kryddhjúp, var
frábær og heitir hann
Sjávarfang sælkerans.
Aðeins þarf að bregða
þessu á pönnuna. Kærar
þakkir fyrir góðan rétt og
vonandi verður framhald á
þessari framleiðslu.
Gyðja Jóhannsdóttir.
Til þeirra sem
vit hafa á
ÉG er ein af þeim sem
vilja Reykjavíkurflugvöll í
Tapað/fundið
Frakki tekinn í mis-
gripum á Akranesi
DÖKKBLÁR frakki úr
kasmímll, með Lotto merki
í kraganum, var tekinn í
misgripum og annar skilinn
eftir, fimmtudaginn 18.
febrúar í sal Fjölbrauta-
skólans á Akranesi. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 4311163 eða431 2188.
Pakki í óskilum
í Hyrnunni
PAKKI er í óskilum í
Hymunni í Borgamesi.
Hann er merktur: Kæra
Gucci-gleraugu
í óskilum
GUCCI-gleraugu fundust
efst á Laugavegi nálægt
MR-búðinni sl. mánudag.
Upplýsingar í Auganu,
gleraugnaverslun í Kringl-
unni í síma 568 9111.
Dýrahald
Læða
í óskilum
LÆÐA svört með hvítar
loppur, fannst sl. þriðju-
dagskvöld í Hvömmunum
í Kópavogi. Upplýsingar í
síma 554 2218.
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaii
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
SUM-UNE
dömubuxur frá
gardeur
Öiuntu
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 5611680
Víkverji skrifar...
TÍMARITIÐ Frjáls verslun á
60 ára afmæli um þessar
mundir og af því tilefni ákváðu út-
gefendur þess að senda öllum
félagsmönnum VR ókeypis eintak
af blaðinu. Það væri ekki í frásögur
færandi ef þeir, sem fengu blaðið,
hefðu ekki margir brugðist ókvæða
við, minnugir þeirra aðferða, sem
notaðar voru til að innheimta fyrir
tímaritið Þjóðlíf af fólki, sem ýmist
hafði borgað eða aldrei verið
áskrifendur. í blaðinu Vísbendingu
er greint frá því að sími útgefanda
hafi vart þagnað eftir þetta vegna
fólks, sem óttast að opni það blaðið
„muni óprúttnir handrukkarar um-
svifalaust krefja það um greiðslur".
Síðan segir í Vísbendingu: „Þjóðlíf
hefur greinilega skilið eftir sig
djúp spor, sem ekki hafa horfið
með nýjum kennitölum." Þeir, sem
óvænt fengu Frjálsa verslun inn
um lúguna hjá sér, þurfa sem sagt
ekki að óttast óvæntar heimsóknir.
xxx
HVERNIG fer maður að því að
bera mat á borð fyrir þúsund
manns í einu? Veitingamenn á
Broadway fengu að spreyta sig á
því verkefni um helgina þegar árs-
hátíð Flugleiða var haldin þar.
Uppselt var á árshátíðina og voru
matargestir 985, að því er segir í
Flugleiðafréttum. Þar kemur fram
að miðar á árshátíðina hafi selst
eins og heitar lummui', en senni-
lega hefur eitthvað annað verið í
matinn...
xxx
HÚSVITJANIR lækna hafa
löngum tíðkast, en það er
nýlunda að tannsmiðir veiti slíka
þjónustu. Kunningi Víkverja lenti í
því á dögunum að gera þurfti við
tönn og þurfti tannsmiður að fá
réttan lit til að geta unnið verk sitt.
Skipti engum togum að hann
heimsótti sjúklinginn með lita-
spjaldið undir hendinni og málið
var leyst. Þetta er þjónusta í lagi.
x x x
JÓNUSTULUNDIN var ekki
sú sama í bakaríi við Grensás-
veg, sem vinkona Víkverja átti
skipti við nýlega. Hún hafði keypt
köku í bakaríinu, en þegar á hólm-
inn var komið reyndist hún hörð og
óæt. Akvað vinkonan þá að í þetta
skipti skyldi hún ekki láta vaða yfír
sig og fór að skila kökunni. Um leið
og hún gekk inn í búðina kom þar
önnur kona, sem keypt hafði fjórar
kökur til að bera á borð í veislu.
Ein kakan hafði reynst hörð og
höfðu gestimir skilað henni. Þar
sem þeir höfðu skorið sér nokkrar
sneiðar af kökunni var hins vegar
ekki mikið eftir þegar konan kom í
búðina. Það stóð heldur ekki á
svari í afgreiðslunni þegar konan
kvartaði undan því að kakan hefði
verið óæt: „Nóg hefurðu étið af
henni!“ var svarið.
Vinkonu Víkverja blöskraði með-
ferðin á viðskiptavininum, en eftir
nokkurt stapp, sem meðal annars
snerist um skilgreiningu á lýsingar-
orðinu nýr (hún hafði sem sé spurt
hvort kakan væri ný og fengið þau
svör að svo væri, en það reyndist
síðan afstætt hvað við væri átt með
því), fékk hún peningana til baka
eins og reyndar hin konan. Þetta er
ekki þjónusta í lagi...
x x x
AÐ setur ugg að hinum
sprautufælnu við að sjá að
menn veikist af inflúensu þótt þeir
hafi látið bólusetja sig gegn henni.
Víkverja dagsins er meinilla við að
láta stinga í sig hvössum aðskota-
hlutum, hvort sem þeir eru framan
á sprautum eða á afturenda geit-
unga. Nú er það svo að bólusetn-
ingu getur fylgt eins eða tveggja
daga vanlíðan. Eigi maður í þokka-
bót á hættu að fá hálfa flensu fer
að verða spurning hvort maður
sleppi ekki bólusetningunni og taki
áhættuna á að fá heila flensu.