Morgunblaðið - 26.02.1999, Blaðsíða 62
62 FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Nr. var vikur Diskur Flytjandi Útgefandi
1. - T Acoustic Moods Ýmsir Ma
2. - 2 Pan Pipe Moods Ýmsir MCI
3. 3 13 Sings Bachnrnch & Dnvid Dionne Warwick MCI
4. - 1 The Best of Smokie Smokie BMG
5. 4 Classical Piono Moods Ýmsir MCI
6. - 1 Sox Moods Ýmsir MCI
7. 1 16 Gling gló Björk Smekkleyso
8. - 1 The Collection Richard Cluyderman CMC
9. - 1 Very Best of Acker Blik MCI
10. - 1 His Grentest Hits Kenny Rodgers Disky Intemational
Unnið of PricewaterhouseCoopers í somstorfi við Sombond hljómplötufromleiðenda og Morgunblaðið.
Rólegheitin ríkja
►ÞEGAR Tónlistinn Gamalt &
gott er skoðaður má sjá að Gling-
Gló plata Bjarkar Guðmunds-
dóttur hefur kvatt fyrsta sætið
eftir nokkurra vikna dvöl á
toppnum og fest sig í því sjö-
unda. Stemmningsplöturnar
„Acoustic Moods“ og „Pan Pipe
Moods“ eru í fyrsta og öðru sæti
og virðast þess lags plötur eiga
mjög upp á pallborðið hjá hlust-
endum nú um stundir.
Fæðubótarefni
frá Davina
Gæða prótein-
amínósýrur
Króm 1600 ug
Kreatin 100 gr-500 gr
L-carnitine 500 mg
ofl. ofl.
Kynning og ráðgjöf í Ingólfsapóteki, Kringlunni
föstudag 26/2 kl. 13-17 og laugardag 27/2 kl. 13-16.
Umboðsaðili: CETUS, Skipholt 50c, Reykjavík
Tea Tree olía...
unnin úr náttúrulegri lækningajurt
----------------------------------\
Tea Tree húðsnyrtivörurnar
frá Australian Bodycare eru
sýkladrepandi og jafnframt græðandi
Tea Tree húbkrem
(Antiseptic Lotion)
Goft fyrir þurra húð,
exem, fótasveppi og
eftir rakstur.
Tea Tree húðsápa
(Antiseptic Skin Wash)
Hreinsar vel fitu og
farSa af húð, varnar
fílapensla- og bólu-
myndun. GóS hand-
sápa fyrir heimiliS.
Tea Tree andlitskrem
(Acfive Face Cream)
Einstaklega gott fyrir
bólótta og
ofnæmisgjarna húS.
SölustaSir: Apótekin
Dreifing: NIKO ehf.
Grammy-verðlaunin
LAURYN Hill hélt Biblíunni á loft er hún tók við verðlaunum
sem besti frumheijinn.
MADONNA hafði betur en
Björk í flokki stuttra
tónlistarmyndbanda.
Lauryn Hill í
broddi kvenfylkingar
LAURYN Hill stal senunni á af-
hendingu Grammy-verðlaun-
anna aðfaranótt fimmtudags
þegar hún vann til fimm verð-
launa, þar á meðal fyrir breið-
skífu ársins og sem frumherji
ársins.
Hill, sem er 23 ára, hefur
unnið hug og hjörtu tónlist-
arunnenda með fyrstu sólóskifu
sinni „The Miseducation of
Lauryn Hill“. Hún söng áður
með Fugees og kom hingað til
lands þegar sveitin héit vei
heppnaða tónleika í Laugar-
dalshöll árið 1997.
Það þurfti engum að koma á
óvart að Celine Dion átti smá-
skífu ársins og lag ársins og var
það My Heart Will Go On úr
myndinni Titanic. Það bjuggust
hins vegar fáir við því að Hill
myndi slá met Carole King frá
árinu 1971 og vinna 5 Grammy-
verðlaun. Engin kona hefur
fengið jafn mörg Grammy-verð-
laun á einni afhendingu. King
fékk fern verðlaun á sínum
tíma fyrir breiðskífuna Ta-
pestry. Michael Jackson á metið
en hann vann átta verðlaun árið
1983 fyrir Thriller.
„Guð er frábær og sigrar
allt,“ sagði Hill þegar hún tók
við verðlaunum fyrir breiðskífu
ársins. Hún hóf kvöldið með 10
tiinefningar og uppskar helm-
inginn af því. Sólóskífa hennar
var ein af rómuðustu breiðskíf-
um ársins 1998 og seldist í ríf-
lega 6 milljónum eintaka um
heim allan.
Konur voru eins og undanfar-
in ár atkvæðameiri en karlpen-
ingurinn. Dion, Madonna, Alan-
is Morissette, Shania Twain og
nýliðarnir í kántrýsveitinni Dix-
ie Chicks fengu einnig fleiri en
ein verðlaun. Madonna, sem er
fertug, hefur verið heldur af-
skipt hvað Grammy-verðlaunin
áhrærir á 15 ára ferli sínum en
að þessu sinni vann hún þrenn
verðlaun, þar á meðal fyrir
bestu poppplötu, Ray of Light.
Hún hafði einnig betur en Björk
þegar hún var verðlaunuð fyrir
besta tónlistarmyndband. Ma-
donna hefur aðeins einu sinni
áður unnið Grammy-verðlaun
og var það árið 1991 í flokki
lengri tónlistarmyndbanda.
Morissette uppskar tvenn
verðlaun fyrir lag sitt Unin-
vited og Shania Twain fékk
tvenn verðlaun fyrir kán-
trýsmellinn You’re Still the
One. Þá fékk kántrýsveitin Dix-
ie Chicks tvenn verðlaun. Á
meðal annarra verðlaunahafa
var kántrýsöngvarinn Vince
Gill sem þar með hefur unnið
12 Grammy-verðlaun á ferlin-
um.
Aðrir sem unnu tvenn verð-
laun voru Brian Setzer
Orchestra, Stevie Wonder,
stjórnandinn Robert Shaw,
lagasmiðurinn Pierre Boulez og
Pat Metheny Group. Þetta var
líka gott kvöld fyrir þá ,sem eru
eldri í hettunni. Jimmy Page og
Robert Plant fengu fyrstu
Grammy-verðlaun sín en þeir
voru aldrei verðlaunaðir þegar
þeir spiluðu með Led Zeppelin.
Patti Page fékk fyrstu verðlaun
sín á 51 árs ferli sínum og blús-
maðurinn Otis Rush var einnig
verðlaunaður.
„Þegar ég hóf ferilinn var ég
ekki mikið fyrir svona lagað,“
sagði Elvis Costello sem deildi
sfnum fyrstu Grammy-verðlaun-
um með lagahöfundinum Burt
Bacharach. Beastie Boys öðluð-
ust líka í fyrsta skipti náð fyrir
augum þeirra sem greiða at-
kvæði um Grammy-verðlaunin
og féllu tvenn verðlaun í þeirra
skaut. Þá hreppti Eric Clapton
sín þrettándu verðlaun.
Kókóhundur á Kakóbarnum í dag
Góðir, þægir og
frægir strákar
Islenskt tónlistarlíf stendur í miklum blóma,
ekki síst meðal ungmennanna. Hildur Lofts-
dóttir vakti Kókóhund af værum blundi,
sem ætlar að leika í Hinu húsinu kl. 17 í dag.
„KÓKÓHUNDUR er búinn að vera
til lengi en ekkert í gangi,“ útskýrir
nývaknaður söngvari og
bassaleikari hljómsveitarinnar,
Róbert Örn Hjálmtýsson. Með
honum í bandinu eru trommarinn
Baldur Jack og Steindór Ingi
Snorrason sem leikur á gítar og
syngur líka. „Við tókum einu sinni
þátt í Músiktilraunum, það var bara
flipp en nú ætlum við að vera
góðir."
- Góðir og þægir strákar?
„Já, góðir, þægir og frægir. Við
munum láta alla á íslandi fá lögin
okkar á heilann. Þetta eru mjög
grípandi lög með grípandi textum,
allt á íslensku."
- Hvemig myndir þú skilgreina
tónlistina ykkar?
„Hún er sambland af The
Supremes, Bítlunum, Michael
Jackson og Creedence Clearwater."
- Er þetta þá ekki full gamaldags
tónlist af svo ungum karlmönnum
að vera að leika?
„Nei, þetta er popp með
rafmagnsgítar, engin nýbylgja, bara
venjuleg tónlist. Samt er engin
sambærileg hljómsveit á fslandi."
- Þannig að á tónleikunum í dag
eruð þið að koma fram á
sjónarsviðið í fyrsta skipti
almennilega?
„Já, nú erum við búnir að semja
öll lögin, og þá er þetta komið.“
- Eruð þið með mörg lög á
efnisskránni?
„Já, alveg milljón, alveg rosalega
mörg lög. Við Steindór erum með
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
KÓKÓHUND skipa Róbert Örn
Hjálmtýsson, Baldur Jack og
Steindór Ingi Snorrason. Þeir
halda tónleika á Kakóbarnum í
Geysishúsinu kl. 17 í dag.
gott upptökutæki, og erum í eitt og
hálft ár búnir að taka upp alveg
ótrúlegustu hluti sem eru orðnir að
mjög góðum lögum.“
- Hvernig á svo stemmningin að
vera í dag?
„Það væri fínt ef allir gætu mætt
með hárkollur og jafnvel gervinef,
það yrði skemmtilegt."