Morgunblaðið - 19.03.1999, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1999 13
Stykkishólmur
Ólafsvík
^•Arnarstapi
* Hellnar
Fyrirhuguð leið
um Vatnaheiði
Bflgreinasambandið gagnrýnir skattalega meðferð á fyrirtækjabflum
Hlunnindaskattur
og vsk. af sama bfl
staklingnum sem hefði bílinn til
notkunar.
„I gildi eru sértækar reglur um
meðferð bfla sem ei-u ekki í takt við
reglur um önnur rekstrartæki fyr-
ii-tækja, eins og tölvur svo dæmi sé
tekið,“ segir Bogi.
-------+++-------
Deilt um
nýbygging-
arsvæði í
borgarráði
VINNA við deiliskipulag og undir-
búningur framkvæmda í Grafar-
holti er mun lengra kominn en við
Norðlingaholt/Klappai-holt og því
engin efnisleg rök fyrir því að
breyta framkvæmdaröðinni sem
þegar hefur verið mörkuð, segir í
frávísunartillögu Reykjavíkurlista
vegna tillögu Sjálfstæðisflokks um
að lokið verði nú þegar skipulags-
vinnu í Norðlingaholti. Frávísunar-
tillagan var samþykkt með fjórum
atkvæðum meirihluta gegn þremur
atkvæðum minnihluta í borgarráði
á þriðjudag.
Tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins um að borgar-
skipulagi yrði falið að ljúka nú þeg-
ar gerð deiliskipulags við Norð-
lingaholt var lögð fram á fundi
borgarráðs á ný og var henni vísað
frá. Tillagan gerði jafnframt ráð
fyrir að borgarlögmanni og borgar-
verkfræðingi yrði falið að ganga til
samninga um það land sem enn er í
einkaeign á svæðinu.
Lóðarmál í
ógöngum
I bókun sjálfstæðismanna vegna
tillögu Reykjavíkurlista segir að
skipulags- og lóðamál í borginni
séu í miklum ógöngum og lóða-
skortur mikill. Hann valdi því að
einstaklingar og atvinnufyrirtæki
sem vilji byggja í borginn flytji í
önnur byggðarlög, fasteignaverð
hækki og lóðabrask eigi sér stað.
Bent er á að vinna við deiliskipulag
Grafarholts hafi tekið ótrúlega
langan tíma eða rúmlega 4 ár og
þrátt fyrir yfirlýsingar Reykjavík-
urlistans um nauðsyn þess að meta
arðsemi nýrra íbúðarhverfa hafí
ekkert slíkt mat farið fram í Graf-
arholti.
A Norðlingaholti séu til drög að
deiliskipulagi. Það sé sérkennileg
afstaða Reykjavíkurlistans að
leggjast gegn því að ganga til
samninga um það land á Norð-
lingaholti sem enn sé í einkaeign
og fela borgarskipulagi að ljúka
gerð deiliskipulagsins.
Sýndartillaga að
mati meirihluta
Fulltrúar Reykjavíkurlista
sögðu í bókun sinni fráleitt að gera
ráð fyrir úthlutun lóða í Norðlinga-
holti á þessu ári. Tillaga sjálfstæð-
ismanna fæli í sér annars vegar
seinkun á lóðaúthlutun ef fallið yrði
frá úthlutun í Grafarholti eða mikla
og óhagkvæma fjárfestingu á
tveimur nýbyggingarsvæðum, ef
farið yrði í Grafarholt og Norð-
lingaholt á sama tíma. Engin til-
laga hafí komið fram hjá Sjálfstæð-
isflokknum um aukin framlög til
gatnagerðar og holræsafram-
kvæmda á þessu ári. Tillaga þeirra
væri þvi sýndartillaga og liður í
pólitískum hráskinnsleik sem ekki
væri í þágu borgarbúa.
af, hefur hins vegar ekki heimild til
að afskrifa bílinn nema um sem
nemur 10% að hámarki.
Fyrirtækið hefur því ekki heim-
ild til að afskrifa bílinn á þeim
sama tíma og starfsmaðurinn á að
vera búinn að borga hann upp að
fullu sem hlunnindi. í þessu felst
ósamræmi. Auk þess er rekstrar-
kostnaður bflsins ekki frádráttar-
bær hjá fyrirtækinu umfram þá
upphæð sem starfs maðurinn telur
fram í sínu skattfram tali. „Skatt-
yfirvöld samþykkja þannig í raun
ekki að neinn kostnaður við rekst-
ur bílsins sé tilkominn vegna starf-
semi fyrirtækisins", segir Bogi.
Hann segir að sjónarmið Bíl-
greinasambandsins í þessu máli sé
það að allir bílar sem fyrirtæki
kaupa ættu að vera innskattshæfir
líkt og tíðkast t.d. í Þýskalandi. Bíl-
arnir yrðu ekki sérmerktir og eftir-
litskostnaður sem samfara er því
kerfi sem nú er við lýði yrði óþarf-
ur. Bogi kveðst ekki sjá að ríkis-
sjóður yrði af tekjum með slíku
kerfi því í stað virðisaukaskatts af
bílakaupum fyrirtækis kæmi
hlunnindaskattur starfsmanns. Á
endanum fæm bflarnir auk þess út
á almennan markað þar sem
greiddur yrði virðisaukaskattur af
honum sem notuðum bfl. Að sönnu
reiknaðist skatturinn þá af lægri
stofni en á móti kæmi að ríkissjóð-
ur fengi hlunnindaskatt frá ein-
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Dorgað í Reynisvatni
VEIÐI í gegnum ís í Reynisvatni
fyrir ofan Reykjavík hefur verið
góð í vetur. Enda er fiskum bætt
í vatnið jafnharðan og þeir veið-
ast. Á dögunum var veiðidagur
fatlaðra og hér má sjá hvar Þor-
steinn Jónsson hefur dregið fisk
upp á ís.
BÍLGREINASAMBANDIÐ gagn-
lýnir skattalega meðferð á bifreið-
um sem fyrirtæki kaupa. Bogi
Pálsson, formaður Bflgreinasam-
bandsins, segir málið tvíþætt og
varði annars vegar reglur um virð-
isaukaskatt og hins vegar hlunn-
indaskatt starfsmanna fyi-ir tækja.
Bílgreinasambandið gagnrýnir
að fólksbílar í atvinnurekstri séu
ekki innskattshæfir. Verktakafyr-
irtæki sem flytji starfsmenn milli
vinnustaða geti til að mynda ekki
nýtt innskatt af fólksbflum til þess-
ara nota. Sé bíllinn ætlaður til
flutnings á vamingi fæst virðis-
aukaskatturinn frádreginn. Þá
fylgja þau skilyrði að bílinn verður
að geyma á starfsstöð á nætur og
um helgar, ekki má nýta hann til
einkaafnota og aðeins til að flytja
vaming.
„Þetta er algjörlega gegn anda
virðisaukaskattslaganna þar sem
gert er ráð fyrir að virðisaukaskatt
ur af rekstrarkostnaði fyrirtækja
eigi að vera frádráttarbær á móti
tekjuöflun," segir Bogi.
Kaupi fyrirtæki bíl til fólksflutn-
inga sem starfsmaður hefur til
einkaafnota greiðh- starfsmaðurinn
hlunnindaskatt sem er 20% af
verðmæti bflsins og afskrifast bíll-
inn því að fullu á fimm ámm. Fyr-
irtækið sem á bflinn, og hefur
greitt virðisaukaskatt af og starfs-
maður greiðir 20% hlunnindaskatt
Frjálslyndi
flokkurinn
Tvö kjör-
dæmisfé-
lög stofnuð
um helgina
TVÖ kjördæmisfélög Frjáls-
lynda flokksins verða stofnuð
um helgina, í Suðurlands-
kjördæmi og Vesturlands-
kjördæmi, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá
flokknum.
Stofnfundur kjördæmisfé-
lags Suðurlands verður hald-
inn laugardaginn 20. mars kl.
14 á Hótel Selfossi.
Stofnfundur kjördæmisfé-
lags Vesturlands verður hald-
inn á Mótel Venus við enda
Borgarfjarðarbrúar á sunnu-
dag, 21. mars kl. 16.
Sverrir fer fram
á Vestfjörðum
Áður hafa verið stofnuð
kjördæmisfélög í öllum öðmm
kjördæmum nema Vestfjarða-
kjördæmi, en það verður
foi-mlega stofnað á næstunni.
Formaður flokksins, Sverrir
Hermannsson, hefur tilkynnt
að hann ætli að bjóða sig fram
í því kjördæmi.
Fjallvegir á Snæfellsnesi
Hellissandur
Kynntar tillögur um nýjan veg í stað Kerlingarskarðsvegar
Vegur um Vatnaheiði
er fýsilegur kostur
VEGAGERÐ ríkisins hefur kynnt
tvær tillögur um nýjan veg sem
kæmi í stað leiðarinnar yfir Kerl-
ingarskarð. Annars vegar er lagt
til að gamli vegurinn verði endur-
bættur, en kostnaðurinn við það
yrði um 490 milljónir króna. Hins
vegar er lagt til að leggja nýjan
veg yfír Snæfellsnesfjallgarðinn
um Vatnaheiði, en kostnaðurinn við
það yrði um 460 milljónir.
Gæsluvarðhald
framlengt til 1. aprfl
HERAÐSDOMUR Reykjavíkur
hefur fallist á kröfu ríkislögreglu-
stjóra um að framlengja til 1. apríl
gæsluvarðhald Nígeríumann, sem
innleysti falsaðar ávísanir fyrir á
tólftu milljón króna í Islandsbanka.
Hefur lögmaður mannsins kært
úrskurðinn til Hæstaréttar. Níger-
íumaðurinn hefur setið í gæslu-
varðhaldi frá 23. febrúar.
Gæsluvarðhaldi annars Nígeríu-
manns, sem úrskurðaður var í
gæsluvarðhald í kjölfar handtöku
hins, lýkur einnig 1. apríl nk.
Vegagerðin leggur áherslu á að
leiðin um Vatnaheiði verði valin,
því kostirnir við hana séu margir,
en segja má að öryggissjónarmið
vegi þyngst. Könnun á ferðaöryggi
um Vatnaheiði bendir til þess að
leiðin verði a.m.k. 50% öruggari en
endurbættur Kerlingarskarðsveg-
ur. Blindhæðir á Vatnaheiði yrðu
nánast engar og vegurinn yrði
jafnari í beygjum og hæð en endur-
bættur vegur um Kerlingarskarð.
Ef lagður verður nýr vegur um
Vatnaheiði mun hann fara yfir
óraskað land en skýrsla um um-
hverfismat mun verða send til
Skipulagsstofnunar eftir tvær vik-
ur og þá verður hægt að gera at-
hugasemdir við fyrirhugaðar fram-
kvæmdir.
Dregið úr bröttum brekkum
og beygjur jafnaðar
Ef vegurinn um Kerlingarskarð
yrði endurbættur yrðu helstu
framkvæmdirnar fólgnar í því að
breyta aðkomunni að skarðinu til
að draga úr halla, og að draga úr
bröttum köflum og jafna beygjur.
Kostnaðurinn við þessai- fram-
kvæmdir liggur einna helst í því
hversu mikið þyrfti að fylla upp í
veginn til að jafna hæðina á hon-
um.
Ekki arðsamar
vegaframkvæmdir
Að sögn Auðuns Hálfdánarson-
ar, hjá Vegagerðinni, er ekki um
mjög arðsamar vegaframkvæmdir
að ræða en hann bætti því við að
allt öryggi í landflutningum myndi
aukast.
Auðunn sagði að Síðan 1977
hefðu menn verið að velta fyi'ir sér
möguleikum í vegaframkvæmdum
á svæðinu, en að skriður hefði
komist á málið fyrir um 3 árum. I
haust er áætlað að taka ákvörðun
um hvora leiðina skuli velja og ætti
nýr vegur að verða tilbúinn árið
2001 eða 2002.