Morgunblaðið - 19.03.1999, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins fékk 362 umsóknir á fyrsta starfsárinu
Hagnaður-
inn nam 491
milljón króna
Morgunblaðið/Golli
ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra og Páll Kr. Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs, ræða málin á ársfundi sjóðsins í gær.
NÝSKÖPUNARSJÓÐUR atvinnu-
lífsins fékk 362 umsóknir á síðast-
liðnu ári, fyrsta rekstrarári sjóðs-
ins, mun fleiri en gert var ráð fyrir.
Sjóðurinn tók þátt í 22 fjárfesting-
arverkefnum, veitti þrjú áhættulán
og úthlutaði 98 styrkjum til marg-
víslegra verkefna á árinu. Hagnað-
ur sjóðsins nam 491 milljón króna í
fyiTa.
Af einstökum rekstrareiningum
Nýsköpunarsjóðs er Stofnsjóður
umfangsmestur, en heildartekjur
hans námu tæpum 547 milljónum
króna í íyrra. Vörslutekjur Stofn-
sjóðs umfram gjöld námu tæpum
527 milljónum króna. Nam ávöxtun
á fjögurra milljarða króna stofnfé
stofnsjóðs því tæplega 13,2% á árs-
grundvelli. I september og október
var samið við fimm innlenda og er-
lenda aðila um fjárvörslu á rúmum
3.200 milljónum króna. Skilaði sú
fjárvarsla mjög góðri ávöxtun síð-
ustu mánuði ársins að sögn Páls Kr.
Pálssonar, framkvæmdastjóra Ný-
sköpunarsjóðs.
74 milljóna króna framlag Stofn-
sjóðs á afskriftarreikning, sem
nemur um 15% af fjárfestingum í
nýsköpunarverkefnum ársins, kann
að vekja spurningar um hvort tap
hafi orðið á nýsköpunarfjárfesting-
um sjóðsins. Páll Kr. sagði að í því
sambandi væri rétt að benda á að
fyrstu árin eftir að nýsköpunarfjár-
festing ætti sér stað í frumstigsfýr-
irtækjum, á borð við þau sem sjóð-
urinn einbeitir sér að, væru miklar
líkur á að áætlað markaðsvirði
eignarhluta lækkaði. Því væri eðli-
legt að stærstur hluti þess kostnað-
ar væri gjaidfærður. „Það er því
erfítt að fullyrða nokkuð um hvern-
ig tekist hefur til í þeim nýsköpun-
arverkefnum sem sjóðurinn fjár-
festi í á fyrsta ári starfseminnar,
fyrr en að tveimur til þremur árum
liðnum.“
Aukið samstarf
stuðningsstofnana?
Páll Kr. sagði að mikill hagnaður
stofnsjóðs kynni að vekja athygli.
Mikilvægt væri að sýna fram á góð-
an hagnað til að styrkja eiginfjár-
stöðuna og skapa sjóðnum aukið
svigrúm til að efla starf sitt á sviði
nýsköpunarfjárfestinga og styrk-
veitinga til áhugaverðra nýsköpun-
arverkefna. „Þá er einnig mikilvægt
að varðveita vel og byggja upp fjár-
hagslegan styrkleika sjóðsins til að
hann geti tekið þátt í og jafnvel leitt
ýmsar breytingar sem æskilegt
gæti verið að gera í umhverfi stuðn-
ingsaðgerða opinberra aðila við at-
vinnulífið. Vel mætti hugsa sér að
Úr reikningum
Nýsköpunarsjóðs 1998
Vörslutekjur og fjármagnsgj.
Vörslutekjur millj. kr. 613.250,1
Fjármagnsgjöld (14.868,2)
Samtals___________598.381,9
Rekstrargjöld 91.829,1
Rekstrargjöld alls
Hagn. f. fjárf.verkefni 506.552,8
Fjárfestingaverkefni
Tekjur v. fjárf. í eignarhl. 16.090,5
Tekjur v. fjárf. í skuldabr. 43.246,8
Framlag í afskriftareikning I (74.880,1)
Samtals (15.542,7)
Hagnaður ársins 491.010,1
Efnahagsreikningur
Fastafjármunir 912.948,9
Veltufjármunir 5.368.961,7
Eignir alls 6.281.910,6
Skuldlr og eigið fé
Eigiðfé 6.065.913,1
Langtímaskuldir 33.631,6
Skammtímaskuldir 182.365,9
Eigið fé og skuldir 6.281.910,6
slíkar aðgerðir gætu falist í auknu
samstarfi eða jafnvel samruna ým-
issa stofnana, sem fjármagnaðar
eru að verulegu leyti af opinberu fé,
til stuðnings við rekstrartæknilega
þætti í starfsemi íyrirtækjanna í
landinu,“ sagði Páll Kr.
Stofnsjóður hefur til ráðstöfunar
til fjárfestingaþátttöku fjár-
magnstekjur af fjögurra milljarða
króna höfuðstól sínum, að frádregn-
um rekstrarkostnaði, og allt að 15%
af tekjum, sem varið skal til styrkja.
Stofnsjóði bárust 164 umsóknir
vegna fjárfestingar og 41 umsókn
um styrki. Alls voru 112 erindi
vegna fjárfestingarþátttöku af-
greidd og þar af var 87 hafnað. 25
voru samþykkt, í 22 tilvikum var um
að ræða ákvörðun um hlutafjárþátt-
töku og áhættulán í þremur tilvik-
um. Fjárfest var að meðaltali um 34
milljónir ki’óna í hverju verkefni og
nemur meðaleignarhlutur rúmlega
20%. 39 umsóknir voru óafgreiddar
hjá stofnsjóði um áramót.
Stofnsjóður ákvað að verja sam-
tals 75 milljónum króna til styi'kja á
sl. ári. Helmingur framlagsins kom
frá stofnsjóði sjálfum en hinn helm-
ingurinn frá Vöruþróunar- og
markaðsdeild. Sjóðnum barst 41
umsókn um styrki og voru 37 af-
greiddar á árinu. 13 verkefnum var
hafnað en þátttaka ákveðin í 24,
samtals að fjárhæð 74,8 milljónir
króna.
Mikil eftirspum hjá vöm-
þróunar- og markaðsdeild
Vöruþróunar- og markaðsdeild
bárust 143 umsóknir á árinu og þar
af voru 116 teknar til afgreiðslu. 42
umsóknum var hafnað en 74 sam-
þykktar og þeim veittir styrkir að
fjárhæð 124,5 milljónir samtals.
Upphaflega var ætlunin að starf-
rækja vöruþróunar- og markaðs-
deildina aðeins fyrstu þrjú starfsár
Nýsköpunarsjóðs. Á fundinum kom
fram að spum eftir þjónustu deild-
arinnar hefði hins vegar aukist eftir
því sem leið á árið. I ljósi þeirrar
reynslu hefur verið ákveðið að
breyta starfsreglum deildarinnar og
takmarka starfstímann ekki við
þrjú ár.
Tryggingadeild útflutningslána
fékk fjórtán umsóknir á árinu og
voru átta þeirra afgreiddar. Var
þremur verkefnum hafnað en fimm
samþykkt.
„A EG AÐ TRUA ÞVI
AÐ ISLENDINGURINN SÉ BÚINN
AÐ SKRIFAUNDIR
OG FARINN HEIM?"
Á Saga Business Class bjóðast tíðar
áætlunarferðir og dýrmætur sveigjanleiki.
Þannig má stytta viðskiptaferðir til útlanda,
auka afköst starfsmanna, nýta tímann betur
og draga úr ferðakostnaði.
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi
Vefur Flugleiða á Intemetinu: www.icelandair.is • Netfang fyrir almennar upplýsingar: info@ice)andair.is
„Harðuri samningum, sá íslcnski.
Ilaim skildi cftirgjöf lianda pcr. “