Morgunblaðið - 19.03.1999, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.03.1999, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1999 19 Fyrirlestur um 2000- vandann VIÐSKIPTI Hagnaður Sjóvár-Almennra 464 milljónir króna á síðasta ári Ollum starfsmönnum gefinn hlutur í félaginu HAGNAÐUR Sjóvár-Almennra var 464 milljónir króna á síðasta ári, en árið 1997 var hagnaður félagsins 361 milljón ki'óna. Er aukinn hagn- aður þess m.a. rakinn til hagræð- ingar í rekstri samhliða auknum fjárfestingartekjum. Iðgjöld félags- ins í fyrra námu 4.834 milljónum króna, og hækkuðu þau um 8% milli ára. Fjárfestingartekjur voru 1.236 milljónir króna, og hækkuðu þær um 14% milli ára. A fundi stjórnar Sjóvár-Al- mennra í gær var ákveðið að allir starfsmenn félagsins yrðu hluthafar í því, en starfsmennirnir eru 133 talsins. Hver starfsmaður fær af- hent 6.000 kr. hlutabréf að nafn- virði, en miðað við gengi bréfa fé- lagsins er verðmæti hvers hlutar 150.000 krónur. Með því að afhenda starfsmönnum hlutabréfin er stjórn Sjóvár-Almennra að undirstrika þátt þeirra í góðri afkomu félagsins, en um leið er þetta liður í 10 ára af- mælishaldi þess. 15% arður til hluthafa Bókfærð tjón hjá félaginu á síð- asta ári námu 3.251 milljón króna og hækkuðu þau um 7% milli ára. Eigin iðgjöld námu 3.400 milljónum króna og hækkuðu þau um 10% frá fyrra ári, og eigin tjón námu 2.664 milljónum króna og lækkuðu þau um 2% frá fyrra ári. Hreinn rekstr- arkostnaður félagsins var 727 millj- ónir og lækkaði hann um 7% milli ára. Eigin vátryggingarskuld nam 10.104 milljónum króna og hækkaði hún um 7% milli ára. Hlutafé félagsins í árslok nam 585 milljónum króna og heildar eig- ið fé í árslok nam 2.374 milljónum og hækkaði það um 27% milli ára. Arðsemi eigin fjár var 24,9% á móti 22% árið á undan. Aðalfundur félagsins verður haldinn 26. mars næstkomandi og leggur stjórn þess til að greiddur verði 15% arður til hluthafa á árinu 1999. EINN fremsti sérfræðingm- heims um 2000-vandann, Karl Feilder sem er forstjóri fyrirtækisins Greenwich Mean Time í Bretlandi, mun halda fyrirlestur í Háskólabíói, sal 4, í dag föstudaginn 19. mars klukkan 15 - 18. I fyririestri sínum mun Feilder fjalla almennt um tölvuvandamál sem tengjast árfalinu 2000 en einnig mun hann víkja að ýmsum misskilningi sem sprottið hefur upp um þennan vanda, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Fyrir- tækið Greenwich Mean Time fram- leiðir Check 2000 forritið sem yfir- fer tölvukerfi íyrirtækja með tilliti til 2000 vandans, og eru notendur kerfisins meðal annarra Boeing, Compaq og Bandaríkjaher. Tækni- val stendur fyrir fyrirlestrinum og er hann öllum opinn. Morgunblaðið/Kristinn ARNGRIMUR Jóhannsson og Þóra Guðmundsdóttir frá Atlanta, Einar Jónsson frá Nóatúni, Svava Johansen og Ásgeir Bolli Kristinsson frá NTC, Edda Guðrún Jónsdóttir frá Tölvumyndum, eiginkona frumkvöðulsins Friðriks Sigurðssonar, sem var fjarverandi, Helga Gísladóttir og Eiríkur Sigurðsson frá 10-11 og Jón Sig- urðsson, forstjóri Össurar. Fjarverandi var Rúnar Sigurðsson frá Tæknivali. Frumkvöðlar fá viðurkenningu NÍU ÍSLENSKUM frumkvöðlum frá 7 íslenskum fyrii-tækjum á lista Europes 500 yfir 500 fram- sæknustu fyrirtæki í Evrópu á síðasta ári var í gær veitt viður- kenning fyrir árangurinn, í mót- töku sein efnt var til þeim til lieiðurs á Grand Hóteli í Reykja- vík. Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, afhenti frum- kvöðlunum verðlaunin og sagði meðal annars af því tilefni að um afrek hjá fyrii-tækjunum væri að ræða. Að móttökunni stóðu iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, Samtök iðnaðararins og Fjárfestingar- stofan, en iðnaðar- og viðskipta- ráðuneytið og Samtök iðnaðarins stóðu að röðun íslensku fyrir- tækjanna á listann. Sveinn Hannesson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðar- ins, sagði við afhendinguna að fjöldi íslenskra fyrirtækja á list- anum bæri gróskumiklu atvinnu- lífi hér á landi vitni og nefndi til samanburðar að í margfalt, stærri hagkerfum eins og í Nor- egi og á Irlandi hefðu lítt fleiri fyrirtæki náð inn á þennan lista, eða 8 frá Noregi en 11 frá ír- landi. Það íslenska fyrirtæki sem náði bestum árangri á listanum er flugfélagið Atlanta sem lenti í 20. sæti listans í ár. Umsvif Sparisjóðs vélstjóra jukust á síðasta ári Hagnaður um 114 millj- ónir króna UMSVIF Sparisjóðs vélstjóra jukust verulega á síðasta ári og var hagnað- ur sparisjóðsins eftir skatta 114,3 milljónir ki-óna en var tæpar 83 milljónir árið 1997 og jókst því um 38% milli ára. Vaxtatekjur voru 885,8 milljónir króna og höfðu vaxið um 23,6% frá árinu 1997. Vaxtagjöld voru 473,2 milljónir og var aukning þehra 11,8%. Aðrar rekstrartekjur voru 207,3 milljónir og höfðu vaxið um 11,7% á árinu. Tekjur af hluta- bréfum og öðrum eignarhlutum hækkuðu mjög mikið, eða úr 43,6 milljónum árið 1997 í 63,1 milljón, eða um 44,7%. Rekstrargjöld sparisjóðsins voru 448,3 milljónir króna á síðasta ári og höfðu þau vaxið frá fjTra ári um 32,2%. Launakostnaður hækkaði um 27,8% og var 171,6 milljónir ki'óna. Annar rekstrarkostnaður var 191,6 milljón og hafði hækkað á árinu um 25,7%. Sparisjóðurinn stóð í kostnað- arsömum endurbótum á húsnæði á árinu og miklum tölvukaupum sem er helsta skýiúngin á hækkuninni, að því er ft-am kemur í skýrslu spari- sjóðsstjóra með ársreikningum sparisjóðsins. Afskriftir rekstrarfjármuna og viðskiptavildar voru 28,8 milljónir króna sem er 56% hækkun frá fyrra ári og framlag í afskriftareikning út- lána hækkaði úr tæpum 34 milljón- um árið 1997 í 56,1 milljón, eða um 65,2%. Stafar þessi mikla aukning af stóraukningu útlána á árinu. Endan- lega töpuð útlán voru 10,9 milljónir króna og hefur verulega dregið úr útlánatöpum sé miðað við undanfarin ár, en árið 1997 var þessi upphæð 18,8 milljónir. Eigið fé Sparisjóðs vélstjóra var í árslok 1998 1.138,3 milijónir króna og hækkaði frá fyrra ári um 136,4 milljónir, eða 13,6%. Af eiginfé er hlutur stofnfjáreigenda 20,4 milljónir ki-óna. Heildarinnlán sparisjóðsins að verðbréfaútgáfu meðtalinni voru 9.236 milljónir króna í árslok og höfðu vaxið um 1.687 milljónir króna á árinu, eða um 22,3%. Innlán spari- sjóðsins voru 7.308 milljónir króna og hafa þau vaxið um 22,9% á árinu. Verðbréfaútgáfa sparisjóðsins nam 1.928 milljónum í árslok sem er 20,3% aukning frá árinu 1997. Heild- arútlán ásamt markaðsskuldabréf- um voru 10.470 milljónir króna í árs- lok og höfðu vaxið um 3.823 milljónir á ái'inu, eða um 47%. LAUGAVEGI 70, SÍMI/FAX 552 8141 Listræn gjafavara gallerí Listakot LAUGARDAGINN 13. MARS TIL FIMMTUDAGSINS 25. MARS Húsgagnadagar í Blómavali Frönsk handunnin sveitahúsgögn með sál liðinna alda Þetta eru húsgögn sem endast og endast fyrir heimili og sumarbústaði Borðstofu og eldhús húsgögn, sjónvarpsskápar, bókahillur og margt fleira. Eigum einnig góö húsgögn til fermingargjafa á frábœru verOi! 40-50% afsl. VlSA PTT 1111. i y a vegurn COLONY Sími 863 2317 - 863 2319 Ennfremur glæsilegir marmara og viðararnar. Þú getur staðsett þá hvar sem er í húsinu eða íbúðinni. Rafmagnshiti og snarkandi logi. Sjón er sögu ríkari! Enginn skorsteinn - Engin óþrif. Einnig allir fylgihlutir. FRÁBÆRT KYNNINGARVERÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.