Morgunblaðið - 19.03.1999, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Þór Gíslason
TJARNARKVARTETTINN flytur tónlistina sem er eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson,
frá vinstri Kristjana Arngrímsdóttir, Hjörleifur Hjartarson, Rósa Kristín Baldursdóttir
og Kristján Hjartarson.
aðinn, en hann kom þeim heldur
betur á bragðið. Þær gripu
ófrjálsri hendi ýmsan varning frá
bændum og betri borgurum sem
eins og gefur að skilja tóku því af-
ar illa.
„Leikrit okkar er byggt á þess-
ari sögu, þar fengum við hug-
myndina en þetta er ekki sagn-
fræði. Við búum til okkar eigin
sögu og höfum viðað að okkur
mörgum atriðum úr öðrum áttum.
Við lásum mikið og kynntum okk-
ur líf og kjör fólks í Reykjavík á
þessum tíma og reyndum að átta
okkur á bæjarbragnum,“ sagði
Kristín.
Vatnsberarnir voru
fjölmiðlar þessa tíma
„Ég held að Reykjavík hafí ver-
ið óskaplega skítug,“ sagði Iðunn
spurð um bæjarbraginn í höfuð-
borginni fyrir 120 árum. Eftir Að-
alstrætinu endilöngu lá ræsi sem
íbúarnir notuðu meðal annars til
að skvetta úr koppum sínum.
„Þetta hefur verið heldur daunill-
ur bær og stéttaskiptingin var
mikil,“ bætti hún við. Á Ingólfs-
torgi var krá og var hún þrískipt,
betri borgarar fengu sér tár í fín-
ustu stofunni, þá var herbergi þaf
sem millistéttarfólkið var og svj')
var það „svínastían" en þar
drukku dónarnir og þeir sem
minnst máttu sín. Vatnsberarnir,
þeir sem báru tvær fímmtán lítra
vatnsfotur heim í húsin, voru
lægst settir allra, en í því starfi
lentu oftast einstæðingar og eldríi
fólk. „Það var sagt að engir hefðii
haft það jafnslæmt og útigangs-
hestar og gamlar konur,“ segja
MARGRÉT Ákadóttir í hlutverki Droplaugar vatnsbera í kaffi hjá Thormodsen fógeta.
Vatnsberarnir voru nokkurs konar fjölmiðlar þess tíma, þeir báru ekki bara vatnið milli
húsa heldur líka sögur og fyrir góða sögu var gjaman launað með svonefndum sögubita.
„GEKK ég upp á hólinn." Vatnsberamir og frk. Madsen horfa til him-
ins. Þráinn, Aðalsteinn, Katla og Sunna í hlutverkum sínum.
Morgunblaðið/Kristján
HÖFUNDARNIR Iðunn og Kristín Steinsdætur.
Leikfélag Akureyrar frumsýnir leikrit eftir Iðunni og; Kristínu Steinsdætur
Systur
í syndinni
LEIKFELAG Akureyrar frum-
sýnir leikritið Systur í syndinni
eftir systumar Iðunni og Kristínu
Steinsdætur í kvöld, föstudags-
kvöldið 19. mars. Kolbrún Hall-
dórsdóttir leikstýrir verkinu, Elín
Edda Árnadóttir hannar leik-
mynd og búninga og Hróðmar
Ingi Sigurbjömsson samdi tón-
listina.
Sögusvið leikritsins er Reykja-
vík á árunum eftir 1870 og gerist
leikurinn að mestu við Prent-
smiðjupóstinn í Aðalstræti og í
baðstofunni í Litlakoti. „Iðunn var
að lesa gamlan þjóðlegan fróðleik
og fann þá meðal annars bækur
Jóns Helgasonar ritstjóra og rit-
höfundar, íslenskt mannlíf, þar
sem er að finna örlagasögur af
ýmsu tagi og datt þá ofan á frá-
sögn sem hét Systur í syndinni,“
sagði Kristín um upphaf þess að
þær hófu að skrifa leikritið.
Villtust inn á biskupsstofu og
glæpaferillinn hófst
„í sögunni er brugðið upp
skemmtilegri mynd af lífinu í
Reykjavík á þessum tíma og koma
ýmsar persónur við sögu sem
lenda í mörgu misjöfnu og þurfa að
takast á við lífið,“ sagði Iðunn. I
sögunni er greint frá sex stall-
systrum, en upphafið er það að
frönsk dugga með bólusóttarsjúk-
linga leggst að. Þeir eru færðir í
sóttkví í biskupsstofu í Laugar-
nesi. Eftir að þeim batnar og er
hleypt úr sóttkvínni er stofan inn-
sigluð vegna smithættu, en þrem-
ur árum seinna ber þar að tvær
konur á leið úr þvottalaugunum.
„Þær villtust í þoku og leita skjóls
inn í biskupsstofu þar sem þær
finna dýrðina, allt fullt af líni, lök-
um og sængum og líka koppum,
sem var mikill auður fyrir þetta
fólk á þessum tíma. Þær eygja
strax möguleikann á að koma þess-
um auði í verð með von um betra
líf. Þær bretta því upp ermamar
og hefja umsvifamiMl vöruskipti,"
sagði Iðunn.
Þær Kristín og Iðunn hafa búið
til sína eigin sögu upp úr þessari,
en hin eiginlega saga Jóns Helga-
sonar nær yfir átta ár, þ.e. frá því
að bólusóttin kemur og þar til búið
er að dæma konurnar fyrir þjófn-
58 hlutu styrk menningar-
málanefndar borgarinnar
Borgarleikhúsið
*
Aheyrnar-
próf fyrir
leikara
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ, Leikfélag
Reykjavíkur og Félag íslenskra leik-
ara efna til áheymarprófa fyrir leik-
ara þriðjudaginn 23. mars kl. 17 í
Borgarleikhúsinu.
Ekki er um að ræða prufu fyrir
nein sérstök verkefni, heldur gefst
leikurum tækifæri til að kynna sig
leikhússtjórum og leikstjórum at-
vinnuleikhúsanna, leikhópa og kvik-
mynda. Prufumar eru opnar öllum
menntuðum leikurum, ekki áhuga-
leikurum, og er ætlast til að hver og
einn flytji 5-10 mínútna langt eintal
og syngi eitt lag. Nauðsynlegt er að
koma með nótur af viðkomandi lagi
fyrir undirleikara, segir í fréttatil-
kyninngu.
Leikarar skrái sig á skrifstofu Fé-
lags íslenskra leikara.
MENNINGARMÁLANEFND
Reykjavíkurborgar hefur úthlutað
styrkjum til menningarmála fyrir
árið 1999. Á fjárhagsáætlun var til
ráðstöfunar 28.228.000 krónur en að
þessu sinni var 58 einstaklingum og
fyrirtækjum veittur styrkur, sam-
tals 27.650.000 kr.
Bókmenntir o.fl.: Börn og bækur-
íslandsd. IBBY kr. 100.000 og Sögu-
smiðjan 300.000.
Dansverk: Fél. ísl. listdansara kr.
300.000, íslenski dansflokkurinn
300.000 og Lipurtré 300.000.
Kvikmyndir: Ragnar Hall-
dórssyVilhjálmur H. Vilhjálmsson
vegna myndarinnar: Vigdís Finn-
bogadóttir sýnir Island kr. 400.000.
Leiklist: Kaffileikhúsið í Hlað-
varpanum, 700.000 kr. 400.000 kr.
hlutu Baal, C leikhúsið, Einleikhús-
ið, Hugleikur, íslenska leikhúsið,
Möguleikhúsið, Sigurður Sigurjóns-
son og Strengjaleikhúsið. Kr.
300.000 Augnablik Listafélag,
Hvunndagsleikhúsið, Leikhópurinn
Perlan og Virago. 200.000 kr. hlutu
Halaleikhópurinn, Leikhópurinn Á
senunni, Leikfélagið Snúður og
Snælda og Skemmtihúsið. 150.000
kr. hlaut Hrólfur og Narfi.
Myndlist: Félag Nýlistasafnsins
og Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
2.500.000. Myndhöggvarafél. í Rvík
kr. 2.000.000. Gallerí Ingólfsstræti
8 kr. 700.000. Kári Bjarnasson
600.000. ísl. menningarsamsteypan
art.is. 300.000. Guðjón Bjarnason
og Listvinafélag Hallgrímskirkju
200.000. Tónlist: Caput og Jazz
FÍH kr. 2.000.000. Kammersveit
Reykjavíkur kr. 1.200.000. Tón-
skáldafélag íslands kr. 1.000.000.
Söngsveitin Fílharmónía kr.
400.000. Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna og Kammermúsikklúbbur-
inn kr. 350.000. Dómkórinn í
Reykjavík, Gradualekór Lang-
holtskirkju, Islensk tónverkamið-
stöð, Lúðrasveitin Svanur og
Lúðrasveit verkalýðsins kr.
300.000. Musica Antiqua kr.
250.000. Borgarkórinn, Félag ís-
lenskra tónlistarmanna, Poulenc
hátíð, Skagfirska söngsveitin, Tríó
Reykjavíkur sf. og Ung Nordisk
Musik UNM, kr. 200.000. Dúóið
Mallika og McQueen og Camilla
Söderberg kr. 150.000. Steinunn
Birna Ragnarsdóttir kr. 100.000.
Ymislegt: Esperantistafélagið og
Viðeyingafélagið kr. 100.000. Bóka-
safn Dagsbrúnar kr. 50.000.