Morgunblaðið - 19.03.1999, Page 22

Morgunblaðið - 19.03.1999, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU GRÆNLAND Kolmunni veiðist nú syðst á Hatton-Rockall svæðinu, um 250 sjómíiur V afírlandi. Tvö ísl. skip eru á leið á þau mið. Veiðisvæði 'yZ KOLMUNNANS Hrygningarsvæði Hrygnir i mars (syðst) og april (norðar), nálægt botni á um 300-500 m dýpi, i landgrunns- brúnum út af Bretlandseyjum 30*V. 20“V 65°N FÆREYJAR Tveir á kolmunna á Hatton-bankann JÓN Kjartansson SU og Þorsteinn EA eru á leiðinni á kolmunnaveiðar á Hatton-Rockall svæðið, um 230 til 250 mílur vestur af Irlandi. Siglingin tekur um tvo sólarhringa og verður Jón væntanlega kominn á miðin í kvöld eða nótt en Þorsteinn þarf að taka troll og verður aðeins seinna á ferðinni. Hörður Már Guðmundsson skip- stjói'i á Þorsteini sagði að mokveiði væri á svæðinu og nefndi í því sam- bandi að Jón Sigurðsson, sem dótt- urfyrirtæki Samherja í Færeyjum rekur, væri á leið til Færeyja með fullfermi eftir skamma útivist. Emil Thorarensen útgerðarstjóri Hraðfrystihúss Eskifjarðar sagði að fregnir hefðu borist af góðum kolmunnaveiðum íra og Skota á svæðinu, sem er utan lögsögu Bret- lands, undanfarnar vikur. Reyndar hefðu verksmiðjur á Shetlandseyj- um, í Skotlandi og írlandi ekki und- an og því væri ástandið varðandi löndun á þessum stöðum ekki gott en fyrir vikið væri óvíst hvar yrði landað. m Dagskráin þín er komin út Höfum lítinn aðg*ang að lögsögu annarra ríkja ÍSLENDINGAR hafa lítinn aðgang að fískveiðilögsögu annarra ríkja en Færeyja. Hins vegar standa yfír samningar um aðgang okkai- að Barentshafinu. Að öðru leyti eru engir samningar í gangi við aðrar þjóðir um aðgang að lögsögu þeirra. Okkur er þó heimilt að stunda veiðar á norsk-íslenzku síldinni innan lög- sögu Jan Mayen og innan lögsögu Noregs í mjög litlum mæli. Jafn- framt heimila tvíhliðasamningar sem byggðir eru á loðnusamningnum við Norðmenn og Grænlendinga okkur að veiða loðnu innan lögsögu Jan Mayen og Grænlands. Okkur er loks heimilt að veiða úr kvóta okkar á út- hafskarfa innan lögsögu Grænlands. Getum ekki veitt kolmunna innan lögsögn ESB Milli Islands og Færeya er í gildi gagnkvæmur fiskveiðisamningur, sem heimilar Færeyingum veiðar á botnfiski, loðnu, kolmunna og norsk- íslenzku síldinni innan lögsögu okk- ar. A móti getum við veitt kolmunna og norsk-íslenzku síldina innan lög- Engar viðræður um aðgang við aðra en Norðmenn og Rússa sögu Færeyja, 2.000 tonn af annani síld og 1.300 tonn af makríl. Við höfum engar veiðiheimildir inn- an lögsögu Evrópusambandsins og getum því ekki stundað þar veiðar á kolmunna, þegar veiðin stendur sem hæst. Hann hrygnir út af Skotlandi og Irlandi og er mjög veiðanlegur þá. Á hinn bóginn hefur ESB heimildir til veiða á 3.000 tonnum af karfa á ákveðnum svæðum innan lögsögu okkar. Þær heimildir koma í stað að- gangs okkar að mörkuðum ESB og 30.000 tonna af loðnu, sem ESB færir til okkar frá Grænlendingum. Flæmski hatturinn og Síldarsmugan Samkvæmt fjölþjóðlegu sam- komulagi höfum við svo rækjuveiði- heimildir á Flæmska hattinum og í síldarsmugunni svokölluðu megum við veiða norsk-íslenzku síldina, kolmunna og 2.000 tonn af makríl, samkvæmt síðustu ákvörðun NEAFC, fiskveiðinefndar Norðaust- ur-Atlantshafsins. Islands greiddi atkvæði gegn þeirri samþykkt, en ekki er ljóst enn hvort verður mót- mælt formlega, enda er frestur til þess ekki runninn út. Okkur er svo heimilt að stunda veiðar á úthafínu fyi-ir sunnan okkur austur að lögsögu ESB. Á því svæði er meðal annars Hatton-banki, sem okkur er frjálst að veiða á eftir að Bretar hættu að miða lögsögu sína við klettadranginn Rockall. Á þessu svæði getum við einnig stundað tún- fiskveiðar. Færeyingar hafa gert samninga við fleiri þjóðir en okkur um gagn- kvæmai' fiskveiðiheimildir. Þannig hafa þeir meðal annars samið við Rússa, Norðmenn og Evrópusam- bandið og geta því stundað veiðar á kolmunna innan lögsögu ESB gegn veiðiheimildum ESB innan lögsögu Færeyja. Refsing felld niður Dómsuppkvaðning í ákæru ríkislögreglustjórans fyrir að tilgreina Island ranglega sem upprunaland sjávarafurða FYRRVERANDI starfsmaður Fisk- iðjunnar Skagfirðings hf. á Sauðár- ki'óki var sýknaður af kröfum ákæruvaldsins og refsing tveggja fyrrverandi starfsmanna fyrirtækis- ins var felld niður í gær þegar kveð- inn var upp dómur í ákæru ríkislög- reglustjóra á hendur þremenningun- um fyrir brot gegn tollalögum og al- mennum hegningarlögum með því að hafa sammælst um að tilgreina Is- land ranglega sem upprunaland í út- flutningsskýrslum sjávarafurða og á umsóknum um ERU. 1 fiutnings- skírteini. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá eru tildrög málsins þau að Fiskiðja Sauðárki'óks ehf. og síðar Fiskiðjan Skagfii’ðingur (breytt nafn á sama fyrirtæki) seldi m.a. fiskaf- urðir úr rússnesku hráefni til Bret- lands og var Island tilgi'eint sem upprunaland í níu skipti frá október 1994 til mars 1995. Heildarmagn þorsk- og ýsuafurða var rúmlega 238 tonn af þorski og um 5,2 tonn af ýsu. Þetta kom í Ijós við rannsókn toll- varða frá Tollgæslu Islands og Evr- ópusambandinu í júní 1995 en einnig það að allt útflutningsbókhald fyrir- tækisins var í lagi og engin tilraun gerð til að hylma yfir með hvaða hætti var staðið að fyrmefndum út- flutningi. Eftir rannsóknina var lagður tollur á Gíslason Fishselling i Hull, viðtakanda afurðanna, 98.366 pund, en í september 1995 var breskum tollayfirvöldum gi-eint frá því að Fiskiðjan Skagfirðingur myndi greiða tollinn sem hún gerði í júní árið eftir. Þá bættust við viður- lög, 35.000 pund, vegna innflutnings- ins, en eftir að hafa meðtekið greiðsl- una féllu Bretar frá málsókn á hend- ur Gíslason Fishselling. Skýrslur voru teknar af tveimur ákærðu í ágúst og desember 1996. Með bréfi í mars 1996 sendi ríkistoll- stjóri ríkissaksóknara málið til með- ferðar. I lok september 1996 sendi ríkissaksóknari málið aftur til ríkis- tollstjóra með ósk um frekari rann- sókn á nokkrum þáttum. í ágúst 1997 svaraði ríkistollstjóri og í sama mánuði sendi ríkissaksóknari ríkis- lögreglustjóranum málið til meðferð- ar. 9. október 1998 var gefin út ákæra í málinu, en aðalmeðferð þess hófst hjá dómþingi Héraðsdóms Norðurlands vestra á Sauðárkróki 16. febrúar sl. og var framhaldið 25. febrúar. I niðurstöðum dómsins kemur m.a. fram að ekki telst sannað að ákærðu hafi allir þrá' sammælst um fyrrnefndan útflutning með íyrr- greindum hætti. Hins vegar telst sannað að ákærðu Einar Svansson fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrir- tækisins og Magnús Brynjar Erl- ingsson íyrrverandi markaðsstjóri hafi staðið að ákvörðuninni og teljist því aðalmenn en ákærði Ingimar Jónsson fyrrverandi fjármálastjóri teljist ekki aðalmaður og ekki telst sannað að hann hafi verið virkur þátttakandi í ákvörðuninni. Þar sem ekki var kært fyrir hlutdeild var hann sýknaður. I niðurstöðum kemur enn fremur fram að meðferð málsins hafi dregist úr hömlu og engin tilraun hafi verið gerð af hálfu ákæruvaldsins til að skýra dráttinn sem sé vítaverður. Við ákvörðun refsingar var horft til 77. gr. almennra hegningarlaga. Ákærðu Einai' og Magnús Brynjar högnuðust ekki persónulega á brot- inu og viðurlög vegna þess hafa verið greidd að fullu. Ekkert var gert til að dylja brotið af hálfu ákærðu og þeir voru samvinnuþýðir við rann- sóknina. Með hliðsjón af refsilækk- unai'ástæðum „og sérstaklega með tilliti tfi dráttar í málinu þykir rétt að refsing þeirra verði látin niður falla þrátt fyrir að brot þeirra hafi varðað mikla hagsmuni." I dómsorði segir m.a. að ákærðu Einar og Magnús Brynjar greiði 350.000 kr. hvor í málsvarnarlaun og þriðjung hvor af 350.000 króna máls- sóknarlaunum. Málsvarnarlaun skip- aðs verjanda Ingimars greiðist úr ríkissjóði sem og þriðjungur annars sakarkostnaðar. Halldór Halldórs- son dómstjóri kvað upp dóminn. Gengur vel í Boston HIN árlega sjávarútvegssýning í Boston er nú haldin í 17. sinn og hófst hún síðastliðinn þriðju- dag. Alls taka um 750 fyrirtæki frá 30 löndum þátt í sýning- unni, þat' af 16 íslenzk fyrir- tæki. Á sýningunni er kastljós- inu einkum beint að sjávaraf- urðum, en einnig kynna fyrir- tæki framleiðslubúnað, kæli- búnað, flutningaleiðir og svo framvegis. Gert er ráð fyrir að hátt í 15.000 gestir komi á sýn- inguna í ár. Að sögn Berglindar Stein- þórsdóttur hjá Útflutningsráði Islands hefur vel til tekizt með íslenzka sýningarbásinn og eru íslenzku fyrirtækin yfirleitt ánægð með útkomuna. Hún segir sýninguna mikilvæga þótt beinar sölur á sýningunni sjálfri séu fátíðar. Menn komi einkum til að sýna sig og sjá aðra. Hún segir sýninguna með svipuðu sniði og undanfarin ár en hún taki einkum mið af am- erískum sjávarafurðamarkaði. Berglind segir mikið af rækjuafurðum á sýningunni í ár, líkt og áður, einnig séu smokkfisk- og skelafurðir áber- andi. Þá skipi fullunnar afurðir sífellt stærri sess á sýningunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.