Morgunblaðið - 19.03.1999, Page 26

Morgunblaðið - 19.03.1999, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Aðstoðarutanríkisráðherra Slóveníu á fslandi Skilyrði NATO- aðildar uppfyllt Ernest Petric aðstoðarutanríkisráðherra Slóveníu segir í samtali við Hrund Gunnsteinsddttur að Slóvenar vonist eftir að umsókn þeirra um aðild að NATO verði brátt tekin fyrir. ERNEST Petric, aðstoðarutanríkisráðherra Slóveníu, átti í vikunni viðræður við Halldór Asgrímsson utanríkisráðheiTa og embættis- menn utanríkisráðuneytisins um stuðning Is- lands við aðildarumsókn Slóveníu að Atlants- hafsbandalaginu (NATO). Mikið undirbún- ingsstarf fer nú fram á vegum utamikisráðu- neytis Slóveníu þar sem aðildarríki banda- lagsins eru sótt heim og leitað er eftir stuðn- ingi þeirra við að Slóveníu verði boðin aðild að NATO innan tíðar. Stefnt er að því að ljúka undirbúningsstarfmu fyrir hátíðarfund NATO, sem haldinn verður í Washington í apríl, í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá stofn- un bandalagsins. Petric segir Slóveníu vel í stakk búna til að gerast aðili að Atlantshafsbandalaginu, þar sem ríkið uppfylli þau skilyrði sem sett eru til inngöngu. „Slóvenía stendur best að vígi af þeim ríkj- um sem óskað hafa eftir aðild að NATO, aðal- lega vegna þeirra umbreytinga sem landið hefur gengið í gegnum á liðnum árum og leitt hafa til þess pólitíska og efnahagslega stöð- ugleika sem nú ríkir í Slóveníu,“ sagði Petric í samtali við Morgunblaðið. Fundurinn á Islandi farsæll Petric sagði fund sinn með Halldóri As- grímssyni hafa verið farsælan, þar sem Hall- Morgunblaðið/Áadís ERNEST Petric, aðstoðarutanríkisráð- herra Slóveníu, sótti Island lieim í vikunni, m.a. til að leita eftir stuðningi íslenskra stjómvalda við inngöngu Slóveníu í NATO. dór hefði „fullvissað hann um að Island muni alvarlega íhuga að samþykkja aðild Slóveníu að NATO.“ „Allir fullvissa okkur um að Slóvenía sé efst á lista yfir þau ríki sem næst fá inn- göngu,“ sagði Petric og bætti því við að þar sem slóvenska ríkisstjómin væri sífellt minnt á þessa staðreynd sæi hún ekkert í vegi fyrir því að Slóveníu yrði boðin aðild bráðlega. Aðspurður sagði Petric Slóvena hafa von- ast til að fá inngöngu á sama tíma og Pólland, Ungverjaland og Tékkland. „Við gerðum okkur vonir um að verða fjórða landið í þeim hóp. En þar sem rætt hafði verið um að annaðhvort þrjú eða fimm lönd fengju aðild, var ákveðið að fresta aðild Slóveníu og Rúmeníu að bandalaginu." Þegar Petric var spurður hvort ríkisstjórn Slóveníu vonaðist til að boð um aðild yrði lagt fram á hátíðarfundinum í Washington og að jafnframt yrði tilgreint það ár sem ríki mættu búast við að fá boð um inngöngu, svaraði Petric: „Að minnsta kosti fyndist mér eðlilegt að einhver inki, þ. á m. Slóvenía, yrðu tilnefnd til aðildar til að draga úr þeirri óvissu sem ríkh- um það hvort eða hvenær næstu ríki fái aðild að bandalaginu," sagði Petrik. Sýna þarf að dyrnar standi opnar Petric sagði brýnasta verkefni NATO í dag tengjast stækkun þess. Hann sagði gífurlega mikilvægt að fullvissa umsækjendur um að „dyrnar að NATO stæðu opnar“ í stað þess að auka þá spennu sem nú ríkir annars vegar meðal ríkja sem óska eftir aðild og hins vegar í samskiptum Rússlands og aðildarríkja NATO. Aðild Slóveníu að NATO yrði til að draga úr þessari spennu sem skapast hefur meðal umsækjenda og sýna fram á það í verki að stækkun bandalagsins væri á dagskrá, að sögn Petrics. Petric sagði það einnig mikilvægt að við stækkun bandalagsins yrði gætt ýtrustu var- kárni gagnvart rússnesku ríkisstjórninni, þar sem hún telur öryggi Rússlands ógnað með stækkuninni. I því sambandi sagði Petric það geta orðið „farsæla lausn“ að Slóvenía yrði næsta aðildamkið þar sem landið ógnaði ekki öryggi Rússa, hvorki í sögulegu né landfræði- legu tilliti. Höfundar spillingar- skýrslu verjast gagnrýni Brussel. Reuters. TVEIR meðlimir hinnar óháðu sér- fræðinganefndar, sem felldu fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) með skýrslu sinni um spill- ingu og óábyrga fjármálastjóm innan hennar, kvöddu sér hljóðs í gær til að verja skýrsluna gegn gagnrýni sem komið hefur fram á hana. Jacques Santer, fráfarandi forseti framkvæmdastjórnarinnar, hefur lýst henni sem „ósann- gjarnri“. „Evrópuþingið fól okkur þetta verkefni og mér sýnist ekki að það sé ósátt við þá vinnu sem við skiluð- um,“ sagði Walter van Gerven, pró- fessor við háskólann í Löwen í Belgíu, í viðtali við belgíska dag- blaðið Le Soir. Santer gagm-ýndi skýrslu óháðu sérfræðinganna fimm, sem lögð var fram á mánudag, fyrir að sverta alla framkvæmdastjórnina vegna einstaka tilfella sem fundizt hefðu um óreglu og frændgæzku. „Ef hann stendur í þessari trú, þá er það vegna þess að hann hefur ekki skilið það sem hefur gerzt,“ sagði Pierre Lelong, forseti stjóm- ar frönsku ríkisendurskoðunar- stofnunarinnar í samtali við belgíska blaðið La Libre Belgique. Lelong sagði nefndina hafa bent á hve alvarlegur vandi fælist í því að framkvæmdastjórninni séu falin verkefni sem hún sé ófær um að sinna. „Framkvæmdastjómin er ekki til þess gerð að stýra beint hundruðum samninga við ferða- málasamtök, svo dæmi sé tekið,“ sagði Lelong, sem um tíma var for- seti endurskoðunarstofnunar ESB. „Að hrinda af stað áætlun, til dæmis um aðstoð við munaðarlaus böm í Rúmeníu og að fela einkafyr- irtæki að sjá um verkefnið og velja þá sem njóta skulu góðs af opin- bera fé - það er ekkert annað en brjálæði," sagði Lelong. EÞ og ríkissljórnir eiga hluta af sökinni Van Gerven, fyrrverandi yfirsak- sóknari hjá Evrópudómstólnum, sagði að Evrópuþingið og ríkis- stjórnir ESB-landanna yrðu að axla hluta ábyrgðarinnar á hrópandi „ósamræmi milli þeirra stefnumiða sem ákveðin voru og þeim fjármun- um og mannafla sem ráðstafað var til að hrinda þeim í framkvæmd," en slíkt ósamræmi hefði einkennt ýmis þeirra verkefna sem fram- kvæmdastjórninni hefðu verið falin. Báðir vísuðu þeir Lelang og van Gerven því á bug, að átt hefði verið við texta skýrslunnar á síðustu stundu, eins og Edith Cresson hefði haldið fram. I fjölmiðlum varð hún í gær fyrir enn frekari gagnrýni. Cresson og þeir meðlimh’ fram- kvæmdastjórnarinnar aðrir sem sættu mestum ámælum fyrir vinnu- brögð sín í skýrslu sérfræðinganna voru varaðir við því að taka við því fé sem þeim stendur til boða sam- kvæmt rausnarlegum starfsloka- samningi. Sagt er að þessi greiðsla sé að minnsta kosti 14 milljónir króna. Forystumenn Evrópuþingsins munu á mánudag taka ákvörðun um hvort sérfræðinganefndin haldi áfram vinnu að annarri skýrslu, sem uppranalega stóð til að yrði unnin um þær aðferðir sem fylgt hefur verið hjá framkvæmdastjórn- inni við gerð verktakasamninga. \ua ló"pizzci m/oilt oó 5 óleggjum og 2 I. of gosi 12"pizzo m/ollt oó 5 óleggjum og 21. of gosi IU Á í’i í! k «/i nQuegiscííQQu 12"pizzo m/ollt oó 5 óleggjum og 1/2 I. of gosi 16"pizzci meó allt nö 5 áleggjum 12"pizzo meó ollt oó 5 áleggjum mm 16"pizzo m/allt oó 5 áleggjum og skommtur of brouóstöngum 12"pizzo m/ollt oð 4 áleggjum og skommtur af brouóstöngum 1.399kr l,199kr 799kr 554 ...fín sending! 999- 899kr 1.499- 1.199- G600 Kópavost Opið (úla dagafrá 11.30 til 23.30 S Reuters Irakar mótmæla viðskiptabanni ÍRAKAR virtu flugbann Samein- uðu þjóðanna að vettugi í gær, þriðja daginn í röð, með því að senda flugvél fulla af múslimum í pflagrímsferð til Mekka. Um 18.000 írakar hafa einnig safnast saman við landamærin að Sádi- Arabíu og sakað Sameinuðu þjóð- irnar um að seinka áætlunum sfn- um um fjárhagsstuöning við pfla- grímsferðir íraskra múslitna til Mekka. Irakarnir ganga hér frá mótmælaborðum þar sem við- skiptabanninu á írak er inótmælt. Vilja að Suu Kyi heimsæki eiginmann sinn Rangoon. Reuters. HERFORINGJASTJORNIN í Búrma kvaðst í gær ætla að íhuga hvort verða ætti við beiðni Bretans Michaels Aris, eiginmanns stjórnar- andstöðuleiðtogans Aung San Suu Kyi, um vegabréfsáritun til að geta heimsótt eiginkonu sína. Stjórnin sagði hins vegar að skynsamlegra væri að Suu Kyi færi til Englands til að heimsækja hann þar sem hann væri fársjúkur og þyldi ekki ferða- lagið. „Stjórnin hefur lagt til að Suu Kyi, sem er við mjög góða heilsu, fari til Englands og verði við beiðni hans um að hitta hann áður en hann deyr,“ sagði í yfirlýsingu frá herfor- ingjastjórninni. „Hún hefur hingað til neitað að fara.“ Óttast að fá ekki að snúa aftur Stjórnin hefur lengi leitað leiða til að losna við Suu Kyi úr landinu vegna lýðræðisbaráttu hennar. Hún hefur ekki farið frá Búrma í ellefu ár og óttast að henni verði ekki leyft að snúa aftur fari hún þaðan. Ólík- legt er talið að hún geri það nú, þrátt fyrir veikindi eiginmannsins. Herforingjastjórnin hefur neitað að veita Aris vegabréfsáritun síð- ustu þrjú árin. Vinir fjölskyldunnar segja að hann sé að deyja af völdum krabbameins, sem greindist fyrst í blöðruhálsi og hefur nú borist í lungun. Þeir segja að sem stendur sé hann ekki fær um að ferðast til Búrma jafnvel þótt hann fái vega- bréfsáritun. Hann hyggist hins veg- ar gera það ef ástand hans batni þrátt fyrir efasemdir um að hann þoli svo langt ferðalag. Herforingjastjórnin kvaðst vilja veita Suu Kyi „alla þá hjálp sem möguleg er“ til að hún geti heimsótt eiginmann sinn. Ekki kom þó fram í yfirlýsingunni hvort henni yrði leyft að snúa aftur til Búrma fari hún til Englands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.