Morgunblaðið - 19.03.1999, Page 29

Morgunblaðið - 19.03.1999, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1999 29 Ferð á ferð á Hvammstanga þær systur. Vatnsberarnir voru nokkurs konar fjölmiðlar þess tíma, þeir báru ekki bara vatnið milli húsa heldur líka sögur og fyrir góða sögu var gjaman laun- að með svonefndum sögubita. Vatnsberamir fengu ekki endilega greitt fyrir störf sín í peningum heldur var gaukað að þeim ýmsu smálegu, mat og fatnaði og vom þeir af þeim sökum iðulega skrautlega til fara. Iðunn og Kristín eru sammála um að gaman hafi verið að sjá leikrit sitt lifna á sviðinu og sam- starfið við alla sem að koma hafi verið einstaklega skemmtilegt og gefandi. Vel á annan tug leikara tekur þátt í sýningunni og þá flytur Tjarnarkvartettinn tónlist- ina ásamt leikhópnum, en hún er í takt við tíðarandann. Lögin hafa verið sungin inn á geisla- plötu og er hún væntanleg innan skamms. Góðar minningar úr Samkomuhúsinu Um heilmikið sviðsverk er að ræða, að sögn þeirra systra, og skiptingar snúnar, enda var leik- ritið skrifað með stærra svið í huga. Málin eru leyst með farsæl- um hætti, þær segja Kolbrúnu og Elínu Eddu leikmyndahönnuð hafa fundið afar heppilegar lausn- ir og aldrei séu dauðir punktar í sýningunni, á meðan á skiptingu stendur er tónlistin í öndvegi. „Petta er alveg yndislegur hópur sem tekur þátt í uppfærslunni og andinn er mjög góður, það leggja sig allir fram um að gera sitt besta og eru svo jákvæðir," segja þær Kristín og Iðunn. Aður hefur Leikfélag Akureyrar sýnt barna- leikrit þeirra Eyrnalangir og ann- að fólk en það var árið 1989. Pær eru því ekki alveg ókunnar gamla Samkomuhúsinu á Akureyri, en auk leikritanna sem félagið hefur sýnt hafa þær báðar stigið á fjalir hússins. Léku báðar með Leikfé- lagi Menntaskólans á Akureyri á sínum tíma og höfðu gaman af. „Það er alltaf svolítið eins og að koma heim að koma í Samkomu- húsið og vekur góðar minningar.“ Með hlutverk í leikritinu fara Katrín Þorkelsdóttir, Margrét Ákadóttir, Helga Vala Helgadótt- ir, Anio Freyja Járvelá, Guðmund- ur Haraldsson, Þráinn Karlsson, Sunna Borg, Aðalsteinn Bergdal, Hjörleifur Hjartarson, Jón St. Kri- stjánsson, Katla Margrét Þor- geirsdóttir, Ólafur Guðmundsson, Agnar Jón Egilsson, Michael Jón Clarke, Kristján Hjartarson, Kri- ptjana Arngrímsdóttir og Rósa Kristín Baldursdóttir. Lýsingu hannar Ingvar Björnsson og Kolfinna Knútsdóttir sér um leik- gervi. LEIKLIST Leikflokkurinn llvaninistanga ÁRIÐ 999, EÐA KEMUR ÞÉR ÞAÐ VIÐ? Leikrit í þremur þáttum. Höfundur og leikstjóri: Hörður Torfason. Tón- list og leikhljóð: Hjörtur Howser. Leikmynd: Hörður Torfason, grímur, skart: Massimo Santanicchia, Hörður Torfason. Ljós: Gústaf Danfelsson, Karl Eggertsson. Búningar: Rebekka saumastofa/Ingibjörg og Dóra, Sig- urlaug Þorleifsdóttir, Magnúsfna Sæ- mundsdóttir, Bára Garðarsdóttir, Auðbjörg Magnúsdóttir, Guðrún Matthíasdóttir. Leikendur: Júlfus Guðni Antonsson, Elín íris Jónasdótt- ir, Hallfríður Ósk Ólafsdóttir, Ragn- heiður Eggertsdóttir, Björn Sigur- valdason, Jón Helgi Birgisson. Sýning í félagheimilinu á Hvammstanga 16. mars. FYRST er lugtarljós þarna inni og gul skíma í bakið á okkur áhorf- endum frá anddyrinu. Svo skellur á myrkur. Kolniðamyrkur. Félags- heimilið á Hvammstanga er stórt hús og hátt til lofts inni í því og þess vegna kemst þar mikið myrkur fyr- ir þegar slökkt hefur verið á blóð- rauðum lugtunum sem hanga hátt á veggjum og minna á lugtirnar sem maður hafði með sér út í fjós í gamla daga nema ljósið úr þessum lugtum er úr rafmagni. Fyrir fram- an mig á fremsta bekk sitja tveir krakkar og þau þegja ógurlega í myrkrinu og ekki minna þegar uppi á sviðinu, hátt uppi á háu sviðinu, fyrir miðju og til beggja hliða, týrir í eitthvað sem vaggar, vaggandi týru. Svo rofai' til á sviðinu og það grillir í þriggja metra háar verur og þótt þær séu framandlegar eru þær ekki ógnvekjandi og ki-akkarnir andvarpa og eru fengir því að það er þó ekki Landsvirkjun sem hefur klikkað heldur er Hörður Torfa að fremja þann galdur sem hann kann best, að taka mann með sér í ferða- lag. Og þannig ferðast Hörður helst, úr myrkrinu í ljósið með því að minna okkur á manngildið sem er ekki óþörf áminning og reyndar alltaf tímabær án þess að vera upp- áþrengjandi því Hörður man eftir breyskleikanum í okkur öllum og gerir góðlátlegt gys að honum og umber hann. Enginn prédikun hér, hvergi brennisteinsdaunninn. Sið- ferði trúbadorsins syngur, æpir ekki. En það er fleira en leikritið sjálft, orðin á pappír, sem er ættað úr smiðju Harðar og ber ótvíræð höfundareinkenni hans sem skap- andi listamanns. Með dyggri og smekkvísri aðstoð búningahönnuða, leikmyndasmiða, ljósamanna og já, skósmiðs hefur hann gert leikmynd sem er ljómandi, skær eða dökk eftir því sem efni standa til, trú- verðugust þegar hún er fjærst þeim raunveruleika sem yfirleitt er sett- ur inn fyrir gæsalappir Leikararn- ir eru ekki ýkja margir og fær hver þeirra nokkuð gott tækifæri til að sýna hvað í honum býr. Framsögn er nokkuð áfátt hjá þeim flestum, eins og reyndar alltaf má búast við í áhugaleikhúsi, en Júlíus Guðni Ant- onsson er prýðilegur sem Maðurinn með stórum staf, grunnhygginn, tækifærissinnaður, ofbeldissinnað- ur, og sömu sögu er að segja um Hallfríði Ósk Olafsdóttur í hlut- verki álfsins og Elínu íris Jónas- dóttur í hlutverki þræls og engils, en í hlutverki þrælsins náði Elín að draga einkar skemmtilega fram spaugilegar hliðar persónunnar. Um hvað fjallar svo þetta leikrit? Því ætla ég ekki að ljóstra upp hér, en segi þó að hér er sett á svið ferðalag með manndómsraunum og valkostum um líf. Þótt ýmislegt megi finna að byggingu verksins, framvindu þess, skírskotunum og úrvinnslu á minnum, er vel þess virði að leggjast í ferðlag þess vegna. Þeir sem koma norður yfir heiði eða vestan að eiga þess kost að fá sér kvöldverð í Staðarskála, sem er orðinn að táknmynd þess sem enn er íslenskt við ísland í hugum sumra okkar bestu skálda. Það er nautn að ferðast um land- ið að vetrarlagi. Himinninn er stjörnubjartur. Norðurljósin dansa. Mjöllin er mjallhvít. Klisjur verða aftur að sannindum í þessu lands- lagi. Mann langar til að taka kyrrð- ina með sér í poka heim. Upplýst kirkjan á Melstað er. Eins og bæ- irnir sem blika í hlíðum og vogum, þarf hún ekkert komment. Það gufar upp af sundlauginni í Hvammstanga í kvöldfrostinu. Beint upp. Þegar þú stígur út úr bílnum marrar undir fæti. Það eru engir keppinautar um það hljóð. Og þó. Leiksýningin er að hefjast. Guðbrandur Gíslason www.velaverk.is Sogdæluherfi s. 568 3536 Viðskiptamenn athugið! Verslunin verður lokuð á morgun, föstudaginn 19. mars vegna árshátíðar starfsfólks. Opnum aftur á mánudaginn kl. 8.00. FOSSBERG Skúlagötu 63, sími 561 8560 VICHY VORTILBOÐ FRÁBÆR KAUPAUKI! - SLÁÐU TIU Skemmtileg taska með 3 góðum lúxusprufum fylgir hverju keyptu andlitskremi í Vichy* • Lift Activ Nuit - næturkrem 5 ml. - nýtfi • Lift Activ Yeux - augnkrem 3 ml. • Eau de Vichy - Vichy vatnið 30 ml. Fæst eingöngu í apótekum VICHY. HEILSULIND HÚÐARINNAR SjKvöld- og helgartilboð: BRflUTflRHOLTI 22 SIMl 551-1690 HLAÐBORÐ SÆLKERANS Frjálst val: Súpa, salatbar 03 heitur matur, margar tegundir. kr.890.- SJAVARREJTA FAHTASIA (3 tegundir af ferskum fiski dagsins), m/kryddgrjónum og tveimur tegundum af sósu. AÐEINSKR. 1.590.- Grilluö NAUTALUND m/gljáðu graenmeti og bernaisesósu. AÐEINSKR. 1.890.- Bamamatseðill fyrir smáfólkið! Öllum þessum gómsætu réttum fylgirsúpa, brauðbar, salatbar og svo ísbarinn á ettir. 'Verði^fkkun aíyóÆr/ ‘VohÓ oelkomin ! POTTURINN OG Grillaður LAMBAVÖÐVI með bakaðri kartöflu og sósu að eigin vali. aðhnskr.1590,- Hunangsgljáð KJÚKUNGABRINGA borin fram með rifsberjasósu og avocado. AÐÐNSKR.1.650.- @rillaður SKOTUSELUR m/sjávarréttasósu og hvítlauksbrauði. AÐÐNSKR. 1590.-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.