Morgunblaðið - 19.03.1999, Page 30
30 FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VAXTAR-
BRODDAR
MYNDLIST
Rádhús Rcykjavíkur
HÚSAGERÐ,
INNANHÚSSHÖNNUN
og IÐNHÖNNUN
TÍU UNGIR ARKITEKTAR
og HÖNNUÐIR
Til 23. mars. Opid frá kl. 8-19 alla
virka daga, frá kl. 12-18 um helgar.
RÁÐHÚSIÐ býður upp á at-
hyglisverða sýningu þessa dagana
á lokaverkefnum ungra arkitekta,
innanhússhönnuða og iðnhönnuða,
sem stundað hafa framhaldsnám
erlendis. Þau Hafsteinn Isleifsson,
íva Rut Viðarsdóttir, Laufey Agn-
arsdóttir, Sigríður Anna Eggerts-
dóttir, Steinunn Halldórsdóttir og
Steinþór Kári Kárason, í samvinnu
við Adrian Kramp, Sverri Ágústs-
son, Tinnu Gunnarsdóttur og Val-
dísi Vífilsdóttur bregða upp teikn-
ingum, módelum og fullunnum
kjörgripum af ólíkum viðfangsefn-
um, allt frá skipulagningu heilla
byggingasvæða ofan í persónuleg-
ar hirslur fyrir smámuni.
Það verður að segjast eins og er
að alltof lítið er gert af því að opna
augu almennings fyrir mikilvægi
hönnunar, húsagerðar og hvers
kyns skipulags bygginga. Framtak
á borð við þessa sýningu er af
skomum skammti. Því er það
þakkarvert þegar svona sýning er
sett upp þótt ýmislegt vanti til að
hún geti talist fullnægjandi í alla
staði. Það er til dæmis ósköp lítið
af upplýsingum að hafa um hina
ágætu félaga því einungis fylgir
fjölritaður pési með sýningunni
sem verður að teljast rýrt þegar
tekið er tillit til vinnunnar sem
liggur í gögnunum og uppsetningu
þeirra.
En vonandi er þetta bara byrj-
unin á frekari og víðtækari kynn-
ingum á íslenskri hönnun og húsa-
gerðarlist. Það er löngu kominn
tími til að snúa vöm í sókn og hefja
öflugt upplýsingastarf í þessum
efnum. Austursalurinn í Ráðhúsinu
- systursalur hin vestari, sem hýsir
íslandskortið góða - er ágætur til
þeirra hluta, eins og sannast á
þessari og fleiri sýningum sem þar
hafa verið haldnar.
Sýningin Vaxtabroddar er
greinilega kostuð af nokkmm fyr-
irtækjum sem séð hafa sóma sinn í
að styðja framtak tímenninganna.
Það er auðvitað frábært þegar
einkaaðilar sjá sér fært að styðja
kynningu af þessum toga. Um leið
hlýtur það að vera þakklátt þegar í
hlut eiga jafnágætir kraftar og áð-
urnefndur hópur. Tökum sem
dæmi Motorsport Laufeyjar Agn-
arsdóttur, sem hún gerði í Þránd-
heimi 1998. Góð hugmynd og fín
útfærsla einkennir uppsetningu
hennar.
Hugmynd Sverris Ágústssonar
um Listaskóla í Laugamesi, unnin
við Tækniháskólann í Delft í
Hollandi, 1998, er með eindæmum
Dagskráin þín er komin út
17.-30. mars
Spáð í spilin
fyrir afhendingu
Óskarsverðíaunanna.
FRÁ sýningunni Vaxtarbroddar - sýningu tíu arkitekta og hönnuða - í Ráðhúsi Reykjavíkur.
MÓDEL Sverris Ágústssonar af Listaskóla í Laugarnesi.
vönduð og vel úr garði gerð. Ef-
laust byggir Sverrir hugmynd sína
á umræðunni um Listaháskóla, því
bogalaga tenging sjálfstæðra
bygginga á býsna vel við um þrjá
til fjóra listaskóla sem reyna að
sameinast á akademísku plani. Sp-
urningin er hvort skoða megi lista-
skóla Sverris sem innlegg í um-
ræðuna um Listaháskóla Islands,
eða hvort Laugamesið verði end-
anlega fyrir valinu sem grundvöll-
ur hans. En vissulega færi vel um
nemendur og kennara í frábærri
húsaröð Sverris.
Hafsteinn ísleifsson, frá
Institutto Europeo di Design í
Róm, sýnir skemmtilega útfærslu á
siglingaklúbbi á Tíber-fljóti, meðan
Tinna Gunnarsdóttir vinnur merki-
lega hugmyndaríkar öskjur sem
hún kallar Handraðar, 1997, sem
MA-verkefni í iðnhönnun frá Dom-
us Academy, einnig á Italíu. Fagur-
legt tréverk hennar rímar ágætlega
við voldugt borðstoíúborð Valdísar
Vífilsdóttur, úr mahóní og smíða-
jámi, sem hún hannaði 1998 við
Motolina-háskólann í Mexíkóborg.
Þessi fátæklegu dæmi af sýn-
ingu tímenninganna sanna hve
mismunandi hefð og áhersla hinna
ólíku landa, þar sem hópurinn hef-
ur stundað nám sitt, eykur á ríki-
dæmið í íslenskri nútímahönnun og
húsagerð. Fyrir næstu sýningu af
þessu tagi er það lágmarkskrafa að
vegleg sýningarskrá fylgi með ítar-
legum upplýsingum um listamenn
og tillögur þeirra.
Halldór Björn Runólfsson
SUS efnir
til ritgerða-
samkeppni
SAMBAND ungra sjálfstæð-
ismanna efnir til ritgerðasam-
keppni undir yfirskriftinni
Frelsispenninn. Hún er ætluð
fólki á aldrinum 16-20 ára og
er meginþema keppninnar
mikilvægi frelsisins.
Við mat á innsendu efni
verður litið til stíls, rökleiðslu,
málfars og annars þess sem
prýtt getur góða ritsmíð. Efn-
ið skal ekki vera lengra en 7
bls. SUS áskilur sér rétt til
birtingar á öllu innsendu efni,
segir í fréttatilkynningu.
Skrifað skal undir dulnefni
en nafn og heimilisfang látið
fylgja með í lokuðu umslagi
merktu: Frelsispenninn, Háa-
leitisbraut 1, 105 Reykjavík.
Skilafrestur rennur út 8. apríl
Dómnefnd skipa Björn
Bjamason menntamálaráð-
herra og formaður dómnefnd-
ar, Margrét Friðriksdóttir,
skólameistari MK, Eyrún
Magnúsdóttir, formaður Nem-
endaféalgs Kvennaskólans,
Birgir Tjörvi Pétursson, rit-
stjóri Stefnis, og Helga Bach-
mann leikkona.
I verðlaun eru eitt hundrað
þúsund krónur. íslandsbanki
styrkir keppnina.